24 stundir


24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 62

24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU Fær hugann til að fljúga og kemur tilfinningum á rót” M.K MBL Falleg, fyndin,sönn og kvenleg” V.G Bylgjunni “Ég hvet fólk til að drífa sig á leikinn og njóta” Jón Viðar DV SÍÐASTA SÝNING SUN 1. JÚN SÍÐASTA SÝNING TRYGGIÐ YKKUR MIÐA „Pff, ég fann ekkert fyrir þessu. […] Fúlt að geta ekki borið sam- an skemmdir við nágrannana. „Jú, fiskabúrið sprakk og stéttin er klofin í fernt“ – „Já baðkarið er hrunið til grunna og allir speglar skakkir“ – „Já, konan er brotin í mölv og börnin skökk.“ Og svo framvegis. Bobby Breiðholt balladofbob.blogspot.com „Aðalfundur Sálfræðingafélags Íslands fór fram í dag. [...] Fyrir tveimur dögum á samningafundi sögðu samningamenn ríkisins: „það þarf náttúruhamfarir til þess að við samþykkjum þessa kröfugerð ykkar.“ Náttúruöflin standa með sálfræðingum í kjara- baráttunni. Hafrún Kristjánsdóttir habbakriss.eyjan.is Þeim BBC-mönnum þótti það nokkuð merkilegt, sem fram kom í viðtalinu við Heiðar[Jónsson snyrti], að Miss Iceland 1959 hafi verið að halda upp á sjötugs- afmælið sitt í gær á Hótel Örk , í miðju skjálftasvæðinu, og Heiðar verið veislustjóri. Andrés Jónsson andres.eyjan.is BLOGGARINN Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is Iceland Airwaves-hátíðin stendur ekki á tryggri jörð. Þetta varð ljóst í gær þegar Eldar Ástþórsson sagði upp starfi sínu sem fram- kvæmdastjóri. „Það er áherslumunur á því hvernig ég vildi reka hátíðina og hvernig eigandi Hr. Örlygs, Þor- steinn Stephensen, vill gera það,“ segir Eldar og finnst greinilega erf- itt að láta af stöðu sinni. „Við sjáum hlutina ekki alveg eins fyrir okkur. Ég er mjög ánægður með það form sem er á hátíðinni í dag en þegar maður horfir til framtíðar um hvernig hún eigi að þróast sjáum við þetta ekki eins fyrir okk- ur. Ég held að það sé best að gefa honum sitt svigrúm til þess að gera það sem hann vill gera til þess að halda þessu áfram.“ Eldar neitaði að fara nánar út í ágreiningsmál þeirra félaga og tek- ur fram að slitin séu í góðu og að hann óski þess heitast að hátíðin lifi áfram. Stendur ekki vel Þorsteinn Stephensen við- urkennir að hátíðin sé í fjárhags- kröggum og að verið sé að draga saman seglin til að halda henni gangandi. „Þetta snýst um kjör og efna- hagslega afkomu hátíðarinnar sem er langt frá því að vera nógu trygg,“ segir Þorsteinn um brott- hvarf framkvæmdastjórans en hann ætlar sjálfur að sinna starf- inu. „Starfsfólk Hr. Örlygs er orðið sjóað og gott í því sem það gerir. En það er ekki hægt að bjóða því sömu kjör og er hægt annars stað- ar.“ Hann segir hátíðina ekki standa vel fjárhagslega. Ekki hafi gengið að fá hærri styrki og honum sé sniðinn þröngur stakkur vegna skorts á starfhæfu húsnæði. Tekjurnar hafa því ekki hækkað í samræmi við þann kostnað sem hefur verið að hækka. Bæði út af gengi og verðbólgu í landinu. Þorsteinn segir að vegna þessa verði að skera niður og minnka há- tíðina í sniðum í ár. Færri staðir, færri aðgöngumiðar og færri inn- lendar og erlendar hljómsveitir. „Við verðum að horfa á það að við séum að færa hátíðina þrjú til fjögur ár aftur í tímann, hvað þró- un varðar. Hátíðin verður samt haldin,“ lofar Þorsteinn að lokum. Fjárhagsvandræði ógna stærstu tónleikahátíð landsins Iceland Airwaves- hátíðin í hættu Eldar Ástþórsson hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Ice- land Airwaves-hátíð- arinnar. Þorsteinn Steph- ensen viðurkennir að hátíðin sé í hættu. Þorsteinn Dregur saman seglin. Iceland Airwaves Færri staðir, færri sveitir og færri miðar. HEYRST HEFUR … Eftir skjálftann í fyrradag þyrptust netnotendur á fréttasíður í von um upplýsingar. Umferðin á mbl.is var gríðarleg en notendur visir.is grípu í tómt þar sem síðan lá niðri í um tvær klukkustundir. Auglýs- ing þeirra í Fréttablaðinu í gær, með yfirskriftinni „Ég sá það fyrst á vísir.is“ þykir því spaugileg. Loka- orðin eru; „notendur vita að hverju þeir ganga þeg- ar þeir heimsækja vísi.“ Já, að hann sé hruninn. bös Og enn af jarðskjálftanum á Suðurlandi því skjálft- inn setti svo sannarlega strik í reikninginn hjá Matt- híasi Imsland og kollegum hans hjá Iceland Ex- press. Flugfélagið afhjúpaði í vikunni nýtt afþreyingarkerfi í vélum sínum og bauð fjölmiðla- mönnum til Berlínar til að kynna herlegheitin. Lítið hefur þó farið fyrir umfjöllun fjölmiðla um kerfið því lítið annað kemst að en skjálftinn mikli. vij Hljómsveitin Grjóthrun gaf út plötu í gær en nafn- giftin hlýtur að teljast nokkuð kaldhæðnisleg í ljósi atburða vikunnar. Auðvitað er um tilviljun að ræða en bassaleikari sveitarinnar er þekktur fyrir að hafa puttann á púlsinum hvað þjóðmál varðar. Þar er enginn annar en Grímur Atlason á ferð. Athygli vekur að í plötuumslaginu er sérstaklega tekið fram að platan hafi verið tekin upp án fíkniefna. bös „Það er „fokkt opp“ að koma heim til sín eftir svona. Það er eins og það hafi verið snargeðveikt partí hérna í viku,“ hrópaði Magni Ás- geirsson rokkstjarna er hann kom heim í húsið sitt í Hveragerði eftir skjálftann. Hann var á Akureyri þegar skjálftinn reið yfir og hafði stuttan tíma í gær til þess að reyna að laga skemmdir áður en hann þurfti að rjúka til Grundarfjarðar þar sem Á móti sól lék á dansleik í gærkvöldi. „Það er allt út um allt. Fólkið við hliðina á mér svaf í hjól- hýsi í nótt. Þar er útveggur sprung- inn. Þetta fór mun betur en annars staðar. Þetta er ekkert sem vert er að grenja yfir.“ Ljósakrónan í svefnherberginu hrundi á rúmið hans, myndir hrundu af veggjum, 200 geisla- diskar dreifðust yfir stofugólfið, rauðvínsflöskur splundruðust á eldhúsgólfinu og sjónvarp sonar hans eyðilagðist. „Gullplöturnar eru allar ónýtar. Svo opnaðist ísskápurinn þannig að lyktin er frekar sterk og ógeð- felld. Það fór eitt málverk eftir ömmu mína í gólfið en sem betur fer er í lagi með myndina sjálfa. Við getum orðað það svo að rammagerðin á Suðurlandinu muni hafa svolítið mikið að gera á næstunni.“ Félagar hans úr Á móti sól búa líka í Hveragerði og fóru verr út úr skjálftanum. Verst fór hjá Sævari gítarleikara þar sem skápar fóru með veggjum og allt hrundi út úr eldhússkápum. Þar á meðal rán- dýrt brúðkaupsstell sem hefur haft mikið persónlegt gildi. Magni seg- ist þó ekki geta hugsað sér að flytja. biggi@24stundir.is Allt í rusli hjá Magna eftir skjálftann Allar gullplöturnar ónýtar Magni Hristur, ekki hrærður, eftir skjálft- ann í Hveragerði. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 4 1 5 8 3 7 2 6 9 8 2 3 6 9 1 5 7 4 6 9 7 2 4 5 8 3 1 7 4 6 9 1 2 3 8 5 1 8 9 3 5 6 7 4 2 5 3 2 4 7 8 1 9 6 9 5 8 1 6 3 4 2 7 2 7 4 5 8 9 6 1 3 3 6 1 7 2 4 9 5 8 Þetta var þín hugmynd, var það ekki? 24FÓLK folk@24stundir.is a Nei, ekki nema hann drukkni kannski. Stefán, er nokkur verri þótt hann vökni aðeins? Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæð- inga, sem stóðu í gær fyrir mótmælum gegn vatnspynt- ingaraðferðum Bandaríkjamanna, með því að standa fyrir sýnikennslu í slíkum pyntingum..
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.