24 stundir - 31.05.2008, Page 49

24 stundir - 31.05.2008, Page 49
24stundir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 49 Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Tíbeskur munk- ur að nafni Lama Tenzin hefur helgað líf sitt því að bjarga nauð- stöddum börn- um frá afskekkt- asta héraði Nepals, Dolpo. Hann var stadd- ur hér á landi fyrir skömmu á leið sinni frá Bandaríkjunum til Ind- lands og hitti þá hóp íslenskra listamanna sem hrifust af óeig- ingjörnu starfi hans í þágu barna. Listamennirnir efna til menning- arhátíðar fyrir alla fjölskylduna í Gerðubergi á morgun í þágu barnanna í Dolpo. Helga Arn- alds, myndlistarkona og brúðu- leikari, er einn listamannanna sem koma að hátíðinni. „Íbúar héraðsins Dolpo búa við mikinn skort og börnin þar hafa enga möguleika á að mennta sig. Sér- staklega eru stúlkurnar illa stadd- ar þar sem viðhorf til kynjanna eru mjög gamaldags og almennt er talið að þær geti ekki lært og að konur eigi að vera lægra settar en karlar. Eitt af því sem Lama Tenzin hefur gert er að hann hef- ur sótt nokkur börn til Dolpo, flest stúlkubörn, og flutt þau með sér til Indlands þar sem hann hefur ásamt fjölskyldu sinni stofnað heimili fyrir þau og send- ir þau í góðan einkaskóla. Mark- miðið er að þau snúi síðan aftur til Dolpo sem kennarar, læknar, hjúkrunarfólk og fleira svo þau geti veitt íbúum þar nauðsynlega grunnþjónustu og stuðlað að uppbyggingu og framförum á svæðinu,“ segir Helga. Fjölskyldudagskrá Meðal dagskrárliða á hátíðinni á morgun eru brúðusýning Bernds Ogrodniks á Pétri og úlfinum eftir Sergei Prokofiev, sýning frá Hinu íslenska töframannagildi og trúð- arnir Barbara og Gjóla. „Þetta er hugsað fyrir alla fjölskylduna, ekki síst börnin, og allir listamennirnir sem koma fram ætla að gefa vinnu sína,“ segir Helga. „Svo má geta þess að boðið verður upp á svo- kallaða bænaborðasmiðju í tíbesk- um anda fyrir börn. Það er siður Tíbeta að skrifa bænir sínar á borða og láta vindinn svo bera þá yfir lönd og höf. Með því að bjóða íslenskum börnum upp á þetta er ætlunin að innræta þeim sam- kennd með bágstöddu fólki úti í heimi og trú á að þau geti gert eitthvað til þess að hjálpa því.“ Menningarhátíð fyrir fjölskylduna Styrkja börnin í Dolpo Menningarveisla fyrir alla fjölskylduna verður haldin í Gerðubergi á morgun milli klukkan 13 og 16. Hátíðin er haldin til styrktar börnum í hinu afskekkta Dolpo-héraði í Nepal. Barngóður Lama Tenzin ásamt íslenskum börnum. ➤ Upphafskona framtaksins erGuðrún Vera Hjartardóttir myndlistarkona. ➤ Meðal annars er verið aðsafna fyrir skólabíl. Á DAGSKRÁNNI Helga Arnalds Faðir Jovica, serbneskur lista- maður og prestur í serbnesku rétt- trúnaðarkirkjunni, verður með íkonasýningu í þremur kirkjum á Íslandi í júní, safnaðarheimili Há- teigskirkju, Skálholtskirkju og Glerárkirkju á Akureyri. Sýningin í Háteigskirkju verður opnuð í dag, laugardaginn 31. maí klukkan 12. Í upphafi opnunarinn- ar verður flutt stutt lofgjörð á kirkjuslavnesku, ensku og íslensku í kirkjunni sjálfri. Lofgjörðin nefn- ist akaþist, en það orð er ættað úr grísku og merkir lof- og þakkar- gjörð. Sýningin verður í safnaðarheim- ilinu til sunnudagsins 8. júní og verður komin í Skálholtskirkju mánudaginn 9. júní og stendur þar í viku. Um miðjan júní verður hún svo komin í Glerárkirkju Íkonasýning hins serbneska Jovica Tónlistarhátíðinni Björtum sumarnóttum sem halda átti í Hveragerðiskirkju nú um helgina hefur verið aflýst vegna jarðskjálft- anna sem riðu yfir Suðurland á föstudag. Menningarmálanefnd Hveragerðis tók ákvörðun um að blása hátíðina af að höfðu samráði við almannavarnanefnd Hvera- gerðis og sýslumann Árnessýslu. Björtum sumar- nóttum aflýst MENNING menning@24stundir.is a Þetta er hugsað fyrir alla fjölskylduna, ekki síst börn- in, og allir listamennirnir sem koma fram ætla að gefa vinnu sína.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.