Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Emilíana
Torrini
Mér finnst svo gaman
að garga og öskra! Stappa
fótunum og syngja eins og
ég sé ofdekrað barn.
á morgun
ÚR VERINU
SAMTALS 2.344 skip voru á
skipaskrá nú um áramótin. Skip-
um á íslenskri skipaskrá hefur
þannig enn fækkað og að þessu
sinni um samtals 21 skip. Heild-
arbrúttótonnatala skipastólsins
hækkaði hins vegar um tæplega
5.000 brúttótonn frá árinu áður.
Fyrsta janúar 2005 voru samtals
1.135 þilfarsskip á skrá og
brúttótonnatala þeirra var
230.881. Opnir bátar voru sam-
tals 1.209 og brúttótonnatala
þeirra var 7.199. Á þurr-
leiguskrá er eitt skip, Keilir,
samtals 4.341,99 brúttótonn.
Skipunum fækkar
! "#$
! "#$
! "#$
KÍNA mun lækka tolla á
grálúðu úr 10% í 5% frá
áramótum að ósk Íslands. Í
orðsendingu frá kínverskum
stjórnvöldum segir að þessi að-
gerð sé til marks um mikilvægi
viðskipta á milli Kína og Íslands
og þau jákvæðu viðhorf sem Kín-
verjar hafa til frekari viðskipta og
samvinnu við Ísland. Þetta kemur
fram í Stiklum, vefriti viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Jón Magnús Kristjánsson hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
segir að tollalækkunin kunni að
hafa umtalsverð áhrif á þessi við-
skipti. „Við seldum grálúðuafurðir
til Kína fyrir tæpan hálfan milljarð
á síðasta ári og lækkun tolla mun
liðka fyrir þessum viðskiptum.
Tollalækkunin gerir markaðinn
meira spennandi, þar sem grálúðu-
afurðir verða enn samkeppnishæf-
formaður Kínversk-íslenska versl-
unarsamráðsins, segir að málið
hafi verið tekið reglulega upp við
kínversk stjórnvöld á vettvangi
viðskiptasamráðs ríkjanna. „Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra,
nýtti síðan tækifærið í opin-
berri heimsókn til Kína í apríl
á síðasta ári til að fylgja málinu
eftir og ræða við Zhang Zhigang,
aðstoðarviðskiptaráðherra Kína,
um tækifæri til að auka viðskipti á
milli ríkjanna.
Innflutningur frá Kína er sexfalt
meiri en útflutningur til Kína og
því lagði ráðherra áherslu á að
lækkaðir yrðu tollar á vörum sem
eru mikilvægar fyrir íslensk út-
flutningsfyrirtæki. Það er mjög
ánægjulegt hve vel kínversk
stjórnvöld hafa brugðist við þess-
ari málaleitan.“
ari við aðrar
sjávarafurðir, og áhrifin
geta komið fram í hagkvæmara
verði og meiri eftirspurn.“
Íslendingar flytja nær eingöngu
grálúðuhausa og sporða til Kína.
Enginn markaður er fyrir þessa
vöru annars staðar og tollalækk-
unin hefur því enn meira gildi en
ella.
Óskin kom frá Íslandi
Grétar Már Sigurðsson, skrif-
stofustjóri viðskiptaskrifstofu og
Kína lækkar tolla á
grálúðu frá Íslandi
STJÓRN Leigjendasamtakanna hef-
ur ákveðið að kæra Guðmund St.
Ragnarsson, lögmann og fyrrverandi
formann samtakanna, til lögreglu.
Hann var formaður samtakanna á ár-
unum 2001–2004og er sakaður um að
hafa falsað ársreikning félagsins, tek-
ið eigur félagsins ófrjálsri hendi,
dregið sér fé auk, einnig á hann að
hafa villt á sér heimildir gagnvart fé-
lagsmálaráðuneyti varðandi styrki og
úttektir í nokkrum fyrirtækjum á
kostnað samtakanna. Samtökin séu
vegna þessa skuldug og húsnæðis-
laus. Að sögn Þóris Karls Jónassonar,
núverandi formanns, verður kæran
lögð fram á mánudag. Guðmundur
segist vísa öllum ásökunum á bug.
Leigjendasamtökin kynntu fyrir-
hugaða kæru á blaðamannafundi í
gær og segir Þór að honum þyki það
óeðlilegt að megnið af þeim peningum
sem félagið hafi fengið í styrki frá ríki
og borg hafi runnið í vasa formanns-
ins sem launakostnaður, enda hafi
starfið ávallt verið unnið að mestu í
sjálfboðavinnu. Hann segir það
ósannindi að Guðmundur hafi gert
launasamkomulag við Jón Kjartans-
son, sem var formaður samtakanna á
undan Guðmundi. M.a. hafi tvær
milljónir kr. runnið í vasa Guðmundar
af 2,5 milljónum króna sem ríki og
borg greiddu félaginu í styrk árið
2003.
Algjör þvættingur
„Ég vísa þessu öllu mjög harkalega
á bug sem algjörum þvættingi,“ segir
Guðmundur og bætir hann við að
hann sé að skoða meiðyrðamál gegn
núverandi stjórn Leigjendasamtak-
anna. Hann segist hafa gert launa-
samkomulag við Jón Kjartansson, þá-
verandi formann samtakanna, sem
samsvari klukkutíma lágmarkstaxta
lögfræðings á dag. Annað hafi ekki
komið til greina enda hafi hann rekið
lögfræðiskrifstofu samhliða for-
mennskunni. Hann segir það hafa
verið orðið erfitt að reka samtökin
vegna minnkandi fjárframlaga frá
hinu opinbera, það skýri að hluta til
bága skuldastöðu samtakanna.
Leigjendasamtök-
in kæra fyrrver-
andi formann sinn
DREIFING á drykknum Kristal
Plús hefur verið stöðvuð vegna þess
að Umhverfis- og heilbrigðisstofa
Reykjavíkur vakti á því athygli að
ekki hefði verið sótt um leyfi fyrir
því að selja drykkinn, en slíkt er
skylt séu drykkir vítmínbættir.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson,
sem framleiðir drykkinn, hefur nú
sótt um slíkt leyfi og óskað eftir því
að afgreiðslu þess verði hraðað eins
og kostur er, að því er fram kemur í
tilkynningu. Þar kemur fram að
ekki hafi verið sótt um leyfi vegna
jafnræðisreglu, en á markaði séu
ekki færri en 25 vítamínbættar
vörur, þar með taldir drykkir, sem
innihaldi sömu efni, sem ekki hafi
verið sótt um leyfi fyrir. Því sé um
samkeppnishamlandi mismunun að
ræða og brot á jafnræðisreglu að
setja skorður við dreifingunni.
Ekki leyfi fyrir
vítamínbættum
drykk
FLUGVÉL frá Lufthansa millilenti
hér á landi á leið frá Frankfurt til
Toronto eftir að farþegi um borð
fékk flogaveikikast. Vélin lenti í
Keflavík rétt fyrir kl. 18 í gær og
var konan sem fengið hafði floga-
veikikastið flutt með sjúkrabíl á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Millilent vegna
flogaveiks
farþega
LÍKAMSÁRÁS var kærð í Vest-
mannaeyjum á þriðja tímanum í
fyrrinótt, eftir að tveimur mönnum
á tvítugsaldri sinnaðist og annar
barði hinn einu sinni í andlitið.
Lögregla flutti þann sem fyrir
árásinni varð á Heilbrigðisstofn-
unina í Vestmannaeyjum, og var
hann eitthvað skorinn í andliti eftir
árásina. Málið er í rannsókn.
Á sjúkrahús
eftir hnefahögg
FLEIRI portúgalskir starfsmenn
komu til starfa við Kárahnjúkavirkj-
un eftir jólafrí en Impregilo hafði
áður gert ráð fyrir. Um 200 starfs-
menn lentu á Egilsstaðaflugvelli í
fyrrakvöld, með beinu leiguflugi frá
Portúgal með vél Loftleiða.
Af þessum 200 mönnum voru um
40 nýir sem Impregilo hafði reiknað
með að ráða síðar á árinu. Koma
fleiri Portúgalir hingað vegna þess
hve tafist hefur að ráða kínverska
verkamenn til starfa.
Fleiri Portúgalar
í Kárahnjúkum
ÍBÚATALA í Hafnarfirði fór upp
fyrir 22 þúsund við lok síðasta árs
og á gamlársdag voru skráðir íbúar
22.001. Gera áætlanir bæjarins ráð
fyrir að íbúum fjölgi enn frekar á
næstu árum og að á hundrað ára af-
mæli hans árið 2008 verði þeir
orðnir 25 þúsund.
Fjölskyldan á Blómvöllum 15
varð þess heiðurs aðnjótandi að
koma íbúum bæjarins upp fyrir 22
þúsund og af því tilefni heimsótti
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri þau
Ingibjörgu Svavarsdóttur, Jón
Magnús Halldórsson og Daníel
Jónsson á dögunum og færði þeim
m.a. blómvönd og bækur um Hafn-
arfjörð.
Íbúafjöldi í Hafnar-
firði yfir 22.000
Ljósmynd/Hallgrímur Indriðason
Fjölskyldan á Blómvöllum 15 ásamt Lúðvíki Geirssyni bæjarstjóra.