24 stundir - 14.06.2008, Page 28
Móðir flýði um nótt
með átta börn sín
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Það tók Carolyn Jessops þrjú ár að
undirbúa flótta sinn frá sértrúar-
söfnuðinum FLDS, Fundament-
alist Church of Jesus Christ of Lat-
ter Day Saints, í Bandaríkjunum
með aðstoð systkina sinna sem
þegar höfðu flúið.
Hún flýði um miðja nótt fyrir
um fimm árum með öll börnin sín
átta á bíl sem var næstum því
bensínlaus, að því er hún hefur
greint frá í viðtölum við erlenda
fjölmiðla.
Saumaði undirfötin í Big Love
Carolyn, sem nú er um fertugt,
fékk skjól í Salt Lake City og sá
fjölskyldunni farborða með ýms-
um tilfallandi störfum. Hún saum-
aði meðal annars hin sérstöku
undirföt sem notuð eru í vinsæl-
um sjónvarpsmyndaflokki, Big
Love, sem fjallar um mormóna-
fjölskyldu.
„Ég vil ekki hafa neitt með
skipulagða trúarstarfsemi að gera
eftir skelfilega reynslu mína. En ég
trúi á Guð og Jesú og æðri mátt-
arvöld,“ sagði Carolyn sem skrifaði
bókina Escape um reynslu sína.
Til himna gegnum fjölkvæni
„Ég óx ekki upp í Bandaríkj-
unum, helur í trúarlegu samfélagi
án nokkurra réttinda. Í þessu sam-
félagi eru orð leiðtogans lög og
fjölkvæni er skilyrði þess að kom-
ast til himna, það er að segja hvað
varðar karlana í söfnuðinum.
Staða kvennanna er metin eftir því
hversu mörgum nóttum þær verja
með eiginmanninum og hversu
mörg börn þær eignast.“
Þegar Carolyn var 18 ára
dreymdi hana um að verða læknir.
Þær framtíðarvonir hennar urðu
hins vegar að engu þegar leiðtogi
sértrúarsafnaðarins, Warren Jeffs,
sem nú situr í fangelsi, ákvað með
samþykki föður hennar að gifta
hana fimmtugum manni, Merril
Jessop. Hún varð fjórða eiginkon-
an hans og fæddi átta börn á næstu
15 árum. Merril Jessop varð sífellt
valdameiri innan safnaðarins og
eignaðist alls 13 eiginkonur og yfir
100 börn.
Kvæntist eiginkonum föðurins
Warren Jeffs tók við stjórn sér-
trúarsafnaðarins í kjölfar andláts
föður síns, Rulon Jeffs, árið 2002,
að því er erlendir fjölmiðlar greina
frá. Eftir að Warren Jeffs hafði
sjálfur kvænst flestum hinna
mörgu eiginkvenna föður síns varð
stjórn hans sífellt undarlegri. Hann
náði öllum völdum í félagi sem átti
jarðir og fasteignir sem metnar
voru á um 100 milljónir dollara.
Fyrir tæpum tveimur árum
hrundi spilaborgin. Warren Jeffs
hafði þá verið í rúmt ár á lista
bandarísku alríkislögreglunnar yfir
menn sem mest var leitað að fyrir
að hafa komið í kring hjónabönd-
um miðaldra manna og barnungra
stúlkna.
Hann var gripinn í ágúst 2006
og var síðastliðið haust dæmdur í
10 ára fangelsi, meðal annars fyrir
að hafa þvingað 14 ára stúlku, El-
issu Wall, í hjónaband með 19 ára
frænda hennar.
Bænunum svarað
Elissu, sem nú er 21 árs, tókst að
flýja þegar hún var 17 ára. Hún
sagði í sjónvarpsviðtali í vor að
undir lok hjónabandsins hefði hún
eitt vetrarkvöld fengið aðstoð
manns við að skipta um dekk á bíl
sínum. „Hann fór að kanna að-
stæður mínar og við urðum góðir
vinir. Þarna voru æðri máttarvöld
að verki. Bænum mínum hafði
verið svarað.“
Maðurinn hjálpaði Elissu að
flýja og nú eru þau gift og eiga tvö
börn.
Hjónarúmið skreytt smákökum
Þegar dómur hafði verið kveð-
inn upp yfir Warren Jeffs síðast-
liðið haust sagðist Elissa í viðtölum
við fjölmiðla ætla að halda áfram
að berjast fyrir móður sína og þær
systra sinna sem enn væru í söfn-
uðinum. Hún hvatti þær einnig til
að rísa sjálfar upp og berjast.
Í kjölfar réttarhaldanna voru
birtar myndir af rúminu sem Elissa
og frændi hennar sváfu í á brúð-
kaupsnóttinni. Rúmið var skreytt
smákökum sem fjölskylda Elissu
hafði bakað.
„Ég læsti mig inni á baðherberg-
inu. Ég hnipraði mig saman á gólf-
inu. Ég var yfirbuguð af sorg og fór
að gráta. Ég trúði því ekki að ég
hefði verið að gifta mig,“ sagði El-
issa þegar hún bar vitni gegn
manninum sem þvingaði hana í
hjónaband, 14 ára gamla.
Rannsókn vegna símtals
Í apríl síðastliðnum báðu lög-
regluyfirvöld Elissu um aðstoð til
að hafa samband við óttaslegnar
konur og börn úr sértrúarsöfnuð-
inum. Lögreglan kvaðst hafa farið
að rannsaka aðstæður þar í kjölfar
símhringingar um að 16 ára stúlka
hefði verið beitt líkamlegu ofbeldi
af fimmtugum eiginmanni sínum.
Undirbjó flótta frá sértrúarsöfnuði í þrjú ár Leiðtoginn á lista bandarísku alríkislög-
reglunnar Ungar stúlkur þvingaðar í hjónaband á táningsaldri
Börnin farin Þessi mynd var
tekin í apríl þegar yfirvöld
höfðu flutt börnin burt frá sér-
trúarsöfnuðinum.
➤ Um 8 þúsund manns eru í sér-trúarsöfnuðinum FLDS í
Bandaríkjunum sem talinn er
stærsta fjölkvænissamfélagið
þar.
➤ Lögreglan fjarlægði rúmlega400 börn frá búgarði safn-
aðarins í apríl vegna gruns
um kynferðislegt ofbeldi.
SÖFNUÐURINN
28 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í
mannfræði við Háskóla Íslands, segir
það mikilvægt fyrir Íslendinga að velta
því fyrir sér hvernig bregðast skuli við
ef upp kemst um fjölkvæni hér.
„Ég velti mikið fyrir mér fjölmenn-
ingar- og innflytjendamálum og við
verðum að hugsa um hvað gera eigi
flytji hingað fólk sem á fleiri en einn
maka en gefur það ekki upp vegna
þess að það er lögbrot. Tengsl okkar
við heiminn eru alltaf að verða meiri.“
Unnur Dís, sem hefur kennt um
sifjatengsl og fjölskyldugerðir, segir
ekki hafa verið fjallað um það á nám-
skeiðum hvers vegna samfélög eins og
sértrúarsöfnuðurinn FLDS þróist í allt
aðra átt en það sem gengur og gerist í
kringum þau. ,,Ég fjallaði um fjöl-
kvæni en ekki í vestrænu umhverfi.“
Unnur Skaptadóttir, prófessor í mannfræði
Þarf að ræða hér
Hinn 7. maí 2005 hét bandaríska
alríkislögreglan 100 þúsund dollara
verðlaunafé fyrir ábendingar sem
gætu leitt til handtöku Warrens
Jeffs, leiðtoga sértrúarsafnaðarins
FLDS. Það var hins vegar við venju-
legt umferðareftirlit norðan við Las
Vegas 28. ágúst 2006 sem Jeffs, sem
kveðst eiga 70 til 80 eiginkonur, var
handtekinn. Hann var þá á lista yfir
þá 10 einstaklinga sem lögreglan
vildi helst ná í.
Í bíl Jeffs, sem fæddist árið 1955,
fann lögreglan tölvur, farsíma og
nokkrar hárkollur sem talið er að
hann hafi notað til að dulbúast. Þar
að auki fundust 54 þúsund dollarar í
reiðufé. Í nóvember í fyrra var Jeffs
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að
hafa skipulagt hjónaband 14 ára
stúlku og 19 ára frænda hennar auk
annarra sakargifta.
Söfnuður Jeffs, sem klofnaði frá
Mormónakirkjunni fyrir rúmri öld,
er sagður eiga eignir fyrir um 100
milljónir dollara, meðal annars bæ-
inn Colorado City í Arizona, að því
er erlendir fjölmiðlar greina frá. Í
janúar 2004 sýndi Jeffs völd sín með
því að vísa tuttugu körlum burt úr
bænum, þar á meðal borgarstjóran-
um. Hann gaf síðan öðrum körlum
konur og börn hinna brottreknu.
Leiðtogi sértrúarsafnaðarins handtekinn með tugi þúsunda dollara
Kveðst eiga 70 til 80 konur
Dæmdur Warren Jeffs var
í september síðastliðnum
dæmdur í 10 ára fangelsi.
Þrátt fyrir fjölda hneyksl-
ismála vegna fjölkvænis í
Bandaríkjunum fjölgar
áhangendum þess.
Mary Batchelor, leiðtogi
bandarísku borgarasamtak-
anna Principle Voices, sagði
nýlega í viðtali á bandarískri
sjónvarpsstöð að árið 2000
hefðu um 30 þúsund manns,
þar á meðal börn, lifað í fjöl-
kvænissamfélögum í vest-
urhluta Bandaríkjanna og í
Bresku-Kólumbíu í Kanada.
Nú væri fjöldinn 37 þúsund.
Linda C. McClain, lagapró-
fessor við Háskólann í Boston,
sagði í viðtali við abcNEWS að
það væri misjafnt eftir ríkj-
unum hvernig brugðist væri
við fjölkvæni. Í flestum til-
fellum væri það látið viðgang-
ast, einkum í Utah. Sumir
telja yfirvöld óttast fjölda-
sjálfsmorð trúarhópa sé ekki
farið að þeim með gát.
Fjölkvænissamfélög
Fylgismönnum
fer fjölgandi
Öll börnin sem yfirvöld fjar-
lægðu af búgarði sértrúarsafn-
aðarins í Texas eru nú komin
til foreldra sinna, að því er
barnaverndaryfirvöld til-
kynntu síðastliðinn miðviku-
dag.
Foreldrarnir þurftu að ferðast
í nokkra daga til hinna ýmsu
fósturheimila til að ná í börn
sín. Dómari úrskurðaði að
barnaverndaryfirvöld hefðu
farið offari þegar þau fjar-
lægðu börnin fyrir tveimur
mánuðum. Sálfræðingar ótt-
ast að aðskilnaður barnanna
við foreldra sína og skyndileg
kynni þeirra af nýjum menn-
ingarheimi kunni að hafa nei-
kvæð áhrif á þau lengi.
Gripnu börnin
Öll komin til
foreldranna
RÝNIR
frettir@24stundir.is a
Ég vil ekki hafa neitt með skipulagða trúar-
starfsemi að gera eftir skelfilega reynslu mína.
En ég trúi á Guð og Jesú og æðri máttarvöld.