24 stundir


24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 18

24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a Þótt stimpilgjöldin séu lítill hluti af heildarverði íbúðar eru þau töluvert stærri hluti af útborguninni. Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Frumvarp til laga um afnám stimpilgjalda fyrir þá sem kaupa sína fyrstu fasteign var samþykkt á Alþingi á fimmtudag. Jákvætt skref en ekki nóg „Stimpilgjöld eru tvenns konar, annars vegar er stimpilgjald vegna láns til fasteignakaupa sem er 1,5% af láninu og hins vegar 0,4% af fasteignamati eignarinnar sem greidd eru við þinglýsingu. Það eru vonbrigði að það seinna sé ekki líka afnumið eins og ríkisstjórnarsáttmálinn kveður á um,“ segir Grétar Jónsson, framkvæmdastjóri Félags fast- eignasala. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, segir engin hagfræðileg rök fyrir því að fólk þurfi að greiða eitt og hálft prósent af upphæð láns fyrir að ríkið stimpli það. „Þetta er úrelt skattheimta og aðeins tímaspurs- mál hvenær hún verður afnumin að fullu.“ Þensluáhrif ólíkleg Aðspurðir um áhrif afnámsins á markaðinn segja forstöðumenn greiningardeilda bankanna þau verða smávægileg. „Það liggur fyrir að þeir sem hyggjast kaupa sína fyrstu íbúð munu væntanlega bíða með að ganga frá kaupsamningi þar til fyrsta júlí en ég er ekki viss um að þetta hafi nein stór áhrif,“ segir Ásgeir. Ingólfur Bender, forstöðumað- ur Greiningar Glitnis, segir af- námið ekki hafa áhrif á verðið. „Þetta eykur ekki svo kaupmátt þeirra sem koma nýir á mark- aðinn að það raski verðþróun eða veltu á markaði á næstunni.“ Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Lands- bankans, segir afnámið liðka fyrir á markaði. „Þó að stimpilgjöldin séu lítill hluti af heildarverði íbúð- ar eru þau töluvert stærri hluti af útborguninni. Hins vegar er markaðurinn erfiður og því hefur afnámið tæplega þensluáhrif.“ Hún bendir á að verðbólgan hafi mikil áhrif á markaðinn og svo verði áfram. „Þess vegna verða áhrifin meiri í haust þegar verð- bólgukúfurinn hefur gengið yfir.“ Hætta á ofmati Aðspurð um hvort sú bið sem varð í vor eftir tilkynningu um hvenær stimpilgjöldin yrðu af- numin hafi haft neikvæð áhrif á markaðinn segir Edda Rós óvissu alltaf erfiða. „Við megum samt ekki ofmeta áhrifin af þessu. Fasteignaverð er að lækka um allan heim og þar er ekki um að kenna óvissu um af- nám stimpilgjalda eða þróun Íbúðarlánasjóðs,“ segir hún. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á vidskipti@24stund- ir.is Frír stimpill en sama verð  Hagfræðingar meta áhrif afnáms stimpilgjalda lítil Stimpilgjöld Eru 1,5% af lánsfjárhæð. ➤ Ef annað hjóna er að kaupa ífyrsta skipti, en ekki hitt, fell- ur helmingur gjaldsins niður. ➤ Nóg er að hafa átt hluta affasteign til að missa réttinn. ➤ Ekki er kveðið á um það í lög-unum hvort sá sem aðeins hefur átt fasteign erlendis teljist til fyrstuíbúðarkaup- enda eða ekki. Segir fjár- málaráðherra að viðkomandi yrði skilgreindur sem slíkur þar sem hann hafi ekki áður nýtt réttinn hér. AFNÁM STIMPILGJALDA MARKAÐURINN Í GÆR            ! "#                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   '    01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                                          : -   0 -< = $ ' >5?@A?@@ 3@4B@C?5 3@5B>34BA >?@AB@@ >334>3AA4> 3AA?3@B >>>?3>3D BC>5AD3?A 544>A4>5? 4?D34@@ >5A?3@3? >?D4C?DD3 5A4?@@ ?>@?@5B3 >AD5@@@ @ A4C@DDA ?C?CCA ?DC?B , DB5BCD3 , , , , , 4?BC@@@@ , , 4ECA 3AE45 >@E>> , >DE3@ A@E4@ A@E5@ DDAE@@ A5E>@ C5E@@ ?E45 >>E3@ 3EAB CBE5@ >EAD 4EBC A>4E@@ >5B5E@@ 3@5E@@ , >5BE@@ , , , , , 53D@E@@ , 5E@@ 4EC4 33E@@ >@E>C , >DE35 AAEC5 A@E4@ DDDE@@ A5EA@ C5ED@ ?E4C >>E3D 3E3A CCE>@ >EAC 4EC? A>CE@@ >5CBE@@ 3>>E@@ >E>@ >4AE@@ >EB@ A>E@@ DE@@ , , 5?5@E@@ , 4E5@ /   - 3 >> 5@ > 5C 3 D 4@ ?> 3 >@ >B > 5 A , 4 > > , >? , , , , , ? , , F#   -#- 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B AC5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B 3@5A@@B A@5A@@B 3@5A@@B >@3A@@B B5A@@B >45A@@B 4>AA@@D AABA@@D 3@5A@@B A45A@@B D3A@@B "   ● Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Glitnis, fyrir um 1,3 milljarða króna. ● Mesta hækkunin var á bréfum Færeyjabanka, eða 2,86%. Bréf Eimskipafélagsins hækkuðu um 1,46% og bréf SPRON um 0,87%. ● Mesta lækkunin var á bréfum Bakkavarar, eða 2,83%. Bréf Glitn- is lækkuðu um 1,42% og bréf Straums-Burðaráss um 1,23%. ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,10% í gær og stóð í 4.747 stig- um í lok dags. ● Íslenska krónan styrktist um 0,34% í gær. ● Samnorræna OMX40- vísitalan hækkaði um 1,03% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækk- aði um 0,24%, en þýska DAX- vísitalan hækkaði um 0,59%. Bakkabræður Holding B.V. hafa keypt réttinn að nær öllum nýjum hlutum í Exista hf. af Kaupþingi. Kaupverðið miðast við lokagengi Exista 29. maí 2008, sem var 10,12 krónur á hvern hlut. Réttur Kaupþings náði yfir 1.301.769.147 nýja hluti, eða sem nemur 9,18% af heildarhlutafé Ex- ista hf. og þá er fyrirhuguð hlutafjárhækkun félagsins tekin til greina. Kaupþing gekk að tilboði Bakkabræðra um kaupin á hlutum bankans, sem eru 1.271.961.953, eða 8.97 % en af því leiðir að eignarhlutur Bakkabræðra Holding B.V. í Exista helst óbreyttur eftir útgáfu nýrra hluta í Exista varðandi yfirtöku á Skiptum hf. ts Kaupa réttinn af Kaupþingi Halli á vöruskiptum við útlönd á fyrstu fjórum mánuðum ársins nam 32 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra nam hann um 25,4 milljörðum. Á þessum tíma voru fluttar út vörur fyrir 111,4 milljarða króna en inn fyrir 143,5 milljarða. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4%. Sjávaraf- urðir voru 43% alls útflutnings. Mestur samdráttur varð í útflutn- ingi skipa og flugvéla og sjávaraf- urða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli. Innflutningur jókst um 1,2%. Verðmæti vöruinnflutnings nam 1,6 milljörðum eða 1,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í inn- flutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum. mbl.is 32 milljarða vöruskiptahalli Verðbólga á evrusvæðinu jókst í maímánuði og er nú 3,6%, sam- kvæmt tölum frá hagstofu Evr- ópusambandsins. Er þetta meiri hækkun frá apr- ílmánuði en hagfræðingar spáðu og má rekja hana til hækkandi ol- íuverðs. Hefur verðbólgan ekki verið meiri á svæðinu í sextán ár, skv. hálffimmfréttum Kaupþings. þkþ Hæsta verð- bólga í 16 ár Engin niðurstaða hefur enn náðst í sameiningarviðræðum Kaupþings og Spron, en viðræður hafa staðið yfir síðan í byrjun maí. Í upphafi var gert ráð fyrir að viðræðurnar mynda taka um einn mán- uð, en ljóst er að ekki verður unnt að ná samningum innan þess tíma. „Viðræðurnar eru enn í fullum gangi. Eflaust hafa menn vanáætlað tímann sem fer í slíkar viðræður, en þetta tekur allt sinn tíma,“ segir Jóna Pétursdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá SPRON. Sömu sögu segir Jónas Sigurgeirsson hjá Kaupþingi. „Þetta er mikið og stórt ferli sem tekur meira en viku að klára. Það eina sem hefur verið ákveðið er að halda viðræðunum áfram, en við- ræðurnar hafa alls ekki strandað á neinu.“ Náist samkomulag milli fyrirtækjanna, þarf að bera sameininguna undir Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið, lánveitendur félaganna, stjórnir og hluthafa. Samningaviðræðum haldið áfram Hagnaður Haga frá 1. mars 2007 til 29. febrúar 2008 nam 527 milljónum króna sem er 24 millj- ónum minna en rekstrarárið á undan. Hefur stjórn félagsins ákveðið að ekki verði greiddur út arður til hluthafa. mbl.is Greiða ekki út ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Grill og ostur – ljúffengur kostur!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.