24 stundir - 14.06.2008, Page 23

24 stundir - 14.06.2008, Page 23
31.12.02 31.12.03 31.12.04 30.12.05 29.12.06 31.12.07 12.06.08 Frumvarp til laga um ríkisábyrgð vegna fjármögnunar á starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar (ÍE), dótt- urfyrirtækis Decode, að fjárhæð allt að 200 milljónir dala, um 16 millj- arðar króna á núvirði, var lagt fram í apríl 2002 af Geir H. Haarde, þá- verandi fjármálaráðherra. Um var að ræða sérstaka ríkisábyrgð til að hægt væri að fjármagna rannsóknir og verkefni til að hefja lyfjaþróun á grundvelli erfðafræði. Gífurlegar deilur urðu um þessa ríkisábyrgð og þótti mörgum það skjóta skökku við að veita einu fyrirtæki sem ynni að lyfjaþróun slíkt forskot á sam- keppnisaðila sína. Fyrirtækið Lyfjaþróun fór meðal annars fram á hliðstæða ábrygð þar sem það taldi hana skapa óeðlilega samkeppnis- stöðu ÍE um starfsfólk, aðstöðu til rannsókna, verkefni á sviði lyfjaþró- unar og fleira. Þá voru einnig þing- menn á því að ríkið ætti ekkert með að veita einkafyrirtækjum ríkis- ábyrgðir yfirhöfuð. Ríkisstjórnin stóð þó á sínu og Geir H. Haarde sagði meðal annars að mjög réttlæt- anlegt væri að veita ábyrgðina. Þessa aðstoð ætti að veita ÍE til þess að stuðla að því að fyrirtækið og þau störf sem því fylgdu yrðu hérlendis en myndu ekki flytjast til Bandaríkj- anna. Almenningur virtist þó ósam- mála því að í könnun sem Talna- könnun hf. gerði í apríl 2002 kom fram að 75 prósent landsmanna voru andvíg ríkisábyrgðinni. Ábyrgðin var þó fest í lög 23. maí 2002 með 27 atkvæðum gegn 13. Einn stjórnarþingmaður, Pétur Blöndal, greiddi atkvæði gegn henni. 23 þingmenn voru fjarver- andi eða greiddu ekki atkvæði. Enn í gildi? Til að ábyrgðin öðlaðist gildi þurfti að tilkynna hana til Eftirlits- stofnunar EFTA (ESA) til að fá úr því skorið hvort hún bryti í bága við EES-samninginn. Formleg athugun ESA dróst mjög á langinn og það varð til þess að ÍE dró umsókn sína um ábyrgðina til baka vorið 2004. Þá höfðu um tvö ár liðið frá því að veiting hennar var samþykkt á Al- þingi. Íslensk stjórnvöld drógu í kjölfarið tilkynningu sína til ESA til baka og ábyrgðin var því aldrei veitt. Heimild til veitingar ríkisábyrgð- arinnar er þó enn til í lögum. 24 stundir sögðu frá því 19. mars síð- astliðinn og við vinnslu þeirrar fréttar var leitað til kjörinna fulltrúa um álit þeirra á málinu. Þeir fengu lögmenn á nefndasviði Alþingis og sérfræðing í fjármálaráðuneytinu til að athuga hvort hún væri enn í gildi. Í svari þeirra, sem 24 stundir hafa undir höndum, stendur orð- rétt að „eftir standa hins vegar lögin og verður að telja að ráðherra hafi enn þá heimild til að veita ríkis- ábyrgð komi ný beiðni um slíkt frá ÍE“. Kári Stefánsson, forstjóri De- code, sagði í kjölfarið að hann liti svo á að ábyrgðin væri ekki í gildi þar sem fyritækið hefði aldrei feng- ið hana. Ríkisábyrgð Íslenskrar erfðagreiningar 16 milljarða ábyrgð ● Tap 2008: 26,7 milljónir dala/2,1 milljarðar króna (fyrsti ársfjórðungur) ● Tap 2007: 95,5 milljónir dala/7,6 milljarðar króna ● Tap 2006: 85,5 milljónir dala/6,8 milljarðar króna ● Tap 2005: tæpar 63 milljónir dala/ 5 milljarðar króna ● Tap 2004: tapið 57,3 millj- ónir dala/4,6 milljarðar króna ● Tap 2003: 35 milljónir dala/2,8 milljarðar króna ● Tap 2002: 130 milljónir dala/10,4 milljarðar króna ● Tap 2001: 47,8 milljónir dala/3,8 milljarðar króna ● Tap 2000: 31 milljón dala/2,5 milljarðar króna ● Tap1999: 6,6 milljónir dala/529 milljónir króna * Upphæðir í íslenskum krónum eru á núgildandi gengi. 24stundir LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 23 Haustið 2006 bárust fregnir af því að Íslensk erfðagreining (ÍE) hefði stefnt fimm fyrrverandi starfsmönnum sínum og Child- rens’ Hospital of Philadelphia (CHOP) fyrir stórfelldar iðnaðar- njósnir og margvísleg brot á ráðningarsamningum sínum. Aldrei áður hafði komið upp við- líka mál af þessari stærðargráðu hjá íslensku fyrirtæki. Mennirnir fimm voru sagðir hafa afritað og stolið mikilvæg- ustu vísinda- og viðskiptaleynd- armálum ÍE til að nýta hjá ný- stofnaðri miðstöð CHOP fyrir hagnýtar erfðamengjarannsóknir, en fjórir mannanna starfa hjá henni í dag. Sá fimmti, Jesus Sa- inz, var dæmdur hérlendis, fyrir að hafa afritað gögn frá ÍE án samþykkis. ÍE fór fram á að lögbann yrði sett á störf mannanna og starf- semi miðstöðvarinnar sjálfrar. Þá var einnig farið fram á lögbann á eyðingu gagna sem tengjast mál- inu. ÍE fór fram á háar skaðabæt- ur, greiðslu lögfræðikostnaðar og sérstakar refisbætur sem tíðkast í bandarísku dómskerfi. Flest sönnunargögnin sem ÍE tefldi fram voru í formi tölvu- pósta sem fimmmenningarnir sendu sín á milli og til starfs- manna CHOP. Þeir voru sendir frá einkapóstföngum sem höfðu verið stofnuð hjá fyrirtækjum eins og Hotmail, Yahoo og Hi- ve.is auk starfsmannapóstfanga þeirra hjá CHOP. ÍE hélt því fram að þeim væri heimilt að skoða slíkan tölvupóst á þeim grund- velli að sterkar vísbendingar hefðu verið um að mennirnir hefðu verið að stela gögnum. Hjá ÍE gilda þær innanhússreglur að fyrirtækið áskilur sér rétt til að skoða allan tölvupóst starfs- manna. Persónuvernd ákvað að taka ekki upp að eigin frumkvæði skoðun á þessu atferli ÍE. Í júní 2007 var síðan tilkynnt um það að sátt hefði náðst í mál- inu fyrir alríkisdómstóli Fíladel- fíu. Samkvæmt tilkynningu frá ÍE var sáttin gerð með samningi sem lagði ákveðnar skyldur á hendur CHOP og þeim fyrrverandi starfsmönnum ÍE sem um ræðir. Fyrrverandi starfsmönnum Decode stefnt 2006 Sakaðir um iðnaðarnjósnir Frumvarp um miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði var lagt fram á Alþingi vorið 1998. Í gagnagrunninum átti að geyma mjög víðtækar en ópersónugrein- arlegar heilsufarsupplýsingar um íslensku þjóðina sem yrðu skráð- ar á kerfisbundinn hátt í einn miðlægan gagnagrunn sem var ætlaður til úrvinnslu og upplýs- ingamiðlunar. Einn rekstraraðili átti síðan að veljast til að gera og starfrækja gagnagrunninn og átti hann að fá rekstrarleyfi til tólf ára í senn. Afar heitar umræður urðu um málið fram eftir sumri 1998 þar sem margir voru ósáttir við að mjög víðtækar upplýsingar um þá myndu fara í grunninn, yrði hann að veruleika. Breytt frum- varp var þó lagt fram í lok árs og málið samþykkt í desember 1998. Íslensk erfðagreining (ÍE), dótt- urfélag Decode, hlaut síðan rekstrarleyfi fyrir grunninum í janúar 2000, nokkrum mánuðum áður en félagið var skráð í Nas- daq-kauphöllina. Gagnagrunn- urinn hefur þó aldrei orðið til og því aldrei reynt á lögin. Dómur Hæstaréttar í nóvember 2003 við- urkenndi rétt dóttur til að synja því að upplýsingar um látinn föð- ur hennar yrðu færðar í gagna- grunninn og í kjölfarið var ráðist í endurskoðun á ákveðnum þátt- um laganna. Heilbrigðisráðu- neytið lét vinna frumvarp sem lagði til ákveðnar breytingar á lögunum en það var aldrei lagt fyrir Alþingi. Í nýlegum svörum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heil- brigðisráðherra vegna fyr- irspurnar um málið kom fram að ekkert benti til þess að svo yrði á næstunni þar sem „segja má að lögin séu í reynd dauður bók- stafur og því er ekki talin ástæða til að ráðast í endurskoðun þeirra. Að óbreyttu er því gert ráð fyrir að lögin verði felld úr gildi eigi síðar en þegar rekstrarleyfi Íslenskrar erfðagreiningar til starfsrækslu gagnagrunnsins rennur út í janúar 2012.“ Miðlægur gagnagrunnur á heilbrigðissviði ÍE hlaut rekstrarleyfi til tólf ára Grái markaðurinn var markaður með hlutabréf sem voru ekki skráð á skipulegan verðbréfamarkað. Nokkrir íslenskir bankar tók sig saman og settu af stað vefsíðu þar sem haldið var skipu- lega utan um tilboð og viðskipti á þessum markaði, enda var mik- ill áhugi á honum á þessum tíma. Þegar netbólan svokallaða sprakk um aldamótin hafði það í för með sér að mörg félaganna á gráa markaðinum féllu mikið í verði á skömmum tíma. Þegar De- code var síðan skráð á markað á mun lægra verði en í viðskiptum sem höfðu verið með bréfin hérlendis hafði það einnig afar slæm áhrif á hann. Bankar og verðbréfafyrirtæki settu strangari reglu- gerðir um viðskipti með óskráð verðbréf í upphafi árs 2001. Við það fækkaði aðilum á hinum gráa markaði mikið og þau lögðust að lokum af. Heimild: MP fjárfestingarbanki. Grái markaðurinn TAP DECODE 1999-2008

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.