24 stundir - 14.06.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
„Ég er örmagna,“ sagði ung móðir sex ára fatlaðs drengs á Suðurnesjum
í samtali við 24 stundir í gær. Drengurinn er einhverfur, þroskaheftur, of-
virkur með athyglisbrest og áráttuhegðun. Það segir sig sjálft að svo fatl-
aður einstaklingur þarf mikla faglega aðstoð og umönnun allan sólar-
hringinn. Hann þarfnast úrræða tafarlaust.
Úrræðaleysi kerfisins í málum drengsins er hins vegar algert. Þar gildir
einu hvort um er að ræða ríki eða sveitarfélag.
Svörin eru fátækleg ef nokkur af hálfu kerfisins og áhrifin eru skelfileg.
Drengurinn fær ekki þá sjálfsögðu þjónustu sem bundin er í lögum um
málefni fatlaðra. Móðirin hefur þurft að hætta að vinna vegna veikinda
drengsins og aðstæðna sem skapast hafa. Og fjölskyldan líður öll fyrir.
„Það eru engin búsetuúrræði fyrir fötluð börn á Suðurnesjum,“ segir
Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Reykjanesi, í 24 stundum í dag. Og það sem verra er, það liggur ekki
einu sinni fyrir hvar slíkt heimili rís eða hvenær.
Það þarf hugrekki til að koma fram líkt og móðirin gerði og segja sögu
sína með þessum hætti. Fyrst og fremst ber þó að líta á frásögnina sem
neyðarkall móður sem hefur verið kramin andlega af kerfinu.
Því miður er sú saga sem birtist í blaðinu í gær ekkert einsdæmi.
Biðlistarnir eru langir en vita þeir sem um véla hversu langir listarnir
eru í raun?
Er vandinn ef til vill svo stór í þeirra augum að verkkvíði víkur þessu
brýna máli til hliðar? Eða hvað veldur að ekki er tekið myndarlega á í þess-
um málaflokki? Hreyfir frásögn líkt og birtist í 24 stundum í gær ekki hæt-
is hót við ráðamönnum?
Eitt er að byggja viðeigandi stofnun eða heimili,
annað að ráða fólk og reka. Það er ein sorgarhliðin á
þessu máli að umönnunarstörfin eru svo snautlega
launuð að illa gengur að ráða starfsfólk.
Það er eðlilegt að hið opinbera haldi vel utan um
málaflokkinn og standi straum af kostnaðinum. For-
gangsröðunin er hins vegar skökk meðan við þurfum
að lesa frásögn líkt og birtist í 24 stundum í gær.
Ráðherra málaflokksins, sem áður hefur sýnt vilja
til að höggva á hnúta sem upp koma í hennar ráðu-
neyti, þarf nú að sannfæra aðra ráðamenn um að taka
þurfi verulega til í málefnum fatlaðra.
Það þolir enga bið.
Jóhanna, þau
þola enga bið
Ég hef alltaf haft sérstaka óbeit á
geldkerlingunum í Sex & the City
og öllu sem þær standa fyrir.
Handtöskum,
skóm og kaffi í
götumáli. Og
þessari hrollvekj-
andi yfirborðs-
mennsku.
Ég er líka alveg
sammála könn-
uninni sem var
gerð um víða ver-
öld og sýndi að körlum finnst að-
alleikkonan vera ókynþokka-
fyllsti kvenmaður í heimi.
Þess vegna gladdist ég þegar ég sá
í blaði dóm um kvikmyndina af
Sex & the City þar sem stóð að
hún væri svo léleg að hún væri
ekki einungis á botninum, heldur
bryti hún undan sér botninn …
Egill Helgason
eyjan.is/silfuregils
BLOGGARINN
Ekki gott Sex
Ég trúi ekki öðru en að í Jónínu-
málinu svokallaða verði Kastljós
sýknað. Að í dómsmálinu sem
Jónína Bjartmarz
höfðar, með
nöfnum sonar og
tengdadóttur, þá
verði réttmæti
umfjöllunar
Kastljóss staðfest.
Ég trúi þessu
vegna þess að ég
fylgdist vel með
vinnslu þessarar umfjöllunar,
þótt ég hafi ekki komið með bein-
um hætti að henni. Ég er sann-
færður um að í þessari umfjöllun
hafi fjölmiðillinn gætt faglegra
sjónarmiða og byggt á eins vand-
aðri upplýsingaöflun og tök voru
á, og að fjölmiðillinn hafi gegnt
skyldum sínum …
Friðrik Þór Guðmundsson
lillo.blog.is
Trúi á sýknun
Austfirðingar gera sér grein fyrir
því að þótt þeir séu ánægðir með
álið þá þarf að halda áfram að
hugsa stórt. Það
þarf að stórbæta
samgöngur, bæta
menntakerfið og
þróa nýjungar í
atvinnumálum.
Um þetta snerist
umræðan m.a. á
ráðstefnunni.
Áþekk uppbygg-
ing getur átt sér stað á Norður-
landi ef tekin verður ákvörðun
um að byggja álver á Bakka við
Húsavík. Í þessum mánuði renna
út viljayfirlýsingar sem fyrirtækið
Alcoa hefur undirritað við íslensk
stjórnvöld og heimamenn á
Húsavík, auk Landsvirkjunar.
Ég gef mér það að vel gangi …
Valgerður Sverrisdóttir
valgerdur.is
Hugsa stórt
Þröstur
Emilsson
the@24stundir.is
„Fólk treystir Geir Haarde til að
fara með stjórn efnahagsmála,“
segir Ásta Möller, nefndarmaður í fjárlaganefnd Al-
þingis, og er ósammála þeim sem segja að ríkisstjórnin
sé úrræðalaus í efnahagsmálum. Forsætisráðherra
bendir á að í fjárlögum hafi verið gert ráð fyrir auknu
fé til framkvæmda sem nú sýni sig að hafa verið skyn-
samlegt, en það sé erfitt að bæta við mannaflafrekum
framkvæmdum með stuttum fyrirvara. Ráðherrann
lýsir þó áhyggjum af haustinu, bæði vegna atvinnu-
leysis og ástandsins á fasteignamarkaði.
„Fylgst með“ og „unnið að“ en fáu lokið
Forsætis- og fjármálaráðherra hafa síðustu vikurnar
heldur forðast fjölmiðlaviðtöl og þegar náðst hefur í
þá er viðkvæðið að þeir séu að „fylgjast með þróun
mála“, en hvað kemur út úr því veit enginn. Margir
óttast að hægt gangi með stóru málin rétt eins og með
hið „smávægilega“ ímyndarmál sem kennt er við eft-
irlaunaósómann. Þar eru þau skilaboð send almenn-
ingi að ekki sé hægt að ljúka máli þótt því hafi verið
lofað fyrir löngu. Staksteinar Morgunblaðsins rekja
hins vegar fræði um að stjórnmálamenn sem taki
ákvarðanir séu góðir, – betri en hinir sem geri það
ekki, jafnvel þótt sumar ákvarðanirnar reynist rangar,
þegar upp er staðið.
Öll spjót standa nú á ríkisstjórninni dag eftir dag.
Hún á að tryggja aðgang að lánsfé, afnema stimp-
ilgjöld, lækka skatta á eldsneyti, auka gjaldeyrisforð-
ann, efla Íbúðalánasjóð, ákveða opinberar fram-
kvæmdir og treysta stöðu landsbyggðarinnar með
mótvægisaðgerðum sem duga. Óljóst er um framhald
margra mála sem lengi hafa staðið á loforðalista rík-
isstjórnar sem þó telur sig hafa efnt 80% kosningalof-
orða sinna. Á meðan lamast bensínfætur og ekki síður
dísilfætur bíleigenda sem tóku áskorun ríkisstjórn-
arinnar fyrir nokkrum árum, þegar skattlagningu á
eldsneyti var breytt til að hvetja almenning til að nota
frekar dísilolíu. Ásta Möller telur ólíklegt að rík-
isstjórnin hafi gleymt þessu.
Beðið eftir réttu tímasetningunni
„Ég held að það hljóti að vera til skoðunar að jafna
skattheimtu á eldsneyti, í samræmi við fyrri áherslur,
Að gera eða gera ekki
SKÝRING