Morgunblaðið - 20.01.2005, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hræsni, 8 knapp-
ur, 9 synja, 10 sefi, 11
skriki til, 13 talaði um, 15
kvenvargur, 18 kölski, 21
grænmeti, 22 augabragð,
23 hagnaður, 24 lyddan.
Lóðrétt | 2 urtan, 3 á
næsta leiti, 4 ránfuglar, 5
burðarviðir, 6 mikill, 7
opi, 12 tangi, 14 þjóta, 15
geð, 16 gamla, 17 sveðja,
18 ráin, 19 skaða, 20 skylt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 súgur, 4 kóngs, 7 ætlum, 8 ágóði, 9 súr, 11 tími,
13 eitt, 14 nefni, 15 skán, 17 ráða, 20 þró, 22 elfur, 23
skæni, 24 farga, 25 reiði.
Lóðrétt | 1 skært, 2 gálum, 3 rúms, 4 klár, 5 njóli, 6 seigt,
10 úlfur, 12 inn, 13 eir, 15 skelf, 16 álfur, 18 áræði, 19 aðili,
20 þróa, 21 ósar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú munt ekki sjá eftir því að beina
orku þinni að fjölskyldu og heimili á
næstunni. Það er það sem þér er uppá-
lagt. Þú þarft að treysta undirstöð-
urnar í lífinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Flutningar og breytingar á starfs-
högum eru óhjákvæmilegar hjá naut-
inu. Slíkar breytingar hafa þegar orðið
í sumum tilvikum og mun fjölga árið
2005.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Eigur þínar eru í brennidepli um þess-
ar mundir og þú verður að gera upp
við þig hvað þú vilt eiga og hverju þú
þarft að henda. Ekki ríghalda í hluti af
gömlum vana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbar sem finna til stífleika í liða-
mótum munu að líkindum jafna sig síð-
ari hluta ársins. Satúrnus hefur verið í
krabba síðastliðin 4 ár og hefur m.a.
áhrif á bein líkamans.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kemst ekki hjá því að hagræða í lífi
þínu á næstunni. Búðu þig undir að
þurfa að losa þig við óþarfa og halda
áfram þaðan sem frá var horfið. Nýr
heimur opnast þér innan tíðar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Mikilvægt tímabil í lífi meyjunnar held-
ur áfram, hún áttar sig á því hvar
henni gengur vel og hvað í lífinu er
ófullnægjandi. Slepptu því sem er ekki
að virka.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Næstu mánuðir eru svo sannarlega
tími einhvers konar áfanga í lífi vog-
arinnar. Hún nær árangri þar sem hún
leggur sig fram. Uppskerutími er fram-
undan.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki hika við að horfa björtum augum
á framtíðina. Það besta á eftir að fara í
hönd. Árangurinn sem þú nærð verður
öllum sýnilegur í lok þessa árs.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur ekki notið utanaðkomandi
stuðnings að undanförnu. En margt
bendir til þess að sú vöntun renni sitt
skeið á enda í árslok. Hertu upp hug-
ann á meðan.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óhætt er að segja að næstu 14 ár í ævi
steingeitarinnar verði á margan hátt
viðburðarík. Síðastliðin 15 ár voru und-
irbúningur fyrir tímana sem senn fara í
hönd.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Allt sem þú hefur lagt á þig að und-
anförnu er að byrja að skila árangri.
Sýndu þolinmæði. Þú verður óstöðvandi
í árslok.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hugsar mikið um starfsframann
þessa dagana. Þig langar til þess að
gegna hlutverki sem er innihaldsríkt,
ánægjulegt og ábatasamt allt í senn.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hlýleg manneskja með stórt hjarta
og ert skemmtilega hvatvís. Einnig áttu
gott með að taka skjótar ákvarðanir. Þú
leikur hratt af fingrum fram ef aðstæður
breytast skyndilega.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Hljómsveitin Ampop
heldur tónleika kl. 22 í kvöld.
Grand rokk | Hljómsveitirnar Sign og
Noise leika í kvöld kl. 22.
Sunnusalur Hótel Sögu | Vinafélag Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands býður til sam-
verustundar fyrir sinfóníutónleika kvölds-
ins kl. 18 í Sunnusal Hótel Sögu. Árni
Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur
mun ræða um 6. sinfóníu Shostakovich
með hjálp hljóðfæris og hljómtækja. Að-
gangseyrir er 1000 krónur, boðið upp á
súpu og kaffi.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn
Sigurbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíu-
málverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnu-
mót lista og minja.
Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra
Píanó & Frú Haugur.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?
Gallerí Dvergur | Sigga Björg Sigurð-
ardóttir – Lappir, línudans og fórnarlamb
í gulri peysu.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis
myndverk.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?
Gallerí Tukt | Kristjana Rós Guðjohnsen
sýnir abstrakt olíumálverk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir
ljósmyndir, skúlptúra, teikningar og
myndbönd.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár – sýning í
tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almenn-
ingsrafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð
verk, málverk, teikningar og grafík eftir
íslenska og erlenda listamenn í Sverrissal
og Apóteki. Sigrún Guðmundsdóttir er
myndhöggvari janúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný ol-
íumálverk í forkirkju Hallgrímskirkju.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfs-
son – Alca torda vs. rest.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir
– Á skurðarborði Augans.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur
myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar
starfstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíu-
ljós. Verk úr einkasafni Þorvaldar Guð-
mundssonar og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur á neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Þórður Ben Sveinsson – Borg náttúrunn-
ar. Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt
útlit mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur.
Brian Griffin – Áhrifavaldar.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Geng-
ið niður Klapparstíg. Ævintýralegir fem-
ínistar – Carnal Knowledge.
Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson – Bardaga-
vellir.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur |
Sören Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Ljósmyndasýning.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson,
grafíklistamaður, listmálari, myndlist-
arkennari og listgagnrýnandi er myndlist-
armaður mánaðarins. Yfirlitssýning á
verkum Braga í veitingastofu og í kjall-
ara.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga. Kynntar eru nýjar
rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa
efnis á geisladiskum. Fyrsta sýningin
fjallar um Silfurplötur Iðunnar sem
Kvæðamannafélagið Iðunn og Smekk-
leysa gaf nýlega út á 4 geisladiskum
ásamt veglegu riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –
menning og samfélag í 1200 ár. Opið frá
kl 11–17 í dag.
Bækur
Bókasafn Kópavogs | Jón Yngvi Jó-
hannsson bókmenntafræðingur heldur
erindi í Kórnum, fjölnotasal á 1. hæð
Bókasafns Kópavogs kl. 17.15 í dag. Þar
mun hann fjalla um nýútkomnar bækur
og svara fyrirspurnum. Einnig verður
skipst á skoðunum. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Mannfagnaður
Félagsheimilið Leikskálar | Þorrablót
Víkurbúa verður haldið í Leikskálum laug-
ardaginn 22. janúar. Nánari upplýsingar
veita Guðrún (8471359), Soffía
(4871477), Anna (8630307), Ragnhildur
(4871474), Sigrún (4871191).
Fundir
Café Riis | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund kl. 20. Yfirskrift fund-
arins er: Með hækkandi sól – lægri skatt-
ar – aukin hagsæld. Framsögumenn: Sig-
ríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra og Einar Oddur Krist-
jánsson alþingismaður.
Félagsheimilið Klifi Ólaflsvík | Þingmenn
Vinstri–grænna halda opinn fund í Snæ-
fellsbæ kl. 20. Á fundinum verða alþing-
ismennirnir Jón Bjarnason og Stein-
grímur J. Sigfússon ásamt Árna Steinari
Jóhannssyni og Hildi Traustadóttur. M.a.
er rætt um væntanlega endurskoðun
stjórnarskrárinnar o.fl.
Hótel Ísafjörður | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 20.30. Yf-
irskrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra og alþing-
ismennirnir Einar K. Guðfinnsson og
Birgir Ármannsson.
Hótel Örk, Hveragerði | Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur stjórnmálafund kl. 20. Yf-
irskrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra og alþingismennirnir Drífa
Hjartardóttir og Sólveig Pétursdóttir.
Fyrirlestrar
Lögberg, stofa 101 | Helga Björnsdóttir
mannfræðingur flytur erindið „Í kynlegu
rými götunnar: Um heimilislaust fólk“ á
vegum Rannsóknastofu í kvenna- og
kynjafræðum kl. 12.05–13, í stofu 101 í
Lögbergi. Fyrirspurnir og umræður að
loknu erindi, aðgangur ókeypis.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur | Nigel
Watson leikari og fræðimaður heldur fyr-
irlestur í Öskju, HÍ, stofu 132, kl. 16. Rætt
verður um textaval, einkenni nýlegra
uppfærslna á verkum Shakespeares
m.t.t. málefna sem mikil áhrif hafa haft á
breska þjóðfélags– og menningar-
umræðu, s.s. stríðið í Írak. Fyrirlesturinn
er fluttur á ensku.
Kynning
Kópavogsdeild RKÍ | Við óskum eftir
sjálfboðaliðum til þess að sinna marg-
víslegum mannúðarverkefnum deild-
arinnar. Kynningarfundur fyrir nýja sjálf-
boðaliða verður haldinn í Hamraborg 11,
2. hæð kl. 20. Um er að ræða verkefni
sem henta fólki á öllum aldri. Taktu þátt í
gefandi starfi!.
Maður lifandi | Viðskiptavinum er boðin
ókeypis ráðgjöf um notkun hómópatíu kl.
13–15 í verslun Maður lifandi. Kristín
Kristjánsdóttir hómópati aðstoðar og
svarar spurningum.
Málstofur
Verkfræðideild HÍ | Hjörtur Þráinsson
flytur erindi um: Reiknilíkön til að meta
áhættu af völdum náttúruhamfara, kl.
16.15–17, í stofu 158, verkfræðideild Há-
skóla Íslands við Hjarðarhaga 6. Í þessu
spjalli verður farið yfir uppbyggingu
slíkra líkana og rætt um vandamál sem
að steðja við gerð þeirra.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Hópþjálfun Gigt-
arfélags Íslands er byrjuð aftur eftir
jólafrí. Í boði eru mismunandi hópar, s.s.
róleg leikfimi, vefjagigtarhópar, bakleik-
fimi fyrir karlmenn og jóga. Þjálfunin fer
fram í húsi GÍ að Ármúla 5. Nánari upp-
lýsingar hjá GÍ.
Mímir–símenntun ehf | Jóhanna Krist-
jónsdóttir heldur námskeið um Menning-
arheim araba hjá Mími símennt. Þetta er
fimm kvölda námskeið sem hefst 20. jan.
Rætt er um islam, sögð saga Múhamm-
eðs spámanns, fjallað um stöðu, mennt-
un og klæðnað kvenna. Rætt um menn-
ingartengd efni o.fl. Þá er einnig boðið
upp á arabískan mat.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin fer
kl. 18 frá bílastæðinu þar sem Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur var í Fossvogi og
gengið vestur með Öskjuhlíð, Nauthólsvík
og út með Skerjafirði að norðan út undir
Ægisíðu. Farið er sömu leið til baka og
tekur gangan rúma klukkustund. Allir vel-
komnir, ekkert þátttökugjald.
Útivist verður með jeppaferð í Kerling-
arfjöll 28.–30. janúar nk. Farið verður á
föstudagskvöldi og ekið í Hrauneyjar.
Daginn eftir er ekið um Sóleyj-
arhöfðavað, inn í Setur og áfram í Kerl-
ingarfjöll þar sem gist er. Þetta er ferð
fyrir mikið breytta jeppa. Fararstjóri er
Jón Viðar Guðmundsson.
Laugardalurinn | Stafganga kl. 17.30
gengið er frá Laugardalslauginni. Nánari
upplýsingar á www.stafganga.is og gsm:
6168595 og 6943571, Guðný Aradóttir
og Jóna Hildur Bjarnadóttir.
MYNDLISTARSKÓLINN Mynd-mál fagnar
í ár 20 ára afmæli sínu, en þegar kennsla
hófst í skólanum fyrir 20 árum nefndist
hann Myndlistarskóli Rúnu Gísladóttur.
Skólinn hefur frá upphafi haft aðsetur á
Seltjarnarnesi og verið rekinn sleitulaust
frá janúar 1985. Skólinn kennir jafnt byrj-
endum sem lengra komnum allt frá grund-
vallaratriðum litablöndun, efniskynningu,
formfræði og myndbyggingu upp í það að
styðja við einstaklingsframtak og sjálf-
stæði í myndsköpun.
Rúna Gísladóttir, stofnandi skólans, á
að baki nám í Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og er einnig menntaður kennari.
Innritun á vorönn skólans stendur nú yfir.
Skólinn Mynd-mál 20 ára
SKÁLHOLTSSKÓLI er nú vettvangur sýningar á verkum Jóns
Axels Björnssonar listamanns, en titill sýningarinnar er „Dagar
og nætur II“. Verkin eru öll unnin árið 2003 með kolum, lakki og
olíu á striga en þau bera engan titil.
Í aðfararorðum Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings að sýn-
ingunni segir m.a.: „Verkin sem sýnd eru í Skálholti eiga sér hlið-
stæður í fyrri sýningum Jóns; svarthvítar myndir af íslensku
grjóti sem ofan á eru lagðir einlitir fletir í sterkum litum. Í verkum
sínum opinberar Jón efasemdir sínar og vanmátt og eru þau
gjarnan þrungin margáttaðri formrænni og listheimspekilegri
merkingu.“
Jón Axel er fæddur í Reykjavík 2. febrúar 1956 og lauk námi
frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1979. Hann hefur,
samhliða því að leggja stund á list sína, kennt við Myndlistar- og
handíðaskóla Íslands, síðar Listaháskóla, Íslands og við Mynd-
listarskóla Reykjavíkur. Ennfremur hefur hann unnið leikmynd
fyrir leikhús, haldið um tuttugu einkasýningar og tekið þátt í á
annan tug samsýninga víðsvegar um heiminn.
Staðarlistamenn í Skálholti sýna verk sín í um það bil þrjá
mánuði í senn en árið 2000 er riðið á vaðið með þetta sýn-
ingahald. Sýning Jóns Axels var opnuð 4. janúar og stendur út
marsmánuð.
Jón Axel Björnsson sýnir Daga og nætur í Skálholti