Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 58

Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ CAMERON Diaz og Justin Timber- lake eru trúlofuð samkvæmt nýj- ustu fréttum. Sagt er að hann hafi beðið hennar um áramótin og hefur sést til Diaz með risastóran dem- antshring á fingri. Parið hélt upp á trúlofunina á veitingastað í Los Angeles með vinum sínum. Þau hafa verið saman síðan 2003. „Þau virtust mjög hamingjusöm saman. Justin var alltaf að halla sér að Cameron, kyssa hana og hvísla í eyra hennar. Þau skemmtu sér öll mjög vel,“ sagði manneskja sem sá þau á veitingastaðnum. Diaz, sem er 32 ára, er sögð hafa verið himinlifandi þegar Timber- lake, sem er 23 ára, bar upp bón- orðið. „Justin og Cameron eru mjög ánægð. Þau voru mikið saman yfir hátíðarnar og ákváðu að það væri rétt að trúlofa sig núna. Justin eyddi fúlgu í hringinn. Cameron var hæstánægð með hann. Þau hafa ekki ákveðið hvaða dag þau munu giftast,“ sagði heimildarmaður sem er náinn parinu. Justin var áður kærasti Britney Spears og með söngkonunni Fergie úr Black Eyed Peas en Cameron hefur verið með leikurunum Matt Dillon og Jared Leto. Hann er búinn að gefa henni hring. Diaz og Timberlake trúlofuð? ÞÆR raddir hafa heyrst að und- anförnu, að bandarískir uppistand- arar sem troðið hafa upp hér á landi hafi staðið breskum kollegum sínum langt að baki. Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Þorgeir Tryggva- son, var ekki par hrifinn af grínist- anum Jamie Kennedy, sem tróð upp á Broadway milli jóla og nýárs. Þorgeir segir í dómi sínum að hingað hafi síðustu misseri komið breskir uppistandarar og oft og tíð- um séð landanum fyrir frábærri skemmtun, en hins vegar hafi bandarískir listamenn, sem oftar en ekki hafi orðið frægir fyrir annað en uppistand, ekki staðið sig sem skyldi. Þeir hafi verið illa und- irbúnir, „með fyrirferðarmikilli uppfyllingu misskemmtilegra inn- lendra og erlendra aukaatriða. Of oft lykta herlegheitin af pen- ingaplokki í krafti frægðar sem reynist þegar á hólminn er komin innistæðulítil“. Ekki hægt að alhæfa Aðspurður hvort hægt sé að segja að bandarískir uppistandarar séu yfirhöfuð breskum síðri segir Jón Gnarr, einn vinsælasti og reyndasti uppistandari okkar Íslandinga: „Ég held að það sé nú ekki hægt að al- hæfa þannig. Þeir eru náttúrulega eins misjafnir og þeir eru margir. Hingað til Íslands hafa komið mjög flottir uppistandarar; til að mynda komu hingað í tvígang strákar sem höfðu unnið til verðlauna á Ed- inborgarhátíðinni, sem þykir nú viðurkenning í faginu. Ég fór í bæði skiptin og það var hægt að telja gestina, sem voru eig- inlega flestir „stand-up- nördar“. En þessir uppistand- arar voru hver öðrum skemmti- legri,“ segir Jón. „En þessir gaurar sem hafa verið að koma hingað frá Bandaríkjunum eru lé- legir, eins og þessi Pablo Franc- isco. Hann er hrútleiðinlegur og lé- legur. Þetta eru allt einhverjir harkarar sem hafa stundað kvik- myndaleik og eru að þessu til þess að vinna sér inn pening og njóta ásta með íslenskum stúlkum,“ segir hann. Hundleiðinlegir „Þessi Jamie Oliver [Kennedy, innsk. blm.] var hundleiðinlegur og Francisco Escobar var hundleið- inlegur; líka hann þarna klámkarl, Ron Jeremy, svo fáeinir séu nefnd- ir. En það er fullt af ágætu uppi- standi í Bandaríkjunum,“ segir Jón, „ég fór nú til dæmis í klúbb í New York í fyrrasumar og það var alveg frábært. Uppistandið var hnyttið og innihaldsríkt, eins og það gerist best, en ég er hins vegar mjög hrifinn af breskum uppistönd- urum á borð við Eddie Izzard, sem kom hingað um árið.“ Grínistinn Sveinn Waage segir að mat á uppistandi sé alltaf hug- lægt. „Ef við tökum menn eins og uppáhaldið mitt, Eddie Izzard, og Billy Connolly, eða þættina Office, er nokkuð ljóst að þessi húmor myndi ekki virka í Bandaríkjunum, þótt við tökum ástfóstri við hann.“ Sveinn segist ekki hafa séð uppi- stand Kennedys. „Nei, ég hafði ekki áhuga. Ég hafði ekki vitað til þess að hann hefði afrekað nokkuð í uppistandi og lét mig þess vegna vanta.“ Spuninn hjá Kennedy sniðugur Sveinn segir að það sé tvennt ólíkt, að vera annars vegar eftirherma eða sniðugur sjónvarpsmaður og hins vegar að vera góður uppi- standari. „Við eigum til dæmis gamanleikara hér á landi sem hafa staðið sig frábærlega í sjónvarpi, en það er ekki þar með sagt að þeir geti haldið uppi uppistandi. Það er bara allt annar hlutur.“ Sindri Páll Kjartansson, sem staðið hefur að keppninni um fyndnasta mann Íslands, segir á hinn bóginn að Jamie Kennedy hafi að sínu mati verið ágætur í uppi- standi sínu. „Hann var búinn að eyða einhverjum tíma í undirbún- ing og kynna sér landið, en mér fannst hann sniðugri þegar hann fór að spinna. Það var skemmti- legra en það sem hann hafði samið áður. Það efni fjallaði að miklu leyti um það sem Íslendingar kannast lítið við,“ segir Sindri. „Mér fannst hann skemmtilegur. Mér leiddist ekki, en eflaust höfðar hann til yngra fólks en mín. Fólk tók hon- um almennt vel.“ Breskur húmor vandaðri Sindri segist vera á þeirri skoðun að almennt sé breskur húmor á hærra plani en bandarískur. „Breskur húmor er yfirleitt vand- aðri og skemmtilegri en sá banda- ríski. Þættir eins og The Office bera vitni um það. Bresk kímnigáfa gengur mikið út á kaldhæðni, sem við Íslendingar kunnum vel að meta, en mér finnst tilraunir Bandaríkjamanna til að vera kald- hæðnir oft frekar veimiltítulegar.“ Uppistand | Skiptar skoðanir íslenskra grínsérfræðinga um bandaríska grínara Ekki sama að vera leikari og uppistandari ivarpall@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Jamie Kennedy fékk góðar viðtökur frá flestum sem sáu uppistand hans. Sveinn Waage Jón Gnarr Sindri Páll Kjartansson Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 3.30 og 5.45. PoppTíví  Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ... Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnarl j l l Jólaklúður Kranks Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , !   "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r   Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 9, 10 og 11. Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÍSLENSKT TAL kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Yfir 20.000 gestir Yfir 20.000 gestir Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 10 ára QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND Í I Í I Í I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND Í I Í I Í I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.