Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 1
Stéttlausir hindúar burtrækir Keshvanpalayam. AFP. HERMT er að dalítar á Indlandi, eða „hinir ósnertanlegu“, hafi verið hraktir úr bráðabirgðaskýlum fyrir fólk sem missti heimili sín í hamför- unum við Indlandshaf. Dalítar eru stéttlausir hindúar sem hafa lítinn sem engan rétt í ind- verska erfðastéttakerfinu. Þeir segja að íbúar sjávarþorps í ind- verska héraðinu Nagapattinam hafi hrakið 70 fjölskyldur dalíta úr op- inberri byggingu sem hýsir fórnar- lömb hamfaranna. „Við vorum síðan færð í skóla en þar sem kennsla er að hefjast ráku kennararnir okkur þaðan líka,“ sagði einn dalítanna. „Hvert á ég að fara með fjölskylduna mína og börnin?“ STOFNAÐ 1913 6. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Egla sýnd í nýjum spegli | Menning Lesbók | Frá orðum til átaka  Kraftapopp í nýjum búningi Börn | Prins í uppreisn – vertu með!  Skemmtilegt og erfitt Íþróttir | Allt opið hjá Stjörnunni Þórarinn samdi við Aberdeen Mannréttindahreyfingar vöruðu í gær við því að átök milli indónesíska stjórnarhersins og uppreisnarmanna í Aceh-héraði gætu hindrað hjálpar- starfið þar eftir náttúruhamfarirnar við Indlandshaf annan dag jóla. Hátt- settur embættismaður Sameinuðu þjóðanna sagði að ef átök blossuðu upp myndu þau hafa skelfilegar af- leiðingar fyrir fórnarlömb hamfar- anna. Stjórnarherinn og uppreisnar- menn, sem berjast fyrir sjálfstæði Aceh, lýstu yfir vopnahléi eftir ham- farirnar og vakti það vonir um að þær yrðu til þess að varanlegur friður kæmist á. Þær vonir virðast hafa brugðist því að Indónesíuher segir að uppreisnar- mennirnir hafi torveldað hjálpar- starfið með því að ráðast á hermenn sem hafa tekið þátt í dreifingu hjálp- argagna. Uppreisnarmennirnir saka hins vegar stjórnarherinn um að hafa notfært sér hörmungarástandið í Aceh til að hefja nýja sókn gegn að- skilnaðarsinnunum. Mannréttindahreyfingin Human Rights Watch hvatti til þess að herinn tæki ekki þátt í dreifingu hjálpar- gagna og skírskotaði til frétta um að hermenn hefðu neitað að hjálpa nauð- stöddu fólki sem tengdist uppreisn- armönnunum. Yfir 100.000 manns fórust í hamför- unum í Aceh og um 30.000 á Sri Lanka. Varað við átökum á Sri Lanka Vaxandi spenna er einnig á milli stjórnarhers Sri Lanka og skæruliða- sveita Tamíl-tígra (LTTE) sem berj- ast fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla í norð- ur- og austurhluta eyjunnar. Tamíl-tígrarnir saka stjórnarher- inn um að hafa tekið hjálpargögn, sem áttu að fara á yfirráðasvæði þeirra, og flutt þau til annarra lands- hluta. Stjórnin neitar þessu og segir að Tamílar hafi fengið meiri aðstoð en aðrir landsmenn. Tamíl-tígrar hafa einnig gagnrýnt þá ákvörðun stjórnarinnar að senda hermenn í búðir fyrir fólk sem missti heimili sín í hamförunum. Einn leið- toga Tamíl-tígranna sagði að ef her- mennirnir færu ekki þaðan gæti það orðið til þess að átök hæfust að nýju. Reuters Verkamenn hlaða upp hjálpargögnum um borð í indónesísku herskipi sem á að flytja þau á hamfarasvæðin í Aceh-héraði á indónesísku eyjunni Súmötru. Óttast að bardagar hindri hjálparstarf í Aceh-héraði Vaxandi spenna sögð milli stjórnarhers Sri Lanka og Tamíl-tígra Colombo. AFP.  Ólýsanleg eyðilegging/18 FJÁRFRAMLÖG íslenskra stjórn- valda, félagasamtaka, fyrirtækja, sveitarfélaga og einstaklinga til hjálp- arstarfsins á flóðasvæðunum við Ind- landshaf eru nú komin í um 250 millj- ónir króna. Munar þar mest um 150 milljóna króna framlag sem rík- isstjórnin samþykkti í gær. Af þeirri upphæð fer helmingur til þróunar- og hjálparstarfs á Sri Lanka. Síðdegis í gær höfðu safnast um 95 milljónir króna hjá Rauða krossi Ís- lands, þangað sem fjárframlög hafa streymt síðustu daga. Í gær voru t.d. afhentar 10 milljónir króna frá Reykjavíkurborg og þrjár milljónir frá Sambandi íslenskra bankamanna. Þá hefur Hafnarfjarðarbær og Lions- hreyfingin á Íslandi lagt til eina millj- ón hvor aðili og með áheitasöfnun lögðu nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík til um 300 þúsund krónur. Þá hafa safnast um fimm milljónir í söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra og Davíð Oddsson utanrík- isráðherra lýsa í samtölum sínum við Morgunblaðið yfir ánægju með þann samhug og stuðning sem Íslendingar hafa sýnt í verki vegna hamfaranna á flóðasvæðunum. „Mér finnst stór- kostlegt að sjá hve einstaklingar og fyrirtæki hafa komið vel inn í þennan stuðning. Það er mikilvægt að halda áfram á þeirri braut, að þetta sé ekki eingöngu ríkið heldur við öll sem eitt- hvað getum látið af hendi rakna,“ segir Halldór. Davíð Oddsson segir fólk bersýni- lega vera snortið yfir því sem gerst hafi. „Það er mjög gott að sjá hvað Ís- lendingar ætla að leggja af mörkum. Sem betur fer erum við efnuð þjóð og það er viðeigandi að við látum eitt- hvað til okkar taka þegar svona at- burðir gerast,“ segir Davíð. Framlag Íslendinga til hjálpar- starfsins komið í 250 milljónir  Ráðherrar/10–11 Stungið inn fyrir að sitja inni Kaupmannahöfn. AFP. 49 ÁRA gamall Dani var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í gær fyr- ir að sitja í fangelsi í sólarhring fyrir vin sinn. Per Thorbjørn Lonka mætti í fangelsi í Kaupmannahöfn 28. ágúst og þegar hann kynnti sig gaf hann upp nafn vinar síns sem átti þá að hefja afplánun. Daginn eftir viðurkenndi hann fyrir fangaverði að hann ætti ekki að vera í fang- elsinu. „Ég gerði þeim þessa brellu til að sanna að menn geta komist upp með að afplána ekki dóma ef þeir eru ríkir og geta borgað einhverj- um fyrir að afplána fyrir sig,“ sagði Lonka fyrir rétti. Verjandi hans lagði áherslu á að hann hefði ekki fengið neina greiðslu frá vini sínum og hygðist áfrýja dómnum. Elvis á topp- inn á ný? ÞAÐ stefnir allt í að Elvis Presley nái í 19. sinn toppsætinu á vin- sældalista í Bret- landi en söngv- arinn hefði fagnað sjötugs- afmæli sínu í dag væri hann á lífi. Lagið, sem líklegt er til að ná toppsætinu, er endurútgáfa á hinu geysivinsæla „Jailhouse Rock“ sem kom fyrst út árið 1957. Verið er að endurútgefa öll bresku topplög rokkkóngsins í Bretlandi um þessar mundir og kemur út ein smáskífa í viku. /60 Rokkkóngurinn hefði orðið sjötugur í dag ♦♦♦ ♦♦♦ Brúður í aðal- hlutverkum Lesbók, Börn og Íþróttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.