24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir
Nýjasta tískan hjá kvikmynda-
verunum í Hollywood er að blása
nýju lífi í gamlar myndaseríur með
nýjum framhaldsmyndum. In-
diana Jones, Rambo, Rocky og Die
Hard eru gott merki um þessa
tísku og nú er allt útlit fyrir að
löggan Axel Foley, úr Beverly Hills
Cop-myndunum, fái að spreyta sig
aftur á hvíta tjaldinu.
Kvikmyndablaðið Variety hefur
greint frá því að Paramount-
kvikmyndaverið hyggist gera nýja
Beverly Hills Cop-mynd sem
myndi verða sú fjórða í röðinni.
Eddie Murphy mun vera búinn að
samþykkja að snúa aftur í hlutverk
sitt sem Axel Foley en samninga-
viðræður standa yfir við Brett Rat-
ner um að hann taki að sér leik-
stjórnina.
Hin fyrsta Beverly Hills Cop-
mynd leit dagsins ljós 1984 og átti
hún stóran þátt í því að skjóta Ed-
die Murphy upp á stjörnuhim-
ininn. Myndin lenti í öðru sæti yfir
tekjuhæstu kvikmyndirnar það ár-
ið, á eftir Ghostbusters, og var til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir
besta kvikmyndahandritið.
Þegar þriðja myndin kom út ár-
ið 1994 fékk hún vægast sagt slæm-
ar móttökur. Myndin þénaði ein-
ungis 44 milljónir dollara í
Bandaríkjunum og féll í grýttan
farveg hjá kvikmyndarýnum um
allan heim.
Eddie Murphy mun, sem fyrr
segir, endurtaka hlutverk sitt sem
Axel Foley en hann hefur sett það
skilyrði að hann fái að taka virkan
þátt í vinnslu myndarinnar.
Ekki er búið að ráða handrits-
höfund til að skrifa handritið að
myndinni en reiknað er með að
það verði frágengið á allra næstu
dögum. Stefnt er að því að tökur á
myndinni hefjist á næsta ári en
áætlað er að myndin verði frum-
sýnd árið 2010. vij
Framhaldsmyndatískan heldur áfram í Hollywood
Beverly Hills-löggan aftur á stjá
Mynd/Getty Images
Aftur sem Foley
Eddie Murphy vill
leggja sitt af mörkum
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@24stundir.is
Eva María Árnadóttir er ein þeirra
sem útskrifast úr fatahönn-
unardeild Listaháskóla Íslands í
dag. Eva hefur átt góðu gengi að
fagna í náminu og var meðal ann-
ars á mála hjá hinum víðfræga
Marc Jacobs í fyrra.
„Ég eyddi síðasta sumri í New
York í starfsnámi hjá Marc Jacobs.
Ég var þar í þrjá mánuði, meðal
annars við undirbúning tískuvik-
unnar í New York. Linda kenn-
arinn minn hjálpaði mér að finna
réttu aðilana og svo voru þetta
endalaus tölvupóstur og símtöl áð-
ur en þeir buðu mér að koma, sem
var alveg magnað,“ segir Eva og
bætir því við að lærdómurinn hafi
verið mikill.
„Ég var aðallega í því að skottast
út í bæ og kaupa efni, lita efni og
fleira í þeim dúr. En ég lærði mikið
og það var virkilega gaman að fá að
fylgjast með öllu þarna. Þetta er
auðvitað þvílíkt stórt og mér
fannst skemmtilegt að sjá þá
áhugaverðu og áberandi gogg-
unarröð sem þarna ríkir. Marc Ja-
cobs er sjálfur á toppnum ásamt
sínum aðstoðarmönnum en svo
eru það undirmenn og aðstoð-
armenn þeirra ásamt aðstoð-
armönnum aðstoðarmannanna.
Það var verið að halda virðingu
gagnvart okkur starfsnemunum
sem vorum neðst í fæðukeðjunni.
En Marc er hinn ljúfasti maður.“
Stefnir út í heim
Að sögn Evu gekk námið í
Listaháskólanum vonum framar
og kveðst hún full tilhlökkunar að
söðla um hjá hönnuðum heims-
borganna.
„Ég stefni á að fara út eftir ára-
mót og koma mér að hjá stórum
hönnuði. Það er náttúrlega ekki
verra að vera með meðmælabréf
frá Marc Jacobs,“ segir Eva, en hún
hefur haft brennandi áhuga á
hönnun frá blautu barnsbeini.
„Þetta byrjaði á því að maður
var að klippa út barbí og fleira. Svo
tók ég þátt í ýmsum keppnum og
vann meðal annars hönn-
unarkeppnirnar í 8.-10. bekk í
Smáraskóla. Það var mjög
skemmtilegt og ýtti frekar undir
áhugann. Ég er allavega komin á
það að ég sé á réttri hillu og mun
halda áfram að hanna.“
Eva María Árnadóttir er ungur og upprennandi fatahönnuður
Vann hjá Marc
Jacobs í New York
Í eigin hönnun Eva
María klæðist hér kjól úr
eigin smiðju.
Eva María Árnadóttir hef-
ur vakið athygli fyrir
hæfileika sína í hönnun.
Hún hefur unnið hjá hin-
um virta Marc Jacobs og
útskrifast nú með glans
úr Listaháskólanum.
Kápa Unnin úr hör.
Veski Úr útskriftarlínu Evu Maríu. Eins og sjá má er fyrirmyndin gamaldags handlóð.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þetta byrjaði á því að maður var að klippa út
barbí og fleira. Svo tók ég þátt í ýmsum
keppnum og vann meðal annars hönnunarkeppn-
inar í 8.-10. bekk í Smáraskóla.
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
20% afsláttur
af yfirhöfnum
Tilboðið gildir frá
fimmtudegi til sunnudags
Innritun fyrir haustönn 2008
Innritun fyrir haustönn 2008 stendur nú yfir. Umsóknarfrestur er til 11. júní.
Rafræn innritun fer í gegnum www.menntagatt.is. Umsóknareyðublöð fást
á skrifstofu skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu skólans,
www.fa.is.
Eftirtaldar námsbrautir eru í boði:
Bóknámsbrautir til stúdentsprófs:
félagsfræðibraut,
málabraut,
náttúrufræðibraut,
viðskipta- og hagfræðibraut.
Brautir Heilbrigðisskólans:
heilbrigðisritarabraut,
heilsunuddarabraut,
lyfjatæknabraut,
læknaritarabraut,
sjúkraliðabraut,
brúarnám á sjúkraliðabraut og
tanntæknabraut,
viðbótarnám til stúdentsprófs.
Almenn námsbraut.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans, www.fa.is. Þar er einnig
kynning á skólastarfinu, myndir úr félagslífi o.fl.
Skólinn býður upp á fjarnám allt árið.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.
Skólameistari
Hin skapmikla Naomi Campbell
hefur verið ákærð fyrir að sví-
virða lögregluþjóna á Heathrow í
apríl síðastliðnum. Eins og frægt
er orðið gerði fyrirsætan sér lítið
fyrir og hrækti á annan lög-
regluþjóninn auk þess að láta öll-
um illum látum á flugvellinum.
Var ákæran birt henni í Lund-
únum í gær, en að sögn lögmanns
hennar var henni brugðið. hþ
Naomi Camp-
bell ákærð
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744