Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
NÚ UM áramótin var mönnuðum veðurathug-
unum fyrir Veðurstofuna hætt á fjórum stöð-
um á landinu; á Haugi í Miðfirði, Sauðanesi á
Langanesi, Strandhöfn í Vopnafirði og Núpi í
Berufirði. Til viðbótar hafa athuganir lagst af
í Kvígindisdal og á Nautabúi í gamla Lýtings-
staðahreppnum í Skagafirði, þar sem föst bú-
seta er ekki lengur á þeim stöðum.
Magnús Jónsson veðurstofustjóri segir að
þessar ákvarðanir séu hluti af þeirri hagræð-
ingu sem Veðurstofan hafi
unnið að á undanförnum
árum.
Fleiri breytingar hafa
orðið á veðurfregnum Veð-
urstofunnar. Að sögn
Magnúsar óskaði Rík-
isútvarpið eftir því að Veð-
urstofan stytti veð-
urfregnatíma sinn upp úr
klukkan tíu á morgnana
um tvær til þrjár mínútur. Tók þessi breyting
gildi 5. janúar sl. og segir Magnús að þar sem
ekki hafi verið hægt að stytta lestur á veð-
urspám fyrir landið, miðin og djúpin hafi verið
ákveðið að hætta lestri á veðurlýsingum frá 14
stöðum til viðbótar fyrrnefndum stöðvum.
Flestar eru stöðvarnar sjálfvirkar en lestri var
hætt frá mönnuðum stöðvum á Torfum í Eyja-
firði, Norðurhjáleigu, Hellu og Hæli í Hrepp-
um. Sjálfvirku stöðvarnar eru á Bjargtöngum,
Straumnesvita, Bjarnarey, Hallormsstað, Sel-
ey, Kambanesi, Skaftafelli, Skarðsfjöruvita,
Vestmannaeyjabæ, Grindavík og Garð-
skagavita. Enn verður hægt að finna upplýs-
ingar um veður á þessum stöðum á Textavarp-
inu og vef Veðurstofunnar, www.vedur.is.
Sex veður-
athugunarstöðv-
ar leggjast af
ÁÐUR en Híbýli vindanna, eftir vest-
urfarasögu Böðvars Guðmundssonar í leikgerð
Bjarna Jónssonar, var frumsýnt í Borgarleik-
húsinu í gærkvöld var mikið um að vera bak við
tjöldin. Leikarar og aðrir aðstandendur sýn-
ingarinnar gengu um og gáfu hver öðrum
klapp á bakið og koss á kinn í tilefni dagsins.
Sminkurnar gerðu leikarana klára í slaginn á
meðan frumsýningargestir komu sér fyrir í
sætum sínum fyrir framan sviðið. Á þriðja tug
leikara tekur þátt í sýningunni, þar af sex
börn.
Morgunblaðið/Golli
Bak við tjöldin fyrir frumsýningu
ALLS bárust fjörutíu og níu til-
boð í byggingarétt á tveimur lóð-
um undir þrjátíu íbúðir við
Bjarkarás í Garðabæ. Frjálsi
fjárfestingarbankinn átti tvö
hæstu tilboð í byggingaréttinn
175 og 200 milljónir og miðað við
lægra tilboðið jafngildir það rúm-
um 5,8 milljónum kr. á hverja
íbúð, en bankinn hefur fallið frá
hærra tilboðinu. Ásdís Halla
Bragadóttir, bæjarstjóri í Garða-
bæ, segir að þetta sé umtalsvert
hærra lóðaverð en búist hafi ver-
ið við.
Kristinn Bjarnason hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum sagði í
samtali við Morgunblaðið að
þarna væri um mjög góðan fjár-
festingarkost að ræða. Nærtæk-
ara væri að skoða fermetraverð
heldur en fjölda íbúða í þessu
sambandi þar sem þarna væri um
mjög stórar íbúðir að ræða.
Lóðaverð á fermetra í þessu til-
viki væri um 40 þúsund kr. og
best til að fara í þessa fram-
kvæmd.
Ásdís Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri sagði að um væri að
ræða tvær lóðir undir þrjátíu
íbúðir í keðjuhúsum og inn í
þessu verði væru öll gjöld sem
bæjarfélagið tæki. Niðurstaða út-
boðsins yrði tekin fyrir á fundi
bæjarráðs á þriðjudaginn kemur
þar sem afstaða yrði tekin til til-
boðanna.
400 íbúðir í Akrahverfinu
Ásdís Halla sagði að áður
hefðu verið boðnar út lóðir undir
raðhús í bæjarfélaginu, en ekki
hafi áður verið boðnar út lóðir
undir jafnmargar íbúðir í einu.
„Þetta er rosalega mikill áhugi
og það kom okkur verulega á
óvart að fá svona mörg tilboð,“
sagði Ásdís Halla ennfremur.
Hún sagði að 760 íbúðir væru í
byggingu í Sjálandi og þar væru
allar íbúðir seldar áður en þær
væru tilbúnar. Þá vonuðust þau
til þess að á næstu dögum lyki
samningum við landeigendur
Akrahverfis sem væri gamla
Arnarneslandið, en þar yrðu í
kringum 400 íbúðir samtals.
kostuðu á bilinu 20–30 milljónir í
dag.
Hann sagði að Frjálsi fjárfest-
ingarbankinn hefði áður boðið í
lóðir fyrir viðskiptavini sína,
meðal annars hafi þeir fengið
tvær lóðir undir fjölbýlishús í
Norðlingaholti hjá Reykjavíkur-
borg. Aðspurður bætti hann því
við að þeir væru ekki að bjóða í
lóðina fyrir hönd ákveðins við-
skiptavinar heldur myndu þeir
velja þann úr hópi viðskiptavina
sinna sem þeir teldu að hentaði
það teldu þeir mjög viðunandi.
„Það sem kannski réttlætir
þetta verð er að þetta er inn í
nær fullbyggðu hverfi og menn
geta nokkurn veginn gengið að
vísu hvaða fermetraverð þeir
geta fengið af söluverðinu í kring.
Auk þess er þetta byggingarhæft
nú þegar, þannig að það er hægt
að afhenda íbúðir þarna strax
næsta haust,“ sagði Kristinn.
Um er að ræða tvö hús, annað
með 18 íbúðum og hitt með 12.
Húsin eru á tveimur hæðum og
sagði Kristinn að eiginlega mætti
segja að þarna væri um að ræða
sérhæðir í fjölbýli 130–150 fer-
metrar að stærð, auk stæðis í bíl-
geymslu. „Þetta virðist vera það
sem markaðurinn vill í dag, það
eru stærri íbúðir,“ sagði Kristinn
og benti á að með tilkomu íbúða-
lána bankanna gæti fólk keypt
dýrari eignir án þess að greiðslu-
byrðin yrði of mikil. Það væri
mikill markaður fyrir íbúðir sem
175 milljónir boðnar í lóðir undir tvö hús með 30 íbúðum í Garðabæ
Umtalsvert hærra verð
á lóðum en búist var við
Mjög góður fjárfestingarkostur
segir forsvarsmaður
Frjálsa fjárfestingarbankans
! "
MARÍA Kristjánsdóttir, leiklistargagnrýn-
andi Morgunblaðsins, segir í yfirlitsgrein í
Lesbók um leikárið 2004 að eitt af vanda-
málunum sem Stefán Baldursson skilji eftir
fyrir eftirmann sinn í Þjóðleikhúsinu sé
hvernig eigi að byggja upp leikstjóra fyrir
húsið.
„Leikstjórar eiga ekki að vera til einnar
nætur eða einnota,“ segir María og telur að
það þurfi að huga mun betur að því í fram-
tíðinni hvaða kröfur þurfi að gera til þeirra
leikstjóra sem leikstýra á stóru sviðunum í
leikhúsunum.
María segir að merkilegast við árið 2004
hafi verið hversu mörg leikverk á árinu
voru frumsamin íslensk verk, hátt á annan
tug. Hún spyr þó hvort íslenskir leikritahöf-
undar viti fyrir hverja þeir eru að skrifa.
Hún segir einnig illskiljanlegt að þung sam-
félagsmál samtímans skuli ekki hvíla þyngra
á leikritahöfundum okkar og leikhúsfólki.
Árni Matthíasson tónlistargagnrýnandi
bendir á í yfirlitsgrein um dægurtónlist að
af plötusölu síðasta árs megi ráða að smekk-
urinn sé að breytast. „Í stað poppsins kemur
það sem menn vilja kalla millitónlist og vísa
þá til þess að hún hefur víðari skírskotun,
nær til breiðari aldurshóps en poppið og þá
aðallega til eldra fólks.“/C1
Leikstjórar
ekki einnota
HRINA jarðskjálfta varð um 4–5 km SSA af
Hveragerði í gærkvöldi. Var stærsti skjálftinn
2,5 á Richterkvarða, samkvæmt jarð-
skjálftalista Veðurstofunnar. Á tímabilinu
18.28 til 19.38 urðu tíu skjálftar á þessu svæði
og voru þeir á bilinu 0,5–2,2 á Richter. Kl.
21.30 varð svo stærsti skjálftinn, 2,5 á Richter.
Að sögn veðurfræðings á Veðurstofunni í
gærkvöldi er allvanalegt að skjálftar verði á
þessu svæði. Engar tilkynningar höfðu borist
vegna skjálftanna til Veðurstofunnar.
Þá urðu a.m.k. fjórir skjálftar um 22–45 km
ASA af Grímsey í gærkvöldi og mældust þeir
á bilinu 2-2,4 á Richter samkvæmt skjálfta-
lista Veðurstofunnar.
Skjálftahrina
við Hveragerði