24 stundir - 31.05.2008, Page 13

24 stundir - 31.05.2008, Page 13
24stundir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 13 Lögregla hefur handtekið þriðja manninn í tengslum við áralanga misnotkun á börn- um sem talið er að viðgengist hafi á barnaheimilinu Haut de la Garenne á eynni Jersey. Fleiri bein og tennur úr börn- um voru grafin upp í einu kjallaraherberginu á barna- heimilinu um síðustu helgi og hafa nú um fjörutíu slíkir lík- amspartar fundist frá því að upp komst um málið í febrúar síðastliðnum. Alls hafa 160 manns greint frá því að þeir hafi verið beittir ofbeldi á barnaheimilinu og segir lögregla að um fjörutíu séu grunaðir um brotin. aí 341 rússneskur hermaður framdi sjálfsvíg á síðasta ári og er ein helsta ástæðan talin vera slæm meðferð á nýliðum. Interfax hefur eftir Sergei Fridinski, saksóknara Rúss- landshers, að þetta jafngildi því að herinn hefði misst heilt herfylki vegna sjálfsvíga. Altalað er að margir nýliðar í rússneska hernum hljóti mjög slæma meðferð, bæði af hendi yfirmanna og annarra her- manna. Auk þess er talið að langdvalir á afskekktum stöð- um, þar sem hermenn fá ekki að hafa mikil samskipti við fjölskyldu og vini, skýri einnig þessa háu sjálfsvígstíðni. aí Japönsk kona hefur verið handtekin eftir að upp komst að hún hafði búið í skáp á heimili manns án hans vit- undar. Lögregla fann hina 58 ára Tatsuko Horikawa í skáp á heimili 57 ára manns í bænum Fukuoka eftir að sá varð tor- trygginn þar sem matur hafði reglulega horfið úr ísskáp hans um nokkurt skeið. Maðurinn kom þá fyrir myndavélum sem sýndu kon- una á ferð í íbúðinni þegar hann hafði brugðið sér af bæ. Svo virðist sem konan hafi bú- ið í skápnum í eitt ár með hléum. aí Barnaheimilið á Jersey Annar maður handtekinn Rússneski herinn Fleiri hungruð fremja sjálfsvíg 58 ára japönsk kona Kona kemur út úr skápnum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hafði stutta viðdvöl á Íslandi í gær, á leið heim frá fundi um málefni Íraks sem hald- inn var í Svíþjóð. Fundaði hún með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og snæddi hádegisverð með Geir Haarde forsætis- ráðherra. Utanríkisráðherrarnir ræddu meðal annars málefni kvenna og kynnti Ingibjörg hugmyndir Íslands um að standa fyrir rekstri heimasíðu kvennasamtakanna Women’s Leadership Net- work, sem Rice átti þátt í að stofna. Ennfremur ræddu þær friðarferlið í Mið- Austurlöndum, aðgerðir Nató í Afganistan og varnarmálasamstarf ríkjanna tveggja. „Sambandið við Ísland hefur byggst á sameig- inlegum gildum og það hefur byggst á mik- ilvægu varnarsamstarfi,“ sagði Rice á blaða- mannafundi í Höfða. „Það var ekki eingöngu mikilvægt til að tryggja öryggi Íslands, heldur Nató alls þegar kalda stríðið stóð sem hæst.“ Fagnaði Rice því að samskipti ríkjanna væru að þróast í takt við nýja tíma. Það hefði nú leitt til þess að Ísland stýrði nú eigin varnarmálum. Á fundinum kynnti Ingibjörg nýsamþykkta ályktun Alþingis um að fordæma mannrétt- indabrot og hvetja bandarísk yfirvöld til að loka fangabúðunum í Guantanamo. Rice mótmælti því harðlega að mannréttindabrot væru stund- uð í fangabúðunum, sem hún sagði geyma stór- hættulega menn sem erfitt væri að koma fyrir annars staðar. „Ég mæli með því að áður en fólk fellir dóm um Guantanamo skuli það kynna sér skýrslu sem ÖSE lét gera,“ segir Rice og bauðst til að vísa þingheimi á skýrsluna til lesningar. andresingi@24stundir.is Utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimsækir Ísland Fagnar sambandi milli ríkjanna Hádegisverðurinn Geir Haarde býður Rice velkomna í Ráðherrabústaðinn. Nú þarf kvennalandsliðið í handbolta á stuðningi að halda til þess að vinna Rúmena og komast alla leið á Evrópumótið í Makedóníu. ÍSLAND – RÚMENÍA Mætum á völlinn og hvetjum stelpurnar áfram! Pósturinn styrkir A-landslið kvenna í handbolta Laugardalshöll Sunnudaginn 1. júní kl. 15:00 Aðgangur ókeypisHV ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA /i lo v e d u s t - 0 8 -1 0 6 3

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.