24 stundir - 31.05.2008, Síða 40

24 stundir - 31.05.2008, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir maður er frekur af því að það þarf að ná einhverju fram þá er það tamin og öguð frekja. Daginn eftir brást ég hinn versti við einhverju og þá kom á mig einhver allt ann- ar litur. Svona erum við bara. Fólk verður að fyrirgefa, eða að minnsta kosti þola okkur smá uppþot í þágu þess að gera alltaf betur og betur.“ Fá stjórnendur ekki oft á sig þennan frekjustimpil? „Jú, þeir eru bara venjulegt fólk. En menn þurfa að hafa skap til að skapa.“ Væntanlega hefði Söngskólinn aldrei orðið til ef stofnandinn hefði ekki haft skapið og metnaðinn til að koma honum á laggirnar. „Söngskólinn er það sem hann er af því að mér heppnaðist að laða til mín einstakt starfsfólk og kennara sem gerðu skólann að því sem hann er. Og í kringum þann hóp hefur myndast annar hópur sem í eru makarnir. Það er und- arlega þéttur hópur. Alltaf þegar eitthvað þarf að gera í skólanum; mála, þrífa, smíða eða fara eitt- hvað, þá eru makarnir alltaf boðn- ir og búnir. Hér er heldur aldrei haldin skemmtun eða samkoma án þess að makarnir komi líka. Þess vegna hefur þessi kjarni myndast í gegnum öll þessi ár.“ Tekur konan þín þá virkan þátt í þessu starfi með þér? „Já, hún vinnur hérna við Söngskólann.“ Nú útskrifast sífellt fleiri söngv- arar hér á landi og erlendis. Eru næg verkefni fyrir allt þetta fólk? „Ísland tekur bara við svo og svo mörgum. En fólk hefur leitað út fyrir landsteinana eftir atvinnu og um þessar mundir eru á milli þrjátíu til fjörutíu manns að syngja sem atvinnusöngvarar úti um allan heim, eins og á Scala, í Metropolitan, Covent Garden og Vínaróperunni. Það skemmtileg- asta sem gerðist líka við tilkomu Söngskólans er að það mynduðust sterkar og góðar söngdeildir við aðra tónlistarskóla. Í raun var Söngskólinn hvatinn að því og frá þessum skólum hafa líka komið margir frábærir söngvarar.“ Garðar Thór betri söngvari Áttu þér líf fyrir utan tónlistina? Önnur áhugamál? „Allt mitt líf snýst í kringum tónlist. Ég er heppinn að því leyti. Ég átti hesta og hesthús hér áður fyrr, fór á hestbak á hverjum degi og hirti hestana mína kvölds og morgna í tæplega þrjátíu ár. Reið hestum yfir landið á sumrin og svona. Svo eltist það af mér. Ég hef engan áhuga á golfi ennþá og hafði aldrei áhuga á veiði. En tón- listin var alltaf til staðar, hvort sem það var í formi vinnu eða áhugamáls. Fjölskyldan og börnin eru líka öll í tónlist.“ Sonur þinn, Garðar Thór, er ald- eilis að gera garðinn frægan þessa dagana … „Já, honum gengur vel. Nanna María, dóttir mín, er líka atvinnu- söngkona og núna í vor var Aron Axel, yngsti sonur minn, að taka hæsta próf sem tekið hefur verið við Söngskólann. Hann er einnig með flotta rödd en á eftir að ákveða hvað hann leggur fyrir sig; píanó, söng, tónsmíðar eða stjórn- un. Sigrún Björk, elsta barnið mitt, er kennari og sú eina sem fór ekki í músík. Börnin eru öll á fullu í því sem þau vilja gera.“ Hvor er betri söngvari – þú á yngri árum eða Garðar Thór? „Ég hugsa að Garðar Thór hafi vinninginn þar.“ Af hverju? „Hvatinn hjá honum er jafn- mikill og hjá mér en möguleikar hans eru meiri. Hann gat farið að vinna við þetta miklu fyrr en ég. Ég þurfti alltaf að skapa mína möguleika og var að gera svo margt annað um leið. En hann fékk þetta tækifæri strax. Hann var gripinn glóðvolgur og það var unnið með hann. Ég verð nú samt að segja að við erum ansi líkir. Hann er ekki ósvipaður mér á sín- um tíma. Ég sagði Garðari Thór einhvern tímann fyrir löngu að það væri pottþétt að hann yrði föðurbetrungur. Hann var mjög sár yfir því og sagði: „Góði pabbi, láttu ekki svona!“ Svo hafa hin börnin alla burði til að gera það sama og hann.“ Hefurðu hvatt börnin þín eða latt í þessa átt? „Ég let engan og hvet þau frekar ef ég finn að þau eru á þessari leið. Ég segi ekki „þú ættir“ eða „þú skalt“, heldur bara „vá, en gaman, gerðu það“. Ef þau vildu fara í aðra átt myndi mig ekki dreyma um að beina þeim í átt að músíkinni. Aron Axel, þessi yngsti, ætlaði sko ekki að fara út í tónlist. Ekki séns! Svo var hann allt í einu kominn á kaf í þetta og hafði drukkið tónlistina í sig án þess að við vissum.“ Af viðtölum að dæma virðast krakkarnir ykkar óvenju náin ykkur foreldrunum … „Nei, er það?“ Kannski vegna þessa sameigin- lega áhugamáls? „Já, það gæti reyndar verið. Til- viljunin hagaði því þannig að þeirra áhugamál eru þau sömu og okkar. Okkar atvinna varð svo þeirra atvinna. Kannski lengist sambandsþráðurinn við það? Mér finnst svo gaman á meðan krakk- arnir mínir nenna ennþá með mér í bíó! Í gamla daga fannst mér æð- islegt þegar þau spurðu: „Viltu koma í bíó, pabbi?“ Ég ætla til dæmis ekki á nýju Indiana Jones- myndina fyrr en við strákarnir getum farið allir saman. Strákarnir og Nanna. Við erum búin að ákveða það. Ég segi aldrei nei ef þau biðja mig um að gera eitthvað með þeim. Er á meðan er. Eftir því sem ég eldist verðum við krakkarnir meiri félagar.“ Ber Garðar Thór lagaval og ann- að undir þig? „Hann ber það ekkert endilega undir mig en hann hringir í okkur og segir okkur hvað er að gerast hjá honum. Spyr okkur ráða ef hann þarf á því að halda. Hann er sem betur fer mjög sjálfstæður og svo er hann vel giftur og á góðan félaga og ráðgjafa í Tinnu, kon- unni sinni. Hann getur líka hringt í systkini sín, sem eru í yngri kantinum og fíla kannski eitthvað annað en við. Svo ber hann sitt- hvað músíkalskt undir okkur for- eldrana. Krakkarnir gera þetta öll. Við tölum saman og þau spyrja gjarnan ráða.“ Hvað finnst þér um svokallað „crossover“ popptónlistar og klass- íkur, eins og Garðar Thór hefur verið að syngja? „Það getur bara verið af hinu góða. Það að verða sérfræðingur í einhverju ákveðnu er algjörlega af hinu góða, finnst mér. Hvort sem það heitir að fara í þessa áttina, hina áttina eða báðar. Svona nokkurs konar A, B, BA eða eitt- hvað annað. Ef einhver hefur hæfileika til að gera bæði A og B þá er það af hinu góða því að þá kviknar áhugi hjá tveimur stórum hópum í báðar áttir. Þetta er orðið rosa flókið hjá mér! Tenórarnir þrír gerðu þetta. Þar af var einn sem gat þetta best og það var Domingo. Þannig náði hann til ótrúlegs fjölda fólks. Hinir tveir reyndu þetta líka. Bara t.d. með því að syngja Nessun Dorma á einum fótboltaleik náði Pavarotti hylli hundraða milljóna manna og kvenna, sem höfðu aldrei hlustað á óperur áður en urðu gjörsam- lega „húkkt“.“ Fyrir þá sem hafa aldrei hlustað á óperur, vita ekki alveg hvort þeir eru A, B eða AB en langar til að verða „húkkt“ er Carmina Burana örugglega rétta verkið til að byrja á. Kraftmikið stykki og einungis klukkutími að lengd. Fjáröflunar- og kynningartón- leikar „Carnegie Hall-kórsins“ fara fram í Langholtskirkju sunnudag- inn 1. júní kl. 20 og 22. 24stundir/Kristinn Ingvarsson a „Ég sagði Garðari Thór einhvern tímann fyrir löngu að það væri pottþétt að hann yrði föðurbetrungur. Hann var mjög sár yfir því og sagði: „Góði pabbi, láttu ekki svona!“ Uppáhaldsópera: Otello eftir Giuseppe Verdi. Domingo eða Pavarotti? Domingo.Við erum jafn- gamlir og hann er ennþá að syngja, auk þess sem hann stjórnar óperum og óp- eruhúsum. Uppáhaldssöngkona: Kiri Te Kanawa er í algjörum sérflokki. Hún hefur komið hingað til að kenna og er skráður gestakennari við Söngskólann í Reykjavík. Haustið 2008 mun í fyrsta sinn á Íslandi verða boðið upp á nám til BS-gráðu í næringarfræði. Námsleiðin er svar við sívaxandi þörf fyrir fagfólk á sviði næringarfræði til að takast á við mikilvæg verkefni í samfélaginu. Námið er fjölbreytt og þverfaglegt. Það er bóklegt og verklegt og byggist á raunhæfum verkefnum. Öflugt samstarf er við háskóla og stofnanir hérlendis og erlendis.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.