Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 12

Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Greint hefur verið frá því að hluta-félagið Hugi, sem áður hét Fróði,hafi verið úrskurðað gjaldþrota ogað skuldir félagsins nemi um hálf- um milljarði króna en eignir um 37 millj- ónum. Fróði hafði til margra ára verið stærsti tímaritaútgefandi hér á landi. Torg ehf., dótturfélag prentsmiðjunnar Odda, keypti öll hlutabréf Fróða í ágúst á síðasta ári en í desember var stofnað nýtt félag, Tímaritaútgáfan Fróði ehf., sem keypti allar eignir Fróða og yfirtók þann rekstur sem fé- lagið hafði haft með höndum og í tengslum við þessar breytingar var nafni gamla hluta- félagsins breytt úr Fróða í Huga. Stór hluti af skuldum Fróða rann til hins nýja Fróða (Tímaritaútgáfunnar Fróða) þeg- ar það félag yfirtók reksturinn. Eftir því sem næst verður komist reyndust þær skuldir sem eftir urðu hjá Huga hf. (gamla Fróða) ekki hafa verið meiri en ráð var fyrir gert. Þessar skuldir voru við Prentsmiðjuna Odda, sem var stærsti einstaki kröfuhafinn, við líf- eyrissjóði og bankastofnanir. Reynt var að semja um skuldirnar og lán- ardrottnum gert tilboð sem háð var sam- þykki þorra kröfuhafa. Þetta tókst ekki þar sem einn lánardrottnanna mun hafa neitað að ganga tilboðinu og því varð gjaldþrot Huga niðurstaðan. Nú liggur fyrir að Knútur Signarsson, sem tók fyrst um sinn við framkvæmdastjórn hjá Fróða síðastliðið haust samhliða störfum sín- um sem yfirmaður fjármálasviðs Odda, hefur ákveðið að láta af þeim störfum að eigin ósk og mun Knútur sömuleiðis hætta sem yf- irmaður fjármálasviðs Odda. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst var það algerlega ósættanlegur ágreiningur milli Knúts og stjórnar Fróða um stefnu og leiðir í rekstri félagsins sem var ástæða þess að hann ákvað að segja upp störfum. Ekki fæst uppgefið í hverju þessu ágreiningur er fólginn en hitt liggur þó fyrir að stjórnendur Odda hafa tek- ið þann pól í hæðina að styðja sjónarmið stjórnar Fróða en ekki sjónarmið Knúts. Mun það vera ástæða þess að hann hættir al- farið hjá Odda þar sem hann hefur starfað um áratuga skeið. Oddi hefur prentað tímaritin fyrir Fróða um langt árabil Prentsmiðjan Oddi hafði um langa hríð prentað tímarit fyrir Fróða en kom ekki sjálft að tímaritaútgáfu fyrr en síðastliðið haust, þegar Torg ehf. í eigu Odda keypti öll hlutabréf í Fróða hf. Gerður var fyrirvari um áreiðanleikakönnun á efnahag Fróða þegar Magnús Hreggviðsson, fyrrverandi aðaleig- andi félagsins, seldi Torgi það en fallið var frá fyrirvaranum um mánuði síðar. Við söl- una hélt Magnús raunar eftir upplýsingasviði Fróða og meginhluta Héðinshússins þar sem Fróði er enn til húsa en leigði síðan Torgi húsnæðið. Fasteignafélagið Eik, sem er í eigu Lýsingar og KB banka, keypti fasteign- irnar hins vegar af Magnúsi í nóvember og yfirtók þá leigusamningana við Torg. Með kaupum dótturfélags Odda á Fróða í haust var sagt að Oddi hafi gengið inn tilboð erlends félags; haft var eftir Magnúsi í fjöl- miðlum að alþjóðlegt fyrirtæki hefði falast eftir kaupum á Fróða og að viðræður hefðu staðið í nokkra mánuði. Kaupverð fékkst ekki uppgefið og heldur ekki hvert al- þjóðlega fyrirtækið var en það mun þó hafa verið norrænt og hafa haft prentsmiðjur á sínum snærum. Fyrir lá að ef það keypti Fróða myndi eitthvað af prentverkinu fyrir Fróða flytjast úr landi og Oddi hefði því þurft að horfa á eftir stórum viðskiptavini. Forstjóri Odda sagði á þessum tíma að kaup- in tengdust fyrst og fremst áhuga félagsins á prentverki og að hann ætti ekki von á að gerðar yrðu breytingar á rekstri félagsins. Um miðjan desember var hins vegar greint frá því að stofnað hefði verið nýtt félag um útgáfu á vegum Fróða, Tímaritaútgáfan Fróði ehf., og sagði stjórnarformaður hins nýja félags að þar með væri verið að skilja á milli fortíðarvanda og framtíðarmöguleika. Ljóst er að við þessa breytingu varð hluti af skuldum Fróða eftir í gamla félaginu sem fékk síðan nafnið Hugi. Ekki er ljóst hversu miklar skuldir Tímaritaútgáfan Fróði hf. yf- irtók eða hversu stór hluti skuldanna varð eftir í hinu gamla félagi. Stjórnarformaður hins nýja félags sagði í desember að rætt hefði verið við helstu lán- ardrottna um niðurfellingu skulda að hluta og þess væri vænst að niðurstaða í því efni myndi liggja fyrir fyrir áramót. Nú liggur sú niðurstaða fyrir, þ.e. að skuldir sem eftir urðu í hinu gamla félagi nema um hálfum milljarði en eignir aðeins um 37 milljónum. Tímaritaútgáfan Fróði er sem fyrr segir stærsta fyrirtækið í tímaritaútgáfu á landinu. Fyrirtækið gefur nú út tímaritin Nýtt Líf, Mannlíf, Vikuna, Séð og heyrt, Gestgjafann, Hús og híbýli og bOGb en auk þess rekur fyrirtækið sérstaka sýningardeild, IceXpo, sem m.a. hefur verið framkvæmdaraðili Mat- ar-sýninganna, Íslensku sjávarútvegssýning- arinnar og verið samstarfsaðili Nexus Media við Íslensku sjávarútvegssýninguna. Hörð samkeppni á markaði Rekstur tímaritaútgáfu á Íslandi hefur sjaldnast verið auðveldur og flestir virðast sammála um að samkeppnin á þessum mark- aði sé nú mjög hörð. Bent er á að bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið hafi verið að sækja inn á tímaritamarkaðinn og að slag- urinn á auglýsingamarkaðinum sé almennt harður. Út fyrir sig komi þessi staða þó eng- an veginn í veg fyrir að reka megi Fróða réttum megin við núllið eða með hagnaði, sé rétt á málum haldið. Engar upplýsingar liggja á lausu um hvernig rekstur Fróða stendur nú, hversu miklar skuldirnar eru eða hvort til stendur að leggja félaginu til aukið hlutafé eða ekki. Ljóst er þó að stjórn Fróða telur að sækja megi fram og bent hefur verið á að auglýs- ingasala hafi aukist á síðustu mánuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins liggja ekki fyrir áætlanir um miklar breyt- ingar eða uppstokkun á rekstri félagsins á þessu stigi en menn útiloka aftur á móti alls ekki að til smærri eða stærri breytinga á rekstrinum kunni að koma þegar fram líða stundir. Fréttaskýring | Framkvæmdastjóri Tímaritaútgáfunnar Fróða og fjármálastjóri Odda hefur hætt störfum vegna ágrein- ings við stjórn útgáfunnar um hvernig standa eigi að rekstri félagsins í framtíðinni. Þá hefur hlutafélagið Hugi, sem áður hét Fróði, verið úrskurðað gjaldþrota og nema kröfur í búið um hálfum milljarði. Arnór Gísli Ólafsson kynnti sér málið. Miklar sviptingar í kringum Fróða arnorg@mbl.is JÓN Sigurðsson, fyrr- verandi bifreiðaeftir- litsmaður á Suður- landi, lést á Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi í fyrradag. Jón var 88 ára gam- all, fæddur 12. mars 1916 í Víðinesi á Kjal- arnesi. Foreldrar hans voru Sigurður Einars- son bóndi og Sigríður Jónsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Selja- tungu í Flóa. Jón starfaði við ým- islegt frá unga aldri, var meðal ann- ars átta vertíðir í Vestmannaeyjum. Hann var starfsmaður Bifreiðastöðv- ar Steindórs í Reykjavík og vann á bílaverkstæði Kaupfélags Árnesinga á Selfossi. Hann gegndi starfi bif- reiðaeftirlitsmanns á Suðurlandi frá stofnun embættisins, 15. júní 1956, til ársins 1986. Tók hann þátt í upp- byggingu þess embætt- is sem annaðist meðal annars skoðun bifreiða á Suðurlandi og reglu- bundið eftirlit með ör- yggisatriðum. Einnig annaðist embættið prófun ökumanna til bifreiðaprófs og hafa fjölmargir ökumenn af Suðurlandi tekið bílpróf með Jón sem prófdóm- ara. Auk þess hafði embættið umsjón með meiraprófsnámskeiðum og prófum ökumanna á þeim vettvangi. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Sig- ríður Guðmundsdóttir frá Hurðar- baki í Flóa. Þau eignuðust átta börn, Guðmund Kristin, Sigurð, Þuríði, Gísla Árna, Sigríði, Kára, Gunnar og Ásmund. Útför Jóns verður gerð frá Sel- fosskirkju föstudaginn 14. janúar kl. 13.30. Andlát JÓN SIGURÐSSON LOGNIÐ sem var á höfuðborg- arsvæðinu í gær var kærkomið eftir vindasama daga þar á undan. Logn- ið er ekki eintóm sæla því þá er hætta á að mengun safnist saman niðri við jörð og hreyfist ekki úr stað enda vantar vindinn til að feykja henni á haf út eða upp til fjalla. Að sögn veðurfræðings á Veð- urstofunni er mengunarmistur, eins og það sem sjá mátti við sundin blá í gær nokkuð algengt í logni. Fer þar saman mengun frá bílaflota höfuðborgarbúa og nágrennis, sem og mengun frá margs konar starf- semi sem er innan svæðisins.Morgunblaðið/Ómar Mengunar- mistur er fylgifiskur logns RÁÐHERRAR og þingmenn Sjálf- stæðisflokksins ætla að halda 45 opna almenna stjórnmálafundi í öll- um kjördæmum landsins á næstu vikum. Fyrsti fundurinn hefst í Val- höll, húsakynnum Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, kl. 10.30 í dag. Flyt- ur þar framsögu Davíð Oddsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Auk þess verða í dag fundir í Þorlákshöfn, í Keflavík og á Akureyri. „Við teljum einfaldlega að það sé tilefni til þess að Sjálfstæðisflokk- urinn kynni þau verk sem hann hef- ur verið að vinna að undanfarin ár,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins. „Við höfum verið að ná miklum árangri. Mikil þáttaskil hafa t.d. orðið vegna ákvarðana okkar í skattamálum. Við töldum því eðli- legt að efna til þessarar fundaher- ferðar um land allt, en þar munu ráðherrar mæta á alla fundi ásamt þingmönn- um viðkomandi kjördæmis.“ Aðspurður kveðst Einar gera ráð fyrir að skattamálin muni setja heil- mikinn svip á umræðuefni fundanna. „Við munum þó ekki síð- ur leggja áherslu á aðra hluti; al- mennan árangur okkar í efnahags- málum og önnur þau mál sem efst eru á baugi. Einnig gerum við ráð fyrir því að hagsmunir viðkomandi byggðarlaga verði ræddir á ein- stökum stöðum.“ Ráðherrar og þingmenn halda framsögur í upphafi fundanna, að sögn Einars, en síðan verður opnað fyrir almennar umræður. „Við leggjum mikla áherslu á að gefa fólki kost á að taka þátt í almennum umræðum enda er megintilgangur- inn að auka möguleika á viðræðum þingmanna og almennings í landinu með því að nota hið gamalreynda fundarform.“ Einar kveðst efast um að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi áður gengist fyrir svona mikilli fundaherferð á ári, sem ekki er kosningaár. „Þetta undirstrikar að mínu mati þann mikla styrk sem er í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, þ.e. að við get- um komið á svona mörgum fundum á ekki lengri tíma.“ Á morgun, sunnudag, verða fund- ir á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Hellu, Stykkishólmi, Borgarnesi og Búðardal. Næstu daga og vikur verða síðan fundir um land allt. Halda opna stjórnmála- fundi á næstu vikum Einar K. Guðfinnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.