Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 55. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Snyrtirinn
snýr aftur
Heiðar Jónsson og Margrét Sigfúsdóttir
sjá um hreingerningarþátt | Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Úlfhildur Dagsdóttir skrifar um Sjón Hunter Thompson allur
Börn | Lærdómur fyrir litla njósnara Barnakrossgáta
Íþróttir | Fylkir samdi við Gustafsson Enski boltinn á laugardegi
ALLAR versl-
anir Krónunn-
ar munu lækka
vöruverð sitt í
dag og hefur
fyrirtækið sett
sér þá stefnu
að tryggja að
verð á öllum
helstu neyslu-
vörum heimilisins verði sam-
keppnishæft við það lægsta sem
gerist á markaðinum. Með þessu
vill fyrirtækið stuðla að virkari
samkeppni á matvörumarkaðin-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
Krónunni munu t.d. mjólkurvörur
lækka um 3–10%, barnavörur um
8–10%, morgunkorn um allt að
20%, og epli, appelsínur og ban-
anar lækka um 15–25%.
„Það sem við erum að gera með
þessu er að stíga afgerandi skref
til þess að auka virka samkeppni á
matvörumarkaðinum, sem hefur
verið mjög lítil. Það hefur verið
einn aðili með yfirburðastöðu á
þessum markaði og við teljum að
það sé ekki staða sem neytendur
eða aðrir á markaðinum geta búið
við. Við ætlum að leggja okkar af
mörkum til þess að efla sam-
keppnina, til hagsbóta fyrir neyt-
endur,“ segir Sigurður Arnar Sig-
urðsson, forstjóri Kaupáss, sem
rekur m.a. Krónuverslanirnar.
Lækka verð á matvöru
til að auka samkeppni
Krónan lækkar verð á helstu
neysluvörum um allt að 25%
Vilja koma/6
Sigurður Arnar
AÐ minnsta kosti fjórir biðu bana þegar
maður sprengdi sjálfan sig í loft upp fyrir
framan næturklúbb í Tel Aviv í Ísrael seint í
gærkvöldi. Hátt í
fjörutíu manns til
viðbótar særðust í
tilræðinu, þar af
nokkrir lífshættu-
lega að sögn dag-
blaðsins Haaretz.
Þessi atburður
gæti dregið dilk á
eftir sér en vonast
hafði verið til þess
að grundvöllur
væri að skapast
fyrir formlegum
friðarviðræðum milli Ísraela og Palestínu-
manna.
Saeb Erekat, aðalsamningamaður Pal-
estínumanna, fordæmdi tilræðið harðlega í
gærkvöldi og þá hafði Mahmoud Abbas,
leiðtogi Palestínumanna, boðað neyðarfund
með helstu ráðgjöfum sínum.
Ekki er vitað nákvæmlega hver ber
ábyrgð á tilræðinu, AFP sagði að Al-Aqsa-
sveitirnar hefðu lýst ábyrgð á ódæðinu á
hendur sér en skv. Haaretz voru samtökin
Íslamskt Jíhad hér á ferð. Þessi samtök,
eins og önnur vopnuð samtök Palestínu-
manna, hafa undanfarnar vikur virt óform-
legt vopnahlé sem ríkt hefur í deilum Ísr-
aela og Palestínumanna.
Tilræði í Tel
Aviv ógnar
vopnahléi
Tel Aviv, Jerúsalem. AP, AFP.
Hugað að særðum manni
í Tel Aviv í gærkvöldi.
ÍTALSKUR vísindamaður, sem tekur þátt í rannsóknum á
lofthjúpi Mars, segir að fundist hafi þar lofttegundir sem
geti bent til þess að líf sé á Rauðu plánetunni, að því er
fram kom á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC í gær.
Vísindamaðurinn Vittorio Formisano sagði á geimvís-
indaráðstefnu í Hollandi að rannsóknir með hjálp róf-
greinis í geimfarinu Mars Express hefðu leitt í ljós að met-
an og formaldehýð, sem er litlaust gas, væri að finna í
lofthjúpi Mars.
Vísindamaðurinn bætti við að ekki væri hægt að sanna
að þetta væri merki um líf á Mars nema með rannsóknum
á jarðvegi úr plánetunni.
„Menn ættu ekki að líta á orð mín sem yfirlýsingu um
að líf sé á Mars núna, vegna þess að við þurfum að fara
þangað, bora í jarðveginn, taka sýni og rannsaka þau áð-
ur en við getum dregið ályktanir um hvort líf sé að finna
þar,“ sagði Formisano.
Rófgreinir Mars Express var hannaður til að rannsaka
efnasambönd í lofthjúpi Mars og rannsóknirnar benda til
þess að þar sé metan í tiltölulega litlum mæli. Þessi nið-
urstaða þykir mjög athyglisverð vegna þess að metan,
eða mýragas, er skammæ lofttegund sem eyðist í sólar-
ljósi og ætti ekki að greinast nema hún endurnýist í loft-
hjúpnum með einhverjum hætti.
Kemur e.t.v. frá örverum
Á fréttavef BBC kemur fram að metanið myndast
hugsanlega í tengslum við einhvers konar gosvirkni á
Mars þótt ekkert hafi komið fram sem staðfesti þá til-
gátu. Ennfremur sé hugsanlegt að undir yfirborði Mars
sé mikið af frosnu metani sem þiðni smám saman og ber-
ist í lofthjúpinn.
Þá hefur verið sett fram tilgáta um að metanið komi
frá örverum. Nokkrar örverur á jörðinni búa til metan
og vísindamenn hafa fært rök fyrir því að svipaðar ör-
verur geti líka verið á Mars.
Er mýragasið merki um líf á Mars?
Reuters
LAG Einars Bárðarsonar, „Birta“,
sem var framlag Íslands í Evróvisjón
árið 2001, er í öðru sæti sænska vin-
sældalistans. Drengjasveitin Nizeguys
hefur tekið lagið upp á sína arma og
heitir lagið „Ängel“ hjá frændum vor-
um. Einar Bárðarson segist hafa hald-
ið að búið væri að „vinda það úr þessu
lagi sem hægt var. Það var gefið út, á
ensku, í Suður-Afríku, og gerði góða
hluti þar. Svo hringdi í mig einhver
náungi frá Svíþjóð og bað um að fá að
þýða textann yfir á sænsku og gefa
það út enn eina ferðina. Ég fór nátt-
úrlega bara að hlæja, en samþykkti
það auðvitað“.
Birta gerir það
gott í Svíþjóð
FLUGLEIÐIR hafa gert samning við Boeing-
verksmiðjurnar um kaup á nýjum breiðþotum af
gerðinni Boeing 787 fyrir áætlunarflug Icelandair,
eitt dótturfélaga Flugleiða. Afhenda á vélarnar eft-
ir fimm ár og eru þær mun lang- og hraðfleygari en
aðrar Boeing-vélar, auk þess að vera mjög tækni-
væddar.
Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða,
segir í samtali við Morgunblaðið að þessar vélar
opni mörg tækifæri fyrir Icelandair á gríðarstórum
mörkuðum. Vélarnar geti flogið án viðkomu til allr-
ar heimsbyggðarinnar, utan Ástralíu og Nýja-
Sjálands, og nái þar með inn á markað sem telur
sex milljarða manna, í stað um 750 milljóna með
flugi félagsins í dag til Evrópu og Bandaríkjanna.
Hannes segir félagið ekki hafa ákveðið til hvaða
áfangastaða verði flogið en freistandi sé að nefna
svæði eins og Kína, Kyrrahafsströnd Bandaríkj-
anna og borgir í Rússlandi eins og St. Pétursborg
og Moskvu. Hannes segir gærdaginn hafa verið
stóran í sögu Flugleiða og nýr kafli hafi verið skrif-
aður í samgöngumálum Íslendinga.
Fyrst áætlunarfélaga í Evrópu
Heildarverðmæti tveggja Boeing 787-véla er um
15 milljarðar króna en jafnframt var samið um
kauprétt á fimm vélum til viðbótar. Verði sá kaup-
réttur nýttur til fulls er heildarverðmæti samnings-
ins 840 milljónir dollara eða rúmir 50 milljarðar
króna.
Flugleiðir eru fyrsta áætlunarflugfélagið í Evr-
ópu til að semja við Boeing um þessa flugvélateg-
und en sextánda félagið á heimsvísu. Með því að
vera í hópi fyrstu kaupenda njóta Flugleiðir sér-
stakra kjara og byrjar félagið að greiða inn á samn-
inginn eftir þrjú ár./4
Kínaflug freistar Icelandair
Morgunblaðið/Jim Smart
AUK þess að fljúga hraðar og lengra en aðrar
Boeing-vélar verður 787-gerðin með tæknivædd-
ustu farþegaþotum heims. Marlin Daily, aðstoð-
arforstjóri hjá Boeing, lýsti auknum þægindum um
borð eins og þráðlausu netsambandi, rýmri sætum
og göngum og stærri farangurshólfum og gluggum.
Aukin þægindi um borð