Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Njörður P. Njarðvík í Seltjarnarneskirkju FÍKNIEFNI eru vaxandi ógn við ís- lensk ungmenni og hefur fíkna- efnavandinn herjað á flestar fjöl- skyldur þessa lands í einni eða annarri mynd. Það er ekkert sem bendir til þess að fíkniefnaneysla sé að minnka hér á landi frekar en annars staðar í Evrópu. Fyrir jólin kom út bókin Eftirmál – Harður heimur íslensks fíkils, sem er eftir feðgana Frey og Njörð P. Njarðvík. Bókin hefur vakið verðskuldaða athygli, þótt hún sé hrollvekjandi lýsing á fíkniefna- heiminum sem er eitt versta svart- hol nútímans. Njörður hefur fallist á að fjalla um fíkniefnavandann í hugvekju við sunnudagmessu í Seltjarnar- neskirkju 9. janúar nk. kl. 11. Skor- að er á foreldra ungmenna og alla táninga að fjölmenna í messuna til að hlýða á Njörð fjalla um þessi mál sem ógna hverri fjölskyldu lands- ins. Kirkjugestum er boðið að þiggja kaffiveitingar í safnaðarheimili Sel- tjarnarneskirkju eftir messuna. Seltjarnarneskirkja. Barnastarfið í Selfoss- kirkju byrjað aftur BARNASTARF Selfosskirkju er hafið að nýju, að loknum hátíðum. Samfundir barnanna og kennara þeirra eiga sér stað í lofti safnaðar- heimilis Selfosskirkju á hverjum sunnudegi og byrja kl. 11.15. Guð- spjallið er útlistað með myndum og brúðuleikhúsi, bænir eru lesnar og lærðar og sálmar og söngvar sungnir. Börnin fá í hendur marg- víslegt fræðsluefni, sem þau hafa með sér heim. Þá safna þau og mætingarmerkjum, og þegar 15 slík merki hafa verið fest á blað, fær viðkomandi barn verðlaun fyrir góða kirkjusókn. Sem fyrr eru það þær Eygló Jóna Gunnarsdóttir, djákni Selfoss- kirkju, og Guðbjörg Arnardóttir, guðfræðingur, sem hafa veg og vanda af þessum barnaguðsþjón- ustum, en Sigfús Ólafsson, hljóm- listarmaður og kennari, spilar undir sönginn á píanó. Ég hvet foreldra til þess að gefa þessum skemmtilegu stundum gaum. Óefað færa þær blessun, bæði börnum og fullorðnum, meðal annars með því að verða valið efni í mætar minningar síðar á ævi. Það er full alvara og ekkert hé- gómamál, sem Einar skáld Bene- diktsson kveður um á einum stað, þegar hann segir m.a.: „Ég man, ein bæn var lesin lágt…“ Ég hvet bæði foreldra, en einnig og ekki síður afa og ömmur, til þess að koma með börnunum til kirkju. Gleðilegt nýár, með þökk fyrir hið gamla. Gunnar Björnsson, sóknarprestur. Heimsókn frá Færeyjum FÆREYSKUR prestur, Jóannes Fonnsdal og kona hans Sigrið, eru í heimsókn á Færeyska sjómanna- heimilinu um helgina. Í þessu sam- bandi verður kvöldvaka laugardag- inn kl. 20.30 í Sjómannaheimilinu. Sunnudaginn kl. 15 verður guðs- þjónusta í Háteigskirkju, Jóannis Fonnsdal predikar. Á eftir er boðið í kaffi í Sjómannaheimilinu. Allir eru velkomnir. Alfa-námskeið í Grafarvogskirkju BOÐIÐ verður upp á Alfa-nám- skeið í Grafarvogskirkju á vormiss- eri. Kynningarfundur verður hald- inn fimmtudaginn 13. janúar nk. kl. 19. Um er að ræða 10 vikna fræðslu- námskeið um kristna trú. Hvert kvöld hefst með léttum kvöldverði. Síðan er efni kvöldsins útskýrt og rætt í umræðuhópum. Innritun fer fram á skrifstofu Grafarvogskirkju fyrir hádegi virka daga í síma 587 9070. Biblíuleg íhugun í Grafarvogskirkju NÁMSKEIÐ í biblíulegri íhugun mun hefjast mánudaginn 17. janúar nk. í Grafarvogskirkju. Um er að ræða 8 skipti, klukkutíma í senn. Námskeiðinu lýkur 7. mars nk. Sr. María Ágústsdóttir hefur umsjón með þessu námskeiði, en hún mun kenna ýmsar aðferðir í kristinni trúariðkun. Innritun fer fram á skrifstofu Grafarvogskirkju fyrir hádegi virka daga í síma 587 9070. Geiri gleðigaur kemur í heimsókn Í LINDASÓKN í Kópavogi hefst helgihald á nýju ári með fjölskyldu- guðsþjónustu í Lindaskóla kl. 11. Nýtt ár heilsar okkur með splunkunýjum bókum fyrir sunnu- dagaskólann með spennandi mynd- um til að safna. Sunnudagaskóla- fræðararnir Fjóla og Petra verða í essinu sínu, Geiri gleðigaur kemur í heimsókn og félagar úr kirkjukórn- um leiða safnaðarsönginn undir stjórn Hannesar Baldurssonar organista og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir guðsþjónustuna. Að lokinni guðsþjónustu verður boðið upp á kaffi, safa og kex. Kirkjubíllinn ekur að venju gegn um Vatnsenda- og Salahverfi. Alfa-námskeið í Íslensku Kristskirkjunni ÍSLENSKA Kristskirkjan verður nú aftur með Alfa-námskeið, eftir að kirkjan fluttist í nýtt húsnæði, í Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Alfa er alþjóðlegt námskeið, þar sem rifjuð eru upp grundvallar- atriði kristinnar trúar. Fyrir hvað stendur kristin trú? Gott til að rifja upp fermingarfræðsluna. Nám- skeiðið stendur yfir 10 þriðjudags- kvöld og eina helgi, sem farið er út úr bænum. Það byrjar með léttum kvöldverði, síðan er fræðsla og eftir það umræðuhópar, þar sem fjallað er um kennslu kvöldsins, eða annað sem tengist trúnni. Kynningarkvöld verður þriðju- daginn 11. janúar kl. 20, en nám- skeiðið byrjar svo þriðjudaginn 18. janúar kl. 19. Skráning stendur yfir á skrifstofu kirkjunnar í síma 567 8800. Þetta námskeið er fyrir fólk á öllum aldri. Árbæjarkirkja og upphaf starfsins á nýju ári FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA verður 9. janúar kl. 11. Sýnt verður leikritið „Hans klaufi“. STN-starfið hefst í Árbæjarkirkju mánudaginn 10. janúar kl. 15.15, í Selásskóla miðvikudaginn 12. janúar kl. 15. TTT-starfið í Ártúnsskóla kl. 15. TTT-starfið hefst í Árbæjarkirkju þriðjudaginn 11. janúar kl. 15.45 og Selásskóla 12. janúar kl. 16. Æsku- lýðsfélagið Lúkas byrjar starfsem- ina 12. janúar kl. 17. Foreldramorgnar hefjast þriðju- daginn 11. janúar kl. 10. Kyrrðar- stundir miðvikudaginn 12. janúar í hádeginu hvern miðvikudag kl. 12. Fyrirbænir, ritningarlestur, hug- leiðing og söngur. Súpa og brauð gegn vægu verði í safnaðarheimili kirkjunnar eftir stundina. Djákni í Laugarneskirkju VIÐ almenna messu í Laugarnes- kirkju á sunnudaginn kl. 11 mun sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, setja Guðrúnu K. Þórsdóttur í emb- ætti djákna. Að embættinu standa Biskupsstofa, ÖBÍ og Laugarnes- kirkja og mun þjónusta hennar einkum snúa að íbúum í Hátúni 10 og 12. Þess má geta að nú fellur safn- aðarstarfið í sinn góða farveg að lokinni hátíðinni. Vekjum við sér- staka athygli á kynningu á 12-spora starfi safnaðarins, sem fram mun fara að loknum kvöldsöng í kirkj- unni, þriðjudaginn 11. janúar kl. 20.30. Kvöldmessa í Laugarneskirkju ÞAÐ er gott að koma í kvöldmessu í Laugarneskirkju, þar sem djassinn dunar í bland við Guðsorðið og bænamálið. Kór Laugarneskirkju leiðir gospelsönginn og djass- kvartett Gunnars Gunnarssonar leikur. Auk Gunnars eru þar Sigurður Flosason á saxófón, Tóm- as R. Einarsson á kontrabassa og Matthías M.D. Hemstock á tromm- ur. Bjarni Karlsson sóknarprestur og Sigurbjörn Þorkelsson með- hjálpari munu þjóna við messuna sem hefst sunnudaginn 9. janúar kl. 20.30, en djassinn hefst í húsinu kl. 20 og því er gott að koma snemma í góð sæti og njóta alls frá byrjun. Karlakór og gestir í Neskirkju Í MESSU sunnudagsins sem hefst kl. 11 mun Kór Frímúrara leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóns Kristins Cortes. Félagar úr frímúr- arastúkunni Glitni heimsækja Nes- kirkju ásamt mökum sínum og lesa tveir þeirra, Jóhann Heiðar Jó- Morgunblaðið/Jim SmartSeltjarnarneskirkja UMRÆÐAN SPURNING: Er það satt að búið sé að drepa eitt hundrað þúsund manns í Írak síðan styrjöldin hófst? Forsætis: Fjölmiðlar eru eitthvað að segja það. Við skulum ekki gefa um það. Við skulum vera að horfa til fram- tíðar sem er í öruggum höndum Foringjans Mikla, Búss, og Rums- felds hins gikkfúsa, en þeir hafa falið mér um- sjón með ófundnum eiturefnavopnabirgð- um í Írak, sem „ég hef alltaf vitað að eru til“ svo ég vitni orðrétt í sjálfan mig frá því fyrir ári síðan. Spurning: Var inn- rásin í Írak ólögleg? Forsætis: Kofi Ann- an er eitthvað að segja það. Við skulum ekki gefa um það. Við skul- um trúa fyrrverandi forsætis sem sagði 2. október 2003 í alþingi að innrásin í Írak hefði verið „löghelguð af samþykktum Samein- uðu þjóðanna“. Spurning: Voruð þið flokksformenn ríkis- stjórnarflokkanna um- boðslausir þegar þið af- réðuð að eiga aðild að stríðinu í Írak? Forsætis: Stjórnarandstaðan er eitthvað að segja það. Við skulum ekki gefa um það. Við höfum alls- herjarumboð frá þingflokkum okkar í öllum málum. Ég vil einnig benda á að fiskverkandi á Bakkafirði lýsti því yfir í grein í Morgunblaðinu rétt fyr- ir sjálfa jólahátíðina að við hefðum haft skýlaust umboð. Þetta sýnir að forystumenn í undirstöðuatvinnu- greinum þjóðarinnar skynja að það borgar sig að efla og styrkja stjórn- völd, eins og nú standa sakir. Þau láta engan eiga inni hjá sér, hvorki gott né illt. Spurning: Var málið ekki rætt í þingflokkum ríkisstjórnarinnar? Forsætis: Kristinn H. Gunnarsson var eitthvað að segja það. Við skulum ekki gefa um það. En sárbitur reynsla ætti að sýna mönnum, sem kjafta leyfislaust frá, að þeir fá að kenna á kólfinum. Agi verður að vera í hernum, eins og góði dátinn Svæk margtók fram. Spurning: Er það rétt að nýju skattalögin mismuni þegnum lands- ins? Forsætis: Stjórnar- andstaðan er eitthvað að segja það. Við skul- um ekki gefa um það. Við skulum vera að horfa til framtíðar, þeg- ar þeir ríku fara að gefa á garðann hjá þeim fá- tæku. Það verður þeim mun ríflegra sem þeir munu hafa meira handa í milli vegna sann- gjarnra skattalækkana. Spurning: Er það rétt að ellilífeyrisþegar séu mjög afskiptir um kjarabætur? Forsætis: Fyrrver- andi landlæknir er eitt- hvað að segja það. Við skulum ekki gefa um það. Við skulum vera að horfa til framtíðar, þeg- ar þeir fara að moka inn fé samkvæmt út- reikningum sáttasemj- ara ríkisins. Þeir sem núna eru að kvarta verða að vísu með öllu strádauðir þegar að því kemur. En það er eins og þar segir: Koma tímar og koma gamlingjar. Spurning: Er það rétt að þú ætlir að koma á fót nefnd sem á að sirkla út að konur verði á ný sendar heim til sín af vinnumarkaði að passa börn? Forsætis: Já. Ég var að segja það á gamlárskvöld. Við skulum gefa um það. Engar reglur eru án undan- tekninga. Þess vegna skulum við í þessu falli horfa til fortíðar, þegar konur voru kjurar heima hjá sér, og sinntu börnum sínum með árangri sem sjálfur biskupinn hefur vitnað um í hátíðarmessu. Þær verða að gera svo vel og hlýða, ella verða sett á þær lög eins og kennarana – með eða án gerðardóms. Nýársskaup – Spurningar og sennileg svör Sverrir Hermannsson fjallar um áramótaskaupið Sverrir Hermannsson ’Er það rétt aðþú ætlir að koma á fót nefnd sem á að sirkla út að kon- ur verði á ný sendar heim til sín af vinnu- markaði að passa börn?‘ Höfundur er fv. form. Frjálslynda flokksins. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu forsetans að löggjafarstarfi.“ Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir: „Ég vil hér með votta okkur mína dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóð- félagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæsta- réttardómara. Ég segi okkur af því að ég er þolandinn í „Prófess- orsmálinu“.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víð- tæku umræðu í þjóðfélaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverfisvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Vilj- um við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerðar- menn til að lesa sjómannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamn- ingana.“ Á mbl.is Aðsendar greinar Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.