24 stundir - 14.06.2008, Side 45
24stundir LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 45
Grillaður skötuselur á tómatkar-
töflumús borinn fram með grill-
uðu grænmeti, sítrónu og góðri
ólífuolíu fyrir fjóra:
Hráefni
600 g skötuselur, snyrtur og skor-
inn í 4 steikur
salt og pipar
1 sítróna
extra virgin-ólífuolía
Aðferð
Veltið skötuselnum upp úr ólífu-
olíunni og grillið á hvorri hlið í
sirka 3-5 mínútur. Takið af grillinu
og kreistið hálfa sítrónu yfir og
kryddið með salti og pipar.
Grillað grænmeti:
Hráefni
1 kúrbítur
1 eggaldin
1 rauðlaukur
1 fennel
½ búnt basil
1 pressað hvítlauksrif
ólífuolía
salt og pipar
Aðferð
Grænmetið er skorið í þunnar
sneiðar. Olían er sett í bakka ásamt
smátt söxuðu basil, salti og pipar.
Setjið eitthvað undir bakkann öðr-
um megin svo að hann hallist vel
og olían og kryddið renni að ann-
arri brúninni. Þetta er nauðsynlegt
til að olían renni úr grænmetinu.
Byrjið að grilla eina tegund í einu á
vel heitu grillinu. Um leið og
grænmetið er tekið af grillinu er
það sett beint út í olíuna og vætt
vel, tekið upp úr og olían látin
renna af. Þá situr hæfilegt magn af
olíu og kryddi eftir á grænmetinu.
Þannig er hver tegund grilluð á
fætur annarri. Grænmetið þarf
ekki að vera sjóðandi heitt þegar
það er borið fram. Best er að það
sé volgt.
Kartöflustappa:
4 stk bökunarkartöflur
1 tsk tómatpúrre
maldon-salt
smjörklípa
skvetta af ólífuolíu
Aðferð
Kartöflur flysjaðar og skornar í litla
bita og soðnar í saltvatni. Þegar
þær eru soðnar er vatnið sigtað frá
og kartöflurnar maukaðar með
gaffli, settar í pott ásamt tómat-
púrre, smjöri, ólífuolíu og mal-
don-salti. Hitað á mjög lágum hita.
Allt sett á disk ásamt sítrónubát og
skvettu af ólífuolíu.
AÐALRÉTTUR
Grillaður skötuselur
á tómatkartöflumús
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Laugardagur 14. júní 2008
Hópur stelpna kynntist í
gegnum hamstra.
» Meira í Morgunblaðinu
Hamstrahittingur
Björk svarar Árna
Johnsen fullum hálsi
» Meira í Morgunblaðinu
Fullorðinslegt?
Hanna Birna segist ekki
tjalda til einnar nætur
» Meira í Morgunblaðinu
Komin til að vera
„Ég græt við bensíndæl-
una,“ segir Skagamaður
» Meira í Morgunblaðinu
Dýrt að dæla á
Kántrí, rapp, dauðarokk
og balltónlist í Álafosskvos
» Meira í Morgunblaðinu
MÚSMOS í dag
Helgið ykkur land!
Nánari upplýsingar í síma 893 5046 og á www.fjallaland.is og
www.leirubakki.is
Allir velkomnir að koma og skoða!
Til sölu mjög fallegar lóðir í Fjallalandi við Leiru-
bakka. Kjarri- og mosavaxið hraun. Sögufrægt
hérað, mikil fjallasýn, veðursæld og hlý sumur.
Endalausir útivistarmöguleikar.
Allt eignarlóðir. Lóðirnar seljast með vegi að
lóðamörkum, kalt vatn og rafmagn komið í götur.
Hitaveita verður í boði.
Golfvöllur í undirbúningi.
Kaup á landi er örugg fjárfesting.
Aðeins 100 km frá Reykjavík.
Fjölbreytileg þjónusta við lóðareigendur heima
á Leirubakka: Verslun, bensínstöð, veitingahús,
hótel, Heklusetur með Heklusýningu, hestaleiga,
reiðskóli, skipulegar sögu- og
menningargöngur og margt fleira.