Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Valtýr Guð-mundsson fædd- ist í Gröf í Laxárdal í Dalasýslu 12. okt. 1914. Hann lést í St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi 31. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guð- mundur Eggertsson söðlasmiður og bóndi á Nýp á Skarðsströnd, f. 1. mars 1890, d. 18. okt. 1942, og Sigríð- ur Guðmundsdóttir, f. 20. júlí 1885, d. 12. nóv. 1963. Systkini Valtýs eru Stefán, f. 8. júní 1913, d. 3. júní 2003, Guð- laugur, f. 21. nóv. 1917, Gestur, f. 12. feb. 1923, Guðmunda Val- gerður, f. 18. apríl 1924, og Jón Óskar, f. 18. feb. 1929. Valtýr kvæntist 3. ágúst 1940 Ingunni Sveinsdóttur frá Sveins- stöðum í Dalasýslu, f. 10. maí 1918. Börn þeirra eru: 1) Val- gerður, f. 26. okt. 1940, maki Sæbjörn Jónsson, f. 19. okt. 1938, þau eiga fjögur börn. 2) Sveinlaug Salome, f. 27. ágúst 1942, maki Rögnvaldur Lárus- son, f. 8. mars 1938, d. 7. feb. 2003, þau eiga þrjár dætur. 3) Rut Meldal, f. 4. feb. 1947, maki I Þorsteinn Björg- vinsson, f. 19. júlí 1944, d. 26. ágúst 1988, þau eiga þrjá syni. Maki II Gylfi Haraldsson, f. 7. apríl 1946. 4) Guð- mundur Valur, f. 26. desember 1949, maki Steinunn Dóra Garðarsdóttir, f. 5. sept. 1956, þau eiga tvö börn. 5) Valtýr Friðgeir, f. 1. sept. 1954. Fyrrv. maki Sigrún Kristjánsdóttir, f. 20. apríl 1961. Þau eiga þrjá syni, en tvær dætur þeirra, f. 24. nóv. 1977, létust samdægurs. Afkom- endur Valtýs og Ingunnar eru 54. Valtýr og Ingunn byrjuðu sinn búskap í Reykjavík og bjuggu einnig í Kópavogi. Þau fluttu til Stykkishólms 1950 og áttu þar heima síðan. Valtýr lærði húsa- smíði í Reykjavík, gekk í Iðn- skólann þar og tók meistarapróf í iðngrein sinni 1943. Hann vann við húsasmíðar alla tíð síðan. Útför Valtýs verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar að minnast tengdaföð- ur míns með þessum orðum. Valtýr fæddist á Nýp á Skarðs- strönd í Dalasýslu og ólst þar upp sín fyrstu ár. Atvik höguðu því svo, að hann dvaldi á heimili föðurbróður síns í Rauðbarðaholti í Hvammssveit í sömu sýslu öll sín unglingsár. Hann ólst upp við erfiði þess tíma, fór strax að vinna þegar hann gat og dró ekki af sér. Bústörf heilluðu hann þó ekki og fór hann til Reykjavíkur í iðnnám undir tvítugt. Húsasmíðin átti hug hans allan og lauk hann meistaraprófi í iðn sinni 1943. Hann hafði nokkrum árum áður eða 3. ágúst 1940 gengið að eiga sína heitt- elskuðu Ingunni Sveinsdóttur frá Sveinsstöðum í Klofningshreppi. Þau því bæði Dalafólk. Heimili sitt áttu þau á Reykjavíkursvæðinu fram til 1950, en fluttu þá til Stykkishólms og bjuggu þar síðan. Þrjár dætur þeirra og eldri sonurinn komu með þeim í Hólminn, en yngri sonurinn fæddist þar 1954. Heimili þeirra í Hólminum stóð alltaf gestum opið og var þar mjög gestkvæmt. 64 ár höfðu þau verið í hjónabandi Ingunn og Valtýr við andlát hans. Ingunn tengdamóðir mín lifir mann sinn 86 ára, nokkuð þrotin að kröftum en vel ern. Valtýr var flinkur og harðdug- legur smiður og sá um smíði margra húsa. Laghentur var hann. Valtýr og Ingunn, sannir Dalamenn, fóru ekki ánægjulegri ferðir en á æskuslóðirn- ar og miðluðu fylgdarfólki ómældum fróðleik í þessum ferðum. Þau hjón voru mjög samhent og mér fannst einkenni Valtýs vera trúmennska, dugnaður, heiðarleiki, samviskusemi og greiðasemi í garð annarra. Valtýr og Ingunn komu oft hingað í Laug- arás til okkar Rutar, bæði síðast 2002. Eftir það treysti hann sér ekki, vildi ekki íþyngja öðrum með veik- leika sínum. Það er gott að tengjast inn í slíka fjölskyldu, vera alltaf vel tekið og nóg um að ræða. Valtý, þessum athafnamanni, þótti verst að missa verkstæðið sitt við flutning í íbúð við Dvalarheimilið 1991. Nú er hann allur. Langri starfsævi lokið. Minningin lifir. Ég votta tengda- móður minni innilega samúð. Gylfi Haraldsson. Elsku afi. Nú ertu farinn og þín er sárt sakn- að. Það rifjast upp fyrir okkur systk- inunum margar góðar minningar um þig. Það var alltaf fastur liður hjá okkur á uppvaxtarárum okkar að fara til ykkar ömmu í Stykkishólm- inn á sumrin. Fyrir okkur að koma úr borginni til ykkar var ævintýri líkast. Þú varst alltaf svo glaður að sjá okkur og vildir að við byrjuðum á að koma inn í eldhúsið og fá okkur bita. Þar var amma búin að leggja á veisluborð og síðan var haldið á vit ævintýranna. Svo var það alltaf svo spennandi þegar þú fórst með okkur á smíðaverkstæðið þitt sem var í skúrnum við hliðina á íbúðarhúsinu á Austurgötu. Þar var svo margt sem þú gast sýnt okkur og oft fylgdumst við með þegar þú varst að smíða eitt- hvað. Okkur er það afar minnisstætt þegar þú varst að brýna ljáinn og fórst svo að slá blettinn með orfi og ljá. Þegar við vorum í heimsókn þurftir þú ekki annað en að slá því við sáum um heyið. Þú naust þess að hafa okkur hjá þér, það fundum við svo vel. Þegar við vorum komin á fullorð- insár og komum í heimsókn var allt- af tekið jafn hlýlega á móti okkur og barnabarnabörnunum ykkar. Þá rifjuðust upp margar góðar minn- ingar frá æskuárunum. Við geymum með gleði stundina sem við áttum með þér hinn 12. októ- ber síðastliðinn þegar þú hélst upp á níræðisafmælið. Nú kveðjum við þig elsku afi sem alltaf varst svo góður við okkur og biðjum við guð að varðveita þig. Þín barnabörn Jón Aðalsteinn, Valbjörn, Alma og Smári. Ljúft er að minnast mágs míns Valtýs Guðmundssonar bygginga- meistara. Hann var mömmu afar hjálplegur 1937–39 eftir að pabbi dó ’36 frá tíu systkinum, sjö um og inn- an við fermingu. Þá voru oft erfiðir tímar. Valtýr ólst upp í Rauðbarðaholti hjá Kristmundi Eggertssyni föður- bróður sínum og hans ágætu konu, vann mikið sem títt var með dugleg börn og reyndist óvenjuduglegur og laginn við öll verk. Snemma vaknaði áhugi hans á smíðum. Ungur reisti hann íbúðarhús fyrir foreldra sína, sem þá bjuggu á Nýp á Skarðs- strönd, og þótti þrekvirki svo ungum pilti. Valtýr og Inga systir fluttu með dóttur sína í Kópavog ’41. Hann lærði húsasmíði hjá Magnúsi Ketil- bjarnarsyni, fór á reiðhjóli í vinnuna, heim og í Iðnskólann, sem þá var kvöldskóli. Sumarið 1942 eignuðust þau aðra dóttur og fæddist vestur á Sveins- stöðum. Næst bjuggu þau í Garða- stræti 49, þar var hægara um vik, og svo í Þvervogi 38 í Skerjafirði og allt- af hjólaði Valtýr. Ég leigði þá hjá þeim herbergi. Litlu ljúfu dæturnar komu oft í heimsókn til frænda. Gestrisni, hlýja og myndarskapur fylgdu þeim alla tíð. Valtýr lauk námi og stundaði iðn sína í Reykjavík í 15 ár. Þá fluttu þau af Fálkagötu til Stykkishólms. Þar vann hann sem byggingameistari og verkstjóri Stykkishólmshrepps og í nágrannasveitum í áratugi. Verk Valtýs voru ákaflega vönduð og traust og ekki flanað að neinu. Mörgum lagði hann ráð og reyndust vel enda heilindamaður og verk- glöggur. Hann var einstakur heimilisfaðir, afi og langafi og naut þess meðan heilsan leyfði. Alltaf var hann hress og til í að gera að gamni sínu enda áttum við fjölda góðra stunda alla tíð. Hann var einstaklega þakklátur þeim sem hlynntu að honum síðustu árin; sinni góðu konu og börnum, starfsfólki á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi, læknum og hjúkrun- arfólki á spítalanum. Kæri vinur, við biðjum þér guðs- blessunar í fyrirheitna landinu og þökkum góða samfylgd. Konu þinni, börnum og barnabörnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Kristinn Sveinsson frá Sveinsstöðum, Margrét Jörundsdóttir. Þau eru orðin allnokkur sumrin sem Dalirnir hafa kallað okkur til sín. Ófáar voru ferðirnar í Stykkis- hólm er farið var í siglingu með Eyjaferðum. Við hófum þær oftar en ekki á heimsókn til Valtýs og Ingu. Jafnan var uppreitt gnægtaborð og spjallað um heima og geima. Valtýr var orðvar maður, flíkaði engu, en ef á hann var gengið lumaði hann á margri góðri sögu og fróðleik um mannlíf og lífsbaráttu fyrri ára. Þá flaut gjarna með ein og önnur hnytt- in saga í safn grúskarans. Mér er ein þessara ferða einkar minnisstæð. Hjónin tóku á móti okk- ur í sólskinsskapi eins og vanalega, bakkelsið töfrað fram úr skápum og risastór konfektkassi í ofanálag. Valtýr var í essinu sínu og rifjaði upp eitt og annað að venju. Ég vissi að hann var ágætur neftóbaksmaður og varð nú á að bjóða honum í nefið. Valtýr hló, dró upp forláta pontu og sagði að nú byði hann. Hélt hann nú að mér pontunni sem ákaflegast og ég gerði mitt besta, sem ekki dró úr gestrisni húsbóndans og ósparleg- heitum á snússið. Auðséð var að Valtý var skemmt að sjá gestinn taka áskoruninni og sagði nú frá að sínum hætti sem aldrei fyrr, en húsfreyjan hneyksl- aðist góðlátlega á tiltækinu, en brosti þó. Við hjónin héldum í Sæfarasigl- inguna með fjölskylduna, pakksödd að vanda og undirritaður svo tóbaks- mettaður að við lá sundlan og vissi raunar ekki hvoru um var að kenna, neftóbakinu eða sjólaginu, þegar einkennilegheitin tóku að sækja á. Valtýr var sterklegur á vöxt, and- litsdrættirnir skýrir og skarpir, oft alvarlegur en brosti breiðast manna þegar honum var skemmt, breiður um brjóst, handtakið þétt og hlýtt, VALTÝR GUÐMUNDSSON ✝ AðalsteinnSmári Valgeirs- son fæddist á Seyð- isfirði 24.4. 1959. Hann lést 31. des- ember síðastliðinn 12. Foreldrar hans eru Steinunn Bjarnadóttir, f. 29.9. 1920, og Valgeir Júlíus Emilsson, f. 28.4. 1923, d. 21.2. 1983. Systkini Aðal- steins eru Bjarni Hólm, f. 10.8. 1945, Helgi, f. 30.8. 1948, og Jónborg, f. 28.4. 1950. Aðalsteinn kvæntist 21.5. 1988 Sveinhildi Ísleifsdóttur, f. 12.3. 1961, hún er dóttir Ísleifs Guð- leifssonar og Sig- rúnar Haraldsdótt- ur. Börn Aðalsteins og Sveinhildar eru Ísleifur, f. 30.1. 1980, sambýliskona hans er Elva Ás- geirsdóttir, Bjarni Hólm, f. 5.10. 1984, unnusta hans er Arna Kristín Sig- urðardóttir, og Harpa Hrund, f. 31.12. 1988, unnusti hennar er Davíð Snær Guttormsson. Aðalsteinn Smári verður jarðsunginn frá Seyðis- fjarðarkirkju í dag laugardag- inn 8. janúar, og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Alli litli bróðir. Þegar ég sit hér og hugsa til þín, þá kemur alltaf upp í hugann þegar þú fæddist, ég vildi eignast litla systur, en fékk lítinn bróður. Var pínulítið móðguð út í mömmu að gefa mér ekki systur, en þegar ég sá þig í fyrsta skipti, þá níu ára gömul en þú sólarhrings gamall, þá bráðnaði stóra systir því þú varst svo fallegur með þitt ljósa og mikla hár.Ég var líka svo stolt að keyra þig í kerrunni, þegar allir dáðust að því hvað þú værir sætur. Minning- arnar eru margar, þegar ég var unglingur hafðir þú óskaplega gam- an af því að stríða mér og gera alls konar at í mér af því að þú vissir að ég mundi æsa mig. Þú stækkaðir svo mér yfir höfuð, auðvitað hélstu áfram að gera at í mér, tókst mig í fangið og þóttist ætla að henda mér út um gluggann, en við gátum alltaf hlegið að þessu á eftir. Elsku bróðir, ég á eftir að sakna þín sárt, ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Og ég er viss um að pabbi og Lilli minn taka vel á móti þér. Elsku Alli bróðir, þú verður ávallt í hjarta mínu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín systir Jónborg. Elsku besti tengdapabbi. Mig langar að kveðja þig með smá sálmi og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Bið Guð um að styrkja alla ást- vini þína í þessari miklu sorg. Kveðja, þín tengdadóttir, Elva Ásgeirsdóttir. Elsku Alli, það er sárt að þurfa að kveðja þig. Að morgni gamlársdags vorum við vakin með þeirri sorgarfrétt að þú værir dáinn. Það hrannast upp allar gömlu góðu minningarnar um þig. Það verður skrítið að heyra ekki lengur fótatakið þitt þegar þú kemur gangandi inn á tréklossun- um. Og tekur ekki á móti okkur með þinni hógværð og segir blessuð með þinni hásu og lágróma rödd. Alltaf vorum við velkomin á heimili ykkar Hildar systur og barnanna á Seyðisfirði þegar við komum að sunnan. Það var lítið vandamál að finna handa okkur svefnstað á rúmum og dýnum. Þú stóðst við útvarpið og hlustað- ir á fréttir og misstir helst ekki af íþróttum. Enda vissirðu allt sem viðkom íþróttum, einkum fótbolta og af þínum liðum Hugin og Chelsea. Alltaf gafstu þér tíma með börnunum þínum sem þú varst svo stoltur af. Enda þótti þeim og okk- ar börnum afskaplega vænt um þig. Og geta þau nú yljað sér við allar yndislegu minningarnar sem þau eiga um góðan mann. Við viljum með þessum orðum kveðja þig. Hvíl í friði kæri vinur. Elsku Steina, Hildur, Ísleifur, Bjarni, Harpa, Elva, Arna, Davíð og aðrir aðstandendur, megi Guð vaka yfir ykkur og veita styrk á erf- iðum tímum. Ó, Jesús, séu orðin þín andláts síðasta huggun mín. Sál minni verður þá sælan vís með sjálfum þér í paradís. (Hallgr. Pétursson.) Mekkín, Guðmundur, Sæmundur, Sigrún og Ísleifur. Í dag kveðjum við góðan vin og bekkjarbróður, Aðalstein Smára Valgeirsson, sem nú er horfinn yfir móðuna miklu. Alli Smári eins og hann var alltaf nefndur af vinum sínum ólst upp á Seyðisfirði í stórum vinahóp. Hann var dáður af okkur bekkjarsystkinum sem vor- um í árgangi ’59 í Seyðisfjarðar- skóla, þekktur fyrir prúðmennsku og ljúfleika. Alli Smári gat sér snemma orð fyrir að vera góður íþróttamaður og í knattspyrnu var hann mjög góður og skaraði fram úr í okkar aldurshópi. Að loknu grunnskólanámi vann Alli Smári lengi í Norðursíld en síð- ustu árin hjá SR-mjöli á Seyðisfirði. Á báðum þessum stöðum var hann mjög vinsæll meðal vinnufélaga sinna. Samhliða vinnunni í Norð- ursíld spilaði Alli Smári með meist- araflokki Hugins og sinnti þannig áfram sínu stóra áhugamáli knatt- spyrnunni. Þegar á fullorðinsárin kom fórum við bekkjarsystkinin hvert í sína áttina eins og gengur og gerist. Nokkur okkar búa á Seyðisfirði og nutu því samvista við Alla Smára oftar en önnur. Flest okkar hafa þó séð sér fært að koma saman á ferm- ingarafmælum og af öðrum tilefn- um. Þær samverustundir hafa verið mjög skemmtilegar og eftirminni- legar. Alltaf höfum við hitt sama gamla vininn okkar Alla Smára, sem aldrei lét sig vanta þegar við hittumst, með sína góðu kímnigáfu, ávallt manna skemmtilegastur og hrókur alls fagnaðar. Við þökkum Alla Smára lífsfylgdina. Hans er sárt saknað. Við vottum fjölskyldu Alla Smára okkar dýpstu samúð. Megi guð veita ykkur öllum styrk. Árgangur ’59 í Seyðisfjarðarskóla. Á síðasta degi ársins, þegar til- hlökkun og spenna fyrir nýju ári er efst á baugi og dauðinn eitthvað svo fjarri, þá setur mann hljóðan, að fá þær fréttir að einn af æskufélög- unum sé farinn yfir móðuna miklu. Það var dimmur skuggi yfir gamlársdegi og áramótum, eftir upphringingu frá bróður mínum sem tjáði mér að Alli Smári hefði dáið þá um nóttina frá eiginkonu og þremur börnum. Eftir situr maður einn og grúfir andlitið í höndum sér með tár á hvarmi og spyr hvers vegna hann? Hvers vegna hann, sem átti eftir að upplifa svo margt, eins og t.d. að sjá börn sín vaxa og dafna áfram, Hug- in spila í 2. deild, kannski loks að sjá Chelsea vinna þann stóra í Eng- landi og svo margt annað sem við þráum svo gjarnan að fylli líf okkar stolti og gleði. Í æsku var Alli Smári einn af þessum drengjum sem oftast nær fóru hljóðar um en hinir strákarnir en þó gat gustað af honum ef svo bar undir, alltaf var stutt í grall- arann og húmorinn. AÐALSTEINN SMÁRI VALGEIRSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.