Morgunblaðið - 29.01.2005, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.00 í umsjón
Margrétar Svavarsdóttur, gítarleikari Pét-
ur Þór Benediktsson, organisti Bjartur
Logi Guðnason. Guðsþjónusta kl. 14.00,
dr. Einar Sigurbjörnsson prédikar og sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson þjónar fyrir alt-
ari. Félagar úr Kór Áskirkju syngja, org-
anisti Bjartur Logi Guðnason.Kaffi eftir
guðsþjónustu í boði sóknarnefndar í Efri
safnaðarsal.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa klukkan
11.00. Gott tækifæri fyrir alla fjölskyld-
una að eiga innihaldsríka stund með öðr-
um fjölskyldum. Léttir söngvar, bibl-
íusögur, bænir, umræður og leikir við
hæfi barnanna. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Sr.
Gunnar Rúnar Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Karl
V. Matthíasson predikar. Dómkórinn syng-
ur. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og
unglinga úr kirkjustarfinu. Guðsþjónusta
kl. 11. Biblíudagurinn. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Samskot til Biblíufélagsins. Sr.
Guðný Hallgrímsdóttir.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjart-
an Ólafsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Ensk messa kl. 14 í umsjá
sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari
Guðrún Finnbjarnardóttir. Organisti Hörð-
ur Áskelsson. Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl.
13.00. Umsjón Ólafur J. Borgþórsson.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
LANDAKOT: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Biblíudagurinn, tekið við samskotum til
Biblíufélagsins. Séra Kristján Valur Ing-
ólfsson messar. Graduale Nobili syngur.
Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Fjöl-
breytt barnastarf er í kirkjunni á sama
tíma. Hressing eftir stundina með börn-
um sínum. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Litamessa kl. 11. Í
dag eiga börnin kirkjuna með okkur á sín-
um forsendum. Umsjón hafa sunnudaga-
skólakennararnir Hildur Eir Bolladóttir,
Heimir Haraldsson og Þorvaldur Þorvalds-
son. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið,
kór Laugarneskirkju syngur og Sigurbjörn
Þorkelsson meðhjálpari og fram-
kvæmdastjóri þjónar. Messukaffi að
messu lokinni.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl.
11.00. Hvaða gleraugu notar þú til að
lesa Biblíuna? Kór Neskirkju leiðir safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson
prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr.
Irmu Söfn Óskarsdóttur. Börnin byrja í
messunni, en fara síðan í safnaðarheim-
ilið. Kaffihúsið verður opið.
SELTJARNARNESKIRKJA: Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður er Ólafur Eg-
ilsson. Gunnar Kvaran leikur á selló.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
sálmasöng undir stjórn Pavel Manasek,
organista. Sunnudagaskólinn hefst á
sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Prest-
ur er Sigurður Grétar Helgason.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð, Gauta-
borg: Guðþjónsuta í V-Frölundakirkju kl.
14 íslenski kórinn í Gautaborg syngur
undir stjórn Kristinn Jóhannessonar
við orgelið Tuula Jóhannesson, barna-
stund og altarisganga. Kirkjukaffi og að-
alstfnaðarfundur að messu lokinni sr.
Ágúst Einarsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra eru hvött til að mæta. Tónlistina
leiða þau Carl Möller og Anna Sigríður
Helgadóttir ásamt Fríkirkjukórnum. Frí-
kirkjuprestur predikar og þjónar fyrir alt-
ari.
ÁRBÆJARKIRKJA: Biblíudagurinn. Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Krizstina Kalló
Sklenár. Kirkjukórinn leiðir almennan
safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn verður
á sínum stað í safnaðarheimilinu. Kaffi,
ávaxtasafi og kex á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Börnum sem verður 5 ára á
þessu ári boðið sérstaklega og þeim af-
hent bókin Kata og Óli fara í kirkju. Kaffi
og djús í Safnaðarheimili eftir stundina.
Tómasarmessa kl. 20.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
B hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Léttur
málsverður í safnaðarsal eftir messu (sjá
nánar www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Messa kl. 11.
Biblíudagurinn. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Fella- og Hólakirkju leiðir sönginn,
organisti er Lenka Mátéová. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í safnaðarheimilinu í
umsjón Sigríðar R. Tryggvadóttur.
GRAFARHOLTSSÓKN: Messa kl. 11 í
þjónustusalnum Þórðarsveig 3. Prestur
sr. Sigríður Guðmarsdóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 í Grafarvogskirkju. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt séra Bjarna Þór Bjarnasyni. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður
Bragason. Fermingarbörnum í Folda-,
Hamra- og Húsaskóla og foreldrum þeirra
er sérstaklega boðið til messu, í mess-
unni er fermingarbörnunum boðið að
ganga til altaris í fylgd með foreldrum sín-
um. Að lokinni messunni er fundur, þar
sem fjallað er um fermingardaginn og at-
riði er lúta að fermingunni. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju. Prestur
séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón hafa
Hjörtur og Rúna. Undirleikari er Stefán
Birgisson. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
Borgarholtsskóla. Prestur séra Elínborg
Gísladóttir. Umsjón hafa Gummi og
Dagný. Undirleikari er Guðlaugur Vikt-
orsson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta á Bibl-
íudaginn kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson
þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag og Opið hús á fimmtudag kl. 12
(sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11, sjó-
mannamessa. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson
predikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.
Organisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir.
Súpa og samvera í Borgum eftir messu.
Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30 í umsjón
Önnu Kristínar, Péturs Þórs og Sigríðar
Stefánsdóttur. Bæna- og kyrrðarstund
þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11. Sunnudagaskóli fer
fram í skólastofum meðan á guðsþjón-
ustu stendur. Félagar úr Kór Lindakirkju
leiða safnaðarsöng undir stjórn Hannesar
Baldurssonar organista. Sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Jesús er besti vinur barnanna! Söng-
ur, saga, brúður, líf! Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kirkju-
kór Seljakirkju syngur. Organisti Jón
Bjarnason. Altarisganga. Guðsþjónusta
kl. 16 í Skógarbæ. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Kirkjukór Seljakirkju syngur. Org-
anisti Jón Bjarnason.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11.00. Fræðsla fyrir börn
og fullorðna. Ágúst Valgarð Ólafsson
kennir. Samkoma kl. 20.00 með mikilli
lofgjörð, vitnisburðum og fyrirbænum. Ing-
unn Björnsdóttir predikar.
Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“
sýndur á Ómega kl. 13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla miðvikudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Samkoma kl. 20. Umsjón Harold Rein-
holdtsen. Mánudagur: Heimilasamband
kl. 15. Valgerður Gísladóttir talar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagrahvarfi 2a:
Samkoma kl. 14.00. Gestaprédikari er
Pétur Erlendsson. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir 1–5 ára og 6–12
ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Þriðjudaginn 2. feb.
er brauðsbrotning og bænastund kl.
20.30. Föstudaginn 4. feb. er unglinga-
starf kl. 20.00.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í
húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 kl.
17 Láttu heyra í þér, ræða: Kjartan Jóns-
son. Frásögn af samtökunum Youth with
a Mission
Vitnisburður: Gestir frá YWAM. Mikil lof-
gjörð. Lofgjörðarhópur KFUM og KFUK
leiðir lofgjörðina. Barnastarf í aldurs-
skiptum hópum meðan á samkomunni
stendur. Heitur matur á fjölskylduvænu-
verði eftir samkomuna.
FÍLADELFÍA:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Vörður Leví Traustason.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyr-
irbænir í lok samkomu. Barnakirkja á
meðan samkomunni stendur. Miðvikud.
2. feb. kl 18 er fjölskyldusamvera - „súpa
og brauð“. Bænastund alla laugardaga
kl. 20. Bænastundir alla virka morgna kl.
6.00. filadelfia@gospel.is www.gospel.is
Ath. Hægt er að horfa á beina útsendingu
á www.gospel.is eða hlusta á útvarp
Lindina fm 102.9
Ath. Samkoman sunnudeginum áður er
sýnd á Ómega kl. 20.
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, föstu- og vitnisburð-
arguðþjónusta
kl. 9 árdegis á ensku, og kl. 12 á ís-
lensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30.
Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00.
Mánudaginn 31. og föstudaginn 4. febr-
úar er einnig messa kl. 8.00 (á
latínu). Tilbeiðslustund er haldin í Krists-
kirkju á hverju fimmtudagskvöldi að
messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til
19.15. Miðvikudaginn 2. febrúar, Kynd-
ilmessa: 40 dögum eftir fæðingu Jesú
komu María og Jósef í musterið í Jerúsal-
em og færðu Drottni fórnir samkvæmt
lögmálinu. Kertavígsla þennan dag er
tákn um trú vora á Jesúm Krist, ljós
heimsins. Hátíðarmessa með helgigöngu
verður haldin kl. 18.00 sem „ljósa-
messa“: Slökkkt er á öllum rafmagns-
ljósum og kirkjugestir eru með logandi
kerti í hendi alla messuna. Að henni lok-
inni er veitt Blasíusarblessun til verndar
gegn hálsmeinum og öðrum sjúkdómum.
Messudagur hl. Blasíusar biskups og
píslarvotts er 3. febrúar. Föstudaginn 4.
febrúar: Föstudagur Jesú hjarta. Að kvöld-
messu lokinni er tilbeiðslustund til kl.
19.15. Beðið er sérstaklega um köllun til
prestdóms og klausturlífs.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30
Virka daga: Messa kl. 18.30
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund á mánudögum frá kl. 19.00–20.00
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00
Miðvikudaga kl. 20.00
Hafnarfjörður, Jósefskirkja:Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa
kl. 18.30
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund á hverjum degi kl. 17.15
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00
Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund á hverjum föstudegi kl. 17.00 og
messa kl. 18.00
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar
Kristjánsson, sóknarprestur.
REYNIVALLAKIRKJA: Messa kl. 14.
Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 10
kóræfing hjá Litlum lærisveinum. Kl. 11
Sunnudagaskóli í Landakirkju. Litlir læri-
sveinar koma í heimsókn og syngja með
okkur og fyrir okkur. Við heyrum frásög-
una um Sakkeus tollheimtumann. Tóti
trúður kemur hugsanlega til okkar. Við
biðjum saman í Jesú nafni. Barnafræð-
arar og prestar kirkjunnar halda utan um
stundina. Fjölmennum með börnin til
kirkju. Kl. 14 Guðsþjónusta í Landakirkju.
Fermingarbörn ætla að lesa fyrri og síðari
ritningarlestur. Kór Landakirkju syngur
undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar.
Prestur sr. Kristján Björnsson. Kl. 15.10
Guðsþjónusta á Hraunbúðum. Kl. 20.30
Æskulýðsfundur í Landakirkju. Hulda
Líney og sr. Þorvaldur.
MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00
Biblíudagurinn. Ræðumaður: Sigrún V.
Ásgeirsdóttir, stjórnarmaður í Hinu ís-
lenska Biblíufélagi. Tekið á móti fram-
lögum til Biblíufélagsins.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti: Jón-
as Þórir.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl.
13.00. Umsjón: Hreiðar Örn Stefánsson
og Jónas Þórir. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Biblíudag-
urinn. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Þórhallur Heimisson. Ræðuefni: Heimild-
Guðspjall dagsins:
Ferns konar sáðjörð.
Biblíudagurinn.
(Lúk. 8.)
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hallgrímskirkja.
GETUR verið réttlætanlegt að
styðja bandamenn í stríði?
Þarf stundum að
gera fleira en gott
þykir?
Það er umhugs-
unarefni hvernig
ákvarðanir eru teknar
í sambandi við það að
heyja stríð. Slíkar
ákvarðanir eru í flest-
um tilvikum ekki
teknar fyrr en í fulla
hnefana. Hryðju-
verkaárásinni á
Bandaríkin 11. sept.
2001 verður ekki líkt
við hefðbundna
ákvörðun um að lýsa
yfir stríði, þótt
grimmdarverkið
minni óneitanlega á
árásina á Pearl
Harbour.
Skömmu eftir árás-
ina ávarpaði Dortohee
Sölle, sem lést 27.
apríl 2003, landa sína
í Háskólanum í Ham-
borg. Hún sagði við
það tækifæri að árás-
in hefði hæft hjarta
vestrænnar menning-
ar. Þannig upplifði
margt fólk, þar á
meðal hún, þetta kæfandi dráp,
sem við urðum vitni að í beinni út-
sendingu, þar sem óbreyttir borg-
arar voru grafnir lifandi. Sumir
vina hennar, þar á meðal Jürgen
Moltmann, líktu morðingjunum við
fjöldamorðingja nazista.
Skömmu fyrir þennan hræðilega
atburð náði ég tali af dr. Sigurbirni
Einarssyni, biskupi, og spurði hann
hvað hafi valdið því að hann gerði
sér grein fyrir því sem var að ger-
ast í síðari heimsstyrjöldinni, svo
snemma sem raun bar vitni. Hann
sagði mér að hann hefði þá verið
við nám í Svíþjóð og fylgst mjög vel
með. Siðan bætti hann við að öfga-
öflin innan múhameðstrúarinnar
væru nú í heilögu stríði gegn vest-
rænni menningu og þau öfl virtu
hvorki eigin líf né annarra. Hryðju-
verkaárásin í Madrid er annað
dæmi sem færir mönnum heim
sanninn um það.
Dr. Chrisopher Morse, prófessor
í siðfræði Dietrichs Bonhoeffers við
guðfræðideild Columbiaháskólans í
New York, sagði í fyrirlestri sem
hann hélt í Neskirkju 5. des. sl. að
sumir líti svo á að ástandið í Írak sé
svar við því sem gerðist 11. sept.
2001 og menn hafa þar í landi hald-
ið því fram að stjórnin eigi að vera
sterkust erlendis en veikust heima.
Menn eru minnugir þess að 11.
sept. 2001 var einnig ráðist á
stjórnsýslubyggingar Bandaríkj-
anna, Pentagon og Hvíta húsið var
í sigtinu. Þegar ráðist er á stjórn-
sýslubyggingar viðkomandi ríkis
hefur verið gengið út frá því í
stjórnmálafræðunum að að baki
slíkri árás sé þjóðríki, jafnvel þótt
erfitt geti reynst að sýna fram á
það.
Umrædd hryðjuverk hafa um-
turnað öllum viðmiðunum um rétt-
mæti þess að fara stríð (jus ad bell-
um) og einnig hvaða aðferðum er
beitt í stríði (jus in bello), því þau
hafa beinst gegn
óbreyttum, saklausum
borgurum.
Hverjar eru réttlæt-
anlegar viðmiðanir
þess að fara í stríð eða
styðja stríð (ius ad
bellum)?
Eftirtalin atriði hafa
verið nefnd í þeim efn-
um:
1. Réttmæt yfirvöld
þurfa að lýsa yfir stríð-
inu, rétt kjörin stjórn-
völd, þeir sem fara
með völdin.
2. Málstaðurinn þarf
að vera réttlætanlegur,
hugsanlega að grípa
inn í að fyrra bragði til
að koma í veg fyrir
árásir (preemptive
war) eða koma árás-
araðila frá völdum.
Þess ber að geta að í
Flóastríðinu 1991 réðst
Írak inn í Kuwait og
Írakar brutu þar með
alþjóðalög. Það var
réttlætanlegt að leið-
rétta það óréttlæti og
var sú ákvörðun sam-
þykkt af Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna.
3. Það sem stefnt er að þarf að
vera siðferðilega ásættanlegt. Um
slíkt getur verið ágreiningur.
4. Það er ekki gripið til vopna
fyrr en í fulla hnefana, en um þá
ákvörðun getur einnig staðið
ágreiningur. Menn minnast þess nú
að árum saman höfðu Sameinuðu
þjóðirnar reynt að fá Íraka til að
fara að alþjóðlegum samþykktum.
5. Líkur þurfa að vera á því að
ásættanlegt markmiðið náist. Yfir
80% Íraka voru á því að rétt væri
að koma Saddam Hussein frá völd-
um, en hann hafði m.a. tekið millj-
ón Kúrda af lífi m.a. með efnavopn-
um.
6. Það góða sem kemur út úr
þess háttar aðgerðum verður að
vega þyngra en skaðinn sem fylgir
því að heyja stríð. Lýðræðislegt
uppbyggingarferli er meginmark-
miðið.
7. Aðferðir, sem er beitt í stríð-
inu, verða að vera réttlætanlegar,
en við vitum að styrjaldarátökum
fylgja oft hörmulegar afleiðingar.
Þess vegna er nauðsynlegt að vinna
að friði með ráðum og dáð.
Við skulum ekki blekkja okkur
með þeim röksemdum að þeir sem
þurfa að taka erfiðar ákvaðanir séu
ekki friðelskandi menn, sem vilji
vinna að friði með réttlæti. Sam-
kvæmt þessum röksemdum getur
verið réttlætanlegt að heyja stríð,
þegar allar friðsamlegar leiðir hafa
reynst árangurslausar. Bandamenn
eiga þá erfitt með að skjóta sér
undan og segja: Við skulum standa
með ykkur, þegar á okkur verður
ráðist!
Getur verið rétt-
lætanlegt að
styðja banda-
menn í stríði?
Ólafur Oddur Jónsson
fjallar um Íraksstríðið
Ólafur Oddur Jónsson
’Yfir 80% Írakavoru á því að
rétt væri að
koma Saddam
Hussein frá
völdum, en hann
hafði m.a. tekið
milljón Kúrda af
lífi m.a. með
efnavopnum.‘
Höfundur er sóknarprestur.
UMRÆÐAN
Fréttir í tölvupósti