Morgunblaðið - 29.01.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 27
DAGLEGT LÍF
Á KLÆÐSKERAVERKSTÆÐINU
Organza og snúðum við Laugaveg,
situr Berglind Magnúsdóttir kjóla-
og klæðskerameistari dagana
langa og sérsaumar flíkur á fólk.
Berglind er eigandi stofunnar og
hefur sérsaumað margan árshátíð-
arkjólinn í gegnum tíðina. En hvers
vegna láta konur sérsauma á sig
fína kjóla? „Ýmsar ástæður geta
verið fyrir því. Sumar konur eru
kannski með mjög ákveðnar hug-
myndir um hvernig kjól þær vilja
en finna engan slíkan í búðum. Aðr-
ar fá hvergi á sig kjól sem passar
þeim vel, því við erum ekki öll eins í
laginu og enn öðrum finnst gaman
að vera í módelkjól sem ekkert ann-
að eintak er til af.“ Berglind segir
að samkvæmt sinni reynslu í kjóla-
saum þá séu íslenskar konur frekar
íhaldssamar, þær komi sjaldnast
með einhverjar geggjaðar hug-
myndir og efnisvalið sé frekar sí-
gilt. „Langflestar vilja hafa kjólana
einfalda og svarta, en auðvitað
koma öðru hvoru hugrakkar konur
sem vilja eitthvað alveg sérstakt,“
segir Berglind sem getur nánast
uppfyllt hvaða séróskir sem er þeg-
ar kemur að kjólasaum.
Korselett og silki
Sérsaumuð flík er mjög vönduð
og í henni liggur mikil vinna. „Við
teiknum okkar snið sjálfar og flíkin
er að öllu leyti sérsniðin eftir mál-
um og óskum á hvern einstakling
og stundum þarf að bródera í hönd-
unum og annað slíkt.“ En stundum
er kjóllinn sem viðkomandi var með
mynd af í höfðinu kannski ekki eins
og óskað var þegar hann er kominn
á kroppinn. Einmitt þess vegna
saumar Berglind fyrst prufu af
kjólnum í léreft sem viðskiptavin-
urinn mátar. „ Þá er hægt að sjá
hvort gera þurfi einhverjar róttæk-
ar breytingar og engu dýru efni
hefur þá verið kastað á glæ, en við
ráðleggjum fólki eindregið að velja
sér góð og vönduð efni þegar það
lætur klæðskerasauma á sig föt.“
Berglind segir kjóla með vísun í
korselett vera mjög vinsæla núna
og kjólarnir eiga að falla vel yfir
mjaðmirnar og víkka aðeins út að
neðan. Efni sem falla vel og eru létt
eru vinsæl í dag.
En hvað kostar að láta klæð-
skerasauma á sig galakjól? „Vinnu-
kostnaður fyrir utan efni getur ver-
ið frá 40.000 kr. og uppúr.
Efniskostnaður er oft í kringum
20.000 kr. getur þó verið minni og
líka meiri.“ Þær sem hafa áhuga á
að láta Berglindi sérsauma á sig
árshátíðarkjólinn ættu ekki að bíða
neitt með það því það tekur um
þrjár vikur að sérsauma kjól.
Hugrakkar konur
í sérstökum kjólum
Morgunblaðið/Árni Torfason
Berglind einbeitt við að sníða.
Þennan kjól saumaði Berglind á
konu fyrir síðustu jól. Hann er úr
taisilki með flauelsofnu siffoni á
brjóststykki sem er perlusaumað.
Flauelismynstur undir brjóstum
handsaumaði Berglind.
Svava, systir Berglindar, í tvískipt-
um kjól sem hún fékk hana til að
sauma á sig. Pils með slóða úr atl-
assilki en toppur úr taisilki og org-
anza. Fjaðrablóm eru handsaumuð
og blómastilkar perlusaumaðir.
TIL MÖGULEGRAR
FRAMTÍÐAR
Í ÍTÖLSKUM SAMTÍMA ARKITEKTÚR
FÚTÚRISMA
FRÁ
KlinK&BanK er samstarfsverkefni Landsbanka Íslands og Gallerí Kling&Bang
STÓRIR STRÁKAR
2XL - 4XL
Kringlunni - sími 581 2300
50-70%
afsláttur
Skyrtur - peysur - yfirhafnir
Sýkingar eru einn algengasti heilsu-
farsvandi barna og flestir foreldrar
kannast við að vera með barn sem er
með kvef- eða magapest. Flestar
sýkingar eru af völdum tveggja að-
alflokka sýkla – baktería eða veira.
Veirur valda langflestum hóstapest-
um, hálsbólgu og öllum kvefpestum.
Bakteríusýkingar er hægt að lækna
með sýkalyfjum en veirusýkingar í
öndunarvegi ekki. Þær batna hins
vegar oftast af sjálfu sér þegar sjúk-
dómurinn hefur runnið sitt skeið. Al-
gengasta ástæða sýklalyfjaávísana
hjá börnum eru miðeyrnabólgur en
þær eru algengar. Sífellt fleiri stofn-
ar baktería eru að verða ónæmir fyr-
ir sýklalyfjum. Ónæmar bakteríur er
oft ekki hægt að drepa með hefð-
bundnum sýkalyfjum. Flestar þeirra
er unnt að meðhöndla með kröftug-
um lyfjum en fátítt er að ekki sé unnt
að meðhöndla með neinum þekktum
sýklalyfjum. Sýnt hefur verið fram á
tengsl sýklalyfjaónæmis og end-
urtekinnar notkunar sýklalyfja og
geta þessar ónæmu bakteríur breiðst
til annarra í fjölskyldu, milli barna á
leikskólum og um samfélagið. Þetta
er óheillaþróun og getur verið ógn
við heilbrigði þjóða.
Hvenær er sýkalyfja þörf
og hvenær ekki?
Eftir að læknir hefur skoðað og/eða
rannsakað barnið metur hann hvort
þörf sé á gjöf sýklalyfja. Foreldrar
eru hvattir til að spyrja lækninn
spurninga um veikindi barnsins og
hversu mikil þörf sé á sýklalyfjagjöf.
Hér eru nokkur dæmi um sýkingar
og meðferð:
Eyrnabólga – Til eru mörg stig
eyrnabólgu og sum þarfnast sýkla-
meðferðar en önnur ekki. Við væg
einkennni getur verið skynsamlegt
að bíða með sýklalyf enda getur sjúk-
dómurinn horfið sjálfkrafa á nokkr-
um dögum.
Kinnholubólga – Kinnholubólga
lagast oft af sjálfu sér og því oft ekki
þörf á sýklalyfjameðferð. Einstöku
sinnum getur þó þurft að gefa sýkla-
lyf, einkum ef sjúkdómurinn hefur
staðið lengi eða er samfara miklum
veikindum.
Kvef – Kvef er alltaf af völdum
veira og getur stundum varað í tvær
vikur eða lengur. Sýklalyf eru gagns-
laus við kvefi en læknir eða hjúkr-
unarfræðingur getur bent á ýmsar
meðferðir til að slá á einkennin þar til
sjúkdómurinn hefur runnið sitt skeið.
Hálsbólga – Flest tilvik hálsbólgu
eru af völdum veira. Ein tegund
baktería, streptókokkar af gerð A,
getur valdið hálsbólgu og hana þarf
oft að meðhöndla með sýkalyfjum.
Til að greina bakteríuhálsbólgu frá
veiruhálsbólgu þarf að taka sýni frá
hálsinum.
Hósti og bráð berkjubólga
(bronkítis) – Einkenni um bráða
berkjubólgu hjá börnum benda oft til
astma og er þá ekki ástæða til sýka-
lyfjameðferðar. Annars er bráð
berkjubólga nánast alltaf af völdum
veira og því sjaldnast ástæða til
sýklalyfjameðferðar.
Veirusýkingar geta einstöku sinnum
leitt til bakteríusýkinga. Hins vegar
er ljóst að meðferð veirusýkinga með
sýklalyfjum til að koma í veg fyrir
bakteríusýkingu hefur takmarkað
gildi og getur leitt til sýkinga með
ónæmum bakteríum. Látið lækninn
vita ef sjúkdómur versnar eða varir
lengi þannig að unnt sé að hefja rétta
meðferð ef þörf krefur.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið
Á að gefa börnum sýklalyf?
Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur,
Þórólfur Guðnason barnalæknir.
Fréttir í tölvupósti