Morgunblaðið - 03.02.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.02.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2005 15 ERLENT Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Sími 588 4477 Í einkasölu stórglæsilegt einbýlishús á glæsilegum útsýnisstað í Kópavogi. Húsið er um 250 fm og stendur á einstökum útsýnisstað. Húsið stendur á jaðarlóð og er frítt svæði fyrir ofan það. Húsið er allt í toppstandi með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Ný glæsileg sólstofa. Arinn. Lóðin er sérlega glæsileg. Vandaður sólpallur. Glæsi- legt stuðlaberg setur mikinn svip á garðinn. Góð bílastæði. Stutt er í skóla og alla þjónustu. Hérna er tækifæri til að eignast glæsilega eign, vel staðsetta með glæsilegu útsýni og öll þjónusta við hendina. Allar nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason hjá Valhöll fasteignasölu Glæsieignir í ákveðinni sölu Laxakvísl - fallegt endaraðhús Í einkasölu vandað 226 fm endaraðhús, ásamt 40 fm bílskúr. Húsið er mjög skemmtilega skipulagt. Vandaðar innréttingar. Arinn í stofu. 4-5 svefnherbergi. Fallegur garður, góð timburverönd. Vönduð eign á eftirsóttum stað í lokuðum bontlanga. Verð 39,0 m. Básbryggja - eign fyrir vandláta Í einkasölu sérlega vandað raðhús, ásamt tvöföldum innbyggðum bílskúr, samtals 201 fm. Sérsmíðaðar og vandaðar innréttingar. Massíft parket á gólfum. Þetta er einstaklega vönduð eign sem mikið hefur verið lagt í. Staðsetningin er einstök hvað varðar nálægðina við sjóinn og útsýnið. Eign í sérflokki. Verð 39,8 m. Kambsvegur - Rvík - glæsilegt einbýli Glæsieign með einstöku útsýni Vorum að fá í einkasölu glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús, kjallari og hæð ásamt nýlegum tvöf. bílskúr alls 205 fm. Glæsil. nýl. eldhús, baðherb, gegnheilt parket. Fjögur svefnherb. Stór nýl. timburverönd m. heitum potti. Mögul. að útbúa aukaíb. í kjallara. Hellulagt bílaplan m. hita. Glæsileg eign á eftirsóttum stað. V. 39,7 m. ÞING Spánar hafnaði seint á þriðju- dagskvöld áætlun leiðtoga heima- stjórnar Baskalands um aukna sjálf- stjórn. Margir telja að samþykkt hennar myndi í raun fela í sér yfirlýs- ingu um stofnun sjálfstæðs ríkis Baska á Norður-Spáni. Nú er sýnt að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Baskalandi um áætlun þessa. Eftir rúmlega átta klukkustunda langa þingumræðu var gengið til at- kvæða um tillöguna, sem jafnan er nefnd „Ibarretxe-áætlunin“. 350 fulltrúar sitja í neðri deild spænska þingsins og greiddu 344 þeirra at- kvæði. Á móti voru 313 þingmenn, 29 studdu áætlunina en tveir sátu hjá. „Ibarretxe-áætlunin“ er kennd við Juan José Ibarretxe, forseta sjálfs- stjórnar Baska og leiðtoga Þjóðern- isflokks Baska (PNV), sem löngum hefur verið stærstur flokka Baska- lands. Flokkurinn er hlynntur sjálf- stæði Baskalands en hafnar ofbeldi sem lögmætu tæki í þeirri baráttu. Í „frjálsu sambandi“ við Spán Í liðnum mánuði lagði þing Baska- lands blessun sína yfir áætlun Ibarr- etxe, sem raunar er frá því í október- mánuði 2003. Hún felur m.a. í sér að Baskaland fái eigið dóms- og laga- kerfi og að þjóðin sendi eigin fulltrúa til starfa í stofnunum erlendis á borð við Evrópusambandið. Þá er og kveð- ið á um það í áætlun þessari að Baskaland skuli nefnast „Samfélag Baskalands“ og teljast „landsvæði“ í „frjálsu sambandi“ við Spán. Áætlunin hýsir fleiri atriði sem margir telja að leggja megi að jöfnu við sjálfstæðisyfirlýsingu en Baska- land nýtur nú mikillar sjálfstjórnar í samræmi við stjórnarskrá Spánar og „Guernica-lögin“ svonefndu frá 1978 sem kveða á um stöðu héraðsins inn- an spænska ríkisins. Nefna má að baskneska hefur sömu stöðu sem op- inbert mál í héraðinu og spænska og Baskar ráða yfir eigin lögreglu. Hins vegar kveður stjórnarskráin skýrlega á um fullveldi spænsku þjóðarinnar en ekki einstakra héraða Spánar. Þau eru 17 og njóta mismikillar sjálf- stjórnar. Telja einingu ríkisins ógnað Stærstu flokkar Spánar telja áætl- un Ibarretxe fallna til að rjúfa ein- ingu ríkisins. Þannig gangi hún þvert á stjórnarskrá Spánar sem upphefur mjög þá einingu. Þá óttast leiðtogar stærstu flokka Spánar að aukin sjálf- stjórn Baska myndi geta af sér sam- bærilegar kröfur t.a.m. í Katalóníu þar sem þjóðernissinnar njóta mikils fylgis (tveir flokkar þeirra á Spán- arþingi studdu áætlun Ibarretxe og annar þeirra, þjóðernisflokkur vinstri lýðveldissinna, ERC, styður minni- hlutastjórn sósíalista í Madríd). Ekki er heldur unnt að útiloka að spenna tæki að gera vart við sig víðar, nefna má Galisíu, Valensíu og jafnvel sjálfa Andalúsíu sem er stærst sjálfstjórn- arhéraða Spánar. Raunar hefur þjóð- ernishyggja aldrei rist jafn djúpt þar og í Katalóníu og Baskalandi en víst má heita að aukin sjálfstjórn Baska kæmi róti á huga margra þar syðra. Þingumræðan á þriðjudagskvöld einkenndist af umtalsverðri tilfinn- ingasemi. Ibarretxe hvatti þingmenn til að hundsa ekki „þetta sögulega tækifæri“ sem nú hefði gefist til að bæta samskipti Baska og miðstjórn- arvaldsins í Madríd. Segja má að spenna hafi jafnan einkennt það sam- band, ekki síst vegna baráttu ETA- hreyfingarinnar (ETA er skamm- stöfun fyrir „Euskadi ta Askatasuna“ sem þýðir „Baskneskt föðurland og frelsi“ á tungu Baska), sem drepið hefur meira en 800 manns á síðustu 40 árum í nafni þjóðfrelsisbarátt- unnar. Kvaðst Ibarretxe kominn til Madríd með „útrétta sáttahönd“, reiðubúinn „til samninga“. Hann ítrekaði þá skoðun sína að áætlunin væri „lögleg og lýðræðisleg“. Ibarraetxe kvað sögulega grein- ingu styða mál sitt. Sagan sýndi að Böskum vegnaði vel þegar þeir nytu sjálfstjórnar. Vísaði hann til þess að Baskar hefðu allt frá miðöldum notið sjálfstjórnar sem byggð hefði verið á lögum þeirra sjálfra. Þessi hefð hefði rofnað er Francisco Franco steypti stjórn lýðveldissinna og gerðist ein- valdur í landinu eftir borgarastríðið 1936–1939. Í meira en 30 ár leitaðist Franco við að brjóta á bak aftur menningu Baska og þjóðarvitund. Ib- arretxe kvað því aukna stjórn eigin mála réttmæta kröfu basknesku þjóðarinnar þar eð sagan sýndi að þeirri kröfu myndi fylgja aukin hag- sæld. Fullveldið eitt og ókljúfanlegt José Luis Rodríguez Zapatero, for- sætisráðherra minnihlutastjórnar Sósíalistaflokksins, minnti á að stjórnarskráin kvæði á um einingu ríkisins og fullveldi þjóðarinnar væri eitt og ókljúfanlegt. Þingheimur tók þessum ummælum fagnandi og upp- skar forsætisráðherrann langvinnt lófaklapp. Zapatero sagði hins vegar að hann teldi að efna mætti til við- ræðna um breytingar á lögum um heimastjórn Baskalands en slíkt yrði að fara fram á grundvelli stjórn- arskrár spænska ríkisins. Tryggja bæri lýðræðislegan stuðning við slík- ar breytingar, þær gætu Baskar ekki ákveðið einhliða. Mariano Rajoy, leiðtogi Þjóð- arflokksins („Partido Popular“, PP), tók í sama streng og lýsti yfir því að áætlun sú sem Ibarretxe hefði lagt fram jafngilti „yfirlýsingu um sjálf- stæði“. Hún fæli í sér að ríkið yrði „í sundur rifið“ og stjórnarskrá Spánar yrði „í jörðu grafin“. Áform heima- stjórnarinnar nytu stuðnings ETA enda hefði stjórnmálaarmur hreyf- ingarinnar, Batasuna, tryggt áætlun Ibarretxe brautargengi á þingi Baska. Nokkrir þingmenn Þjóð- arflokksins gerðu hróp að Ibarretxe er hann flutti ræðu sína. Hyggst efna til þjóðaratkvæðagreiðslu Í máli forseta heimastjórnar Baska (forsetinn nefnist „Lehendakari“ á máli þeirra en embættið minnir um margt á starf forsætisráðherra) kom fram að hann hygðist ekki leggja árar í bát þrátt fyrir afgerandi ósigur á þingi Spánar. Hann sakaði þá Zapa- tero og Rajoy um að hafa komið sér saman um atkvæðagreiðsluna og sagði þá vita að hann myndi nú leggja áætlun sína í dóm basknesku þjóð- arinnar. „Ég held áfram og mun gefa basknesku þjóðinni tækifæri til að láta rödd sína hljóma,“ sagði Ib- arretxe. Á óvart kom síðan í gær þegar for- setinn boðaði stjórn Baskalands til aukafundar. Var það hald manna að hann hygðist jafnvel flýta kosningum til þings Baskalands. Með því móti gæti stjórnin nýtt sér reiði og von- brigði vegna atkvæðagreiðslunnar í Madríd og látið kosningabaráttuna snúast um fátt annað en kröfuna um aukna sjálfstjórn. Deilum vegna Ibarretxe- áætlunarinnar er því engan veginn lokið þrátt fyrir afgerandi ósigur á Spánarþingi. Fréttaskýring | Líkt og búist hafði verið við beið forseti heimastjórnar Baska ósigur á þingi Spánar er greidd voru at- kvæði um áætlun hans um aukna sjálfstjórn. Ásgeir Sverrisson segir frá umræðunni og áætlun Juan José Ibarretxe. Spánarþing hafnar áætlun Ibarretxe Reuters Juan José Ibarretxe, forseti heima- stjórnar Baska, mælir fyrir áætlun sinni á Spánarþingi. ’Ég held áfram og mungefa basknesku þjóðinni tækifæri til að láta rödd sína hljóma.‘ asv@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.