Morgunblaðið - 29.01.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 21
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Strandir | „Ég var svo sem ekki sátt-
ur þegar skólinn var lagður niður
síðastliðið haust en sætti mig við það
núna þar sem grundvöllurinn var
brostinn,“ segir Torfi Halldórsson,
bóndi á Broddadalsá II í Broddanes-
hreppi, um þá óhjákvæmilegu
ákvörðun að leggja niður skólahald í
Broddanesskóla.
Torfi segist mjög hlynntur svona
litlum skólum og Broddanesskóli
hafi haft sérstöðu að svo mörgu leyti.
„Þetta var vel rekinn og mjög góður
skóli sem hafði alltaf á að skipa af-
bragðs kennaraliði og starfsfólki og
ég held það hafi áhrif á ákvörðun
barnafólks um að flytja hingað í
hreppinn að hér er enginn skóli leng-
ur. Það voru forréttindi að geta haft
börnin nánast í einkaskóla þar sem
hver og einn nemandi fékk afbragðs
kennslu og athygli en þegar aðeins
mín börn þrjú og þau sem fylgdu
skólastjóranum voru eftir þá er að
taka því að breytinga sé þörf,“ segir
Torfi.
„Undir það síðasta var maður far-
inn að finnast maður vera ölmusu-
maður á sveitinni og allt sem snéri að
börnunum var skorið niður eins og til
dæmis dans og skólaferðalög og rök-
in voru þau að ekki væri hægt að
styrkja eina fjölskyldu en börnin
áttu sinn rétt þó þau væru fá.“
Börnin á Broddadalsá sækja nú
skóla á Hólmavík og eru að sögn
Torfa mjög sátt við það þar sem þau
hafa eignast félaga og hann segir
margt í boði utan skólatíma eins og
félagslíf, boltaíþróttir og afmæli sem
þau taki þátt í. Torfi tók við skóla-
akstri í hreppnum síðastliðið haust
og þarf yfirleitt að fara þrjár ferðir á
dag og stundum fleiri.
Löng dagleið á
vondum vegum
„Að mínu mati er þetta nokkuð
löng dagleið fyrir ung börn að aka til
og frá skóla um 80 km. Það eru til
ágætis reglur um það hvernig haga á
flutningum á sauðfé en engar reglur
um það hvernig flytja má börn.
Grunnskólinn á Hólmavík er fyrir-
myndarskóli og nú hefur verið tekið í
notkun bæði íþróttahús og sundlaug
á staðnum sem hefur mikil og góð
áhrif.“
Torfi telur vegina á Ströndum
vera með þeim verstu á landinu.
„Vegirnir hér í Strandasýslu eru
náttúrulega kapítuli út af fyrir sig og
við erum langt á eftir öðrum lands-
hlutum í vegamálum. Ef við ætlum
að fá fólk til að setjast hér að þá eru
vegirnir eitt af forgangsatriðum. Þó
ýmislegt hafi breyst til batnaðar í
vegamálum eins og til dæmis á þeirri
leið sem ég ek daglega með börnin í
skólann þá má gera miklu betur og
nauðsynlegt er að bæta veginn frá
Brú til Hólmavíkur. Hætt er við að ef
áhersla verður lögð á veg um Arn-
kötludal verði fjármagn til vegabóta
hér á þessu svæði skorið niður,“ seg-
ir Torfi.
„Þjónusta hefur þó batnað á öðr-
um sviðum eins og að nú fáum við
póst daglega og snjómokstur er sex
daga vikunnar ef þörf krefur. En það
er langt að sækja í verslun eftir að
Kaupfélag Bitrufjarðar hætti starf-
semi síðastliðið haust og nú þarf fólk
í Bitru að fara um 60 kílómetra hvora
leið í verslun en að sjálfsögðu er það
ein afleiðing af fólksfækkun hér í
sýslunni. Ég fer þó ekki ótilneyddur í
burtu héðan. Strandir eru með bestu
sauðfjárræktarsvæðum á landinu og
það eru mikil forréttindi að fá að ala
börnin sín upp í sveit, frjáls, í
tengslum við náttúruna og dýrin.“
Torfi segist þó gera sér grein fyrir
því að vel menntað fólk setjist ekki
að í sveitum. „Það fer hvorki í fisk-
vinnslu né sauðfjárrækt heldur í vel
launuð störf á Reykjavíkursvæðinu.
Ég held þó að kaupstaðabúar séu
ekkert ánægðari en við landsbyggð-
arfólk þrátt fyrir alla tilbreytinguna
og utanlandsferðirnar,“ segir Torfi.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Strandamenn Fjölskyldan á Broddadalsá II, Steinunn Guðbjörg (t.v.),
Torfi Halldórsson, Halldór Viðar, Unnur Þorgrímsdóttir og Hafþór.
Forréttindi að ala upp
börn á Ströndum
Siglufjörður | Samtökin 60+ hafa
verið stofnuð á Siglufirði en þau
eru fyrir Samfylkingarfélaga, 60
ára og eldri. Formaður var kjörinn
Sveinn Björnsson en aðrir að-
almenn í stjórn eru Sjöfn Stein-
grímsdóttir og Sveinn Þor-
steinsson. Varamenn í stjórn voru
kjörnar Guðný Friðfinnsdóttir og
Guðný Pálsdóttir sem jafnframt er
bæjarfulltrúi Siglufjarðarlistans og
forseti bæjarstjórnar. Kristján L.
Möller alþingismaður stýrði fundi
og stjórnarkjöri en formaður Sam-
fylkingarinnar, Össur Skarphéð-
insson, ávarpaði fundarmenn.
Að loknum stofnfundi Siglufjarð-
ardeildar 60+ hófst almennur
stjórnmálafundur þar sem Össur og
Kristján fluttu ávörp og svöruðu
fjölmörgum fyrirspurnum.
60+ á Sigló
„Í fjörlegri frásögn sinni tekst Auði
að draga einkenni þessa tvískinnungs
upp á yfirborðið í texta sem er allt í
senn; tragískur og fyndinn,
umburðarlyndur og dómharður, hlýr
og kaldranalegur ... afar áhrifarík.“
Fríða Björk Ingvarsdóttir, Mbl.
„Fólkið í kjallaranum er margslungin
skáldsaga sem greip mig svo fast og
snerti mig svo sterkt að ég hreinlega
táraðist á stundum.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„Höfundur kann sannarlega
að segja sögu.“
Soffía Bjarnadóttir, Rúv
edda.is
Til hamingju Auður!
Auður Jónsdóttir
„Makalaus bók, við höfum eignast
dúndurhöfund ... Frábærlega hugsuð
og yndislega stíluð.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Stöð 2
„Besta bók Auðar.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið
Tilboðsverð
2.690 kr.
2004
Fullt verð 4.490 kr.