Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 49 DAGBÓK ALLT NÝJAR VÖRUR Í VERSLUNINNI www.hm.is TÍSKA ● GÆÐI ● BETRA VERÐ Nýr listi Pantið í síma: 5 88 44 22 Nú er lag í Glæsibæ! Munið þorrablót F.H.U.R. í kvöldkl. 20.00 Húsið opnað kl. 19.00 og dansleikur hefst kl. 22.30. Harmonikuhljómsveitir Grettis Björnssonar,Ingvars Hólmgeirssonar og Þórleifs Finnssonar auk Vindbelgjanna leika fyrir dansi til kl.2.00. Allir velkomnir. Borðapantanir fyrir matargesti í símum 845 2761 og 568 6422 Félag harmonikuunnenda í Reykjavík - Þjóðdansféag Reykjavíkur F.H.U.R Vináttu- og menningarfélag Mið-Austurlanda (VIMA) efnir til kynn-ingar- og fræðslufundar um félagið áKornhlöðuloftinu bak við Lækjarbrekku v. Bankastræti í dag kl. 14. Þar mun m.a. Mörður Árnason alþingismaður segja frá upplifun sinni, reynslu og lærdómi af ferð til Líbanons og Sýr- lands haustið 2003. Þá mun Ragnheiður Gyða Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður segja frá þrem- ur arabískum dívum, Úmm Kaltúm frá Egypta- landi, Fairúz frá Líbanon og Natössju Atlas. „En hún er eiginlega gangandi Gaza-svæði, palestínsk, egypsk, bresk og gyðingur, alin upp í innflytj- endaúthverfum Belgíu og Englands,“ segir Ragn- heiður. „Svo gefum við okkur alltaf góðan tíma til kaffidrykkju, skrafs og ráðagerða á þessum fund- um og auðvitað eru allir þeir sem áhuga hafa á Mið-Austurlöndum velkomnir, ekki bara fé- lagsmenn.“ Hvað heillar þig við þennan menningarheim? „Það er svo margt sem mér hefur þótt merkilegt að reka mig á. Mér þykir gaman að spekúlera í tískustraumunum í blæju- og slæðuburði kvenna á götum úti og í tískubúðunum, prútta um krydd og ilmolíu á mörkuðunum, reyna að þekkja Írani og Sáda úr í mannmergðinni á klæðaburðinum einum, hlusta á útvarp og horfa á sjónvarp þótt ég skilji fátt annað en landa- og mannanöfn, alls staðar eru þessir miðlar með sama sniði. Að koma úr vín- menningunni hér vestra og læra að njóta þess að drekka vatn með mat á fínustu veitingahúsum, sakna víns ekki hót. Virða fyrir sér mannlífið og hlusta á bænakallið frá testofunni tottandi vatns- pípu með eplabragði milli dísætra tesopanna. Að horfast í augu við fjórðu kynslóð landlausra, pal- estínskra flóttamanna í búðunum í Sattilla í Beirút og vitja minningarreitsins um fjöldamorðin þar og í Sabra fyrir rúmum tuttugu árum, þaðan fer eng- inn ósnertur. Virða fyrir sér skemmdirnar á Beir- útborg eftir 17 ára stríðið þar og ekki síður upp- bygginguna í nýja miðbænum. Að hlusta á klukkur elstu þjóðkirkju í heimi, þeirrar armensku, renna saman við bænakallið úr moskunum norður í neon- ljósadýrðinni í Aleppó í Sýrlandi. Standa frammi fyrir 7–10 þúsund ára mannkynssögunni í öðrum hverjum hól, svo ekki sé nú talað um Byblos, Dam- askus, Sidon, Palmyru og Karþagó. Og upplifa jafngamla og algjörlega sjálfsagða og ómeðvitaða gestrisni og velvild íbúanna í garð ferðamanns frá fjarlægum, vestrænum slóðum staðfastrar þjóðar. Þessi gestrisni og velvild kom mér nokkuð á óvart en ég varð agndofa þegar ég heimsótti Ommajad- moskuna í Damaskus. Ég hafði ekki áttað mig á að moskurnar, í Sýrlandi að minnsta kosti, hýsa ekki aðeins trúariðkun og fræðslu, moskur eru iðandi félagsheimili milli bæna, fullar af börnum, konum og körlum að spjalla, leika sér, snæða nesti eða hvílast.“ Menningarfræðsla | Kynningar- og fræðslufundur um Mið-Austurlönd í Kornhlöðunni í dag Menning, saga og gestrisni  Ragnheiður Gyða Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1977 og stundaði frönskunám við Univer- sité Paul Valery í Mont- pellier í Frakklandi 1978–1979. Þá nam hún hugvísindi og sam- skiptafræði við Univers- ité Paris X-Nanterre. Ragnheiður hóf störf hjá RÚV 1979 og var fréttaritari RÚV í Frakklandi 1985–1989, en sneri sér þá að dagskrárgerð hjá RÚV og starf- aði við hana til 2003. Þá var hún blaðamaður á DV þar til hún hóf störf á væntanlegri útvarps- stöð 365 ljósvakamiðla. Ragnheiður á eina dóttur. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Helga BjarndísNönnudóttir er fimmtug í dag, laugardaginn 29. janúar. Hún er í faðmi fjölskyldunnar á afmælisdaginn. Gullbrúðkaup | Í dag, laugardaginn 29. janúar, eiga 50 ára hjúskap- arafmæli hjónin Þórunn I. Árnadóttir og Sverrir Hallgrímsson, af því tilefni verða þau í faðmi fjöskyldunnar. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Gott leikrit ÉG FER oft í leikhús. Sl. helgi sá ég Héra Hérason í Borgarleikhús- inu og fannst það frábært, mjög fyndið og rosa flott uppsett. Oft er sagt að leikhúsin geri lítið fyrir unglinga. Þessvegna langar mig að mæla með þessari sýningu fyrir fólk á öllum aldri. Þetta er ein athyglisverðasta sýning sem ég hef séð lengi. Anna María, 15 ára. Gleymska? HÉR sit ég í byrjun nýs árs, tár- votur af ánægju yfir þeirri yf- irburðadómgreind og réttlæt- iskennd sem í því felst hjá forseta vorum að sæma Valgerði Sverr- isdóttur iðnaðarráðherra stórridd- arakrossi hinnar íslensku fálka- orðu fyrir að hafa fært okkur, fátækum og smáum, Kára- hnjúkavirkjun, Impregilo og Al- coa. En ég sakna þarna Kristjáns stórtenórs og framkvæmdastjóra olíufélaganna fyrir þeirra lofs- verðu sjálfsbjargarviðleitni, að ógleymdum Halldóri og Davíð, fyrir blessað Íraksstríðið. En í alvöru. Hvers vegna þarf Ólafur Ragnar endilega að hafa í þessum krossberahópi ein- staklinga sem fá mörg okkar, sem fórum á kjörstað í sumar og skil- uðum ekki auðu, til að iðrast þess? Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn v/Djúp. Er Bónus gjaldþrota? UM MIÐJAN janúar ætlaði ég að skipta bók í Bónus sem ég fékk í jólagjöf (ég fékk tvær eins). Því var hreytt í mig að þeir tækju ekki við bókum eftir 9. janúar, það væri á hreinu. Ég var með kassakvittun frá þeirri búð sem bókin var keypt í, þ.e. Bónus í Kringlunni. Það breytti engu, það var bara sagt þvert nei. Ég reyndi að útskýra fyrir þeim að ég væri utan af landi og hefði ekki komist í bæinn fyrr en 14. janúar sl., en sama svarið: „Nei, við tökum ekki bókina.“ Ég reyndi einnig að útskýra fyr- ir þeim af hverju ég hefði ekki komist í bæinn á þessum dögum, en við þurftum m.a. að rýma heim- ilið vegna snjóflóðahættu, síðan þurfti ég að leika undir við kistu- lagningu hinn 7. janúar og við jarðarför 8. janúar, en ég er org- anisti á Patreksfirði. Bónus- mönnum er sennilega nákvæmlega sama og þeir neituðu að taka við bókinni og þar við sat. Þetta er léleg þjónusta og mér finnst þetta lélegt fyrirtæki. Það má vel vera að Bónus verði gjaldþrota við að taka til baka eina bók, en þá væri mér líka nákvæm- lega sama. Ragnar Jónsson, Mýrum 17, Patreksfirði. Kettlingar fást gefins ÆÐISLEGA fallegir átta vikna kassavanir kettlingar fást gefins á gott heimili. Áhugasamir hafi sam- band í 869-1225 eða 823-0875. Morgunblaðið/Kristinn Anna María mælir með því að fólk fari að sjá Héra Hérason. Brúðkaup | Gefin voru saman 25. júlí 2004 í Hveragerði þau Bryndís Valdi- marsdóttir og Sævar Þór Helgason. Ljósmynd/Stúdíó Sissu MIKIÐ verður um dýrðir í IÐU í Lækjargötu í dag kl. 16, en þá mun ítalski kaffi- framleiðandinn Lavazza opna sýningu á ljós- myndum úr almanaki sínu fyrir árið 2005. Margir fremstu ljós- myndarar heims hafa frá árinu 1994 tjáð þetta uppá- halds kaffi Ítala á sinn list- ræna hátt, og má þar nefna Helmut Newton, David LaChapelle og Ellen Von Unwerth. Að sögn Eyglóar B. Ólafsdóttur, markaðsstjóra Lavazza, er almanaksins ávallt beðið með eftirvænt- ingu í ljósmyndaheiminum, enda sé þar um safngrip að ræða sem komi út í takmörkuðu upplagi ár hvert. „Hver og einn listamaður tjáir sína sýn á viðfangsefnið, espresso og vörumerki Lavazza sem hefur skip- að veigamikinn sess í kaffimenn- ingu Ítala allt frá árinu 1895,“ segir Eygló. Ljósmyndari ársins 2005 er hinn hollenski Erwin Olaf, og er þemað að þessu sinni tengt sirkus og því hreyfiafli sem espresso veitir svo mörgum í daglegu lífi. Í dag verður í IÐU boðið upp á ýmsa nýstárlega kaffidrykki frá Lavazza kaffiskólanum í Torino á Ítalíu. Á 2. hæð IÐU eru auk þess veitingastaðurinn Sowieso og sæl- keraverslunin Yndisauki, en þar verða ýmis tilboð og veitingar í boði sem tengjast ítalskri kaffimenningu og Lavazza, s.s. úrval af kaffibaun- um, espresso kaffiblöndum og espressovélum. Listræn ljósmyndun og Lavazza Opnun sýningarinnar er milli kl. 16 og 18 í dag, en hún stendur til 13. febrúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.