24 stundir - 14.06.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Íbúarnir eiga kröfu til þess að bæj-
arfélagið og Vegagerðin fari eftir
deiliskipulagi. Ef þau ætla ekki að
fara ekki eftir því þá verð ég að fá
lögbann á framkvæmdirnar,“ segir
Sigurður G. Guðjónsson, lögmað-
ur íbúa í Lundi 1 í Kópavogi. Íbúar
hússins hafa staðið í deilum við
bæjaryfirvöld vegna lagningar nýs
Nýbýlavegar sem er mun nær hús-
inu en deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Sex metrum of nálægt
Sigurður segir að íbúum hafi
borist bréf fá bæjaryfirvöldum.
„Þar segir að bærinn og Vegagerðin
hafi framkvæmdarleyfi. En það
breytir engu um það að vegafram-
kvæmdir eru ekki í samkvæmi við
deiliskipulagið,“ segir hann. „Ég lét
taka út verkið eins og það stendur í
dag af landslagsarkitekum og þeir
komust að því að hringtorgið er
næstum sex metrum nær húsinu
en það á að vera samkvæmt deili-
skipulagi og vegurinn líka,“ útskýr-
ir Sigurður.
Ósáttir íbúar
„Við erum engan veginn sátt við
það sem Gunnar Birgisson bæjar-
stjóri hefur sagt,“ segir Guðrún
Hrönn Einarsdóttir, íbúi hússins
sem einnig situr bráðbirgðastjórn
húsfélags þess. „Þetta er algjörlega
á móti öllum lögum og reglum.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Nýlagning Nýbýlavegar í Kópavogi er enn umdeild þrátt fyrir sáttatillögur bæjarráðs
Íbúar íhuga alvarlega að fara fram á lögbann
➤ Kópavogsbær og Veg-argerðin eru nú að leggja nýj-
an veg við Nýbýlaveg í Kópa-
vogi.
➤ Framkvæmdin er á forræðiVegagerðarinnar en unnin
innan bæjarmarka Kópavogs.
LAGNING NÝ́BÝLAVEGAR
Lundur 1 Vegurinn er
nær húsinu en deili-
skipulag leyfir.
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Það liggur fyrir að það er mjög
mikill skortur á þjónustuúrræðum
fyrir fötluð börn,“ segir Gerður
Aagot Árnadóttir, formaður lands-
samtakanna Þroskahjálpar. „Það
eru langir biðlistar eftir skamm-
tímavistun fyrir fötluð börn mjög
víða, verst er ástandið í Reykjavík
og á Reykjanesi,“ segir hún og bæt-
ir við að það þurfi aukið fjármagn í
málaflokkinn en það sé á ábyrgð
ráðuneyta og Alþingis.
Segja þörfina töluverða
Sólveig Steinsson, sviðsstjóri
barnasviðs hjá Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík, stað-
festir að þörfin á þjónustu við fötl-
uð börn sé umtalsverð.
„SSR rekur tvö heimili fyrir börn
og var annað þeirra opnað fyrir
mánuði. Á þessum heimilum
dvelja nú 10 börn,“ segir hún.
„Á næstu tveimur árum er stefn-
an að veita fimm til sjö fötluðum
börnum til viðbótar þjónustu á
heimilum fyrir börn sem mun
mæta brýnustu þörfinni,“ segir
Sólveig.
„Við leggjum áherslu á stoð-
þjónustuna sem felst í stuðnings-
fjölskyldum og skammtímavistun.
Með opnun nýja heimilisins fjölg-
aði rýmum í skammtímavistun,“
segir Sólveig og bætir við að í því
samhengi sé ekki raunhæft að setja
fram tölur um þá sem bíða eftir
þjónustu.
Engin úrræði á Reykjanesi
Sigríður Kristjánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra á Reykjanesi, segir
búsetuúrræði fyrir fötluð börn
engin. „En ákvörðun um staðsetn-
ingu vistheimilisins sem er á svæð-
isáætlun okkar verður ekki tekin
strax,“ segir hún. Um 20 fötluð
börn eru á biðlista Svæðisskrifstof-
unnar á Reykjanesi vegna umsókn-
ar um vistheimili, en einnig eru
börn á biðlista fyrir skammtíma-
vistun, en aukið verður við hana á
næsta ári á Reykjanesi, samkvæmt
skipulagi.
Fötluð börn bíða
eftir þjónustu
Um 20 fötluð börn bíða eftir búsetuúrræðum á Reykjanesi Óljóst er hversu mörg börn
bíða í Reykjavík Skortur á fjármagni til málaflokksins að mati Þroskahjálpar
Heimili fyrir börn Nýtt
heimili fyrir börn var
opnað í síðasta mánuði í
Reykjavík.
➤ Skammtímavistun fatlaðrabarna er hugsuð sem hvíld
fyrir fjölskyldur þeirra, svo að
börn geti búið sem lengst í
heimahúsum.
➤ Stuðningsfjölskyldur fatlaðrabarna eru einnig hugsaðar
sem hvíldarúrræði.
ÞJÓNUSTUÚRRÆÐI BARNA
Hluti gagna utanríkisráðuneyt-
isins frá árunum 1945 til 1991 er
kominn til Ísafjarðar. Að sögn
Halldórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra Ísafjarðarbæjar, hefur um
nokkurt skeið verið beðið eftir
þessum gögnum fyrir vestan, en
þau verða flokkuð á Ísafirði.
Halldór segir að um sé að ræða
hluta mótvægisaðgerða ríkisstjórn-
arinnar vegna samdráttar í þorsk-
kvóta.
Á vestfirsku fréttasíðunni Bæj-
arins besta kemur fram að 26 bretti
hafi komið vestur með flutningabíl
í gærmorgun „sem er þó aðeins lít-
ill hluti þeirra gagna sem unnið
verður með, en heildarmagnið frá
utanríkisráðuneytinu er um 130
bretti“. hos
Ísfirðingar flokka gögn úr kalda stríðinu
Gögn send vestur
„Það hefur aukist að fólk komi
með gömul hjól sem hafa staðið
lengi óhreyfð inni í bílskúr eða
úti,“ segir Daði Rúnar Pétursson á
reiðhjólaverkstæði Arnarins en
hann segir að það hafi verið brjálað
að gera hjá þeim að undanförnu.
Davíð Þór Sigurðsson í Markinu
tekur undir með Daða og segir
mikið vera að gera á reiðhjólaverk-
stæðinu hjá þeim. „Þeir sem kaupa
hjól tala líka meira um að nýta
hjólin sem farartæki en áður,“ segir
hann og bætir við: „Fólk er að átta
sig á því hvað bensínlítrinn er dýr.
Það er að verða smá vitundarvakn-
ing, en fólk á Íslandi hefur notað
bílinn eins og inniskó,“ segir hann.
Pétur Þór Ragnarsson, formaður
Íslenska fjallahjólaklúbbsins, hvet-
ur fólk til að taka hjólin fram. „Ég
held að nánast hvert mannsbarn
hérna eigi reiðhjól, en þau eru oft
rykfallandi inni í geymslu,“ segir
hann. „Það er bara að pumpa að
pumpa í dekkin og byrja að hjóla,
það er sparnaður frá fyrsta degi.“
elias@24stundir.is
Bensínverðið hvetur fólk til þess að gera upp gamla reiðhjólið
Hjólin vakin aftur til lífsins
Nýtt líf Starfsmenn
Arnarins dytta að
gömlu hjóli.
Í þjónustumiðstöðinni verður
öll þjónusta bæjarfélagsins við
eldri borgara auk þjónustu
einkaaðila.
Meðal annars verða hár-
greiðslustofur, sjúkraþjálfun,
apótek, snyrtistofa og líkams-
ræktarstöð starfrækt þar.
Þjónustumiðstöðin verður
kjarni í heilu hverfi sem byggt
hefur verið í hjarta Reykjanes-
bæjar með fjölbreyttar íbúðir
fyrir 55 ára og eldri. Mið-
stöðin verður opnuð í dag við
hátíðlega athöfn.
áb
Aldraðir í Reykjanesbæ
Ný þjónustu-
miðstöð opnuð
Umboðsmaður Alþingis telur
ekki ástæðu til að gera at-
hugasemd við auglýsingu
utanríkisráðuneytisins vegna
skipunar í fjögur embætti
sendifulltrúa sem birt var í
Lögbirtingablaðinu í maí í
fyrra. Umboðsmaður ritaði þó
ráðherranum bréf þar sem
hann er minntur á að rök-
styðja ráðningar og að rök-
stuðningur samræmist ástæð-
um ráðningar. aak
Umboðsmaður Alþingis
Gerir ekki at-
hugasemdir