Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 45
MINNINGAR
eitt af börnunum hennar öll mín
bernsku, æsku-og unglingsár, ýmist
allt árið um kring eða sumarlangt. At-
lætið sem ég bjó við hjá Helgu, systk-
inum hennar, Árnýju Sigríði og
Baldri að ógleymdum ömmu Stein-
unni Helgu og Stefáni afa var slíkt að
ég átti tvö heimili allan minn uppvöxt.
Slík forréttindi eru ekki sjálfgefin.
Blessuð sé minning Helgu.
Steinunn Helga.
Fjórtán ára kynntist ég Helgu þeg-
ar við lágum báðar sjúkar á Landspít-
alanum, en hún var þá fullþroska
kona. Hún kom strax fram við mig
með virðingu sem jafningja og talaði
aldrei niður til mín sem barns. Eftir á
furða ég mig á hve náin vinátta mynd-
aðist milli okkar þrátt fyrir aldurs-
muninn. Stuttu áður hafði Helga
veikst og var vart hugað líf. Hún lam-
aðist. Þegar leiðir okkar lágu saman
var hún að byrja að reyna að ganga
nokkur skref. Hún var ákveðin í því
að æfa fæturna. Þegar vel tókst og
hún gat fikrað sig inn eftir stofunni
varð henni að orði: „Nú er ég rétt eins
og hrífa.“ Ég hló og fannst þetta mjög
fyndið, en hún brosti bara kímin.
Þetta varð síðan okkar einkabrandari
þegar einhver komst til heilsu. Henni
var tamt að gera góðlátlegt grín að
sjálfri sér. Einmitt svona gekk hún
gegnum allt lífið. Hrífan hefur nota-
gildi, er þráðbein og látlaus. Helgu
féll aldrei verk úr hendi á bernsku-
heimilinu í Litla-Hvammi í Mýrdaln-
um heldur gekk þar að húsverkum
ásamt hinum er heim kom og hún
hlotið nokkurn bata. Mátturinn full-
komnaðist í veikleika var orð að
sönnu. Alvara, hógværð, kímni en
fyrst og fremst manngæska og virð-
ing fyrir lífinu einkenndu allt líf henn-
ar. Hún sagði mér frá ýmsu sem á
daga hennar hafði drifið, m.a. að unn-
usti sinn hefði farist í skipskaða úti
fyrir Mýrdalssandi. Hún hélt ævi-
langa tryggð við minningu hans og
giftist aldrei en stórfjölskyldan varð
henni eitt og allt. Ég gat ekki gleymt
henni þegar leiðir skildi og skrifaði
henni. Þá hófust tíð bréfaskipti. Þeim
fækkaði þó eftir því sem árin liðu en
þráðurinn slitnaði aldrei. Þau skipti
sem við hittumst má telja á annarri
hendi. Það voru bréfin sem viðhéldu
þessu innilega vináttubandi. Síðasta
bréfið sem ég skrifaði las hún líklega
aldrei. Það er léttvægt, annað er mik-
ilvægt og það er minningin sem ég á
um sannan vin sem ég veit að ég mun
hitta hinum megin. Við höfum báðar
átt trausta og örugga trú á Guð og ei-
líf trúargildi sem ná yfir dauða og
gröf. Blessuð sé minning Helgu.
Sigríður Ó. Candi.
Þegar ég var strákur fór ég alltaf í
sveit á sumrin að Hvammbóli. Þegar
rútan stoppaði við afleggjarann um
klukkan hálf eitt biðu Helga og amma
eftir mér með soðningu í pottinum,
þótt Baldur hefði e.t.v. þegar lagt sig
eftir matinn. Eftir þessa hressingu
fór ég út að heilsa upp á hundinn Tíra
og hljóp svo upp í tún þaðan sem er
stórkostlegt útsýni yfir sveitina, jökl-
ana og hafið.
Fyrsta sumarið mitt í sveitinni var
það hluti af mínum „skylduverkum“
að reka kýrnar út í haga eftir morg-
unmjaltirnar og kippa svo með mér
volgri mjólk í litlum brúsa eða fötu
heim í bæ. Helga notaði mjólkina m.a.
í brauð og kökur sem hún var alltaf að
baka til að hafa nóg með morgun-
kaffinu, síðdegiskaffinu og kvöld-
kaffinu.
Stundum fékk frændfólkið í Litla-
Hvammi mjólk frá Hvammbóli. Þá
sat Gunnar frændi eða Stefán gjarn-
an inni í eldhúsi hjá Helgu þegar ég
kom inn. Meðan ég borðaði morgun-
matinn minn skiptust þau á góðlátleg-
um athugasemdum um lífið og til-
veruna ... gott er blessað veðrið, það
held ég, ja soddan, ég segi nú ekki
margt ...
Elsku Helga, í mínum huga varst
þú alltaf í góðu skapi, þú lést þér annt
um heimilisfólkið á Hvammbóli ekki
síst ömmu, þú tókst hlýlega á móti
fjölda barna og ungmenna sem komu
í sveit til þín á hverju sumri og þú
bjóst ættingjum og vinafólki um allt
land notalegan stað til að hittast og
rækta tengslin sín á milli.
Stefán Úlfarsson.
MERK tímamót urðu í íslensku
skáklífi þegar alþjóðlegi meistarinn
Stefán Kristjánsson, Taflfélaginu
Helli, náði sínum fyrsta áfanga að
stórmeistaratitli í alþjóðlegu móti í
Drammen í Noregi. Þetta er í fyrsta
skipti í áratug sem aðrir íslenskir
skákmenn en stórmeistarar ná ár-
angri sem samsvarar þessum. Stefán
hefur tvívegis áður orðið mjög nærri
því að ná þessum áfanga. Annað
skiptið var á Reykjavíkurskák-
mótinu 2002 þar sem hann þurfti
jafntefli í síðustu umferð gegn rúss-
neska stórmeistaranum Oleg Korn-
eev en þurfti þá að bíta í það súra
epli að lúta í lægra haldi. Hitt skiptið
var síðasta sumar þar sem hann
vann sterkt lokað mót í Ungverja-
landi og var þá aftur hálfum vinningi
frá áfanganum. Allt síðasta ár var af-
ar gjöfult fyrir Stefán en hann varð
t.d. efstur á minningarmóti Jóns
Þorsteinssonar, vann fyrrnefnt mót í
Ungverjalandi, varð Íslandsmeistari
í netskák og gekk frábærlega á
tveim öflugum hraðskákmótum sem
fram fóru undir lok ársins. Það virð-
ist sem hann sé að springa út sem
skákmaður og taflmennskan ber
þess merki að skilningur hans á
stöðubaráttu hefur vaxið og að út-
reikningarnir séu orðnir nákvæmari.
Hann hefur marga kosti sem skák-
maður umfram þessa og má sem
dæmi nefna að hann virðist hafa stál-
taugar. Árangur hans nú má án efa
þakka mikilli vinnu en einnig verður
að hafa í huga að á meðan hann tefldi
fyrir Skákfélagið Hrókinn á árunum
2002–2004 fékk hann ógrynni tæki-
færa til að takast á við harðsnúna
skákmenn og má þar nefna keppnir
eins og Stórmót Hróksins á Kjar-
valsstöðum, Mjólkurmótið og einvígi
við tékkneska stórmeistarann Tom-
as Oral. Sú reynsla er hugsanlega að
skila sér núna. Aðalatriðið er að ísinn
er brotinn og sé haldið rétt á spöð-
unum ætti stórmeistaratitillinn
verða hans innan nokkurra missera.
Frammistaða hans er hvatning til
jafnaldra hans sem margir hverjir
þurfa að stíga þau spor sem skilur að
milli titils alþjóðlegs meistara og
stórmeistara. Til þess að brúa þetta
bil þarf að stúdera og tefla mikið í al-
þjóðlegum keppnum. Mótið í
Drammen var að sumu leyti heppi-
legt að þessu leyti til þar sem kepp-
endur voru ekki of margir eða alls
86. Þar af voru sjö stórmeistarar og
níu alþjóðlegir meistarar. Stefán
lauk keppni með sjö vinninga af níu
mögulegum og lenti í þriðja sæti.
Einungis pólski alþjóðlegi meistar-
inn Bartel Mateuzs (2.481) og ísr-
aelski stórmeistarinn Viktor Mikha-
levsky (2.566) urðu fyrir ofan hann
með átta vinninga. Árangur hans
samsvarar 2.591 stigum og mun
hann hækka um 15 stig fyrir frammi-
stöðuna. Alþjóðlegi meistarinn Jón
Viktor Gunnarsson lauk keppni með
6 vinninga og lenti í 7.–15. sæti.
Hann hefði sjálfsagt vilja gera betur
en frammistaðan þýðir að hann
stendur í stað á stigum. Davíð Kjart-
ansson fékk 5½ vinning og lenti í 16.–
25. sæti en græðir 2 stig. Alls tóku
500 manns þátt í skákhátíðinni í
Drammen og beindust augu flestra
að ofurmótinu þar sem hinn 14 ára
stórmeistari Magnus Carlsen (2.581)
var stærsta aðdráttarafl hátíðarinn-
ar. Að þessu sinni voru honum mis-
lagðar hendur og lauk keppni með
þrjá vinninga af níu mögulegum og
lenti í neðsta sæti ásamt Antoanetu
Stefanovu (2.523). Efstir og jafnir
með sex vinninga urðu Alexey Shir-
ov (2.726) og Peter Heine Nielsen
(2.663). Enski stórmeistarinn Luke
McShane (2.629) kom humátt á eftir
þeim með 5½ vinning en þar á eftir
komu með 4½ vinning gamla brýnið
Viktor Korsnoj (2.601), Evrópu-
meistarinn fyrrverandi Bartlomiej
Macieja (2.613) og norski alþjóðlegi
meistarinn Kjetil Lie (2.474). Sá síð-
astnefndi náði áfanga að stórmeist-
aratitli og ku þá vera búinn að
tryggja sér titilinn. Fyrrverandi
heimsmeistari FIDE, Alexander
Khalifman (2.669) fékk fjóra vinn-
inga og varð að láta sér lynda að
deila sjöunda sætinu með norska
stórmeistaranum Leif Erlend Jo-
hannessen (2.519). Heimasíða
norsku mótshaldaranna var að
mörgu leyti prýðileg en sárlega
vantaði skákir frá alþjóðlega mótinu.
Ekki er því mögulegt að sýna skák
með Stefáni en í staðinn verður fyrir
valinu eina skákin sem undra-
barninu norska tókst að ylja aðdá-
endur sína um hjartarætur með.
Andstæðingurinn var ekki af verra
taginu en það var Alexey Shirov,
einn af skemmtilegustu og sterkustu
skákmönnum sem uppi hafa verið.
Hvítt: Magnus Carlsen
Svart: Alexey Shirov
Breyer afbrigði spænska leiksins
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3
0–0 8. c3 d6 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7
11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1
Bf8 14. Rg3 g6 15. b3 c6 16. Bg5
Bg7 17. Dd2 Dc7 18. a4
Þessi staða hefur sést oft áður
enda einkennist Breyer-afbrigðið af
þrætubókafræðum. Allar áætlanir í
afbrigðinu er hægfara og spennan í
stöðunni fer öll fram neðan sjávar.
Svo skyndilega geta átökin blossað
upp eins og hendi væri veifað þegar
herir hvors aðila fyrir sig er nægi-
lega undirbúinn til að láta til skarar
skríða. Lettnesk ættaði Spánverjinn
grípur til þess ráðs óvenju snemma
en þekkt er að leika 18. … Rf8.
18. … d5!? 19. dxe5 Rxe5 20. Rxe5
Dxe5 21. Bf4 De6 22. e5 Rd7 23. Bh6
Bh8
Ekki gekk upp að seilast eftir e5-
peðinu þar sem leppunin á e-línunni
myndi reynast svörtum dýrkeypt.
Það er athyglisvert að hvítur virðist
eftir átjánda leik svarts geta byggt
upp tiltölulega áreynslulaust hættu-
lega sókn. Á hinn bóginn öðlast
svartur gagnfæri á miðborðinu.
24. f4 De7 25. He3 Rf8 26. Hf1 c5
27. f5 d4! 28. cxd4 cxd4
Nú hefur staðan opnast og ljóst er
að svartur stendur síst lakar eftir 29.
Dxd4 Bxe5. Sá ungi grípur til þess
ráðs að fórna öllu fyrir sóknina.
29. fxg6!? hxg6
Það hefði þurft verulega hugrakk-
ar sálir til að taka hrókinn en óvíst
hvernig hvítur hugðist halda sókn-
inni gangandi eftir 29. … dxe3 30.
gxh7+ Rxh7 31. De2 De6. Carlsen
lætur sér textaleikinn fátt um finn-
ast og í stað hróks býður hann svört-
um að þiggja riddara. Að þessu sinni
afræður svartur að þiggja hann enda
vart annað í boði.
30. Rf5?! gxf5 31. Hg3+ Rg6 32.
Bxf5 Dxe5 33. Hg4 Bg7 34. Bxg6
fxg6 35. Hxg6 He7 36. Hf4
Svartur hefur teflt vörnina prýði-
lega en í næsta leik bregst honum
illilega bogalistin. Hið einfalda 36.
… De3+ hefði þó ekki gengið upp
vegna 37. Dxe3 dxe3 38. Hfg4 Hae8
39. Bxg7 e2 40. Bc3+ Kh7 41. Hg7+
og hvítur vinnur.
36. … Be4??
36. … Hf8! hefði fært svörtum sig-
urinn þar sem 37. Hfg4 hefði verið
svarað með 37. … Hff7 og hvítur er
að verða bensínlaus í skriðdreka-
sókn sinni.
37. Hg5! De6 38. Bxg7 og svartur
gafst upp enda taflið gjörtapað eftir
38. … Hxg7 39. Hxg7+ Kxg7 40.
Dxd4+.
daggi@internet.is
Bið í áratug er lokið
Helgi Áss Grétarsson
Magnus Carlsen Stefán Kristjánsson Alexei Shirov
Stefán Kristjánsson nær stórmeistaraáfanga á móti í Drammen í Noregi
SKÁK
Rica Park Hótel Drammen
Skákhátíð Í Drammen Í Noregi
27. desember 2004 – 5. janúar 2005
Reykjavíkurmót
í sveitakeppni
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
verður spilað í janúar að venju og
kvóti Reykjavíkur hefur stækkað frá
síðasta ári, er nú 15 sveitir í stað 12 á
síðasta keppnistímabili. Kvóti
svæðasambanda er reiknaður út frá
10 efstu sveitum í úrslitum síðasta
Íslandsmóts og hausagjöldum til
Bridssambandsins. Reykjavík átti 9
sveitir af 10 efstu á síðasta Íslands-
móti.
Spiladagar í Reykjavíkurmótinu
verða þessir:
11. janúar 2 umferðir
13. janúar 2 umferðir
15. janúar 4 umferðir
16. janúar 3 umferðir
18. janúar 2 umferðir
22. janúar 4 umferðir
23. janúar 3 umferðir
25. janúar til vara
Spilaðir verða 16 spila leikir, allir
við alla og keppnisgjald verður krón-
ur 26.000 á sveit.
Á síðasta keppnistímabili voru 18
sveitir sem tóku þátt í Reykjavíkur-
mótinu og eins og sést á áðurnefndri
upptalningu, er gert ráð fyrir fjölg-
un. Ef sveitir verða færri, fellur
sunnudagurinn 23. janúar fyrst út en
síðan fimmtudagurinn 13. janúar ef á
þarf að halda. Keppnisstjóri verður
Björgvin Már Kristinsson og spiluð
verða forgefin spil, sömu spil í öllum
leikjum. Skráningarfrestur í mótið
verður til lok vinnudags, föstudaginn
7. janúar.
Allar upplýsingar um mótið er
hægt að nálgast á heimasíðu BR,
bridgefelag.is
Björn og Frímann byrja
nýja árið vel fyrir norðan
Nýárstvímenningur Bridsfélags
Akureyrar var spilaður þriðjudaginn
4. janúar með þáttöku 12 para.
Staða efstu para var þannig:
Björn Þorláksson og Frímann Stefánsson 47
Stefán Vilhj.s. og Guðm. V. Gunnlaugss. 19
Hans V. Reisenhus og Gissur Gissurars. 16
Þar að auki var spilaður sunnu-
dagsbrids sunnudaginn 2. janúar.
Níu pör mættu til spilamennsku.
Úrslitin urðu sem hér segir:
Gissur Jónasson og Hjalti Bergmann 19
Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson 15
Sigurb. Haraldss. og Sverrir Haraldss. 10
Að venju var spilað Íslandsbanka-
mót milli jóla og nýárs. Var spilað í
Ketilshúsinu, en alls tóku 30 pör þátt
í mótinu. Veglegir flugeldapakkar
voru í verðlaun og þau hlutu:
Sigurbj. Haraldss. - Ragnar Magnússon 814
Stefán Ragnarsson - Pétur Guðjónsson 779
Páll Þórsson - Frímann Stefánsson 752
Björgvin Leifss. - Sigurður Björgvinss. 740
Þórólfur Jónass. - Sveinn Aðalgeirsson 736
Næstu þriðjudagskvöld verður
Akureyrarmótið í sveitakeppni. Gott
væri að menn gætu myndað sveitir
sem fyrst og skráð þær til Steinars
Guðmundssonar í síma 8634516 eða
Frímanns Stefánssonar í síma
8678744.
Síðan verður Svæðamót Norður-
lands eystra í Sveitakeppni haldið
helgina 22-23 janúar. Nánari upplýs-
ingar gefur Stefán Vilhjálmsson í
síma 8984475, en hann tekur einnig
við skráningum.
Ekki má svo gleyma Sunnudags-
brids næsta sunnudag og flesta aðra.
Þar mæta menn og spila, þarf ekkert
að koma með makker, við björgum
því. En ekki gleyma því að taka með
brosið og góða skapið.
Toppbaráttan á
Topp 16 á Flúðum
Nú er nýlega lokið einmennings-
keppninni topp 16 á Flúðum en jafn-
an er spilað á fjórum borðum.
Þessir urðu í efstu sætunum:
Magnús Gunnlaugsson 112
Karl Gunnlaugsson 109
Gunnar Marteinssson 103
Marek Jozefik 102
Guðmundur Böðvarsson 98
Jóhannes Sigmundsson 93
Ólafur Guðjónsson 92
Ari Einarsson 92
Nú eftir áramótin hefst hin árlega
tvenndarkeppni en þá keppa jafn
margar konur og karlar.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Síðasta spilakvöld BFH var 13.
des. Þá var spilaður jólatvímenning-
ur þar sem pörin voru dregin saman.
Úrslit urðu
Halldór Þórólfsson - Stefán Garðarson 20
Friðþjófur Einarss. - Halldór Einarss. 17
Sveinn Vilhjálmss. - Guðni Ingvarsson. 16
Með sigri varð Stefán efstur í
bronsstigaskráningu fyrir jól, hann
endaði með 126 stig en næstir eru:
Halldór Þórólfsson 116
Alda Guðnadóttir 115
Kristján Snorrason 115
Sigurður Sigurjónsson 110
Næsta mánudag 10. jan byrjar
Aðalsveitarkeppni Bridsfélags
Hafnarfjarðar.
Muna að mæta tímanlega eða skrá
sig hjá Eiríki síma 8-620-690.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson