24 stundir - 14.06.2008, Síða 2

24 stundir - 14.06.2008, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 24 Amsterdam 14 Alicante 26 Barcelona 23 Berlín 14 Las Palmas 24 Dublin 15 Frankfurt 13 Glasgow 15 Brussel 13 Hamborg 16 Helsinki 15 Kaupmannahöfn 15 London 17 Madrid 27 Mílanó 23 Montreal 20 Lúxemborg 13 New York 21 Nuuk 9 Orlando 24 Osló 13 Genf 17 París 15 Mallorca 23 Stokkhólmur 18 Þórshöfn 10 Fremur hæg vestlæg átt. Skýjað vestanlands, en annars léttskýjað að mestu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. VEÐRIÐ Í DAG 10 10 10 7 10 Allt að 20 stiga hiti Suðvestlæg átt 5-10 m/s og rigning eða skúr- ir vestantil á landinu, en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á NA- og A-landi. VEÐRIÐ Á MORGUN 10 9 10 7 11 Rigning eða skúrir vestantil Formleg vinna fjárlaganefndar vegna fjárlaga næsta árs er ekki haf- in ennþá. „Ráðuneytin eru að gera áætlanir og tölur um tap ríkissjóðs vegna samdráttar eru ekki komnar til nefndarinnar,“ segir Ásta Möll- er, sem situr í nefndinni. Hún býst við því að hverri krónu verði velt. „Litlu verkefnin á landsbyggðinni verða í sérstakri hættu í fjárlaga- gerðinni. Nú er ekki fé á lausu í set- ur og söfn, eins og síðustu ár,“ segir Ásta. Hún segir misskilnings hafa gætt um yfirlýsingar fjárlaganefnd- armanna um Landspítala og Sundabraut. Ef hægi á verkefnum sé það vegna tæknilegra atriða og skipulagsmála, en ekki af því að forgangsröðun verði breytt. Jón Bjarnason, fulltrúi VG í nefndinni, telur sárlega skorta upplýsingar til fjárlaganefndar og telur liggja á því að nefndin fái yfirsýn yfir stöðuna. beva@24stundir.is Fjárlagavinna enn í ráðuneytunum Áætlanir í vinnslu Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is „Það er búið að boða mig í yfir- heyrslur hjá lögreglunni á mánu- daginn klukkan eitt. Þá fæ ég von- andi að vita stöðuna á þessu,“ segir Sindri Lúðvíksson, forsvarsmaður pókermóts sem haldið var á vegum vefverslunarinnar Gismo.is 16. júní 2007, eða fyrir tæpu ári. Lögreglan stöðvaði mótið, gerði ýmsa muni upptæka og lokaði salnum þar sem mótið fór fram þar sem grunur var um að mótið varðaði við ákvæði hegningarlaga. Sindri segir að búið hafi verið að lofa þeim að málinu yrði lokið í síðasta lagi innan árs. Á mánudag er liðið ár frá aðgerðum lögreglu og rannsókn á málinu er enn ekki lok- ið. Sindri segist ekki hafa fengið neinar aðrar nýjar upplýsingar um málið en vonast til að það fari að klárast. „Málið fyrir mér er búið að vera dautt lengi þannig að ég hef verið að bíða eftir þessu. Það hafa fjölmargir lögfræðingar gefið álit sitt á því og það virðast allir á einu máli um að þetta var ekki brot sem þarna átti sér stað.“ Mögulega breytingar á lögum Um 150 manns tóku þátt í mótinu og greiddi hver þeirra um fjögur þúsund krónur í þátttöku- gjald. Verðlaunaféð var því um 600 þúsund krónur alls. Mótshaldarar hafa ætíð haldið því fram að þeir hafi sjálfir lagt út fyrir öllum kostn- aði vegna mótsins. Því hafi fram- kvæmd þess ekki á nokkurn hátt verið af öðrum toga en golf- eða briddsmót þar sem hægt er að vinna til peningaverðlauna. Sam- kvæmt laganna hljóðan er það talið lögbrot að stunda fjárhættuspil sjálfum sér til framfærslu eða að hafa atvinnu af því. Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingar, bar upp fyrirspurn um pókerspilun til Björns Bjarnasonar dómsmála- ráðherra á Alþingi í febrúar. Björn upplýsti þá að hann hefði óskað eftir því að nefnd sem á að gera til- lögur um breytingar á happdrætt- islöggjöfinni myndi tryggja að ís- lensk lög kæmu til móts við mikinn og alþjóðlegan áhuga á póker. Nefndin lét nýverið vinna athugun á spilahegðun þjóðarinnar en hefur ekki skilað tillögum sínum. Pókermót eitt ár í rannsókn  Forsvarsmaður mótsins boðaður í yfirheyrslu á mánudag Fjárhættuspil? Ólöglegt er að hafa atvinnu af fjár- hættuspilum eða stunda þau til framfærslu. ➤ Pókermót á vegum vefversl-unarinnar Gismo.is var haldið 16. júní 2007. ➤ Lögreglan stöðvaði mótiðvegna þess að hana grunaði að framkvæmdin stæðist ekki lög. ➤ Rannsókn hennar er enn ekkilokið. PÓKERMÓT 16. JÚNÍ 2007 Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Í maí voru ný íbúðalán inn- lánsstofnana um 670 milljónir króna sem er um 30% sam- dráttur frá apríl. Fjöldi lánana dróst saman en það voru aðeins 76 ný íbúða- lán veitt af innlánsstofnunum í maí. Minni umsvif eru á fast- eignamarkaði því að kaup- samningar á höfuðborg- arsvæðinu voru aðeins um 260 í maí miðað við 969 á sama tíma í fyrra samkvæmt grein- ingardeild Kaupþings. áb 30% sam- dráttur lána Íbúðalán minnkuðu Greiddar tjónabætur Viðlaga- tryggingar eftir Suðurlandsskjálft- ana árið 2000 námu 2,5 milljörð- um. Á ferð fjárlaganefndar Alþingis um Suðurland í vikunni upplýstu sunnlenskir sveitarstjórn- armenn að tjónið af jarðskjálftan- um nú sé mun meira og nemi trú- lega 3 til 3,5 milljörðum. Ásgeir Ásgeirsson, forstjóri Viðlagatrygg- ingar, segir þetta ekki fráleitt þótt hann viti það ekki. „Ég myndi ætla að það væri að minnsta kosti mán- uður í að hægt verði að gefa upp eitthvað sem hægt er að standa við. Endanleg tala mun ráðast mjög af fjölda smærri tjóna á húseignum. Þær skemmdir hafa menn jafnvel ekki uppgötvað, hvað þá tilkynnt,“ segir Ásgeir. Mikilvægast sé þó að Viðlagatrygging geti örugglega bætt tjónið. Tugir starfsfólks vinna nú tjónamat á húsum. beva@24stundir.is Mun meira tjón í jarðskjálftanum en árið 2000 3,5 milljarðar minnst Þýskur dómstóll hefur dæmt bílaframleiðandann Volvo til að greiða Michael Herzog bætur vegna þrengsla. Fær Herzog um 200 þúsund króna greiðslu til að koma til móts við kostnað við að sérsmíða skó í stærðinni 48 sem komast þægilega að bensíngjöfinni. aij Fótstór og kæruglaður Dæmdar bæt- ur fyrir býfur SKONDIÐ www.IKEA.is © In te r I KE A Sy st em s B .V . 2 00 8 250,-/stk. BLOMSTER blómavasar, ýmsir litir. Ø12, H8 cm. Lifðu í lit WWW.EBK.DK Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Anders Ingemann Jensen farsími nr. +45 40 20 32 38 netfang: aj@ebk.dk Ert þú í byggingarhugleiðingum? Velta á fasteignamarkaði var tæp- lega 1,3 milljarðar í síðustu viku sem er það minnsta síðan um áramótin 2003/2004 en þá fór veltan niður í 580 milljónir. Þetta kemur fram í vikulegri samantekt Fasteignamats ríksins sem birt var á vef þess í gær. Það var í vik- unni milli jóla og nýárs en á þeim tíma ársins er lítið um fasteigna- viðskipti. Samtals var 47 kaup- samningum þinglýst á höfuð- borgarsvæðinu en í vikunni á undan var 57 samningum þing- lýst og veltan samtals tæplega 1,9 milljarðar. Á Akureyri var sjö samningum þinglýst í síðustu viku, 25 í Reykjavík, tíu í Hafnarfirði, fimm í Garðabæ, fjórum í Kópavogi, tveimur í Mosfellsbæ og einum á Álftanesi. Á Árborgarsvæðinu var nítján samningum þinglýst. mh Minnsta velta í fjögur og hálft ár Landslög lögfræðistofa vinnur nú að undirbúningi málsóknar gegn kortafyrirtækjunum Borgun og Valitor, umsjónaraðilum VISA og Mastercard, vegna samráðs þeirra. Viðar Lúðvíksson, lög- maður hjá Landslögum og einn eigenda stofunnar, staðfesti við 24 stundir í gær að málið væri í undirbúningi en sagðist ekki geta sagt til um fyrir hvaða fyrirtæki málið væri vinnslu. Kortafyr- irtækjunum Valitor og Borgun var gert að greiða 735 milljónir króna í stjórnvaldssektir vegna samráðs en bæði félögin féllust á að greiða sektina og viðurkenndu brot sín. Málið hófst með húsleit í höfuðstöðvum Valitor, sem þá hét Greiðslumiðlun, 13. júní 2006. Samráð kortafyrirtækjanna beindist gegn PBS kortaþjónust- unni, keppinauti þeirra á sviði færsluhirslu en bitnaði auk þess á viðskiptavinum kortafyrirtækj- anna. mh Undirbúa mál vegna samráðs

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.