Morgunblaðið - 08.01.2005, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 51
Til sölu Lexus RX 300, árg. 2002,
ekinn 49 þús. km. Gott eintak.
Til sýnis hjá Bílahöllinni,
sími 567 4949.
Volvo 960 með öllu - ný tímar-
eim o.fl. Til sölu Volvo 960, árg.
'91, 3.0i-24v, 204 hö, sjálfsk.,
leður, lúga, ABS, rafm. í öllu,
cruise, læst drif, CD, hleðslujafn.,
kúla, sumar-/vetrardekk á felg.
Verð 500 þús. Uppl. í s. 660 1703.
Ford Explorer Sport Track
Premium árg. '02. Leður. Topp-
lúga. Upphækkun. Rafmrúður,
speglar, 6-diska CD og fl. Reyk-
laus. Ekinn 36 þm. Einn með öllu.
Verð 2.950 þ. kr. Sími 693 0802.
Sjá upplýsingar og myndir á
www.fordexp.tk.
Mitsubishi Pajero Long dísel
árg. 1997. Ekinn 140 þús. km. 5
dyra, sjálfskiptur, 2800 cc, 7
manna. Dísel. 32" dekk. Vel með
farinn með krók og CD. Verð
1.490 þús. Uppl. í síma 693 4218.
Korando 2900 túrbó dísel árg.
2000. Til sölu mjög gott eintak af
33" breyttum Korando 4x4. Góður
í snjónum. Verð 1.590 þús. Skipti
skoðuð. Upplýs. í síma 861 5655,
onyx@simnet.is.
JEEP Liberty Limited, árg. '04,
V6 3.7L. Glæsilegasti jeppi lands-
ins loksins fáanlegur. JEEP Li-
berty Limited, árg. '04, ek. 5 þús.
V6, 3.7L, 210 hö, glertopplúga,
cruise, tölva, cd o.fl.
Upplýsingar í síma 697 7685.
Isuzu Trooper 3.0 TD árg. '99.
Frábært eintak á 32" með topp-
boxi og sumard. á álfelgum. Ekinn
145 þ. Verð 1.650 þús. S. 899
1989/868 6112, Hjalti/Magga.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Ökukennsla Kenni á Ford Mond-
eo. Góður ökuskóli. Aðstoða við
endurveitingu ökuréttinda.
www.sveinningi.com .
Upplýsingar í síma 892 2860.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Driver.is
Ökukennsla, aksturs-
mat og endurtökupróf.
Subaru Legacy, árg. 2004 4x4.
Björgvin Þ. Guðnason,
sími 895 3264 www.driver.is
Til sölu Pólaris 600 Classic
Touring árg. 2000, ekinn 1800
mílur. Mjög góður ferða- og fjöl-
skyldusleði (tveggja manna sæti).
Einnig vönduð vélsleðakerra.
Uppl. í síma 896 8816.
Varahlutir í Land Cruiser 92-94
vél 4,2 TD. Sjálfskipting, gírkassi,
hásingar, driflæsingar, innrétting,
bodyhlutir o.m.fl. Uppl. í s. 824
8004 og 853 7011.
Heiðarlegur, skapgóður maður
á sjötugsaldri óskar að kynnast
konu sem vill búa á gullfallegum
stað úti á landi. Bréf sendist
augldeild Mbl. ásamt símanr.
merkt: „Trúnaður — 16499“.
Alternatorar og startarar í
fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og
bátavélar. Á lager og hraðsend-
ingar. 40 ára reynsla.
Bílaraf, Auðbrekku 20,
sími 564 0400.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Til sölu varahlutir í Volvo 460
árg. 94. Uppl. í síma 899 5522.
Jeep Grand Cherokee Limited
árg. 2004, ek. 25 þ. m. Ný vetrard-
ekk. Verð 3.700 þús. Uppl. í síma
660 4110.
Toyota Station 1,6 árg. '04, ek.
8.000 km. Beinskiptur, innspýting,
heilsársdekk, ABS, samlæsingar,
útvarp og geislaspilari, rafdrifnar
rúður og speglar. Reyklaus, þjón-
ustubók. Uppl. í síma 893 5006.
Toyota 4Runner, árg. '91, ek.
149 þús. km. Toyota 4Runner V-6
3000, árg 1991, ssk., 31" dekk, ek-
inn 149 þús. km. Verð 390.000.
Upplýsingar í síma 895 0988.
FULTRÚAR Impregilo og lands-
sambanda ASÍ náðu fyrir rúmu ári
samkomulagi um fyrirkomulag
launagreiðslna til erlendra starfs-
manna Impregilo sem starfa við
Kárahnjúkavirkjun. Samkomulagið
kvað m.a. á um greiðslur í lífeyris-
sjóð, orlofsupphæð og hvernig ætti
að reikna tekjuskatt.
Samkomulagið var undirritað 10.
október 2003 og kemur til viðbótar
samkomulagi sem gert var 1. októ-
ber sama ár. Í fyrstu grein sam-
komulagsins er gerð nákvæm grein
fyrir hvernig eigi að reikna út laun.
Tekið er fram að heimilt sé að greiða
starfsmönnum föst laun enda liggi
fyrir „að nettó laun séu yfir viðmið-
unum um lágmarkslaun virkjana-
samningsins að mati samningsaðila.“
„Með samkomulagi dags. 1. októ-
ber sl. var staðfest hvernig tryggt
verður að ákvæði virkjanasamnings
um lágmarkskjör verði virt við upp-
gjör á launum til erlendra starfs-
manna sem greidd eru árslaun sín í
12 mánaðarlegum greiðslum. Eftir
stóð að skilgreina hvernig standa
bæri að samanburði á launum þeirra
erlendu starfsmanna sem fá árslaun
greidd í 13 eða 14 greiðslum á ári en
um lágmarkskjör þeirra fer einnig
skv. virkjasamningi.
Þar sem um er að tefla greiðslur
sem svipar til desember- og orlofs-
uppbóta, sem að mestu eru innifalin í
töxtum virkjanasamnings eru aðilar
sammála um eftirfarandi verklag.
Þeir umræddu starfsmenn sem
starfa skv. virkjanasamningi og fá
greitt á tímagrunni skulu mánaðar-
lega fá útreiknaðan launaseðil skv.
íslenskum reglum kjarasamnings-
ins, þar sem margfaldaðar eru sam-
an unnar stundir og taxtalaun. Frá
þeirri samtölu skal draga fjárhæð
sem svarar til ávinnslu þeirra til des-
ember- og orlofsupphæðar skv.
ráðningarsamningi en þessar upp-
bætur eru greiddar fyrir lok júlí og
desember ár hvert. Frádráttur skv.
þessu skal svara til greiðslu júlí- og
desembergreiðslna skv. hinum er-
lendu ráðningarkjörum. Þá skal enn-
fremur draga frá sem svarar 4%
framlagi í lífeyrissjóð og staðgreidd-
an tekjuskatt að teknu tilliti til per-
sónuafsláttar. Nettó fjárhæð launa
fyrir hvert tímabil (þ.e. hver mán-
uður) skv. þessum útreikningi er lág-
marksgreiðsla fyrir viðkomandi
launatímabil, sem greiða skal inn
mánaðarlega á einkarreikning hlut-
aðeigandi starfsmanns í banka. Ef
laun reiknuð skv. ákvæðum hins er-
lenda ráðningarsamnings eru hins
vegar hærri en skv. virkjanasamn-
ingi greiðist starfsmanni það sem
hærra er en endanleg afstemming
fer fram þegar allar greiðslur ársins
hafa átt sér stað.
Hinum erlenda starfsmanni skal
látinn í té framangreindur launa-
útreikningur á launaseðli skv. ís-
lenskum reglum, ásamt launaseðli í
samræmi við hinn erlenda ráðning-
arsamning þar sem skýrt komi fram
inn á hvaða bankareikning laun hafa
verið greidd.
Trúnaðarmaður skal eiga aðgang
að upplýsingum sem staðfesta að
laun séu greidd með réttum hætti
skv. framanskráðu, enda sé þess
gætt að trúnaður um persónuleg
málefni sé ekki rofinn. Telji hann
eitthvað óljóst í gögnunum, skal
hann leita skýringa hjá fulltrúum fé-
lagsins fyrst, áður en lengra er hald-
ið.
Ekki eru gerðar athugasemdir við
að samið sé um föst heildarlaun er-
lendra starfsmanna enda liggi fyrir
að nettó laun þeirra séu yfir viðmið-
un um lágmarkslaun virkjanasamn-
ingsins að mati samningsaðila,“ seg-
ir í 1. gr. samningsins.
Impregilo og ASÍ gerðu samkomulag um erlenda
starfsmenn í október 2003
Fullt samkomulag var
um launagreiðslur
Á NÆSTU dögum mun ACT, al-
þjóðaneyðarhjálp kirkna, fá lyfja-
sendingu sem GlaxoSmithKline á
Íslandi gefur til hjálparstarfsins í
Súdan. Um er að ræða 900 pakka af
Augmentin, breiðvirku sýklalyfi,
sem samtals eru að verðmæti um
1,6 milljónir íslenskra króna.
Það var Anna M.Þ. Ólafsdóttir
fræðslu- og upplýsingafulltrúi sem
tók við gjöfinni fyrir hönd Hjálp-
arstarfs kirkjunnar á Íslandi. Stofn-
unin mun hafa milligöngu um að
koma lyfjunum til hjúkrunarfólks í
Súdan þar sem mikil þörf er fyrir
lyfin, segir í fréttatilkynningu.
Á myndinni er Hjörleifur Þór-
arinsson framkvæmdastjóri GSK á
Íslandi að afhenda Önnu M.Þ.
Ólafsdóttur fræðslu- og upplýsinga-
fulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar
lyfjasendinguna.
Gefur lyf til hjálp-
arstarfs í Súdan
GUÐBJÖRG Ósk Friðriksdóttir
opnar í dag, laugardag, svonefnda
Rope yoga stöð að Bæjarhrauni 22 í
Hanarfirði. Opnunarhátíð verður kl.
15–17 og eru allir velkomnir.
Boðið verður upp á 5 vikna opin
námskeið, bæði morgun– og síðdeg-
istíma, þá er boðið upp á hádeg-
istíma þrisvar í viku. Hægt er að
velja um tíma 14 sinnum í viku og
er hver tími 75 mínútur, nema
hádegistímarnir verða 50 mín.
Einnig er boðið upp á einkatíma
þar sem einn eða fleiri geta tekið
sig saman og fengið tíma að eigin
vali.
Kennsla hefst 10. janúar og 17.
janúar hefst 8 vikna námskeið sem
lýkur með persónulegri ráðgjöf fyr-
ir hvern og einn. Nánari upplýs-
ingar um rope yoga má fá á vefsíð-
unni rope yoga.is.
Rope yoga er æfingarform sem
hentar flestum og eru æfingarnar
unnar að mestu útfrá kviðnum eða
miðju líkamans sem dregur meðal
annars úr bakverkjum hjá fólki, góð
slökun og ýmsar öndunaræfingar
minnka streitu og álagi og auka
súrefnisinntöku og örva sogæða-
kerfi líkamans o.fl., segir í frétta-
tilkynningu.
Jógastöð opnuð
í Hafnarfirði
LETTERSTEDTSKI sjóðurinn
auglýsir styrki vegna ferða til nor-
rænu landanna og Eystrasaltsríkj-
anna til að stunda rannsóknir eða
sækja fundi eða ráðstefnur. Um-
sóknir um styrki þessa ber að senda
til Íslandsdeildar Letterstedtska
sjóðsins c/o Snjólaug Ólafsdóttir,
Vesturbrún 36, 104 Reykjavík .
Einnig auglýsir sjóðurinn styrki
til ráðstefnuhalds, útgáfu og þýð-
ingar á fræðiritum o.fl. sem sækja
má um til aðalstjórnar Lett-
erstedtska sjóðsins í Svíþjóð. Nán-
ari upplýsingar um sjóðinn og
styrkveitingarnar eru á heimasíðu
sjóðsins www.letterstedtska.org.
Hvort heldur sem sótt er um til
Íslandsdeildarinnar eða aðalstjórn-
ar er umsóknarfrestur til 15.febr-
úar.
Umsóknum til Íslandsdeildar
Letterstedtska sjóðsins ber að skila
á íslensku en til aðalstjórnar sjóðs-
ins á sænsku, dönsku eða norsku,
segir í fréttatilkynningu.
Letterstedtski sjóðurinn