Eintak - 23.06.1994, Qupperneq 20
Fimmtudagur
P O P P
Vinir Dóra verða ásamt blúsaranum Chicago
Beau í notalegu umhverfi í Þjóöleikhúskjall-
aranum í kvöld. Það er vel þess virði að leggja
hlustir við blúsarana.
Soul de Luxe gerir sitt besta til að halda uppi
stemmningu á Gauk á stöng.
BAKGRUNNSTÓNLIST
Jón Ingólfs leikur af fingrum tram á neöri
hæðinni á Fógetanum, en djassinn ræður ríkjum
á efri hæðinni.
Magnús Blöndal leikur á flygilinn í Klúbbi
Listahátíöar á Sólon íslandus. Hann hefur kom-
ið þar fram að undanförnu og gert lukku.
L E I K H Ú S
Hillingar sýndar í Gerðubergi. I sýningunni er
dans og leikur fléttaðir saman. Anna Borg leik-
kona og Ólöf Ingólfsdóttir dansari koma
fram. Tónlistin er samin af þeim Páli Borg og
Hrannari Ingimarssyni
O P N A N I R
Þorsteinn Björnsson sýnir vatnslitamyndir í
Gallerí Úmbru. Sýningin verður opnuð í dag.
F E R Ð I R
Ferðafélag Islands: Jónsmessunætur-
ganga Flekkuvík - Keilisnes-Kálfatjörn. Lagt af
stað klukkan 20.00 frá BSÍ, austanmegin, og
Mörkinni 6.
Útivist: Jónsmessunæturganga Menn geta
valið á milli þess að ganga á Hengil eða í Mar-
ardal. Brottför kl. 20.00 frá bensínsölunni hjá
BSi.
Ferðafélag íslands: Sumarleyfisferö 23 -
26. júní. Jónsmessuíerð í Skagafjörð. Gist að
bænum Lónkoti í Sléttuhlíö. Siglt frá Hofsósi í
Málmey. Farið verður um innanverðan Skaga-
fjörð og gengið á Mælifellshnúk. Jónsmessu-
ganga á Tindstól. Upplýsingar og skráning í
síma 682533.
í Þ R Ó T T I R
Fótbolti Það veröur nú að segjasl, að ekki er
mikið að gerast á vettvangi innlendra alburða í
íþróttunum. Þess vegna bendum við á hina si-
vinsælu heimsmeistarakeppni í knattspyrnu, en
hún hefur einmitt reynst vera góð leið til að reka
endahnútinn á vonlaus hjónabönd og/eða sam-
bönd sem aldrei voru neitt fyrir.
Fyrir framan sjónvarpsskjáinn er hægt að leita
huggunar og fullnægingar í takmarkalausri að-
dáun á hinum og þessum knattspyrnumönnum.
Nema hvað?
FYRIR ILLGJARNA
Farið i frakka og skó og haldið acI
heiman með fjarstýringuna frá
sjónvarpinu upp á vasann. Komið
við á öllum krám sem sýna frá
heimsmeistarakeppninni i fót-
bolta. Komið ykkur fyrir úti í
horni. Biðið eftir efnilegri sókn og
þegar þið haldið að skotið sé að
riða af skulið þið stilla yfir á Stöð
2. Látið ykkur siðan hverfa á
næstu krá og leikið sama leikinn.
Alveg þar til ykkur hefur tekist að
hafa eitt mark eða svo af æstum
múgnum.
Öskur, óp og fagnaðarlæti eru
daglegt brauð á Glaumbar þessa
dagana. Ástæðan er yfirstandandi
heimsmeistarakeppni sem varpað
er upp á tveggja og hálfs metra
tjaid. Ennfremur birtast knatt-
spyrnugoðin emjandi áhorfendum
í sex sjónvarpsviðtækjum.
„Stemmningin er ótrúlega góð
hérna,“ segir Olafur Ólafsson
einn eigenda staðarins. Það eru orð
að sönnu. Menn klappa, hoppa og
hía í hvert sinn sem eitthvað mark-
vert gerist á vellinum. Mest var þó
stemmningin síðasta sunnudag.
Fimmtíu manna hópur af frænd-
um vorum Norðmönnum hafði
hertekið staðinn og lét ólmlega
þegar Norðmenn sigruðu Mexíkó-
menn.
Fleiri ástæður eru fyrir látunum
í áhorfendunum á Glaumbar en
einskær aðdáun. Fjöldi fyrirtækja
hefur nefriilega heitið á ákveðin lið
að ef þau skori skuli samstundis
fara fram kynning á drykkjuföng-
um þess lands sem í hlut á. Þannig
gripu mikil vonbrigði um sig um
daginn í leik Rússa og
Brasilíumanna þar sem
rússneskt fyrirtæki
hafði heitið einum
sopa af Rússadjús á
mannskapinn fyrir
hvert mark Rússa. Þau
urðu hins vegar engin,
áhorfendum til mikill-
ar hrellingar.
Stærsti kosturinn við
að horfa á menn
sparka bolta á Glaum-
bar er þó að sögn Ólafs
að sýndar eru sending-
arnar frá Eurosport.
Þrátt fyrir að áhorfend-
ur verði þá af lýsingum
Bjarna Fel og Samú-
els Arnar hefur þetta
þær skemmtilegu af-
leiðingar að hægt er að
horfa á alla leikina og
alltaf í fullri lengd.
Um hundrað manns
mæta reglulega á
Glaumbar og segist Ól-
afur ánægður með við-
tökurnar. „Það kom til
dæmis til mín eldri
maður í gær, lýsti yfir
mikilli ánægju og
sagði: „Konan mín er
mjög ánægð með þetta.
Ég má fá mér einn bjór
í fyrri hálfleik og einn í
seinni hálfleik. Ef ég
kem svo alltaf beint
heim ætlar hún að
leyfa mér að fara á eins
marga leiki og ég vil.“
0
Þ J Ó
Ljóðasýning hefst í Perlunni á
laugardaginn og er hún með ólíku
sniði en ljóðunnendur hafa átt að
venjast hingað til. Sýningin er hald-
in í tilefni af lýðveldisafmælinu og
eru höfundarnir allt frá Eggerti
Ólafssyni til nútímahöfunda á
borð við Lindu Vilhjálmsdóttur,
Gyrðis Elíassonar og Jónasar
Þorbjarnarsonar.
Alls voru 50 ljóð valin og var
ákveðið að sýna í Perlunni þar eð
Kjarvalsstaðir voru uppteknir en
þeir hafa hingað til verið notaðir til
ljóðasýninga. Leitað var til Þor-
valdar Þorsteinssonar myndlist-
armanns til að gera sýninguna sem
best úr garði en hann hefur bæði
lagt stund á myndlist og ritlist.
„Ef eldri ljóðin og innviðir Perl-
unnar eru skoðaðir sést að töluverð
hætta er á því að uppstækkað ætt-
jarðarljóð innan um pálma og
gervihver verður eins konar paród-
ía á Perluna. Mér fannst það ekki
verjandi gagnvart ljóðunum,“ segir
Þorvaldur. „Niðurstaðan varð sú að
ég fékk leyfi til að vinna í ljós-
myndasafni Reykjavíkur um tíma
og fann þar, sem og í einkasöfnum,
andlit 190 íslendinga frá fyrstu ár-
um ljósmyndunar á Islandi til okk-
ar tíma.“
Þorvaldur lét stækka andlitin út
úr myndunum sem gjarnan eru
hópmyndir, skyndimyndir og stúd-
íómyndir í bland. Hvert andlit er
fermetri að stærð eða samsvarandi
flötunum sem klæða Hitaveitu-
tankana. Þessi andlit þjóðarinnar
eru á öllum aldri, allt frá vöggu-
börnum til gamalmenna og er þeim
dreift á alla tankana frá gólfi og upp
úr. Að jafnaði eru tvær myndir á
hverjum níu plötum. Þorvaldur
tengir andlit sýningargesta og Ijóð-
in með því að setja valdar setningar
úr nokkrum ljóðanna inn í arki-
tektúrinn á stóru letri á burðarsúl-
urnar og framan á neðra gólfið.
Setningarnar tengja nokkuð aug-
ljósUga hugmyndina að nafni sýn-
ingarinnar sem er ÞJÓÐ LJÓÐ.
Ljóðin kaus Þorvaldur að gefa út
á póstkortum og kemur textinn þar
í stað myndar. Því koma út á sýn-
ingunni 50 ljóðapóstkort sem
verða til sölu á sýningunni á
20 krónur stykkið svo
menn geti eignast
allt safnið fyrir 1000
krónur.
Ekki er því ætlast til
að menn lesi 50 ættjarð- *
arljóð í Perlunni heldur
taki þau með sér heim.
Lítið ljóðapósthús verður
sett upp í samvinnu við Póst
og síma þar sem einnig verða seld
frímerki. „Þegar gestirnir póstleggja
kortin fá þeir ljóðasýningarstimpil-
inn sem Birgir Andrésson hefur
hannað. Tilgangurin'n með sýning-
unni er sá að dreifa kortunum sem
víðast um heiminn en stór hluti
gestanna verða erlendir ferðamenn
sem fá skýringar á því sem er að
gerast þó ekki fái þeir þýðingar á
ljóðunum. Þeir senda þau sem
hverja aðra mynd af landinu. Þann-
ig er ekki aðeins orðið afsakanlegt
að vera með ljóðasýningar í Perl
unni heldur verður hún eðlileg sem
ljóðadreifingarstöð. Hitaveitan
verður þá ljóðveita á meðan á
sýningunni stendur,“
segir Þorvaldur.
©
Einar Kárason
rithöfundur
Helgin
mín
Ég œtla að sitja við
skriftir, það er það eina
sem ég katiti.
Glaumbar
Bolti &
biór
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 17.15 Hverjir eru bestir?
18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Töfraglugginn
Páia pensill kynnir teiknimyndirA6.55 Frétta-
skeyti 19.00 Úlfhundurinn Nýr myndaíiokkur
bygður á sögu eltir Jack London um ungan
stráksem vingast við útfhund. 19.30 Æviárin
líða Ósvikinn breskur húmor iskemmtilegum
þætti um kari og konu sem hitlasl fyrir tilviljun
38 árum eftir að þau átti í öriitiu ástarævintýri.
20.00 Fréttir og veður 20.15 HM í knattspyrnu
Ítaiía-Noregur, bein útsending. 21.50 Stúlkan
meö eldspýturnar Finnskkvikmynd um unga
starfsstúlkuieldspýtnaverksmiðju. 23.00 Ell-
efufréttir 23.25 HM í knattspyrnu Suður-Kórea
- Bólivia, bein útsending. 01.01 Dagskrárlok
STÖÐ 217.05 Nágrannar 17.30 Litla haf-
meyjan 17.50 Bananamaðurinn 17.55 Sannir
draugabanar 18.20 Naggarnir 18.45 Sjón-
varpsmarkaðurinn 19.1919:19 20.15 Syst-
urnar 21.05 Laganna verðir 21.30 Stúlkan í
rólunni Girl in a Swing. Ömurleg myndum
siðprúðan breskan antiksala sem giftist vala-
samri dömu. Fullaf kynlí/i sem nægir þó ekki til
þess að það sé þess virði að eyða kvöldinu f
rúlustúlkuna. 23.25 Vitfirringur á verði Hi-
der in the House. Leiðinleg og léleg mynd um
mann sem er kaldur á yfirborðinu en þráir ást
og væntumhyggju. Gary Busey leikur þann
óhamingjusama og stendursig mjög vei. Bönn-
uðbörnum. 01.00 Fangarflóttamanna
Captive. Spennumynd, byggð á sönnum at-
burðum um þriggja manna fjölskyldu sem er
tekin í gíslingu af glæpamönnum. Stranglega
bönnuö börnum. 02.40 Dagskrárlok
Föstudagur
P O P P
Pláhnetan spilar og syngur á Feita Dvergnum
í kvöld. Rífandi stemmning.
Spoon veður í dynjandi stuði á Gauk á stöng
og verður dansað upp um alla veggi.
Hljómsveitin Mjölnir heldur uppi rífandi
stemmningu á Tveimur Vinum, enda ný og fersk
sveit á ferð.
Nú þegar sólin skfn langt fram á nótt verða _
Bergþór Pálsson og Hljómsveit Jóns Ól-
afssonar með miðnaeturskemmtun á Ömmu Lú
og má búast við að þeir félagar taki nokkra
gamlaABBA smelli.
BAKGRUNNSTÓNLIST
Tríódjamm í Klúbbi Listahátíðar á Sólon Island-
us.
Dúettinn G.G. sér um að stemmningin á
Kringlukránni verði á Ijúfu og þægilegu nótun-
um í kvöld.
Trúbadorinn Jói Baldurs svíkur engan. Hann
spilar á Fógetanum í kvöld.
SVEITABÖLL
Lipstick Lovers verða í Kántríbæ á Skaga-
strönd í kvöld og spila þar alvöru rokk.
Sniglabandið og Borgardætur verða f
Sindrabæ á Höfn í kvöld og verður gaman að
heyra samhljóm þeirra.
SSSól verður á Hótel Akranesi i kvöld og rokka
þar fram eftir nóttu.
F E R Ð i R
Ferðafélag Islands: Helgarferð 24.-26.
júnf. Jónsmessuferð til Þórsmerkur. Gist í
Skagfjörðsskála/Langadal. Gönguferðir um
Mörkina.
Ferðafélag íslands: Helgarferð 24.-26.
júní. Eirfksjökull. Gist í tjöldum íTorfabæli.
Útivist: Helgarferð 24.-26 júlí. Snæfellsjök-
ull á Jónsmessu. Ganga á jökulinn, val er um
20
FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1994