Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 52
52 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
• Föstudag 28/1 kl 20 UPPSELT
• Föstudag 4/2 kl 20 LAUS SÆTI
• Laugardag 5/2 kl 20 LAUS SÆTI
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
HREINLEGA BRILLJANT! EB DV
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – NOKKUR SÆTI LAUS
3. sýning 18.feb. kl 20.00 – NOKKUR SÆTI LAUS
4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00
6. sýning 27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00
8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Hrein og
klár snilld“
HÖB RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Sun. 30.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT
Fim. 03.2 kl 20 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 04.2 kl 20 UPPSELT
Lau. 05.2 kl 20 UPPSELT
Sun.. 06.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 11.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 12.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 18.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 19.2 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Tilboð til Visa-vildarkorthafa:
Fljúgðu á Óliver á punktum til 6. feb
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20, - UPPSELT
Su 30/1 kl 20,
Lau 5/2 kl 20,
Su 6/2 kl 20,
Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT,
Fö 11/2 kl 20, - UPPSELT,
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20, - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 30/1 kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14,
Su 20/2 kl 14 - AUKASÝNING,
Su 27/2 kl 14 - AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Í kvöld kl 20, Su 6/2, Fö 11/2 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
HÉRI HÉRASON
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU 2. FEBRÚAR
Kennarar: Viðar Hreinsson, 2/2 Upphaf vesturferða
Gísli Sigurðsson, 9/2 Sagnalist Vestur Íslendinga
Helga Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og aðstæður frumbyggjanna
Böðvar Guðmundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Íslendingum
Skráning hjá Mími Símenntun á www.mimi.is eða í síma 5801800
Þátttakendum verður boðið á sýningu á Híbýlum vindanna
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Su 30/1 kl 20, - UPPSELT
Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/2 kl 20- UPPSELT ,
Su 13/2 kl 20, Fi 17/2 kl 20, Su 20/2 kl 20
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
gildir ekki á barnasýningar!
BOUGEZ PAS BOUGER
Frönsk - japönsk nýsirkussýning
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Su 30/1 kl 14 - AUKASÝNING
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20
VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR
eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin
Aðalæfing fi 3/2 kl 20 - kr 1.000
Frumsýning fö 4/2 kl 20 - UPPSELT
Hátíðarsýning su 6/2 kl 20, Mi 9/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20 - Lokasýning
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
LEIKHÚSMÁL: FASTRÁÐNINGAR
LISTAMANNA
Í samstarfi við Leiklistarsamband Íslands
Frummælendur: Arnar Jónsson, Karen María
Jónsdóttir, Viðar Eggertsson
Í dag kl 16:00 - Öllum opið
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveitin
Í Gegnum Tíðina
í kvöld
Í KVÖLD. 29. JAN. KL. 20
SÍÐASTA SÝNING
MIÐAPANTANIR Í SÍMA 562 9700
SÝNING á ítölskum arkitektúr
verður opnuð í Klink og Bank við
Brautarholt í dag kl. 17 af
menntamálaráðherra, Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur. Sýningin
ber yfirskriftina „Frá fútúrisma til
mögulegrar framtíðar í ítölskum
nútíma arkitektúr“.
Ljósmyndir, teikningar
og líkön
Á sýningunni eru tekin fyrir 65
verk eftir ítalska arkitekta af ólík-
um kynslóðum frá ýmsum hér-
uðum Ítalíu. Byggingarnar sem
gefur að líta á sýningunni eru
víðsvegar um heim og eru þær
sýndar með ljósmyndum, uppruna-
legum teikningum og líkönum.
Sögulegur hluti sýningarinnar er
tileinkaður meisturum 20. ald-
arinnar, sem mótuðu ítalskan arki-
tektúr fram á áttunda áratuginn.
Á sýningunni er einnig sýnd stutt-
mynd þar sem tvinnað er saman
ítölsku landslagi og ítölskum arki-
tektúr. Ítalski arkitektinn Livio
Sacchi er einn af skipuleggjendum
sýningarinnar. „Við höfum módel
af nokkrum frábærum ítölskum
byggingum hérna,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið og tekur
sem dæmi höfuðstöðvar Natuzzi í
Norður-Karólínu í Bandaríkjunum,
ítalska sendiráðið í Washington og
tvíburaturnana eftir Massimiliano
Fuksas í Vínarborg. „Það kom
okkur á óvart hve mikið er til af
góðri byggingarlist eftir ítalska
arkitekta víða um heim þegar við
fórum að skipuleggja sýninguna.
Okkur hættir víst til að vanmeta
okkur sjálf.“
Klink og Bank hentar vel
Sýningin er skipulögð af utan-
ríkis- og menningamálaráðu-
neytum Ítalíu og samtökum
ítalskra arkitekta og hefur ferðast
víða um heim, en tildrög hennar
voru ítalskt-japanskt samvinnu-
verkefni árið 2001, þar sem sýn-
ingin var sett upp í Kobe í Japan.
Síðan þá hefur hún ferðast um
heiminn og verið sett upp í Bruss-
el, Caracas og Osló, og nú er röðin
komin að Reykjavík. Sacchi lýsir
ánægju sinni með sýninguna hér-
lendis. „Á hinum stöðunum höfum
við sett sýninguna upp í mjög
hefðbundnum og formlegum sýn-
ingarrýmum. Hér í Klink og Bank
er hins vegar allt mjög frjálslegt
og óheflað, og mér líkar það vel.
Íslenska fólkið sem við höfum
unnið með hefur verið alveg frá-
bært,“ segir hann.
Arkitektafélag Íslands, í sam-
starfi við aðstandendur sýning-
arinnar, stendur fyrir fyrirlestri
með Livio Sacchi um sýninguna og
pallborðsumræðum um samspil
ítalsks og íslensks arkitektúrs.
Fundurinn verður haldinn í Nor-
ræna húsinu í dag kl. 14 og er öll-
um opinn og aðgangur ókeypis.
Það er sendiráð Ítalíu á Íslandi í
samstarfi við ítalsk-íslenska versl-
unarráðið og Klink og Bank sem
setur upp sýninguna hér á landi.
Sérstakir stuðningsaðilar eru Ice-
landair, IGuzzini, Lavazza, Lands-
bankinn, PTT Fiat-umboðið, 101
hótel, Hornsteinar arkitektar og
Teiknistofa Ingimundar Sveins-
sonar.
Sýningin er opin í Klink og
Bank frá fimmtudegi til sunnu-
dags milli kl. 14 og 18 og stendur
hún til sunnudagsins 6. mars. Sýn-
ingargestum er boðið upp á La-
vazza-kaffi til að skerpa einbeit-
inguna meðan gengið er um
sýninguna.
Byggingarlist | Ítalskur arkitektúr sýndur í Klink og Bank
Mikið til af góðri
ítalskri byggingarlist
Morgunblaðið/Jim Smart
Ítalski arkitektinn Livio Sacchi.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn