Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 20
Landið | Höfuðborgin | Árborg | Akureyri
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hér í Skagafirði virðist nú hlákunni og
blíðviðrinu lokið, að minnsta kosti í bili, og
nú á föstudegi kastar hann éljum í hávaða
suðvestan roki. En blotinn hefur nægt til
þess að mestallur snjór, sem lá á götum og
gangstéttum og í himinháum haugum á öll-
um opnum svæðum, hefur horfið og nú er
greiðfært um allar leiðir.
Hins vegar hefur ekki enn verið form-
lega gengið frá því innan sveitarstjórnar
hvernig lögð verður ný innkoma í bæinn, og
stendur styr um tvær leiðir þegar tengja
skal nýjan veg sem liggur yfir Þverárfjall,
frá Sauðárkróki og yfir á Skagastrand-
arveg, rétt norðan Blönduóss. Þessi nýja
leið er þegar orðin mjög fjölfarin og hefur
vegurinn verið byggður upp frá vestri og
lagður bundnu slitlagi, en nær Sauðárkróki
er enn eftir að lagfæra mikið svo að þessi
leið teljist vel viðunandi. Auk þess er síma-
sambandslaust á mestallri leiðinni, en það
er nú sá raunveruleiki sem búa verður við
víða þar sem fara þarf yfir fjallvegi.
Sú deila sem verið hefur um innaksturinn
í bæinn snýst um að byggja brú yfir Göngu-
skarðsána við ósa og leggja síðan veg upp
bakka norðan árinnar og að vegamótum að
Reykjastrandarvegi, eða hins vegar að fara
á brú yfir ána nokkru ofar og leggja veginn
upp með ánni að vegamótum. Nokkur
klofningur hefur verið um málið í sveit-
arstjórn en nú telja menn að sjái fyrir end-
ann á þeim meiningamun sem þar hefur
verið og að farið verði með veginn yfir ósinn
eins og upphaflega var gert ráð fyrir, enda
er það tillaga Vegagerðarinnar og sú leið
einhverjum milljónatugum ódýrari.
Eins og víða á landsbyggðinni eru íbú-
arnir ekki sáttir við þá ákvörðun sem tekin
hefur verið, að hætta niðurgreiðslu á raf-
magni til húshitunar og þykjast sjá í hendi
sér að verulega muni síga á ógæfuhlið þeg-
ar búsetuskilyrði eru skoðuð fyrir þá sem
búa á þeim svæðum sem kölluð hafa verið
köld, og hafa þurft að sæta kostum seljenda
raforkunnar. En að sjálfsögðu er þetta gert
í samræmi við þau boð sem koma sunnan úr
Evrópu, og sjálfsagt fyrir Íslendinga að
fara rækilega eftir öllum þeim reglum sem
þar eru í gildi, þrátt fyrir að víða þar syðra
virðist sem menn láti sér fátt um reglurnar
finnast og fari í engu eftir þeim.
Úr
bæjarlífinu
SAUÐÁRKRÓKUR
EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA
Nokkrir Vestfirð-ingar, sem búa áSuðurlandi, boða
til sólarkaffis að hætti
Vestfirðinga nú á sunnu-
dag 30. janúar kl. 15. í
kaffisal Lista- og menn-
ingarverstöðvarinnar á
Stokkseyri. Hlín Péturs-
dóttir, söngkona frá
Stokkseyri, og Jörg Sond-
ermann píanóleikari
flytja nokkur sólarlög kl.
16.
Alsiða er í byggðum
Vestfjarða að drekka sól-
arkaffi með pönnukökum
þegar sólin sést aftur eft-
ir skammdegið. Þessi sið-
ur hefur ekki verið á Suð-
urlandi enda sést sól þar
alla daga ársins. Með
þessu vilja nokkrir Vest-
firðingar á Suðurlandi
gefa sveitungum að vest-
an kost á að hittast í sól-
arkaffi og jafnframt
kynna þennan góða sið
fyrir Sunnlendingum og
öðrum hér um slóðir, seg-
ir í frétt um viðburðinn.
Sólarkaffi
Áheitasund grunnskólabarnanna í Grímsey erlöngu búið að festa sig í sessi meðal íbúa, þvísundið í ár var það tíunda í röðinni. Fjöldi manna
mætti í sundlaugina til að hvetja og klappa sínum mönn-
um lof í lófa. Samtals skiluðu börnin 5 kílómetrum, en
þau voru aðeins 10 sem syntu í þetta sinn. Eftir sundið
stormuðu eldri nemendur í eldhúsið í Múla og grilluðu
yfir 100 samlokur ofan í svanga eyjarbúa.
Ekki nóg með það, mikill tónlistaráhugi hefur gripið
um sig meðal nemenda og nú var stigið á svið og fjórir
gítarleikarar, sem Dónald skólastjóri hefur verið að æfa
gítarleik með í vetur, léku undir fjöldasöng. Allt var
þetta stórgaman og ferðasjóðurinn fitnaði hressilega.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Syntu 5 kílómetra
Pétur Þorsteinssonkom heim ogheyrði Köttinn lesa
Basil fursta buslubæn:
Ekkert veistu í þinn haus.
Aldrei þrífast megðu.
Sestu á þinn svarta daus.
Sittu kyrr og þegðu.
Basil fursti svaraði Kett-
inum að bragði með tví-
rætt glott á trýninu:
Umfram allt þó ætíð skalt
auðmjúk vera á fácil.
Víst ávallt þeim vana halt
að vera góð við Basil.
Hundur Sigurðar Ingólfs-
sonar sá vísurnar og ýlfr-
aði til hans:
Ég er um það aldeilis vel viss
og ætla það skapaði kelfliss
og kæti um nótt
ef kynntust þeir fljótt,
Kötturinn, Basil og Elvis.
Hreiðar Karlsson hjó eftir
því að Mörður Árnason
vildi flýta formannskjöri
Samfylkingarinnar:
Leiðin til valda er löngum erfið
og grýtt
og leiðtogastarfinu kjósa margir
að sinna.
Mörður vill helst að
formannskjöri sé flýtt
svo frambjóðendurnir
skandaliseri minna.
Basil fursti
pebl@mbl.is
Ólafsfjörður | „Þetta var mjög
gott í viku, ekki sást í dökkan díl
og opið upp á topp. Í hlákunni
undanfarna daga hefur snjórinn
sigið um einn og hálfan metra,“
sagði Óli Ingólfsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins í
fáum annan hvell í vetur en hve-
nær það verður veit ég ekki,“
sagði Óli og var hvergi banginn.
Skíðasvæðið í Tindaöxl hefur
verið opið í rúma 20 daga í vetur
en í fyrravetur var opið í sam-
tals 54 daga.
Tindaöxl í Ólafsfirði. Krakk-
arnir í Ólafsfirði létu það þó
ekki á sig fá og fjölmenntu í
fjallið í vikunni, bæði til að æfa
og leika sér á skíðum. „Veturinn
er ekki búinn, við erum vanir því
að það komi hlákukaflar. Við
Morgunblaðið/Kristján
Veturinn er ekki búinn
Skíða-
krakkar
Húsavík | Bæjarstjórn Húsavíkurbæjar
fjallaði á fundi í fyrradag um ráðningar í
þrjú ný stjórnunarstörf hjá bænum. Tillaga
meirihluta H-
listans hljóðaði
upp á að fela
bæjarstjóra að
ganga til samn-
inga við Gauk
Hjartarson í
starf fram-
kvæmdastjóra
Umhverfis- og
framkvæmda-
sviðs, Erlu Sig-
urðardóttur í
starf fram-
kvæmdastjóra
Fjölskyldu- og
þjónustusviðs og Huldu Ragnheiði Árna-
dóttur í starf framkvæmdastjóra Fjármála-
og stjórnsýslusviðs. Fram kom að ráðgjaf-
arfyrirtækið Hagvangur taldi þessi þrjú
hæfust í viðkomandi störf.
Samstaða var um ráðningu Gauks og
Erlu og samþykkt með 9 atkvæðum. Fjórir
fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði
gegn ráðningu Huldu Ragnheiðar. Fram
kemur á vefnum skarpur.is að málið var
rætt í rúma klukkustund og sögðu fulltrúar
Þ-listans með öllu óskiljanlegt að Hagvang-
ur og meirihlutinn teldu Huldu Ragnheiði
hæfari en Jón Helga Björnsson, hún væri
við nám í háskóla en hann hefði lokið MBA-
prófi frá erlendum háskóla í alþjóðaviðskipt-
um.
Meirihlutinn vísaði í faglega niðurstöðu
Hagvangs sem þau væru sammála, og bentu
á að fleiri þættir væru metnir en menntunin
ein. Minnihlutinn lagði fram bókun þar sem
sagði m.a.: „Við teljum að gengið sé fram hjá
þeim sem hefur mestu menntunina og
reynsluna og er að okkar mati augljóslega
hæfastur umsækjenda til að gegna þessari
mikilvægu stöðu. Við teljum einnig siðlaust
að í þessa stöðu verði ráðinn einstaklingur
sem vann sem verkefnisstjóri við endur-
skipulagningu á stjórn- og starfaskipulagi
Húsavíkurbæjar. Í þeirri vinnu tók viðkom-
andi trúnaðarviðtöl við starfsmenn og lagði
fram sínar hugmyndir um hvernig skyldi
unnið að framgangi málsins. Það skal tekið
fram að gagnrýni okkar beinist að þessari
ákvörðun meirihluta H-listans sem við telj-
um vera mistök, en ekki að þeim umsækj-
anda sem lagt er til að ráðinn sé og við ósk-
um að sjálfsögðu velfarnaðar í því
mikilvæga starfi sem framundan er,“ segir í
bókun Þ-listans.
Ráðið í þrjú
ný stjórn-
unarstörf