Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT KARL Gústaf XVI, konungur Svía, og Silvía, drottning hans, munu í dag taka þátt í einni af mörgum hundruðum minningarathafna um fórnarlömb hamfaranna í Suður- Asíu. Verða þær haldnar um alla Svíþjóð og einnig á öðrum Norð- urlöndum. Staðfest er, að 52 Svíar týndu lífi í flóðbylgjunum og enn er rúmlega 1.900 saknað. Göran Persson for- sætisráðherra óttast, að endanleg tala látinna geti orðið meiri en 1.000 en til samanburðar má geta, að 892 fórust er ferjan Estonia sökk á Eystrasalti 1994, þar af 551 Svíi. Margir bestu listamanna Svía munu koma fram á tónleikum í Stokkhólmi í dag og verður þá ekki krafist neins aðgangseyris. Er fólk hins vegar hvatt til að nota tæki- færið og leggja sitt af mörkum í söfnunina fyrir þá, sem lifðu hörm- ungarnar af, og aðstandendur þeirra, sem fórust. Í Noregi verða tónleikar víða um landið og verður árleg hátíð og út- nefning íþróttamanna síðasta árs helguð söfnuninni. Þá munu þau Haraldur V konungur og Sonja drottning taka í fyrsta sinn þátt í söfnun í beinni útsendingu. Í Danmörku munu tvær helstu sjónvarpsstöðvarnar standa saman að söfnun og í Finnlandi verður at- höfn í dómkirkju Helsinki-borgar. Hundruð minningar- athafna Stokkhólmi. AP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær, að tortímingin í Aceh-héraði í Indónes- íu væri skelfilegri en orð fengju lýst. Er tala látinna í hamförunum nú komin eitthvað yfir 150.000 manns og yfir 100.000 í Aceh-héraði einu. Annan og James Wolfensohn, for- seti Alþjóðabankans, flugu í gær með þyrlu yfir Aceh-hérað og lentu síðan í Banda Aceh, höfuðstað hér- aðsins, og í Meulaboh en á hvorugum staðnum stendur nú steinn yfir steini. „Ég hef aldrei séð slíka eyðilegg- ingu og ég spurði sjálfan mig að því hvar fólkið væri. Hvað hefði orðið um það?“ sagði Annan við frétta- menn en í gær fundu björgunar- menn á þessum slóðum lík meira en 7.000 manna. Ljóst er, að tala látinna þar eigi eftir að hækka enn og raun- ar óvíst að hún verði nokkurn tíma fullljós. Frá Aceh fór Annan til Sri Lanka þar sem meira en 30.000 manns fór- ust og um 800.000 manns misstu heimili sitt. Er hann fyrsti fram- kvæmdastjóri SÞ til að koma til landsins síðan Kurt Waldheim var þar á ferð 1975. Annan ætlaði að eiga fund með yf- irmönnum hjálparstofnana SÞ á svæðinu en á Sri Lanka voru einnig í gær þeir Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. Kom það fram hjá Straw, að vitað væri um 49 Breta látna en 391 væri saknað. Ólýsanleg eyðilegging Reuters Nokkrir Sri Lanka-búar fara með bænir sínar yfir gröf ungrar stúlku sem jörðuð var á Kalmunai-strönd, aust- arlega í landinu, í gær. Kofi Annan er kominn til Sri Lanka en hann kannar nú hörmungasvæðin í Suður-Asíu. Kofi Annan á ferð um hamfarasvæðin Banda Aceh. AP. HÉR á eftir verður stiklað á stóru í grein eftir Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, en hún birtist í Wall Street Journal 30. desember síðastliðinn. Þar fjallar hann um horfurnar í þýskum efnahags- málum og Agenda 2010, umbóta- áætlun stjórnar hans, en meg- inmarkmiðið með henni er að gera efnahagslífið sveigjanlegra og sigr- ast á þeirri stöðnun, sem einkennt hefur það í langan tíma. „Fyrir aðeins nokkrum dögum,“ skrifar Schröder, „var þetta aðal- fyrirsögnin í þýska viðskipta- dagblaðinu Handelsblatt: „Betri tímar framundan í þýsku atvinnu- lífi.“ Já, horfurnar í þýskum efna- hagsmálum eru góðar. Við höfum sigrast á stöðnuninni og stórbætt samkeppnisgetu okkar á heims- markaði. Eftirspurn eftir þýskum vörum hefur raunar aldrei verið meiri. Þótt ekki séu öll kurl komin til grafar enn fyrir árið 2004, þá bendir flest til, að Þýskaland sé mesta út- flutningsríki í heimi og hafi tekist að hasla sér völl á nýjum mörkuðum,“ segir Schröder í grein sinni og full- yrðir, að með Agenda 2010 hafi ver- ið lagður grunnur að framtíðarvexti og styrkri stöðu Þýskalands á al- þjóðavettvangi. „Við höfum því góða ástæðu til að vera bjartsýn á þróun efna- hagsmálanna á kom- andi árum. Umbætur í trygginga- og lífeyr- ismálum hafa einnig miðað að þessu sama og framlög launþega til þessara mála eru nú jöfn og stöðug,“ segir Schröder og nefnir um leið, að nú um áramót- in hafi síðasta stig skattbreytinganna átt að koma til fram- kvæmda. Segir hann, að það muni létta byrði skattgreiðenda um nærri sjö millj- arða evra (580 milljarða ísl. kr.) og auka um leið innlenda eftirspurn. Efsta jafnt sem neðsta skattþrepið verði lækkuð og muni þá verða lægri en nokkru sinni fyrr. Áhersla á tæknilega forystu „Ég veit vel, að þessar umbætur gera miklar kröfur til borgaranna og einkum vegna þess, að það tekur nokkurn tíma fyrir þær að hafa áhrif. Þess vegna skiptir svo miklu máli, að við höfum trú á þeim, háir sem lágir, launþegar jafnt sem vinnuveit- endur. Endurbætur á tryggingakerfinu og endurskipulagning í atvinnulífinu og rekstri fyrirtækja eru forsenda fyrir sam- keppnishæfni okkar á alþjóðamarkaði. Framtíðarvelferð okkar felst þó umfram allt í að viðhalda tæknilegri getu okkar og forystu. Þess vegna hefur það verið forgangsmál að auka fjárfestingu í mennt- un, rannsóknum og nýjungum. Frá 1998 hafa framlög til þessara mála aukist um 10 milljarða evra (830 milljarða kr.).“ Í greininni segir Schröder, að í heildina standi þýskt efnahagslíf vel en brýnasta verkefnið sé að efla þann iðnað, sem byggist á innan- landsmarkaðinum. Þar horfi líka vel. Fyrirtækin hafi aukið fjárfest- ingar sínar og meðal atvinnurek- enda sé aukin bjartsýni á framtíð- ina. Vextir séu lágir, hagnaður viðunandi og nýting framleiðsluget- unnar hafi aukist. Allt bendi til auk- innar framleiðslu og sölu á nýju ári. Aukið gegnsæi á olíumarkaði Schröder segir, að þótt horfurnar séu góðar, þá sé samt ástæða til að hafa áhyggjur af óróanum á olíu- markaði og lágu gengi Bandaríkja- dollara. Sérfræðingar í olíumálum segi, að óstöðugleikinn á þeim markaði stafi ekki aðeins af aukinni eftirspurn, heldur ekki síður af mik- illi spákaupmennsku. „Ég tel því, að auknar upplýs- ingar og aukið gegnsæi hvað varðar helstu verðmyndunarþættina, til dæmis eftirspurnina í Kína og Ind- landi, myndu draga verulega úr spákaupmennskunni.“ Miklir möguleikar á innra markaði ESB Í grein sinni bendir Schröder á, að innanlandsmarkaður Evrópusam- bandsins, 450 milljóna manna, muni bjóða upp á gífurlega vaxtarmögu- leika og enginn vafi leiki á, að sam- keppnisgeta Þjóðverja muni eflast við stækkun ESB og aukna sam- keppni á alþjóðamarkaði. Hafi þýsk fyrirtæki brugðist við aukinni sam- keppni á alþjóðlegum vinnumarkaði með því að stórauka samkeppn- isgetu sína hvað varðar vöruverð og þess sjái enda stað í stórauknum út- flutningi. Þýskt efnahagslíf muni líka njóta aukinnar velsældar ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu og það sama megi segja um þá ákvörðun að hefja aðildarviðræður við Tyrkland. „Við Þjóðverjar getum horft bjartsýnir fram á veginn. Efna- hagslífið er öflugt og staða okkar á alþjóðavettvangi er sterk. Til- gangur umbótanna er að skapa hluthafasamfélag. Samfélag, sem tryggir ekki aðeins félagslegt rétt- læti, heldur einnig efnahagslega velferð. Ég veit, að Þjóðverjar allir vilja vinna að því,“ sagði Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, að lokum. Segir bjart fram undan í þýsku efnahagslífi Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands. ’Tilgangur umbótannaer að skapa hluthafa- samfélag. Samfélag, sem tryggir ekki aðeins félagslegt réttlæti, heldur einnig efnahags- lega velferð.‘ FORMLEGRI kosningabaráttu vegna forsetakjörsins í Palestínu á morgun, sunnudag, lauk í gær en það bar helst til tíðinda að ísraelska lögreglan handtók einn af nafn- kunnustu frambjóðendunum, lækn- inn Mustafa Barghouti. Þetta er í annað skipti sem hann er handtek- inn á nokkrum vikum. Barghouti, sem skv. skoðana- könnunum nýtur næstmests fylgis meðal Palestínumanna, var færður í varðhald eftir að hann hafði reynt að sækja bænastund í Al-Aqsa- moskunni í Austur-Jerúsalem en sleppt nokkrum klukkustundum síð- ar. „Þið eruð að handtaka forseta- frambjóðanda sem leyfi hefur til að vera í Austur-Jerúsalem,“ sagði Barghouti um leið og lögreglan ýtti honum inn í lögreglubíl. „Hann má ekki fara til Al-Aqsa og honum er fullkunnugt um það. Í Al-Aqsa moskunni eiga menn að biðja, ekki stunda áróður,“ sagði hins vegar Shmulik Ben Ruby, tals- maður ísraelsku lögreglunnar um handtöku Barghoutis. Öðrum forsetaframbjóðanda, Bassam al-Salhi, var sömuleiðis skipað að yfirgefa A-Jerúsalem þar sem hann ávarpaði kosningafund. Abbas þykir sigurstranglegur Gert hafði verið ráð fyrir því að Mahmoud Abbas, sem líklegur þyk- ir til að bera sigur úr býtum í for- setakosningunum, myndi einnig vera á ferð í Austur-Jerúsalem en eftir handtöku Barghoutis ákvað hann að halda sig í burtu. Í staðinn ávarpaði hann hóp Palestínumanna í Bir Nabala í tilefni Dags píslarvotta og minntist hann þar Yassers Ara- fats, leiðtoga Palestínumanna til margra ára, sem lést nýverið. Fastlega er reiknað með að Ab- bas vinni öruggan sigur í forseta- kosningunum á morgun. Barghouti þykir líklegur til að lenda í öðru sæti en miklu munar á fylgi hans og Abbas. Reuters Mustafa Barghouti við hlið lögreglumanns eftir að hann var handtekinn. Formlegri kosninga- baráttu lokið í Palestínu Mustafa Bargh- outi handtekinn í annað sinn Ramallah. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.