Morgunblaðið - 20.01.2005, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKI kvikmyndaleikstjórinn Martin
Scorsese hefur unnið að kvikmynd um tónlistar-
manninn Bob Dylan í tvö ár. Þó hefur hann ekki
rætt við Dylan sjálfan um myndina.
„Ég hef forðast að þurfa að eiga beint við
manninn,“ sagði Scorsese í vikunni. „Fyrst vil ég
búa til söguna, finna söguna, og síðan útfæra
hana eins og ég tel réttast.“
Í myndinni ætlar Scorsese að einblína á fyrstu
árin á tónlistarferli Dylans, árin 1961 til 1966. Til
stendur að sýna myndina sem hluta af myndaröð
PBS-ríkissjónvarpsstöðvarinnar „American
Masters“. Scorsese hefur töluverða reynslu af
gerð tónlistarmynda og gerði m.a. The Last
Waltz, sem fjallar um lokatónleika fyrrverandi
hljómsveitar Dylans, kanadísku sveitarinnar The
Band. Scorsese hefur aðgang að tíu klukkustund-
um af nýjum viðtölum við Dylan, sem umboðs-
maður söngvarans tók, en Scorsese útilokar ekki
að hann muni sjálfur spyrja Dylan nokkurra vel
valinna spurninga.
„Ég er að reyna að búa til eins heiðarlega
mynd og mögulegt er án óþarfa takmarkana.
Það verður samt erfitt því ég er auðvitað á hans
bandi og því gæti myndin allt eins endað sem
stuðningsyfirlýsing.“
Scorsese
gerir mynd
um Dylan
Bob DylanMartin Scorsese
HINN dularfulli Lem-
ony Snicket hefur
grátbeðið bíógesti
allra landa um að sjá
ekki myndina sína A
Series of Unfortunate
Events. En íslenskir
bíógestir eru greini-
lega óhlýðnir í eðli
sínu því þeir létu öll
slík tilmæli sem vind
um eyru þjóta. Þessi
nýjasta mynd Jim
Carreys fékk mestu
aðsókn allra mynda
um síðustu helgi. Þá
sáu hana um 3.600
manns en nú þegar komið er
fram í miðja viku hafa nær 6
þúsund manns séð hana með
forsýningum, að sögn Christof
Wehmeiers hjá Sambíóunum.
„Þetta sannar að Jim Carr-
ey á sér marga aðdáendur hér
á landi. Það má síðan líka
benda á að bækurnar þrjár
sem myndin er byggð á í Lem-
ony Snickets bókaflokknum
hafa komið út í íslenskri þýð-
ingu og hafa lesendur því
fagnað þessari kvikmyndaút-
gáfu þessa bókaflokks. Sumir
tala um nýtt Harry Potter
æði.“
Mynd Marc Forsters, Find-
ing Neverland, með Johnny
Depp gekk ágætlega um
helgina en þá sáu rúmlega
1.200 manns hana. Nú ættu
áhorfendur því að
vera orðnir á þriðja
þúsundið með forsýn-
ingum.
„Slíkar sælkera-
verðlaunamyndir fara
oftast rólega af stað
en um leið og frábær-
ir dómar eru klárir
og búið er að tilkynna
tilnefningar til Ósk-
arsverðlauna tekur
landinn við sér,“ segir
Jón Gunnar Geirdal
hjá Skífunni, sem
greinilega er von-
góður á að myndin
fái allmargar tilnefningar
þegar þær verða kunngjörðar
25. janúar.
Um helgina síðustu hófst
líka frönsk kvikmyndahátíð
og segir Christof Wehmeier
að hún hafi farið vel af stað.
Opnunarmyndin, Langa trú-
lofunin, var með 600 manns í
aðsókn um um helgina, sem
Christof segir mjög gott, svip-
aða byrjun og hjá Amélie fyr-
ir þremur árum en sú mynd,
sem gerð var af sama kvik-
myndagerðarmanni, Jean
Pierre Jeunet, endaði í yfir
14.000 manns í aðsókn.
Um helgina fóru að sögn
Christofs um 2.500 gestir á
hátíðina og má því gera ráð
fyrir að sú tala hafi nærri því
tvöfaldast síðan þá.
Kvikmyndir | Jim Carrey í vinsælustu mynd landsins
Óhlýðnir bíógestir
! " # $"
#
%
&'(
% '
(
)
*
+
,
-
.
/
'0
A B+ ,,$" ,,0" " *+)C<$ (
+
, 7"
Ólafur greifi hefur undarlegt aðdráttarafl.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
kl. 5.30, 8 og 10.30.
TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ
BRJÓTA ALLAR REGLUR.
Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd
ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!
illingurin Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumy d ársins
sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„PIRATES OF THE CARIBBEAN“
KRINGLAN
Sýnd kl. 7.30 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6.15, 8.30 og 10.40.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
Sýnd kl. 10.15.
S.V. Mbl.
Kvikmyndir.com
„Hressir ræningjar“
Fréttablaðið
Sýnd kl. 5.30 ísl tal
Sýnd kl. 10.15.
TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF
HANN AÐ BRJÓTA ALLAR REGLUR.
I I
J .
OCEAN´S TWELVEYFIR 32.000 ÁHORFENDUR
Kvikmyndir.is
H.J. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ
Langa trúlofunin
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Ísl. texti.
Sýnd kl. 5.45 og 8.
Einstök ný kvikmynd frá leikstjóranum
Jean-Pierre Jeunet ("Amelie") með hinni fallegu
Audrey Tautou úr"Amelie". Stórbrotið
meistaraverk sem enginn má missa af.
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ
S.V. Mbl.
H.L. Mbl..L. bl.
DV
Rás 2ás 2
Kvikmyndir.comvik yndir.co
Einkadætur - Filles Uniques
sýnd kl. 6. enskur texti
Marie Jo og ástirnar tvær
Mari Jo et ses deux amours
sýnd kl. 8. enskur texti
Kórinn - Les Choristes
Stórkosleg mynd. vinsælasta mynd
ársins 2004 í Frakklandi og framlag
frakka til Óskarsverðlauna.
sýnd kl. 10. Íslenskur texti
H.L. Mbl.