Morgunblaðið - 20.01.2005, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
AUSTURLAND
ÁRNI Þór Sigtryggsson stórskytta
Þórs í handbolta nefbrotnaði illa í
æfingaleik gegn KA á mánudags-
kvöld og er ljóst að hann verður frá
keppni næstu 6 vikur í það minnsta.
Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Þór
og ekki síður fyrir Árna sjálfan en
til stóð að hann færi á morgun
föstudag til reynslu í vikutíma hjá
þýska handknattleiksliðinu Göpp-
ingen. Einnig hafa borist fyr-
irspurnir frá mörgum öðrum er-
lendum liðum í vetur. Árni hefur
verið lykilmaður í liði Þórs á yf-
irstandandi keppnistímabili og er
næstmarkahæsti leikmaður deild-
arinnar, með 91 mark í 12 leikjum.
Árni sagðist hafa fengið þungt
högg í andlitið frá leikmanni KA
með fyrrgreindum afleiðingum,
„hvort sem það var viljandi eða
óvart en ég ætla að láta leikmann-
inn njóta
vafans á því hvort þetta var vilj-
andi eða óvart. Nefið brotnaði illa
og flattist út á hlið. Ég fór strax
upp á slysadeild til skoðunar en var
svo sendur heim og fór í aðgerð
daginn eftir. Aðgerðin heppnaðist
vel og vonandi fæ ég mitt rétta and-
lit,“ sagði Árni sem er bólginn í
andliti og með myndarlegt glóð-
arauga. „Eftir þetta brot leystist
leikurinn upp í tóma vitleysu og var
hætt í kjölfarið.“
Árni sagði ekki lengur leyfilegt
að nota andlitsgrímu í handbolta-
leik og hann er alls ekki sáttur við
þá breytingu. „Ef ég ekki fæ und-
anþágu frá þeirri reglu, verð ég frá
í 6 vikur og missi af 3–4 leikjum
Þórs í úrvalsdeildinni. Við megum
heldur ekki fá nýja menn til liðs við
okkur, þannig að útlitið er alls ekki
gott. Við spilum 8 leiki í úrvals-
deildinni og þurfum að vera í einu
af sex efstu sætunum til að vera
öruggir í úrslitakeppnina.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Árni
slasast á sínum handboltaferli og
hann sagði að þetta hefði alls ekki
verið skemmtilegasta tímasetn-
ingin, miðað við það sem var fram-
undan. „Forsvarsmenn Göppingen
höfðu samband við mig í vikunni og
buðu mér að koma út síðar í vetur
og er líklegast að ég heimsæki liðið
um páskana.“
Árni Þór Sigtryggsson nefbrotnaði illa í æfingaleik
„Fæ vonandi mitt rétta andlit“
Morgunblaðið/Kristján
Blár og bólginn Árni Þór er bæði
nefbrotinn og með myndarlegt glóð-
arauga eftir æfingaleikinn við KA.
Uppskeruhátíð | Skákfélag Ak-
ureyrar heldur uppskeruhátíð í
kvöld, fimmtudagsköldið 20. janúar,
kl. 20.00 í KEA-salnum í Sunnu-
hlíð. Veitt verða verðlaun, boðið
upp á kaffi og meðlæti og jafnvel
sest að tafli. Skákmóti á vegum fé-
lagsins, sem fram átti að fara nk.
sunnudag, hefur verið flýtt til
föstudagsins 21. janúar kl. 20:00.
Mikael Karlsson, ungur skákmað-
ur, tefldi um síðustu helgi á Ís-
landsmóti barna í Reykjavík. Tefld-
ar voru níu umferðir eftir
monrad-kerfi og hlaut Mikael fimm
vinninga, sem er ágætis árangur,
segir í fréttatilkynningu Skákfélags
Akureyrar. Mikael hefur stundað
æfingar og keppni um nokkurt
skeið og er mikið efni. Gylfi Þór-
hallsson sigraði á Fischer-
klukkumóti félagsins sem fram fór
um síðustu helgi en hann fékk sex
vinninga af átta mögulegum.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að boða
til íbúaþings þar sem kynna á fyrir
bæjarbúum niðurstöður vinnuhóps
umhverfisráðs um framtíðarlegu
tengibrauta í og við Lundarhverfi. Í
tillögu Jakobs Björnssonar formanns
bæjarráðs, er lagt til að óháður aðili
verði fenginn til samstarfs um al-
menna kynningu en markmið þeirrar
vinnu er samráð við íbúa og hags-
munaaðila í þeim tilgangi að ná fram
sem mestri sátt um lausn málsins
þegar til endanlegrar ákvarðanatöku
bæjarstjórnar kemur.
Vinnuhópur umhverfisráðs hafði
lagt til að vegna uppbyggingar í
Naustahverfi sé nauðsynlegt að Dals-
braut verði lögð sem fyrst. Jafnframt
þurfi að gera ráð fyrir Miðhúsabraut
sem framtíðarmöguleika, miðað við
væntanlega þróun byggðar sam-
kvæmt núgildandi aðalskipulagi. Um-
hverfisráð hafði lýst sig sammála nið-
urstöðum vinnuhópsins en með
samþykkt bæjarstjórnar er tillögu
umhverfisráðs frestað.
Jakob sagði að hugmyndin væri að
kynna málið fyrir íbúum á svipaðan
hátt og gert var á íbúaþingi verkefn-
isins Akureyri í öndvegi sl. haust.
Hann sagði ná þyrfti sem víðtækastri
sátt við umhverfið og fá menn til að
skoða málin í eðlilegu samhengi. „Oft
þegar skipulagsmál eru til umfjöllun-
ar eru þau rædd út frá mjög þröngum
sjónarmiðum. Þarna stendur bæjar-
stjórn m.a. frammi fyrir því að leysa
tengingu 6.000 manna byggðar við at-
hafna- og þjónustusvæði, þegar
Naustahverfi verður fullbyggt.“
Jakob sagði að KA-menn myndu
t.d. vilja vita hvernig þeim yrði bætt
skerðing á þeirra æfingasvæði, ef af
lagningu Dalsbrautar verður. Einnig
hafa íbúar á þessu svæði mótmælt
áformum um lagningu Dalsbrautar.
„Það er stefnt að því að leggja nið-
urstöður fyrir bæjarstjórn við endan-
lega ákvarðanatöku eftir þrjá og hálf-
an mánuð. Vonandi verður þessi
vinna til þess að menn nái bærilegri
sátt við íbúa og hagsmunaaðila um
það sem endanlega verður ákveðið.“
Fundað með íbúum um DalsbrautinaJÚPÍTER ÞH kom til Akureyrarseinni partinn í gær og landaði
fullfermi af loðnu, um 1.500 tonn-
um, hjá Ísfélagi Vestmannaeyja í
Krossanesi. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem þetta skip Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar landar á
Akureyri. Að sögn Hilmars Stein-
arssonar verksmiðjustjóra í
Krossanesi hefur veðrið verið að
stríða loðnusjómönnum en lítil
loðnuveiði var í fyrrinótt vegna
veðurs, sem og nóttina þar á und-
an.
Morgunblaðið/Kristján
Fullfermi Júpíter leggst að bryggju í Krossanesi seinni partinn í gær.
Júpíter ÞH með
fullfermi af loðnu
AFL – Starfsgreinafélag Austur-
lands hefur falið Regula lögmanns-
stofu að höfða mál gegn Impregilo
og portúgölsku
starfsmannaleig-
unum Select og
NETT vegna
vangoldinna
sjúkrasjóðsið-
gjalda til félags-
ins. Ennfremur
verður fyrir-
tækjunum stefnt
vegna lögbund-
inna dráttar-
vaxta og innheimtuþóknunar, sem
Impregilo (fyrir eigin hönd og
starfsmannaleignanna) neitaði að
greiða.
„Okkur sýnist að við verðum
fram á vorið að koma stefnunni í
gang,“ sagði Aðalbjörn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Afls, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Við erum
að stefna móðurfélögunum úti í
Portúgal og við þurfum því að þýða
gögn og koma þessu í réttan far-
veg. Um er að ræða á annan tug
milljóna sem þegar liggja fyrir,
sem eru þá sjúkrasjóðsiðgjöldin,
dráttarvextir og innheimtukostnað-
ur. Þetta gætu verið tugir milljóna
á framkvæmdatímanum ef þessir
Portúgalar halda áfram í jafnmikl-
um mæli og verið hefur við Kára-
hnjúkavirkjun.“
Í fréttatilkynningu frá Afli segir
að fyrirtækin sem stefna á hafi
þegar greitt félags- og orlofssjóð-
siðgjöld en enginn árangur hafi
náðst af innheimtu sjúkrasjóðsið-
gjalda.
Öllum fyrirtækjum á Íslandi er
gert að greiða félags-, sjúkrasjóðs-
og félagsiðgjöld vegna starfsmanna
sinna til viðkomandi stéttarfélags.
Sjúkrasjóðsiðgjald tryggir starfs-
manni ákveðna samtryggingu ef til
veikinda kemur eða ef starfsmaður
slasast. Impregilo og starfsmanna-
leigurnar bera fyrir sig að starfs-
menn þeirra hafi allir lagt fram
svokallað E-101-eyðublað sem und-
anskilji þá öllum greiðslum í op-
inbera samtryggingarsjóði hér á
landi. Skv. túlkun íslensku verka-
lýðshreyfingarinnar eiga þessi rök
ekki við, þar sem hvergi er minnst
á sjúkrasjóði stéttarfélaganna í
reglugerð tengdri E-101, en hún
fjallar um beitingu almannatrygg-
ingareglna gagnvart launþegum og
fjölskyldum þeirra sem flytjast
milli aðildarríkja.
Aðalbjörn segir klárlega um
prófmál að ræða. „Við teljum okk-
ur hafa unnið mál í höndunum, en
þeir væru ekki að fara af stað með
þetta ef þeir teldu sig ekki hafa
einhver rök haldbær. Þetta er
prófmál og ef niðurstaðan verður
þeim í hag þýðir það strangt til
tekið fyrir fyrirtækin að erlendir
starfsmenn eru strax orðnir þess-
um prósentum ódýrari, sem er
stórmál. Kannski er það ekki
höfuðatriði í sambandi við hvort
ráðnir eru útlendingar eða Íslend-
ingar en það skiptir allt máli og
m.a. þessir sjóðir,“ segir Aðal-
björn.
Í kjarasamningi milli Lands-
virkjunar og Samtaka atvinnulífs-
ins vegna aðildarfyrirtækja annars
vegar og Alþýðusambands Íslands,
Starfsgreinasambands Íslands,
Samiðnar og Rafiðnaðarsambands
Íslands hins vegar um kaup og
kjör við virkjunarframkvæmdir á
vegum Landsvirkjunar (hinum svo-
kallaða virkjanasamningi) er fjallað
um sjúkrasjóði í grein 9.1. Þar seg-
ir orðrétt: „Vinnuveitendur skulu
greiða í sjúkrasjóð viðkomandi fé-
laga eða sambanda sem svarar til
1% af útborguðu kaupi starfs-
manna, til að standa straum af
veikindum og sjúkrakostnaði.“
Afl undirbýr stefnu á hendur Impregilo og portúgölskum starfsmannaleigum
Ætla að innheimta
vangoldin
sjúkrasjóðsiðgjöld
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Portúgalskir starfsmenn við Kárahnjúka Afl ætlar að stefna Impregilo og
portúgölskum starfsmannaleigum vegna vangoldinna sjúkrasjóðsiðgjalda.
Aðalbjörn
Sigurðsson
Stafdalur opnaður | Á laugardag-
inn var gátu skíða- og brettamenn á
Austurlandi glaðst, því þá var skíða-
svæðið í Stafdal í Seyðisfirði opnað í
fyrsta sinn þennan veturinn. Mjög
góð mæting var í fjallið og mátti sjá
fólk sem kom víða að. Stefnt er að
því að fjallið verði opið virka daga
frá kl. 15–19 og um helgar frá kl. 11–
17. Svæðið er rekið af Seyðis-
fjarðarkaupstað og Fljótsdalshéraði
í sameiningu.
Minnisvarði | Samþykkt hefur ver-
ið að reisa minnisvarða vegna sjó-
slysanna sem urðu fyrir um 50 árum,
þegar tveir togarar Norðfirðinga,
Egill rauði og Goðanes, fórust með
minna en tveggja ára millibili. Minn-
isvarðinn verður jafnframt til marks
um fádæma þrekraun og kjark
björgunarmanna sem stóðu að
björguninni og virðingu sem íbúar
sveitarfélagsins sýna þeim sjómönn-
um sem farist hafa í og við sjávarsíð-
una. Bæjarráð Fjarðabyggðar, sem
samþykkti að minnisvarðinn skyldi
reistur í vikunni, óskar eftir sam-
vinnu við fyrirtæki, stofnanir og ein-
staklinga sem vilja leggja málefninu
lið. Vonast er til að unnt verði að af-
hjúpa minnisvarðann á sjó-
mannadaginn árið 2006.
Könnun | Niðurstöður skoð-
anakönnunar sem IMG-Gallup vann
fyrir Fjarðabyggð voru kynntar
bæjarráði í vikunni. Í könnuninni
var leitað eftir afstöðu íbúa til þess
hvort selja ætti félagsheimilin í
Fjarðabyggð og hvort sameina ætti
nágrannasveitarfélög Fjarðabyggð.
62,7% íbúa Fjarðabyggðar vilja sam-
einast nágrönnum sínum í Aust-
urbyggð, Fáskrúðsfjarðarhreppi og
Mjóafjarðarhreppi, en á móti eru
26,4%. Hins vegar eru íbúar andvíg-
ir þeirri hugmynd að félagsheimilin
verði seld eða 49,7% en hlynntir eru
39%. Um 11% tóku ekki afstöðu.