Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 11
FRÉTTIR
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Str. 36-56
Nýjar
vörur frá
SAMRÆMT stúdentspróf í íslensku
var haldið í annað sinn í desember sl.
Alls þreyttu 850 nemendur í 24 skól-
um á landsvísu prófið, 95% af þeim
sem höfðu skráð sig til prófs, og hef-
ur Námsmatsstofnun farið yfir og
birt niðurstöður prófanna.
Staðlaður einkunnastigi, eða sam-
ræmd stúdentseinkunn, var hannað-
ur til þess að birta niðurstöður sam-
ræmdra stúdentsprófa. Meðaltalið
er 75, lægsta einkunn 50 og hæsta
einkunn 100. Meðaleinkunn þess
hóps sem þreytti prófið var 79,7
samkvæmt einkunnastiganum. Með-
aleinkunn á 1–10-einkunnastiganum
var 6,2. Flestir voru með samræmda
stúdentseinkunn á bilinu 75–79 og
80–84. Á skalanum 1–10 voru flestir
með einkunnina 6–6,5 og 7–7,5. Þar
af fengu 32 ágætiseinkunn sam-
kvæmt samræmdu stúdentsein-
kunninni. Á skalanum 1–10 fengu ell-
efu nemendur einkunnina 9–10.
Samkvæmt upplýsingum Náms-
matsstofnunar hefur sú einkunn, þ.e.
1–10, enga haldbæra túlkun. Því
þótti eðlilegast að túlka frammistöðu
nemenda út frá samræmdri stúd-
entseinkunn. Því beri að varast að
leggja svipaða merkingu í 1–10-ein-
kunn sem nemendur séu vanir úr
námsmati úr skólum enda samhengi,
tilgangur og efnistök samræmdra
prófa frábrugðin námsmati í skólun-
um.
Samræmd stúdentseinkunn
Til nánari útskýringar á sam-
ræmdri stúdentseinkunn hefur ein-
kunnin 91 verið tengd skilgreiningu
á ágætisframmistöðu sem byggist á
aðalnámskrá framhaldsskóla. Ein-
kunnin 59 afmarkar með sama hætti
slaka frammistöðu. Meðaltal ein-
kunnastigans var staðsett með tilliti
til að landsmeðaltal heils árgangs,
sem lýkur stúdentsprófi, verði 75,0.
Samræmt stúdentspróf í íslensku
byggist á þeim þáttum aðalnámskrár
framhaldsskóla sem lúta að bók-
menntum, málnotkun og ritun. Síð-
astliðið vor þreyttu 442 nemendur
prófið og alls hafa því tæplega 1.300
nemendur tekið það. Samræmt stúd-
entspróf í ensku, stærðfræði og ís-
lensku verður svo haldið í vor og
verður það í fyrsta sinn sem slík próf
eru haldin í ensku og stærðfræði.
Niðurstöður úr samræmdu stúdentsprófi í íslensku
Meðaleinkunn 6,2
PRENTSMIÐJAN Oddi hefur
stöðvað dreifingu nokkur þúsund
dagbóka og fargað þeim eftir að
viðskiptavinur benti á að í dagbók-
inni þetta árið væri að finna máls-
hætti sem þættu niðrandi fyrir
konur. Bækurnar voru innkallaðar
úr verslunum um land allt í byrjun
janúar og þær teknar úr sölu.
Er fjárhagslegt tjón fyrirtækis-
ins nokkrar milljónir vegna þessa
að sögn Jósafats Björnssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Odda.
Viðhorf sem ekki
samræmast nútímanum
Aldrei er kvennastjórn affaragóð,
sá flytur gott hlass í garð sem góða
konu fær, kona er karlmanns fylgja
og þrætugjörn kona er sem sífelld-
ur leki, eru dæmi um málshætti
sem finna mátti í bókinni.
„Í þessum fornu málsháttum
birtast viðhorf sem samræmast alls
ekki nútímanum og ganga þvert á
yfirlýsta fjölskyldu- og jafnréttis-
stefnu Odda,“ segir í tilkynningu
sem birt var á heimasíðu fyrirtæk-
isins 11. janúar sl. „Einhverjir not-
endur dagbókarinnar kunna að
telja að í málsháttunum felist til-
tekinn boðskapur af hálfu útgef-
andans. Því fer fjarri og ákvörðun
okkar um að stöðva dreifingu bók-
arinnar staðfestir það. Við biðjumst
velvirðingar á yfirsjóninni og mun-
um sjá til þess að forneskjuleg við-
horf setji ekki mark sitt á dag-
bækur okkar fyrir árið 2006,“ segir
ennfremur í tilkynningunni.
„Þetta voru auðvitað ekki máls-
hættir sem við vorum að búa til
heldur gamlir málshættir sem eru
góðir og gildir sem sagnfræðiheim-
ild og eiga heima í málsháttabók-
um,“ sagði Jósafat í samtali við
Morgunblaðið. „Okkar mistök
liggja í því að láta þessa málshætti
rata inn á síður dagbókar fyrir árið
2005.“
Margir vildu eignast
bókina sem minjagrip
Jósafat segir að eftir að það
spurðist út að dagbókin hefði verið
innkölluð vegna málsháttanna hafi
síminn vart stoppað og tölvubréfum
rignt inn. Margir hafi áhuga á bók-
inni í sagnfræðilegu tilliti, ekki síst
konur. Ýmist finnist fólki að brugð-
ist hafi verið of harkalega við og
óþarfi hafi verið að innkalla bókina,
en aðrir þakka fyrirtækinu fyrir
skjót viðbrögð. „Þetta fólk er þakk-
látt fyrir að þessum málsháttum
hafi verið hent á haugana, í bók-
staflegri merkingu. Það má því
kannski segja að á endanum leiði
þetta til einhvers góðs,“ segir Jós-
afat.
Hann segir að búið sé að breyta
vinnuferlinu við bókina svo að mis-
tök sem þessi eigi ekki að geta end-
urtekið sig. „Við látum okkur þetta
að kenningu verða,“ segir Jósafat.
Hættu dreifingu dagbóka sem þóttu
innihalda niðrandi málshætti um konur
Hundruðum
dagbóka fargað
ÍSLANDSVINURINN Knut
Haenschke, sem verið hefur for-
stöðumaður Norðurlandaskrifstofu
þýska ferðamálaráðsins í Kaup-
mannahöfn síðastliðin sjö ár, hefur
nú snúið heim til Frankfurt í Þýska-
landi þar sem hann mun enn um
sinn starfa fyrir þýska ferða-
málaráðið. Knut lenti á dögunum í
60. sinn á Keflavíkurflugvelli en
heimsóknir hans hingað eru orðnar
um 40.
Það var reyndar í Frankfurt að
Ísland og Íslendingar urðu fastur
punktur í tilveru Knuts því þar
starfaði hann fyrir Loftleiðir á ár-
unum 1975 til 1982 en Knut hefur
starfað að ferðamálum allar götur
frá árinu 1960.
Nátengdur Norðurlöndunum
og Íslandi
„Ég ætla að vinna fyrir ferða-
málaráðið í tæp tvö ár í Frankfurt í
viðbót en ég hef verið síðustu sextán
árin erlendis. Að þeim tíma loknum
ætla ég að hætta. En ég hefði
reyndar mikinn áhuga á að lýsa fót-
boltaleikjum, kannski fæ ég tæki-
færi til þess að gera það hjá sax-
neska útvarpinu. Ég lýsti leikjum
hér áður fyrr um árabil, að vísu bara
í 2. eða 3. deild, en það skiptir ekki
öllu máli, mér finnst einfaldlega
mjög skemmtilegt að lýsa leikjum.“
Knut segir sér líka vel að komast
aftur heim til Þýskalands. „Þessi
sextán ár sem ég hef starfað erlend-
is voru stórfín og ómetanleg
reynsla, ég hef kynnst
öðrum þjóðum en núna
þegar ég er orðinn sex-
tugur finnst mér gott
að komast heim.“
Knut segist vera
orðinn nátengdur
Norðurlöndunum þar
sem hann hafi dvalið í
um ellefu ár á Norð-
urlöndunum og unnið
fyrir Loftleiðir í sjö ár.
Spurður um þær
breytingar sem hann
hafi upplifað á Íslandi
segir hann þær vera
geysimiklar.
Geysimiklar breytingar hafa
orðið á Íslandi
„Mér verður hugsað til fyrstu ferðar
minnar hingað, þá var enginn bjór
eða knæpur og næstum erfitt að fá
að borða, framboðið af mat-
sölustöðum var ákaflega takmarkað,
það voru Hótel Loftleiðir, Saga og
Naustið og ekki mikið annað. En
síðan varð hér gerbylting, einkum
eftir að bjórinn var leyfður, ótal
krár voru opnaðar og mjög margir
afar góðir matsölustaðir. Maður
myndi ekki trúa að óreyndu hversu
margir afbragðs gæðaveitingastaðir
eru hér miðað við það hversu fá-
menn þjóðin er. Ég held líka að ís-
lenska þjóðin hafi sjálf breyst, ég
hef á tilfinningunni að menn hafi
verið heimakærari og nægjusamari.
Núna er meiri hreyfing á öllu, tveir
eða þrír bílar í hverri
fjölskyldu o.s.frv. Það
er annað Ísland en sem
ég kynntist árið 1975.
En ég hef haft gaman
af því að fylgjast með
þessum breytingum og
raunar dáðst að því
hvernig Íslendingar
hafa reynt að halda í
sjálfsmynd sína.“
Aðspurður segir
Knut að mjög vel hafi
gengið að fá Íslendinga
til að ferðast til Þýska-
lands, sérstaklega á ní-
unda áratugnum en þá
hafi flugleiðin Kefla-
vík-Lúxemborg verið ráðandi og
Arnarflug hafi flogið til Hamborgar
en Hamborg hafi verið mjög vinsæll
áfangastaður. Eftir að það flug hafi
lagst af hafi Flugleiðir farið á fljúga
til Frankfurt. Á þeim tíma hafi einn-
ig framboð á ferðum til annarra
staða verið minna en nú er. „En nú
erum við að sækja aftur á með beinu
flugi Icelandair til Berlínar sem
hófst í fyrrasumar en þá var flogið
þangað tvisvar sinnum í viku. Nú
verður flogið þangað fjórum sinnum
í viku næsta sumar. Berlín er spenn-
andi borg, hún er á uppleið og hefur
mikið aðdráttarafl, líka fyrir ungt
fólk á Íslandi.“
Knut segist hafa eignast fjölda
vina á Íslandi á þessum langa tíma
og hann muni ætíð verða tengdur
landinu sterkum böndum.
Íslandsheimsóknir Knut Haenschke eru orðnar 40 talsins
„Gott að komast heim“
Knut Haenschke