Morgunblaðið - 29.01.2005, Síða 25
ALLT
Á ÚTSÖLU
50-70%
afsláttur
Erum að rýma fyrir
nýjum vörum og allt
á að seljast
Verðdæmi: Herra-, dömu-
og barnaskór 990 kr.
Kringlan 8-12 sími 568 6211
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 25
FERÐALÖG
Áfjórðu gráðu suðlægrarbreiddar, um eitt þúsundmílur fyrir austan Afríku,liggja 115 smáeyjar, sem
einu nafni kallast Seychelleseyjar, á
hafsvæði, sem er fjórum sinnum flat-
armál Íslands. Hjónin Hjörtur Grét-
arsson og Helga Jóhannesdóttir
ákváðu í haust að nýta vetrarfrí skól-
anna til ferðalaga. Þau sendu börnin
fjögur til afa og ömmu fyrir vestan og
flugu sjálf til Seychelleseyja. „Við
vildum komast í sól og þegar við fór-
um að skoða ferðamöguleika á þess-
um árstíma komu Seychelleseyjar
alls ekki illa út þrátt fyrir talsvert
langan ferðatíma,“ segir Hjörtur í
samtali við Ferðablaðið.
Þau flugu til og frá áfangastað með
millilendingu og þriggja tíma stoppi í
London á báðum leggjum eftir að
hafa fengið ferðaskrifstofur í Lund-
únum til að gera þeim tilboð í átta
daga ferðapakka frá Bretlandi.
Við komuna tók á móti þeim
dásamlegt veður, 25–30°C hiti og sól
alla daga nema einn ásamt stöku
skúrum enda eru eyjarnar skrýddar
skógi frá fjöru til fjallstoppa. Sjórinn
var sömuleiðis mun heitari en Íslend-
ingar eiga að venjast á sólar-
ströndum því hann fór í allt að 28°C
og var þá orðinn of heitur fyrir kór-
alinn.
Helga og Hjörtur héldu til á 30 ára
gömlu hóteli, Berjaya Beauvallon
Bay Hotel, sem jafnframt er stærsta
hótel eyjanna. Staðsetning þess
reyndist góð, steinsnar frá bestu
strönd Seychelleseyja, tiltölulega
stutt frá höfuðborginni og stutt frá
nokkrum öðrum hótelum og veit-
ingastöðum. Hjörtur segir að gisti-
möguleikar séu fjölmargir og sé
pantað með þokkalegum fyrirvara
megi fá hagstætt verð og mjög góða
gistingu.
Skoðunarferðirnar
Hjónin fóru saman í þrjár skoð-
unarferðir í ferðinni auk þess sem
bóndinn segist hafa öðlast ótrúlega
lífsreynslu í þremur ólíkum köf-
unarleiðöngrum innan um litla og
stóra fiska og annan sjávargróður.
„Daginn eftir komuna leigðum við
bílaleigubíl með bílstjóra og fórum
um eyjuna Mahé, sem við dvöldum á.
Ferðalag kringum eyjuna tekur
rúma tvo tíma. Bílstjórinn okkar ók
rólega, sagði frá því sem á vegi varð
og sýndi það markverðasta, svo sem
hótel, plöntur, ávaxtatré og góðar
strendur. Jafnframt fengum við góða
innsýn í lífið á eyjunum og lífsskil-
yrði. Um miðjan dag var borðaður
hádegismatur í fjallaveitingahúsi og
voru þar á borðum ýmsir Seychelles-
réttir, t.d. kreólafiskur og margskon-
ar salöt úr mangói, vatnaeplum og
brauðaldini.
Rétt fyrir austan höfuðborgina
Victoria er einn af þjóðgörðum eyja-
skeggja, St. Anne Marin National
Park. Hann samanstendur af fimm
eyjum og miklu kóralrifi. Snorklað
var í ferðinni sem var einstök upp-
lifun þar sem mikið er af gullfiskum
þarna og einnig rákumst við á skjald-
böku, en risaskjaldbökur eru vinsæl-
ar á eyjunum. Við sáum þær víða í
görðum og þá sem gæludýr. Land
var tekið á tveimur eyjum. Á þeirri
fyrri, Cerf, tók á móti okkur franskur
arkitekt, sem hafði erft stóran hluta
af eyjunni og lifði þar nú sjálfsþurft-
arbúskap. Hann fræddi okkur ferða-
mennina af miklum eldmóð um nota-
gildi ávaxta, sem þarna vaxa. Á hinni
eyjunni, Moyenne, tók svo á móti
okkur fyrrverandi breskur blaða-
maður, Brendon Grimshaw, sem
keypt hafði þessa 22 hektara eyju
fyrir fjörutíu árum fyrir tíu þúsund
pund. Síðan hefur eyjan verið hans
heimili og hefur hann ásamt félaga
sínum, Seychelleseyingnum Rene,
lifað þarna í anda Robinson Krúsó og
breytt eyjunni í paradís. Þeir hafa
ræktað á eyjunni um 15 þúsund tré
auk þess sem þarna búa um tvö þús-
und fuglar og 120 risaskjaldbökur.
Brendon hefur mikið yndi af gestum
og tók hann vel á móti ferðamönnum.
Á gafli húss hans mátti m.a. sjá Rot-
ary-merkið og við Rótarýfélagarnir
ræddum um Rótarýstarfið á Seyc-
helleseyjum drykklanga stund og
leysti hann mig út að lokum með Rót-
arý-mætingakorti.
Í þriðju skoðunarferðinni var
stefnan sett á eyjarnar Praslin og La
Digue. Ferðin var mjög ánægjuleg,
en við mælum með að fólk ætli sér
meira en daginn í slíka yfirreið svo að
tíminn fari ekki bara í bið eftir rútum
og bátum, líkt og okkur fannst við
upplifa. Á Praslin, sem er með þjóð-
garð á heimsminjaskrá UNESCO og
er fræg fyrir regnskóg, vex stærsta
villta kókoshneta í heimi, Coco-de-
mer. La Digue er jafnframt afar fal-
leg eyja, sem skartar fallegustu
ströndum í heimi.“
Leðurblaka í aðalrétt
Skemmtanalífið einskorðast nær ein-
vörðungu við hótelin og svokölluð
kreóla-matargerð er í hávegum höfð
á eyjunum. „Maturinn er vel krydd-
aður, þó ekki um of, og talsvert er
notað af lauk í salöt. Fiskurinn er
sérlega ljúffengur og á veit-
ingastöðum var yfirleitt hægt að
panta allan venjulegan vestrænan
mat. Einu sinni pantaði ég mér þó
leðurblöku í aðalrétt, sem reyndist
spennandi upplifun þótt kjötið væri
ósköp lítið á beinakássunni, sem að
mér var rétt. Uppáhaldsveitinga-
staðurinn okkar var aftur á móti Le
Perle Noir eða Svarta perlan enda
kom, þegar betur var að gáð, í ljós að
við vorum ekki fyrstu Íslendingarnir
sem þarna höfðu komið því á vegg
glitti í gamlan íslenskan hundraðkall
innan um seðla víðs vegar að úr
heiminum.“
Blómlegur markaður er á eyjunum
með gjaldeyri, sem mikill skortur er
á, að sögn Hjartar. „Gjaldeyrisskort-
urinn á sér ýmsar birtingarmyndir,
m.a. þær að vöruúrval er mjög tak-
markað og búðarhillur víða hálf-
tómar. Eyjaskeggjar líða þrátt fyrir
það ekki skort, heldur virðast þeir al-
mennt vel haldnir og eru einstaklega
elskulegir. Velferðarkerfið virðist
einnig sjá um sína því allir fá ríflegan
lífeyri og á landfyllingu við höf-
uðborgina mátti sjá nýlega byggt
leiguhúsnæði fyrir heimamenn og
mun húsaleigan hafa verið háð
tekjum íbúanna.
Á átta dögum náðum við að skoða
fimm eyjar af 110 og þó að við höfum
það yfirleitt fyrir reglu að fara ekki
oftar en einu sinni á hvern stað liggur
það nokkuð ljóst fyrir að aftur þarf
að blása til Seychelleseyjaferðar.“
SEYCHELLESEYJAR
Þar sem
risaskjald-
bökur eru
gæludýr
Hjónin Helga Jóhann-
esdóttir og Hjörtur
Grétarsson þráðu sól og
sumar að vetri og
eftir að hafa vafrað um
Netið í leit að kjörlendi
urðu Seychelleseyjar
fyrir valinu. Jóhanna
Ingvarsdóttir hlustaði á
ferðasöguna.
Ferðaskrifstofa í London gerði til-
boð í pakkann:
www.justseychelles.com
Hótelið á Seychelleseyjum:
www.seychelles.net/berjaya
Besti upplýsingavefurinn um eyj-
arnar.
www.seychelles.com
Flugfélag.
www.airseychelles.com
Seychelleseyjar eru hundrað og tíu talsins og ferðalangarnir náðu að skoða fimm þeirra í ferðinni. Hér eru innfæddir að veiða í kvöldsólinni.
Hjónin Hjörtur Grétarsson og Helga Jóhannesdóttir.
join@mbl.is
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar