Eintak - 03.03.1994, Síða 20
Teg. 51765
Litir: Svart eða brúnt leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.995,-
Teg. 51764
Litir: Svart eða brúnt leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.730,-
Teg. 52133. Litur: Brúnt leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.820,-
Teg. 52134. Litur: Svart leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.820,-
Teg. 52099
Litir: Svart eða brúnt leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.375,-
Teg. 52100. Litur: Svart leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.375,-
Teg. 2694. Litur: Svart leður
Stærðir 36-A1. Verð kr. 4.130,-
Teg. 2667. Litur: Svart leður
Stærðir 36-41. Verð kr. 4.495,-
^ÓVEKSLlj^
PÓKÐA1Z
gceðí/ crfy pj&nuita/
Kirkjustræti 8. Simi 14181
Laugavegi 41. Simi 13570
Ljósu súlurnar sýna hlutfali þeirra sem töldu best að búa í viðkomandi
hverfi, en hinar dökku sýna hvar menn vildu síst búa.
v>. m
>• -
ft
:
xC'-'-c <
ISIæÍff
17,3% 17,9%
,*tfÍll«É*l*l
17,9%
{gmtsssHoar - >•
Vesturbær og Skerjafjörður
Skoðanakönnun Skáís fyrir eintak
Flestir rtefndu Vesturbæ sem það hverfi sem best væri að búa í en það var jafnframt
nefnt næst oftast sem versta hverfið. Breiðholtið var oftast nefnt sem vont hverfi
en næst oftast sem gott hverfi. Það hverfi sem naut mestrar aðdáunar
án þess að vera forsmáð í leiðinni var Fossvogurinn.
Heima er best. Eða þannig á það
að vera. En þannig er það ekki allt-
af. Stundum er grasið grænna hin-
um megin. Eða jafnvel einhvers
staðar enn lengra í burtu.
Þegar Skáls gerði könnun meðal
Reykvíkinga um afstöðu þeirra til
framboðslistanna fýrir borgar-
stjórnarkosningarnar voru þeir
jafnframt spurðir í hvaða hverfi í
Reykjavík væri best að búa. Og í
hvaða hverfi þeir vildi síst búa.
I stuttu máli voru niðurstöðurn-
ar þessar:
Flestir, eða rúm 17 prósent,
sögðu best að búa í Vesturbænum.
Hins vegar sögðust ívið fleiri eða
rétt tæp 18 prósent að þeir vildu
síst af öllu búa í þessum sama
Vesturbæ. Vesturbærinn er því
bæði vinsælasta hverfið og líka
meðal þeirra óvinsælustu. Hann er
álíka óvinsæll kostur og Miðbær-
inn og Grafarvogurinn. Og hefur
næstum tvo þriðju af óvinsældum
Breiðholtsins.
Það ætti ekki að koma neinum á
óvart að flestir nefndu Breiðholtið
sem slæman kost. Breiðholtið er,
fyrir þá sem búa í gömlu Reykja-
vík, eins konar samheiti yfir út-
hverfi, sem þeirra vegna gæti til-
heyrt Hafnarfirði eða Keflavík. Á
sama hátt og Vesturbærinn er fyrir
fólkið í úthverfunum táknmynd
um sjálfsbirgingslega Reykvíkinga
sem hefur tekist að líta niður á þá
sem búa ofar.
En Breiðholtinu er síður en svo
alls varnað þrátt fýrir að rétt rúm-
lega 30 prósent Reykvíkinga vildu
síst búa þar. Tæplega 16 prósent
sögðu best að búa í Breiðholtinu
og lenti það í öðru sæti yfir vinsæl-
ustu hverfin. Hins vegar er ekki
hægt að líta fram hjá því að hverfíð
er óhemju fjölmennt og því má
ætla að stór hluti þeirra sem lýstu
sig ánægða með hverfið búi þar.
Og það er líka athyglisvert að þeir
sem höfðu skömm á hverfinu voru
næstum helmingi fleiri en þeir sem
höfðu á því aðdáun. Ef Vesturbær-
inn telst vera umdeilt hverfi vegna
jafnra óvinsælda og vinsælda verð-
ur að segja að Breiðholtið sé ekki
umdeilt heldur lítilsvirt af öðrum
en þeim sem búa þar.
Þessir tveir pólar í bænum,
Gamli bærinn og Breiðholtið,
koma líka í ljós þegar skoðað er
hvar þeir sem sögðu best að búa í
Breiðholti finnst verst að búa og
hvar aðdáendur Vestur- og Mið-
bæjar vildu síst búa. Nær undan-
tekningalaust sögðu þeir sem helst
vildu búa í gamla bænum að þeir
vildu síst búa í Grafarvogi eða
Breiðholti og var Breiðholtið held-
ur oftar nefnt. Þeir sem helst kusu
Breiðholtið svöruðu alveg öfugt;
þeir vildu síst búa í Vestur- eða
Miðbæ. Sama var upp á teningn-
um hjá þeim sem vildu búa í Graf-
arvogi. Flestir þeirra hafa lítið álit á
Vesturbænum. Eini munurinn á
Grafarvogsmönnum og Breiðhylt-
ingum er að nokkur hluti þeirra
sem lýstu yfir aðdáun á Grafarvog-
inum höfðu skömm á Breiðholt-
inu.
Það hverfi sem kom næst á eftir
Vesturbæ og Breiðholti að vin-
sældum, var Fossvogurinn. Rétt
tæp tólf prósent þeirra sem tóku
afstöðu töldu best að búa þar. Það
sem sker Fossvoginn frá Vesturbæ
og Breiðholti er að enginn hefur
neitt á móti Fossvoginum. Hann
var aldrei nefndur þegar fólk var
spurt um versta hverfið.
Síðan komu hverfin hvert af
öðru. Hlíðarnar fengu atkvæði
rúmra 10 prósenta, Vogahverfið 8
prósenta og Miðbærinn rétt tæp-
lega það. Eins og áður sagði var
Miðbærinn meðal þeirra hverfa
sem fólki var mest í nöp við en
hvorki Hlíðarnar né Vogahverfið
vöktu óhug hjá fólki. Þessi hverfi
eru eins og Fossvogurinn. Það er
bara gott að búa þar. Ekkert vont.
í sjöunda sæti vinsældalistans
kom síðan Árbærinn og þar á eftir
Grafarvogurinn. Nánast enginn
munur var á þeim hverfum sem á
eftir komu.
Skoðanir fólks á því í hvaða
hverfi væri verst að búa dreifðust
ekki eins mikið. Eins og áður sagði
var Breiðholtið þar efst á blaði og
þar næst jöfn að stigum Vestur-
bær, Miðbær og Grafarvogur. Af
öðrum hverfum fékk aðeins Ár-
bærinn teljandi mótbyr en þó
langtum minni en ofangreind
hverfi.
Það er því ekkert vont að búa i
öðrum hverfum, aðeins mismun-
andi gott.
Á næstum síðunt greina nokkrir
Reykvíkingar frá því hvað felst í því
að búa í alvöru hverfi. Og í hverju
tilfelli er það hverfi viðkomandi.O
20
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994