Eintak - 01.11.1993, Side 80
Þegar Adam haföi bitiö af eplinu settist
hann og hallaði sér upp aö trénu. Hann fór að
hugsa um það í fyrsta sinn hvað hann hefði
eiginlega verið að gera fram að þessu. Og
með eplið í maganum fannst honum að það
hefði ekki allt verið gott. Sumt hefði meira að
segja verið verulega vont. Hann sá eftir því og
ákvað að gera það aldrei aftur. Og hann vissi
að hann gæti ekki staðið við það.
Síðan þá hefur mannskepnan verið upp-
tekin af syndinni. Á milli þess sem hún fellur í
freistni veltir hún sér upp úr samviskubiti,
iðrast, lofar bót og betrun. Og syndgar á ný.
Þetta er arfurinn frá Adam og afleiðingin af
eplaáti hans. Maðurinn hegðar sér eins og
áður. Eini munurinn er að hann dauðsér eftir
helmingnum sem hann gerir.
Seinni tíma menn hafa reynt að betrum-
bæta uppgötvun Adams. Þær tilraunir hafa
aðalega snúist um að smíða í kringum hana
kerfi. Þersneskir spekingar skiptu heiminum
og öllu því sem í honum er í tvennt; svart og
hvítt, synd og dyggð. Sýrlenskir kollegar
þeirra persónugerðu þessi fræði og fundu
púka handa hverri synd og hver dyggð fékk
sinn engil. Og þeir sendu englana til himna
og púkana til helvítis. Grikkjum þóttu þetta
þunn fræði og vildu frekar hafa níu himna en
einn og þá níu helvíti líka. Þá voru syndirnar
orðnar níu og dyggðirnar líka. Og eins og í
helvíti Dante bjó einn skratti í hverri íbúð í hel-
víti og pyntaði þar sína syndabelgi.
Þessi fræði öll hittu síðan kristnina fyrir í
Þáli postula sem átti ekki í vandræðum með
að herma þau upp á æskilegt hegðun-
armynstur kristinna manna. Og þar sem Þáll
var andríkur maður gat hann ekki haldið sig
við níu syndir í bréfi sínu til Galatamanna,
heldur varaði hann þá við einum fimmtán og
gaf til kynna að hann gæti svo sem þulið upp
fleiri. Andríki Þáls var ekki jafngjöfult þegar
kom að dyggðunum og hann hélt sér við
þær níu sem hann hafði lært ungur.
í bréfi sínu til Korintumanna kemur Páll
síðan með tillegg kristinna manna til höfuð-
dyggðanna: trú, von og kærleik. Þær
bættust við eldri dyggðir: forsjálni, hugprýði,
hófsemi og réttsýni. Þá voru dyggðirnar
orðnar sjö eins og pláneturnar á himni þeirra
manna sem töldu sól og tungl vera eins og
hverjar aðrar reikistjörnur. Og þar með urðu
syndirnar líka sjö: losti, leti, ágirnd, dramb,
öfund, reiði og hórdómur.
Þannig hefur það verið síðustu nokkur
hundruð árin. Menn eins og Ólafur Jónsson
á Söndum hafa þó viljað hafa þær með
/
/
/
/
/
gamla laginu, en hann orti á sínum tíma um
níu höfuðóvini hins kristna manns.
En nú eru allir hættir að yrkja um syndirn-
ar. Prestarnir minnast ekki lengur á þær og
ein þeirra -^agirndin - er nú dásömuð sem
grundvöllur hins frjálsa hagkerfis sem sigrað
hefur heiminn.
En þótt syndir dugi vel í hagfræðinni, þá
eru þær enn friðarspillar í sálum einstakl-
inganna. Og þótt enginn þykist lengur sjá
djöflana sem freista mannanna, þá hljóta þeir
að vera einhvers staðar á stjái. Altént halda
mennirnir áfram að syndga.
odeus
Losti
eftir Matthías Viðar Sæmundsson
Lostinn hefur í seinni tíð tengst ljótleika, því
sem er saurugt, jafnvel glæpsamlegt, því sem til-
heyrir frumstæðu mannlífi, spilltri náttúru, sjúk-
legum öfgum. Lostinn er að sögn það sem meiðir,
nauðgar og myrðir, það sem afmennskar
manneskjuna (eða á ég að segja karlmanninn),
hann cr allt það sem okkur ber með réttu að
forðast. Samt er lostinn einkar mannlcgt fyrir-
bæri, rétt eins og klámið. Menn hafa þrumað á
þráreipum frá ómunatíð hverjar sem aðstæður
þeirra voru. Þeir hafa ævinlega skilgreint sjálfa sig
í ljósi lostans, ýmist á jákvæðan eða neikvæðan
hátt; fysnin hefur verið mælistika þeirra á sjálfa
sig og tilveruna. Afstaða manna til eigin ástríðna
hcfur þó oftar en ekki einkennst af skinhelgi og
tvískinnungi, þeir hafa reynt að bcisla þær með
valdi eða fortölum, rekið þær inn í rökkur og
myrkur eða þá afncitað þeim með öllu.
Á timabili kristninnar sem brátt slítur tvöþús-
und ár hefur okkur til að mynda verið innrætt sú
undarlega skoðun að maðurinn sé því aðcins
manneskja að hann mótmæli sjálfum sér, sínum
holdlcga likama, að hann kveði niður
vonargandinn og gefi sig fjarlægðinni á vald.
Naglstungið mannslíki varð að fyrirmynd allra
manna, hugsjón mennsku og sögu, mannkynið
setti sér það markmið að festa sjálft sig upp á
krosstré, eyða þrám sínum og löngunum fyrir
drauin um annað líf, hinum megin við dauðann.
Þessi furðulega ímynd kom í stað annarrar
ímyndar sem rist var á hellisvegg tugþúsundum
ára áður, í Lascaux í Frakklandi. Á mynd þessari
Iiggur maður með fuglsandlit fyrir framan hel-
særðan vísund sem lagður hefur verið spjóti. Báð-
ir virðast þeir vera í dauðateygjum, maðurinn
liggur flatur með útrétta arrna og innyfli skepn-
unnar flæða út úr kviði hennar. Fyrir neðan
manninn má greina fugl scm kannski er að búa
sig til flugs, en til hliðar er nashyrningur (?) á stjái.
Það er eitthvað afar cinkennilegt við þetta hell-
ismálverk, enda er ósamrýmanlegum hlutum
blandað sanian frá sjónarhóli nútímamannsins.
Stelling mannsins minnir á krosshangann fræga,
en eitt er þó gjörólíkt með þeirn; maður þessi hef-
ur reistan getnaðarlim á meðan kynfæri Krists
eru ósýnileg (hafi hann þá nokkur). Myndin lýsir
því í senn nautn og sársauka, sársaukanautn er
nær yfir Iosta og dauða. Mannfuglinn samsamast
helsködduðu dýrinu á stundu sem fæstum þykir
kynferðisleg nú á dögum, stundu líkamlegrar