Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÖRYGGI HERT Í ÍRAK Að minnsta kosti fimm bandarísk- ir hermenn biðu bana og tólf Írakar í tilræðum skæruliða sem eyðileggja vilja kosningarnar sem fara fram í Írak á morgun. Öryggi hefur verið hert verulega í landinu, landamær- um Íraks lokað, útgöngubann sett á og bílaumferð takmörkuð í því skyni að reyna að afstýra ofbeldisverkum á kjördag. Hjálpuðu gíslatökumönnum Skýrt hefur verið frá því að hátt- settir menn í rússneska hernum hafi veitt mönnunum sem í september sl. tóku hundruð manna í gíslingu í skóla í bænum Beslan. Gíslatökunni lauk með skotbardaga og spreng- ingum sem kostuðu 330 manns lífið, þar af var helmingur börn. Búið er að handtaka tvo samverkamannanna og þriggja til viðbótar er leitað. Kjarasamningur í höfn Nýr kjarasamningur stéttarfélaga við Alcan vegna starfsmanna við ál- verið í Straumsvík var undirritaður í fyrrakvöld. Samningurinn gildir til nóvemberloka 2008 og nær til um 80% af föstu starfsfólki Alcan. Mokveiði hjá Hákoni EA Góð síldveiði var út af Norðfirði nú í vikunni. Fékk Björgvin Birg- isson og áhöfn hans á Hákoni EA 148 ríflega 720 tonn af góðri síld um miðja vikuna. Mikill hagnaður bankanna Landsbanki Íslands skilaði 12,7 milljarða kr. hagnaði á árinu 2004 og Íslandsbanki 11,4 milljarða hagnaði á sama tímabili. Var hagnaður bank- anna mun meiri en spáð var á mark- aðnum. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #           $         %&' ( )***                        Í dag Sigmund 8 Messur 32/33 Viðskipti 13 Kirkjustarf 33 Erlent 16/17 Minningar 34/43 Landið 21 Skák 43 Höfuðborgin 22 Staksteinar 59 Árborg 22 Myndasögur 48 Akureyri 23 Dagbók 48/50 Listir 24 Listir 51/52 Ferðalög 25 Fólk 53/57 Daglegt líf 26/27 Bíó 54/57 Umræðan 28/29 Ljósvakamiðlar 58 Bréf 28 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * RÚMLEGA þrítugur maður var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hjálpa ekki ungri konu sem veiktist alvarlega og lést af völdum of stórra skammta af e- töflum og kókaíni, á dvalarstað mannsins við Lindargötu í Reykja- vík í ágúst 2003. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi framferði mannsins bera vott um skeyting- arleysi um líf konunnar, sem í ástandi sínu hefði verið honum að öllu leyti háð um líf sitt. Dánarorsök konunnar var ban- væn kókaín- og e-töflueitrun sem leiddi til krampakasts og loks til hjartastopps. Í krufningarskýrslu Þóru Steffensen réttarmeinafræð- ings segir að einstaklingar með margfalt hærri styrk af fíkniefn- unum í blóðinu hafi lifað slíkt af. Því væri hugsanlegt að konan hefði getað lifað eitranirnar af, hefði hún komist strax á sjúkrahús eftir að komið var að henni í krampakasti. Konan lést síðdegis mánudaginn 25. ágúst 2003. Fram kemur í dómnum að konan neytti fíkniefna á föstudagskvöld og hélt því áfram yfir helgina. Aðfaranótt mánudags- ins kom hún og vinkona hennar í samkvæmi hjá ákærða á Lindar- götunni þar sem voru á boðstólum bæði e-töflur og kókaín. Maðurinn sagðist ekki hafa veitt fíkniefna- neyslu gesta sérstaka athygli en hann hefði þó tekið eftir því að konan og vinkona hennar hefðu eitthvað verið að „pukrast“ inni á salerni. Taldi hann að þær væru að sprauta sig með fíkniefnum. Um hádegi á mánudag hefðu flestir gestirnir verið farnir og síðar um daginn hefði hann farið úr húsi til að ná í hass. Þegar hann kom til baka hefði konan verið í krampa- kasti og honum þá orðið ljóst að hún hafði sprautað sig með fíkni- efnum því sprauta og önnur áhöld voru á borði í stofunni. Við yfirheyrslu hjá lögreglu sagðist maðurinn hafa tekið undir handarkrika konunnar með hand- leggnum og þannig gengið með hana um gólf. Síðan hefði hann sett hana upp við horn sturtuklef- ans og látið renna á hana kalt vatn, en því ráði er gjarnan beitt á fólk sem tekið hefur of stóran skammt fíkniefna, og kvaðst hann hafa óttast að hún væri dáin eða við það að deyja. Hann hefði síðan beitt blásturaðferð og svo lagt hana upp í rúm, þar sem hún hefði skolfið og froða komið úr báðum munnvikum. Hann kvaðst hafa verið í sjokki og ekki athugað að hringja í Neyðarlínuna. Faldi fíkniefnin fyrst Erfitt var að tímasetja dánar- stund nákvæmlega þar sem konan var sett í kalda sturtu skömmu fyrir andlátið. Í niðurstöðu Hér- aðsdóms Reykjavíkur segir að kon- an hafi, miðað við framburð vitna, fyrst fengið krampakast eftir klukkan 16. Maðurinn hringdi hins vegar ekki í Neyðarlínuna fyrr en um 4½ klukkustund síðar. Þá hafði konan verið látin í a.m.k. þrjár klukkustundir. Maðurinn gaf m.a. þær skýring- ar á að hafa ekki leitað til Neyð- arlínunnar fyrr að hann hefði verið í sjokki, verið undir áhrifum fíkni- efna og áfengis, ekki viljað hringja vegna fyrri afskipta lögreglu af honum og óttast að honum yrði kennt um andlátið. Þegar honum varð ljóst að konan væri látin, hefði hann vitað að alltof seint væri að bregðast við. Fram kemur í dómnum að áður en hann hringdi á Neyðarlínuna fjarlægði hann fíkniefni úr íbúðinni og faldi þau. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að maðurinn hafi vitað að konan tók of stóran skammt af fíkniefn- um og viðbrögð hans í kjölfarið bæru þess skýr merki að hann taldi hana í lífshættu. Engu að síð- ur hefði hann ekki kallað á sjúkra- lið. Þetta væri brot á þeirri laga- skyldu að mönnum beri skylda til að koma fólki í lífsháska til hjálp- ar. Brot hans væri alvarlegt. Símon Sigvaldason kvað upp dóminn. Kolbrún Sævarsdóttir flutti málið f.h. ríkissaksóknara og Róbert Árni Hreiðarsson hdl. var til varnar. Dæmdur fyrir að hjálpa ekki konu sem tók of stóran skammt fíkniefna Að öllu leyti háð honum um líf sitt uðum úr síðustu snjósköflunum við skólann, sem bráðn- uðu hratt í hlýindunum. NEMENDUR grunnskólans á Eyrarbakka notuðu há- degishléið í gær til að fara í snjókast með boltum hnoð- Hnoðað úr síðustu snjósköflunum Morgunblaðið/Einar Falur HILDUR Dungal var skipuð í emb- ætti forstjóra Útlendingastofnunar af Birni Bjarnasyni dómsmálaráð- herra í gær. Hún tekur við af Georg Kr. Lárussyni, fráfarandi forstjóra sem tók við starfi forstjóra Land- helgisgæslunnar fyrir skömmu. Hildur Dungal er 33 ára lögfræð- ingur sem unnið hefur hjá Útlend- ingastofnun frá apríl 2003. Áður var hún deildarstjóri á þjónustu- og lög- fræðideild tollheimtusviðs hjá toll- stjóranum í Reykjavík. Áður en Hildur var skipuð í emb- ætti var hún settur forstjóri Útlend- ingastofnunar. Nýja starfið leggst vel í hana og segir hún spennandi að takast á við það. Segir hún verða haldið áfram á þeirri braut sem stofnuninni hefur verið mörkuð. Ákvarðanir oft neikvæðar „Megináherslan til að byrja með verður að auka upplýsingagjöf til al- mennings og þeirra sem leita til okk- ar,“ segir hún. „Þær ákvarðanir sem við tökum eru oft neikvæðar fyrir umsækjendur og það er kannski auðveldara fyrir þá að sætta sig við neikvæða niðurstöðu ef þeir vita hvaða forsendur liggja að baki.“ Hildur segir einnig í skoðun hvort unnt sé auka rafræna stjórnsýslu hjá stofnuninni og ennfremur verður vinna við breytingar á vegabréfum vegna lífkenna fyrirferðarmikil í starfsemi stofnunarinnar á þessu ári. Undir forstjóra heyra fram- kvæmdastjóri Útlendingastofnunar, stjórnsýslu- og leyfasvið, en forstjóri heyrir undir dómsmálaráðherra. Hyggst auka upp- lýsingagjöf Morgunblaðið/Þorkell Hildur Dungal SÝSLUMAÐURINN á Sauðár- króki hefur sett lögbann á stofnfjár- aukningu Sparisjóðs Skagafjarðar í samræmi við dómsorð Héraðsdóms Norðurlands vestra. Að sögn Ástráðs Haraldssonar, lögmanns hóps stofnfjáreigenda sem á um 5% hlut í sparisjóðnum, líta umbjóðendur hans svo á að at- kvæðavægi á fundi stofnfjáreigenda í nóvember á síðasta ári hafi verið ákveðið með ólögmætum hætti og því séu ákvarðanir fundarins ólög- mætar, þar á meðal ákvörðun um stofnfjáraukningu. Magnús Brandsson, stjórnarfor- maður Sparisjóðs Skagafjarðar, segir stjórnendur sparisjóðsins furðu slegna yfir niðurstöðu Hér- aðsdóms og hafa ákveðið að áfrýja niðurstöðunni til Hæstaréttar. Forsvarsmenn Kaupfélags Skag- firðinga (KS) ákváðu í nóvember að selja tæplega 35% stofnfjárhlut í eigu fyrirtækja KS í Sparisjóðnum, sem þá hét Sparisjóður Hólahrepps. Kaupendurnir voru stjórnendur KS, eiginkonur þeirra ásamt Sparisjóði Ólafsfjarðar og Sparisjóði Mýra- sýslu sem keyptu 5% hvor. Var þannig komið í veg fyrir að eign- arhlutur KS og tengdra aðila jafn- gilti aðeins 5% atkvæða á fundi stofnfjáreigenda, eins og lög um fjármálafyrirtæki segja til um. Voru gömlu stofnfjáreigendurnir mjög ósáttir við framgöngu stjórnenda í málinu. Á fundinum var samþykkt að breyta nafni Sparisjóðs Hólahrepps í Sparisjóð Skagafjarðar og auka stofnfé úr 22 milljónum í 88 millj- ónir. Jafnframt var kosin ný stjórn þar sem gömlu stofnfjáreigendurnir náðu einum manni inn í fimm manna stjórn. Telja lífsnauðsynlegt að auka stofnfé sjóðsins Að mati Magnúsar eru stofnfjár- eigendurnir með aðgerðum sínum að eyðileggja fyrir Sparisjóðnum. Auk þess sem aðgerðirnar hafi kostað sparisjóðinn stórfé, m.a. í lögfræðikostnað, sé beinlínis lífs- nauðsynlegt fyrir Sparisjóðinn að auka stofnfé sitt. Héraðsdómur úrskurðar í máli Sparisjóðs Skagafjarðar Lögbann sett á stofnfjáraukningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.