Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 8

Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kona, tak kápu þína og hatt og gakk heim. Miklum tíma ogfjármunum hefurverið varið í rannsóknir, gerð hættu- mats og í snjóflóðavarnir á snjóflóðahættusvæðum hér á landi á undanförnum árum. Ofanflóðanefnd, sem heyrir undir um- hverfisráðuneytið, hefur það hlutverk samkvæmt lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföll- um, að fjalla um og taka afstöðu til tillagna sveitar- stjórna um gerð varnar- virkja á hættusvæðum, sem og um uppkaup eða flutning húseigna. Þá er hlutverk nefndarinnar að gera tillögur til umhverfisráð- herra um fjárstuðning úr Ofan- flóðasjóði við varnarframkvæmdir og aðrar forvarnaraðgerðir á hættusvæðum. Ofanflóðasjóður greiðir allt að 90% af kostnaði við undirbúning og gerð varnarmann- virkja á hættusvæðum og 90% af kostnaði sveitarfélaga við upp- kaup á verðmætum eða flutning þeirra á örugg svæði. Þá greiðir sjóðurinn kostnað við gerð hættu- mats fyrir byggð sem talin er á hættusvæði. Kostnaður Ofanflóðasjóðs vegna varnarvirkja frá 1. janúar 1996 til síðustu áramóta nemur 2,8 milljörðum króna og kostnaður vegna hættumats á sama tímabili nemur 180 milljónum króna. Of- anflóðanefnd hefur starfað sam- kvæmt rammaáætlun frá 1997, eftir að ríkisstjórnin samþykkti sérstaka framkvæmdaáætlun um aðgerðir til að tryggja öryggi íbúa á snjóflóðahættusvæðum. Umhverfisráðuneytinu var falin yfirstjórn þessa málaflokks eftir snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri árið 1995. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu- neytinu, er formaður Ofanflóða- nefndar. Hann segir að í upphafi hafi verið komið á vöktun, viðvör- un og kerfi snjóflóðaeftirlits- manna á öllum þeim stöðum sem talin var snjóflóðahætta á og það tengt við kerfi Veðurstofunnar, þannig að hægt yrði að vara við hættunni. „Það var svo lengri tíma mál að byggja upp virkar varnir. Jafn- framt var farið í að gera rýming- arkort fyrir öll svæðin og tengja það við aðstæður á hverjum stað. Samhliða þessu varð að fara í að- gerðir bæði á Flateyri og Súðavík. Tekin var ákvörðun um að flytja byggðina í Súðavík en byggja varnargarð á Flateyri. Einnig var gerð gróf úttekt á aðstæðum, möguleikum til snjóflóðavarna og líklegum kostnaði í öllum þessum sveitarfélögum sem þá var vitað að byggju við hættu. Þetta voru Ólafsvík, Vesturbyggð, þ.e. Pat- reksfjörður og Bíldudalur, Ísa- fjörður, Bolungarvík, Siglufjörð- ur, Neskaupstaður og Seyðisfjörður. Þessi skýrsla var lögð fyrir ríkisstjórn seinni hluta árs 1996 og þar var lagt upp með langtímaáætlun sem miðaði að því að frá þessum tíma og fram til 2010–2012 yrði lokið við að ganga frá varanlegum vörnum á þessum svæðum, þannig að íbúar myndu búa við ásættanlega áhættu í sín- um húsum. Eftir þessari áætlun hefur verið unnið, auk þess sem vinnu við hættumat sveitarfélaga í þéttbýli er að ljúka. Einnig er haf- in vinna á hættumati fyrir skíða- svæði landsins, í nýju snjóflóða- setri Veðurstofunnar á Ísafirði.“ Framkvæmdum í Súðavík og á Flateyri er lokið, sem og fram- kvæmdum við snjóflóðavarnar- garð við Seljaland í Skutulsfirði, vinna við þvergarða fyrir ofan byggðina á Siglufirði er í gangi en áður var búið að reisa þar varn- argarð syðst í bænum. Byggingu varnargarðs á Seyðisfirði er að ljúka, aðeins frágangur eftir, búið er að byggja stóran varnargarð í Neskaupstað. Hönnun varna í Bolungarvík er lokið en fram- kvæmdir ekki hafnar. „Miðað við gang mála eru menn hóflega bjartsýnir á þessi mark- mið sem ríkisstjórnin setti á sín- um tíma, um að ljúka við að koma hlutum í ásættanlegt ástand hjá sveitarfélögum sem búa við snjó- flóðahættu á árunum 2010–2012, gangi eftir,“ sagði Magnús Jó- hannesson. Fólki líður vel Þau mannvirki sem byggð hafa verið hafa þegar sannað gildi sitt, m.a. á Flateyri, þar sem byggður var varnargarður fyrir ofan byggðina. Eiríkur Finnur Greips- son, íbúi á Flateyri, sagði að varn- argarðurinn hefði virkað vel. „Þetta er svokallaður leiðigarður sem myndar fleyg í fjallinu og tek- ur við snjóflóðum úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili og á að leiða þau frá byggðinni. Það hafa komið snjófljóð á þennan garð úr Innra- Bæjargili, þau stærstu í febrúar 1999 og 2000 og náðu í sjó fram. Eins og það var orðað þá, svín- virkaði garðurinn og þeir vísinda- menn sem hingað komu í kjölfarið og gerðu úttekt á flóðunum, töldu sína útreikninga hafa staðist. Við erum því mjög vel varin, fólki líð- ur vel og er mun öruggara um sig. Húsin þrjú, sem skemmdust í flóðinu á sínum tíma, voru endur- byggð og þar býr fólk í dag og er sælt með sitt,“ sagði Eiríkur. Fréttaskýring | Miklum tíma og fjármunum varið í snjóflóðavarnir Varnargarð- arnir virka Ofanflóðasjóður hefur greitt 2,8 millj- arða í varnarvirki á síðustu árum Snjóflóð hafa valdið mannskaða og tjóni. Fólkið sá að þetta voru alvöru varnir  „Flóðið 1999 féll um miðjan dag á sunnudegi og myndaðist hátíðarstemning í bænum, fólk sá að þetta voru alvöru varnir. Ríkissjóður, Ofanflóðasjóður og Samhugur í verki lögðu okkur til verulega peninga til að ráðast í frágang á efri hluta þorpsins og því er ekki saman að líkja hver staðan er í dag og eftir flóðið 1995. Við erum því ofsalega glöð með það hversu okkur hefur ver- ið hjálpað mikið,“ segir Eiríkur F. Greipsson á Flateyri. krkr@mbl.is Emile Henry leirvörur 25% afsláttur 10-20% 15-40% Tilboðsverð! Tilboðsverð! Gerðu góð kaup! AEG Kaffivél KF 1000 3.990.- 2.690.- AEG Kaffivél CC 101 5.990.- 4.490.- AEG Brauðrist AT 260 6.290.- 4.990.- AEG Brauðrist AT 230 4.290.- 3.490.- AEG Straujárn DB 4050 3.890.- 2.990.- AEG Handþeytari Hm 310 3.490.- 2.690.- AEG Blandari M 2500 5.990.- 4.490.- AEG Blandari Gler M 2600 8.990.- 6.790.- AEG Matvinnsluvél Km 850 13.900.- 9.990.- AEG Hárblásari Figaro 2.790.- 1.990.- AEG Expresso EA 100 13.579.- 9.990.- AEG Ryksuga Megapower 9.990.- Dagana 6.–20 . janúar A u g lý si n g as to fa G u ð rú n ar Ö n n u Heimabíó DCS 222 Kr. 49.900.- Vaxtalausar greiðslur í allt að 12 mánuði 29”Sjónvarp 50 Hz Kr. 49.900.- 100 Hz Kr. 69.900.- Þvottavél Lavamat 74639 Með íslensku stjórnborði 1400 snúningar - 24 þvottakerfi TILBOÐ: Kr. 74.900.- Þrig gja ára áb yrg ð er á öll um AEG þv otta vél um “Gríðarlega góð kaup!” Ryksuga 1800 W Kr. 9.990.- Matvinnsluvél KM 850 (Kr. 13.900.-) Kr. 9.990.- Pottar og pönnur 25% afsláttur Verkfærin fást aðeins í Lágmúla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.