Morgunblaðið - 18.03.2005, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@vortex.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurveri v/Stigahlíð
SKYNDILEG kafaldshríð eftir heiðríkju í marga daga
olli nokkrum fjöldaárekstrum í Finnlandi í gær. Í þess-
um árekstri 80 bíla rétt við borgina Kerava í suðurhluta
landsins lést einn maður og tveir í árekstrum annars
staðar. Áttu óhöppin sér stað þegar morgunumferðin
til höfuðborgarinnar Helsinki var sem mest.
Reuters
80 bílar í árekstri
ANATOLÍ Tsjúbaís, yfirmaður
helsta raforkufyrirtækisins í Rúss-
landi og umdeildur stjórnmálamað-
ur, slapp ómeiddur þegar reynt var
að ráða hann af dögum í gær. Var
sprengja sprengd nálægt bifreið
hans og síðan skotið á hana að auki.
Tilræðið var gert er Tsjúbaís var á
leið til skrifstofu sinnar í Moskvu og
voru tveir menn að verki, báðir
klæddir felubúningi hermanna. Eftir
árásina forðuðu þeir sér inn í nálæg-
an skóg að sögn lögreglunnar.
Tsjúbaís var á brynvarinni BMW-
bifreið og lífverðir hans í öðrum bíl.
Skutu þeir á tilræðismennina en ekki
er talið, að neinn hafi særst í þessum
átökum. Tsjúbaís
hefur tvisvar ver-
ið aðstoðarfor-
sætisráðherra en
líklega er hann
langkunnastur
fyrir að stýra
hinni mjög svo
umdeildu einka-
væðingu rúss-
neskra ríkisfyrir-
tækja snemma á síðasta áratug.
Telur sig vita
hverjir voru að verki
„Ég hef nokkuð góða hugmynd
um hverjir stóðu að árásinni,“ sagði
Tsjúbaís í yfirlýsingu, sem hann lét
frá sér fara eftir tilræðið, en í viðtali,
sem hann átti við dagblaðið Ízvestía
2001, sagði hann um fjandmenn sína,
sem hann á marga: „Þeir hafa hótað
að draga mig upp að Kremlarmúr-
um, að lima mig sundur og afhausa á
Rauða torginu.“
Borís Nemtsov, bandamaður
Tsjúbaís og einnig fyrrverandi að-
stoðarforsætisráðherra, sagði í gær,
að tilræðið við Tsjúbaís væri af póli-
tískum rótum runnið. Undir það
tóku einnig Jegor Gaídar, fyrsti for-
sætisráðherra Rússlands eftir hrun
Sovétríkjanna, og Borís Gryslov, for-
seti rússneska þingsins, Dúmunnar.
Reyndu að ráða
Tsjúbaís af dögum
Fjandmargur höfundur hinnar umdeildu einkavæðingar
rússneskra ríkisfyrirtækja snemma á síðasta áratug
Moskvu. AFP.
Tsjúbaís
BRESKA lögreglan hefur hugsan-
lega komið í veg fyrir mesta banka-
rán í Bretlandi fyrr og síðar. Hafði
glæpaflokki tekist að komast inn í
tölvukerfi Lundúnaútibús Sumitomo
Mitsui-bankans og reyndi síðan að
flytja þaðan 220 millj. punda, hátt í
25 milljarða ísl. kr.
Brotist var inn í tölvukerfið í októ-
ber síðastliðnum og eftir það var
reynt að flytja fé frá bankanum inn á
10 bankareikninga víðs vegar um
heim. Það tókst þó ekki og segir tals-
maður bankans, að hann hafi ekki
orðið fyrir neinum fjárhagslegum
skaða.
Vegna þessa máls hefur breska
lögreglan sent tvo menn til Ísraels
og þar hafa þeir í samvinnu við ísr-
aelsku lögregluna handtekið 32 ára
gamlan mann. Sagt er, að hann hafi
reynt að flytja inn á eigin banka-
reikning um 1,5 milljarða kr.
Áslátturinn skráður
Eftir að glæpamennirnir höfðu
brotist inn í tölvukerfið notuðu þeir
búnað til að fylgjast með öllum
áslætti á tölvuborðum og komust
þannig yfir númer bankareikninga,
aðgangsorð og aðrar upplýsingar.
Fengu bankinn og lögreglan veður af
þessu strax í október og hefur verið
unnið að málinu síðan.
Komu í veg fyrir
mikið bankarán
Brotist var inn í tölvukerfi í London og
reynt að stela um 25 milljörðum kr.
London. AFP.
CONDOLEEZZA Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, heilsar
hér tveimur knattspyrnukonum í
Kabúl, höfuðborg Afganistans, en
þangað kom hún í gær til við-
ræðna við Hamid Karzai, forseta
landsins. Sagði hún á frétta-
mannafundi þeirra beggja, að
Bandaríkin myndu styðja við þá
lýðræðisþróun, sem hafin væri í
landinu, og koma í veg fyrir, að
það yrði aftur að griðastað fyrir
hryðjuverkamenn.
Á fundinum upplýsti Karzai, að
þingkosningunum, sem verða áttu
í maí næstkomandi, yrði líklega
frestað fram í september. Upp-
haflega áttu þær að fara fram í
júní í fyrra en hefur verið frestað
nokkrum sinnum síðan.
Sprengja sprakk í gær í borg-
inni Kandahar, fæðingarstað
Talibana-hreyfingarinnar, sem áð-
ur réð í Afganistan, en ekki er
ljóst hvort tilefnið var heimsókn
Rice til landsins.
Varð sprengingin fimm manns
að bana.
Rice kom til Afganistans frá
Pakistan og sneri þangað aftur í
gær. Áður hefur hún rætt við
stjórnvöld á Indlandi og ætlar
næst til Kína, Suður-Kóreu og
Japans.
Reuters
Heitir Afgönum
stuðningi
LEIÐTOGAR 13 herskárra, palest-
ínskra samtaka, sem undanfarna
daga hafa setið á fundi í Kaíró í
Egyptalandi með Mahmoud Abbas,
forseta Palestínu, hafa fallist á að
framlengja óformlegan samning um
vopnahlé við Ísraela. Sögðust leið-
togarnir hafa fallist á að viðhalda
núverandi ástandi en vildu ekki lýsa
yfir formlegu vopnahléi út árið.
Stjórnvöld í Ísrael hétu þegar í
stað að hætta árásum á liðsmenn
umræddra samtaka ef þeir stæðu
við samkomulagið. Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, sagði í
símtali við Hosni Mubarak, gest-
gjafa Palestínumannanna, í gær að
yfirlýsingin væri „jákvætt fyrsta
skref“.
„En ef við viljum framfarir í frið-
arviðleitninni verður að leysa
vandamálið með hryðjuverkahóp-
ana,“ sagði ráðherrann. Sharon
benti á að aðeins væri um að ræða
tímabundið loforð um að hætta
árásum og hryðjuverkum. Ísraelar
hafa lengi krafist þess að vopnaðir
hópar meðal Palestínumanna verði
afvopnaðir eins og kveðið er á um í
alþjóðlegu friðaráætluninni, Vegvísi
til friðar.
Fram-
lengja
vopnahlé
Jerúsalem. AFP.
AUGUSTO Pinochet, fyrrum ein-
ræðisherra í Chile, átti 125 leynilega
bankareikninga í Bandaríkjunum.
Með því móti náði hann að flytja
mikla fjármuni úr landi eða 13 til 30
milljónir Bandaríkjadala.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
sem unnin var á vegum öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings. Í henni eru stór-
ir bankar gagnrýndir harðlega fyrir
að gefa einræðisherranum kleift að
fela auð sinn.
Rannsóknin hefur leitt í ljós að
bankaumsvif Pinochets í Bandaríkj-
unum voru mun meiri en talið hafði
verið. Hann notaðist einkum við
stærri banka á borð við Citigroup,
Bank of America, Riggs og að
minnsta kosti sex önnur fjármálafyr-
irtæki. Á reikningum hans var að
finna reiðufé, hlutabréf og verðbréf.
Tekist hefur að leiða í ljós innstæð-
ur í Bandaríkjunum sem nema 13
millj. dala eða um 780 millj. króna. Í
skýrslunni kemur á hinn bóginn fram
að Pinochet hafi leitast við að fela 30
millj. dala, um 1.800 millj. króna.
Pinochet er 89 ára og er í stofu-
fangelsi. Hann var yfirmaður hersins
sem steypti sósíalistanum Salvador
Allende, forseta Chile, í valdaráninu
1973. Hann er sakaður um fjölmörg
morð og mannréttindabrot á stjórn-
arárum sínum.
Lögfræðingar í Chile, sem hafa
reynt að fá Pinochet dæmdan fyrir
morð, sögðu í gær, að nú væri einnig
ljóst, að hann hefði verið gjörspilltur
og stundað umfangsmikið peninga-
þvætti.
Pinochet átti 125
leynireikninga
Augusto Pinochet nýtur hjálpar
tveggja lífvarða sinna.
Washington. AFP.
Sagður hafa reynt að skjóta undan
allt að 1.800 milljónum króna