Morgunblaðið - 29.01.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 53
ALLT SEM fiÚ fiARFT!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
7
2
5
www.s1.is
JUDE
kl. 21:00
- Girlfriends
- Ladies man
- The Drew Carey Show
23:00 The Long Firm
fiættir ger›ir eftir samnefndri skáldsögu rithöfundarins Jake Arnott sem fjalla um svindlarann Harry Stark
og sögusvi›i› er London á sjöunda áratug sí›ustu aldar. Me› hlutverk Starks fer Mark Strong og me›al
annarra leikara má nefna Sir Derek Jacobi.
14:20 Cadillac Man
LÉTTIR LAUGARDAGAR – á SKJÁEINUM
15:55 Dennis the Menace Strikes Again
Gamanmynd me› Robin Williams og Tim Robbins í a›alhlutverkum.
Joe er bílasali sem ver›ur a› selja 12 bíla á tveimur dögum annars
missir hann vinnuna.
17:10 Junior
Fjölskyldumynd um ærslabelginn óborganlega Denna dæma-
lausa. Me› a›alhlutverk fara Justin Cooper og Don Rickles.
Gamanmynd me› Arnold Schwarzenegger, Danny De Vito og
Emmu Thompson í a›alhlutverkum. Myndin fjallar um karlmann
sem vinnur a› frjósemisrannsóknum og ákve›ur a› ganga me›
fóstur í vísindaskyni.
23:45 Law & Order - lokafláttur
Lokafláttur í bili í flessari vinsælu spennufláttarö›. Vi› minnum á Law & Order: SVU á sunnudagskvöldum.
19:00 Dragnet
fiáttarö› úr smi›ju Dick Wolf, höfundar Law & Order fláttanna. Dau›i gests í villtu Hollywood-partíi lei›ir
lögreglumenn á sló› upptökustjóra me› byssuáráttu.
21:00 Jude
Óskarsver›launaleikkonan Kate Winslet fer me› a›alhlutverki› í rómantísku stórmyndinni Jude sem
bygg› er á sögu Thomasar Hardy. Hin óhamingjusamlega giftu Sue og Jude ver›a ástfangin og hefja
sambú›. Gjaldi› fyrir ást fleirra er hátt og flau lifa vi› fátækt og flurfa a› flola útskúfun samfélagsins. Í
senn rómantísk og átakanleg saga um forbo›na ást.
20:00 Grínklukkutíminn
– stanslaust grín í klukkutíma
00:30 Law & Order: Criminal Intent
Goren og Eames rannsaka mor› á dóttur rússnesks mafíósa sem svipti hulunni af störfum rússnesku
mafíunnar. Í upphafi vir›ist augljóst hver beri ábyrg› á mor›inu en ekki er allt sem s‡nist.
01:15 Tvöfaldur Jay Leno
Endurs‡ndir flættir frá li›inni viku. Me›al gesta eru Samuel L. Jackson og Matt Le Blanc.
LANDINN hefur um langa hríð verið hugfang-
inn af dávöldum og sótt mjög í skemmtanir
þeirra erlendu dávalda sem sótt hafa Ísland
heim. Ekkert lát er á þessum áhuga og sann-
aðist það síðla síðasta árs þegar bandaríski dá-
valdurinn Sailesh troðfyllti hvern þann sal sem
hann kom fram í og náði að skemmta mun færri
en áhuga höfðu. Sannaðist þá líka hið forn-
kveðna að tímarnir breytast og mennirnir með
því dávaldur þessi reyndist hafa allt aðrar
áherslur en þeir gömlu jálkar sem skemmtu
landsmönnum hér á árum áður í Háskólabíói
létu fólk detta á rassinn, klóra sér í hausnum og
hoppa á öðrum fæti. Sailesh - gríndávaldurinn
eins og hann kýs að kalla sig - gengur nefnilega
lengra en þeir gömlu gerðu og hættir sér og
„fórnarlömbum“ sínum út á ystu nöf, býður upp
á „óritskoðaða“ skemmtun eins og orðað er í
kynningu – „en þó aldrei svo að ég stefni nein-
um í einhverja hættu“, undirstrikar hann í
símaspjalli við blaðamann.
Óvissan er ómissandi
Vegna fjölda áskorana er Sailesh vænt-
anlegur aftur til landsins og mun halda tvær
sýningar á Broadway, 17. og 18. apríl.
„Ég hlakka mjög mikið til að koma aftur
enda hef ég sjaldan eða aldrei skemmt mér eins
vel og á Íslandi. Það gekk allt upp; gestrisnin
engu lík, landið fallegt, fólkið líka, auk þess sem
sýningarnar gengu nákvæmlega eins og ég vildi
hafa þær.“ Sailesh segir mjög skemmtilegt að
dáleiða Íslendinga, og á margan hátt öðruvísi
en að dáleiða fólk frá öðrum löndum.
„Það var sakleysið sem heillaði mig. Svo
margir sem aldrei höfðu séð nokkurn dáleiddan
áður og fannst það heillandi fyrir vikið.“
Hann segir marga hafa verið tortryggna en
heldur þó að það hafi aðallega verið vegna þess
að þeir vissu ekki við hverju þeir ættu að búast.
Þessi óvissa sé ómetanleg fyrir dávald.
Ný alíslensk uppátæki
Sailesh hefur verið á stöðugu flakki síðan
hann var á Íslandi og troðið upp á skemmt-
unum um öll Bandaríkin. Þá segist hann hafa
búið til fullt af nýju efni, nýjum uppátækjum
sem hann ætli sér að reyna á íslensku gest-
unum í apríl.
Hann segir skemmtanir sínar taka stöðugum
breytingum. Margt gangi reyndar alltaf, megi
hreinlega ekki hverfa úr prógramminu því það
sé svo skothelt, en öðru skiptir hann reglulega
út. Það megi því búast við kunnuglegum uppá-
tækjum – eins og því að láta hina dáleiddu fá
fullnægingu – í bland við ný og fersk. Sailesh
segist hafa velt mjög fyrir sér hvað hann geti
sérstaklega látið íslensk fórnarlömb sín gera,
hann hafi skoðað okkur grannt og gaumgæfi-
lega í síðustu ferð, með það í huga að koma aft-
ur með séríslensk tromp uppi í erminni.
Aðspurður hver munurinn sé á viðbrögðum
bandarískra og íslenskra gesta þá segir hann
þá bandarísku gefnari fyrir dónabrandarana og
-uppátækin á meðan honum virðist Íslendingar
frekar vilja fá eitthvað gáfulegra fyrir sinn
snúð, eitthvað sem er ögrandi fyrir heilabúið.
„Íslendingar eru spenntir fyrir því að sjá
hversu langt ég get gengið, hversu góður ég er.
Þið eruð kröfuharðir áhorfendur.“
Hann segist alltaf vita hvort fólk láti dáleið-
ast eða ekki, illmögulegt sé að plata hann til að
halda það að viðkomandi sé á hans valdi. „Ég sé
það alltaf út hversu djúpt mér tekst að dáleiða
fólk. Suma er einfaldlega ekki hægt að dáleiða.“
Símadáleiðsla?
Í hugum þeirra sem ekki kunna dáleiðslu
virðist um mjög sérstakan hæfileika að ræða,
dularkrafta sem hægt væri að nota bæði til
góðs og ills. Aðspurður segist Sailesh ekki líta
svo á að hann sé að vannýta sína krafta með því
að nota þá í afþreyingarskyni fyrst og fremst.
Hann fái ekkert samviskubit af því enda sé
hlátur eitthvert besta meðalið. „Ég geri líka
töluvert af því að hjálpa fólki. Bæti líðan þess
með því að aðstoða það við að hætta að reykja
eða drekka, megra sig eða eitthvað annað sem
hefur með andlegan styrk að gera.“ Sailesh
segist ætla að reyna að koma því við að hjálpa
eins mörgum og hann getur á Íslandi.
Góður dávaldur er sífellt að reyna að bæta
sig, finna út hvar mörk náðargáfu hans liggja.
„Ég er alltaf að ögra sjálfum mér, ganga
lengra. Ég hef séð og tekist að láta fólk gera
hreint ótrúlega hluti, en geri auðvitað engar
slíkar tilraunir á skemmtunum mínum.“
„Dáleiðsla er eitthvað sem allir geta lært,“
staðfestir Sailesh. „Það kallar auðvitað á mikla
þolinmæði og aga en allir geta lært að dáleiða.
En það geta samt ekki allir orðið jafn-góðir.
Sumum er það frekar gefið en öðrum.“ Sjálfur
segist Sailesh líta á dáleiðsluna sem vissa náð-
argáfu, köllun sem honum hafi áskotnast.
Þótt Sailesh sé kunnastur fyrir ögrandi sýn-
ingar þá segist hann einnig bjóða upp á fjöl-
skylduvæna skemmtun. „Ég hef meira að segja
haldið dáleiðslustund með prestum og nunn-
um.“
Sailesh segir allt mögulegt þegar góður dá-
valdur er annars vegar.
„Já, ég gæti hæglega dáleitt þig í gegnum
símann ef ég kærði mig um,“ sagði Sailesh er
blaðamaður spurði hann, sannast sagna svolítið
hikandi röddu …og þakkaði við það fyrir gott
spjall og kvaddi.
Eða var það kannski um seinan?
Skemmtun | Gríndávaldurinn Sailesh er væntanlegur
Á valdi Íslands: Sailesh féll fyrir landi og þjóð er hann kom hingað síðla síðasta árs.
Miðasala á skemmtanir Sailesh á Broadway
er hafin í verslunum Skífunnar. Nánari upp-
lýsingar um Sailesh og skemmtun hans er að
finna á vefsíðunni:
www.event.is
Gríndávaldurinn Sailesh er væntanlegur aftur til landsins
en hann dáleiddi landann upp úr skónum í sinni fyrstu
heimsókn á síðasta ári. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi
við Sailesh og stóð hreint ekki á sama þegar hann sagðist
geta dáleitt menn í gegnum síma.
Hláturinn besta meðalið