24 stundir - 31.05.2008, Síða 48

24 stundir - 31.05.2008, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir Pabbi sjáðu! Ungviðið var ekki síður áhugasamt um vélarnar en þeir sem eldri eru. Mikið var um dýrðir síðastliðinn laugardag þegar Flugmálafélag Íslands stóð fyrir flugdeginum. Alls mættu um 5000 manns á svæðið, þar sem hægt var að sjá allt milli himins og jarðar er við- kemur flugi. „Tilgangurinn var að kynna allt sem snýr að flugi. Við byrjuðum í rauninni á sunnudeginum viku á undan og vorum með viðburð á hverjum degi fram að flugdeg- inum, en þar voru flugvélar af öll- um stærðum og gerðum, frá flug- módelum upp í stórar þotur,“ segir Matthías Sveinbjörnsson, stjórnarmaður í Flugmálafélag- inu. „Það var til dæmis spyrnu- keppni milli tveggja sportbíla, Porsche og Ford GT, við Pitts Bull-flugvél Björns Thoroddsen, en hún er öflugusta listflugvél landsins og er um 360 hestöfl. Þó voru það bílarnir sem höfðu bet- ur. Þá var þarna einkaþotan fræga sem forsætisráðherra ásamt fríðu föruneyti komst í fréttirnar fyrir að nota. Einnig áttu frönsku herþoturnar sem hér voru að koma, en hætt var við það á síðustu stundu.“ Ljósmyndir: Árni Sæberg og Kristinn Ingvarsson Firnafínn flugdagur Örtröð á vellinum Hátt í fimm þúsund manns komu á Reykjavíkurflugvöll og nutu flugdagsins í blíðviðri. Armur laganna Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og Fokker F-27-vél Gæslunnar tóku þátt í sýningunni. Innanlandsflugið Fokker F50 og Dash-8-vélar Flugfélags Íslands í lágflugi yfir brautina.Allt skoðað Mannfjöldinn skoðaði vélarnar hátt og lágt. Kennsluvélarnar Þrjár Piper Cub flugu eftir settum reglum yfir brautina. Í GEGNUM LINSUNA frettir@24stundir.is a Þá var þarna einkaþotan fræga sem forsætisráð- herra ásamt fríðu föruneyti komst í fréttirnar fyrir að nota.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.