24 stundir - 31.05.2008, Síða 52

24 stundir - 31.05.2008, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir Róbert Marshall Að- stoðarmaður ráðherra. Því miður eru flestar sögur af mínum hrekkjum á sjó ekki fyrir viðkvæma. Sú saklausasta sem ég man eftir gerðist sumarið 9́5 skömmu eftir siglingu með Dala-Rafni til Bremerhaven í Þýskalandi. Ég og félagi minn, Kiddi Valgeirs, ákváðum að hrekkja fyrsta stýrimanninn sem gegndi þessu starfi í fyrsta sinn. Það er einmitt hluti af námi stýrimanna að geta læknað menn af kvillum ýmiss konar og eru þá kynsjúkdómar ekki undanskildir. Þannig stóð á að ég hafði keypt einhver ósköp af plastpöddum handa syni mínum sem hafði gaman af allskyns skorkvikindum. Ég sturtaði sum sé öllu pöddusafninu ofan í nærbuxurnar framan til og Kiddi sótti stýrimanninn sem ég man því miður ekki lengur hver var. Kiddi lét það fylgja að sennilega hefði Róbert náð í einhverja óáran í Þýskalandi. Þegar stýrimannsgreyið kom í klef- ann minn í fylgd Kidda bar ég mig aumlega og sagði honum að þetta liti því miður ekki vel út. Hann bar sig mannalega og sagðist öllu vanur þannig að ég sýndi honum ofan í nærbux- urnar mínar sem voru náttúrlega troðfullar af maurum, bjöllum, geitungum og margfætlum. Ég tel víst eftir þetta að við Kiddi séum meðal fárra útvalinna í heiminum sem hafa séð sálina yfirgefa mannslíkamann. Blessuðum manninum varð svo hverft við þetta að hann náfölnaði, varð svo jafn skyndilega eldrauður í framan og rauk svo á dyr á eftir sálartetrinu sem hafði yfirgefið skipið þegar hér var komið sögu. Með nærbuxurnar fullar af pöddum Ég var í mínum fyrsta túr til sjós á Jóni Þor- lákssyni, gömlum nýsköpunartogara frá Reykjavík. Ég var fjórtán ára að aldri en eldri strákur hafði tekið mig í kennslustund og varað mig við ýmsum þeim klækjum sem ég yrði örugglega beitt. Ekki fór ég varhluta af tilraunum skipsfélaga minna til að senda mig allskyns erinda en mér tókst að víkja mér undan hrekkjunum. „Póstbáturinn kemur í dag,“ sagði mér einhver í heyranda hljóði. „Já, já,“ svaraði ég, „Ég skal láta sem ég trúi þér.“ „Þetta er alveg satt. Póstbát- urinn kemur alltaf á sunnudögum með nýj- ustu blöðin og selur okkur gos og sælgæti.“ Svo leið sunnudagurinn og enginn kom póstbáturinn. Svo kom annar sunnudag- urinn á sjó. Þegar ég kom í borðsalinn í kvöldmatinn áður en ég fór á næstu vakt, brá mér verulega. Menn sátu og voru að lesa nýjustu blöðin. „Var þetta virkilega satt? Var póstbáturinn þá til eftir allt saman?“ Um kvöldið kom skýringin á nýjum dagblöðum. Skipverji á togaranum Surprise hafði veikst á útstíminu og hafði verið sendur yfir til okkar sem vorum að ljúka veiðiferð. Hann hafði að sjálfsögðu tekið blöðin með sér handa frétta- þyrstri áhöfninni á Jóni Þorlákssyni. Anna Krist- jánsdóttir Vél- stjóri. Féll fyrir sögunni um póstbátinn Ég var í 25 ár á sjó og þeir sem til þekkja geta staðfest að það er undantekningarlaust níðst á nýliðunum. Þegar ég fór í minn fyrsta túr var ég til dæmis látinn trekkja togklukkurnar en það er mjög algengt nýliðaverkefni. Togklukkur eru að sjálfsögðu ekki til en ný- liðarnir fá lykil í hendurnar sem tengdur er við rafmagn. Skipstjórinn gaf mér þetta verkefni og ég stökk að sjálfsögðu til fullur áhuga og fékk þetta fína raflost. Ég lét skip- stjórann þó ekki komast upp með þetta og greip fyrsta tækifærið til þess að hrekkja hann á móti. Tækifærið kom eitt kvöldið þegar hann bað um að sér yrði færð köku- sneið með kaffinu. Ég bauðst til þess að færa honum kökuna en greip þess í stað sápu- stykki. Þegar ég kom til skipstjórans sat hann í mestu makindum og sagði mér að stinga kökunni upp í hann. Ég varð við því og stakk sápustykkinu í munninn á honum. Ég veit í raun ekki hvernig hann brást við vegna þess að ég var svo snöggur í burt. Flestir nýliðar hafa einnig verið sendir til þess að gefa kjölsvíninu en þá fer hann með matarafganga niður í kjölinn og leitar að svíni sem er að sjálfsögðu ekki til. Reynir Traustason Ritstjóri. Gaf skipstjóranum sápu í stað köku Mér er alltaf minnisstætt þegar ég starfaði sem stýrimaður undir Eggert Gíslasyni skip- stjóra. Hann var þekktur fyrir að láta allt flakka og var sérstaklega mikið á móti reyk- ingum. Eitt sinn þegar við vorum að kasta nótinni tók ég eftir því að hann hékk út um gluggann og gargaði eitthvað en ég heyrði ekki orð af því sem hann sagði. Þegar við höfðum lokið verkinu fór ég til hans og sagði að ég hefði ekki heyrt orð af því sem hann var að æpa. Þá svaraði hann: „Það er ekki nema von að þú heyrir ekkert þegar þú ert alltaf með sígarettu í munninum.“ Ég hef enn ekki áttað mig á því hvernig þetta tvennt tengist. Ég man líka eftir því að hafa hrekkt stýri- mann eitt sinn. Ég fór þá niður í skipstjórn- arklefa og notaði talstöðina til að kalla á stýrimanninn upp en þóttist vera frá dönsku landhelgisgæslunni. Ég bað hann á dönsku- skotinni ensku að leita eftir okkur á rad- arnum, hann samþykkti það að sjálfsögðu. Ég beið svo í langa stund eftir því að hann kæmi aftur en þá hafði hann reynt allt til að finna skipið en ekkert gekk. Ég þakkaði hon- um þá kærlega fyrir og sagði að greinilegt væri að huliðsbúnaðurinn okkar virkaði. Árni Bjarna- son Forseti FFSÍ. Kall frá landhelg- isgæslu Dana Eftir margra áratuga sjómennsku hef ég ansi margar sögur að segja en þó er ein sem stendur alltaf upp úr. Ég hef líklega verið um 25 ára gamall og til í allt. Á þessum tíma var ég stýrimaður á síldveiðiskipi og við lentum í smá vanda í einum túrnum. Þannig var mál með vexti að þegar við ætluðum að sigla í land eftir að hafa veitt í 3-400 tunnur kom- umst við að því að eitthvert rusl hafði flækst í skrúfunni. Skipið hristist allt vegna þessa og vélstjórinn kom hlaupandi til mín í miklu uppnámi yfir málinu. Við vorum vanir að þrasa um stjórnmál og þess háttar og ég til- kynnti honum því strax að það væri nú ekk- ert mál að skera úr skrúfunni. Hann spurði þá hvort ég ætlaði ekki að taka það að mér. Ég gat ekki skorast undan því enda átti ég hugmyndina sjálfur. Vélstjórinn sótti því beittan hníf á meðan ég klæddi mig í ullar- nærfötin en ég átti engan kafarabúnað. Sjór- inn var ekki jafnkaldur og ég bjóst við en ég var mjög stressaður þegar ég fór niður enda bjóst ég jafnvel við því að ég þyrfti að gefast upp. Það fór þó ekki svo en mér tókst að skera allt ruslið úr skrúfunni og við sigldum í land á fullri ferð. Dagbjartur Ein- arsson Útgerð- armaður. Kafaði í sjónum á ullarnærfötunum Hver er eftirminni- legasta sjó- mennskusagan þín? Íslensku sjómennirnir hafa yfirleitt verið álitnir hetjur lands- manna enda er sjórinn okkar helsta náttúruauðlind. Starfsemin á skipinu sjálfu hefur þó alltaf verið sveipuð ákveðinni dulúð enda aðeins fáir útvaldir sem komast að og sögurnar verða yfirleitt eft- ir á skipinu þegar sjóararnir koma í land. Okkur tókst þó að fá nokkra einstaklinga til að deila með okkur sögum af hrekkjum og nýliðamistökum sem lifað hafa í minningu þeirra áratugum saman. LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ lifstill@24stundir.is a Ég sýndi honum ofan í nærbuxurnar mínar sem voru náttúrlega troðfullar af maurum, bjöllum, geitungum og margfætlum.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.