Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÉÐINSFJARÐARGÖNG Héðinsfjarðargöng verða boðin út út að nýju í haust. Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra tilkynnti þetta á opnum fundi um jarðganga- mál í Bátahúsinu á Siglufirði í gær. Þar voru mættir fulltrúar sam- gönguráðuneytisins og Vegagerð- arinnar. Búist er við að fram- kvæmdir hefjist á næsta ári og verklok áætluð í lok árs 2009. Björk vinnur með Gabríelu Undirbúningur þátttöku Íslend- inga í Feneyjatvíæringnum í byrjun júní er nú að hefjast, en Gabríela Friðriksdóttir tekur þátt fyrir Ís- lands hönd. Gabríela hefur fengið fjölda listamanna til samstarfs við sig; þeirra á meðal Björk Guð- mundsdóttur, Daníel Ágúst Har- aldsson, Ernu Ómarsdóttur og Sig- urð Guðjónsson. Ísland og Írland tengjast Verið er að undirbúa samvinnu Flugmálastjórnar Íslands og Flug- málastjórnar Írlands á sviði þjón- ustu vegna talviðskipta við flugvélar á leiðum um flugstjórnarsvæðin í Norður-Atlantshafi. Er hún fólgin í samtengingu stöðva í Gufunesi og Ballygirreen, þannig að nýta megi getu hvorrar stöðvar um sig til að þjóna flugumferð á svæðunum. Stýriflaugar seldar Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fagnað þeirri rannsókn, sem stendur yfir í Úkraínu, á sölu 18 X-55- stýriflaugum, sem borið geta kjarn- orkusprengjur, til Írans og Kína. Átti hún sér stað fyrir fjórum árum, í stjórnartíð Leoníds Kútsjma, fyrr- verandi forseta landsins. Heitir Bandaríkjastjórn Úkraínumönnum samvinnu við rannsóknina en tíð- indin hafa aukið grunsemdir um til- gang kjarnorkuáætlana Írans- stjórnar. „Gjaldþrota“ húseigendur Fjórði hver húseigandi í Dan- mörku er „tæknilega gjaldþrota“, það er að segja hann skuldar meira en nemur verðmæti fasteignarinnar. Hærri vextir eða önnur áföll geta því hrint af stað skriðu nauðungarupp- boða með alvarlegum afleiðingum fyrir byggingariðnaðinn og fast- eignamarkaðinn. Er þetta niður- staða mjög umfangsmikillar könn- unar og er ástandið sagt vera svipað og það var fyrir fasteignakreppuna 1987. Þá lækkaði íbúðaverð um 33% fram til 1993. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 47 Fréttaskýring 8 Myndasögur 48 Hugsað upphátt 31 Dagbók 48/51 Menning 28, 52/61 Víkverji 57 Sjónspegill 30 Staður og stund 56 Forystugrein 34 Leikhús 60 Reykjavíkurbréf 34 Bíó 62/65 Umræðan 36/44 Sjónvarp 66 Bréf 44 Staksteinar 67 Minningar 46/51 Veður 67 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ALLS hafa 240 manns hafa skráð sig sem stofnfélaga í Þristavinafélaginu sem stofnað var 4. mars síðastliðinn. Tómas Dagur Helgason, formaður fé- lagsins, segir þennan fjölda hafa farið fram úr björtustu vonum. Hann segir félaga ekki eingöngu úr hópi flug- áhugamanna heldur úr öllum áttum, t.d. áhugafólk um landgræðslu og um sögu vélarinnar enda séu margir sem hafi taugar til hennar. Markmið félagsins er að veita fjár- hagslegan stuðning til rekstrar og viðhalds DC-3 flugvéla í eigu Land- græðslunnar. Ennfremur að fljúga landgræðsluflugvélinni Páli Sveins- syni, stuðla að endurbyggingu TF- ISB sem er óflughæf og auka áhuga og skilning á mikilvægi þessarar flug- vélategundar, flugsögu og þróun ís- lenskra og alþjóðlegra flugmála. Stjórn félagsins hefur þegar komið saman einu sinni og segir Tómas Dagur frekari fundahöld framundan til að skipuleggja verkefni félagsins. Gert er ráð fyrir að Landgræðslan standi fyrir áburðardreifingu með Páli Sveinssyni í vor eins og verið hef- ur undanfarna áratugi. Tómas Dagur segir að eftir dreifinguna í vor sé hug- myndin að Þristavinafélagið taki við ábyrgð á rekstri vélarinnar. Unnt verði að dreifa áburði áfram og er hugmyndin að forráðamenn félagsins leiti stuðnings til þess meðal fyrir- tækja. Segir hann að dreifingin yrði eftir sem áður undir stjórn Land- græðslunnar. Tekið er við skráningu stofnfélaga til 3. apríl á netfangið DC3@land.is eða á vef Landgræðsl- unnar, land.is. Nauðsynlegt er að kennitala fylgi skráningunni. Fé- lagsgjald verður 2.500 krónur. Vef- síða félagsins, DC3.is er í smíðum. Um 240 stofnfélagar í Þristavinafélaginu MIKIÐ fjör var hjá þessum hressu krökkum í Sundlaug Vesturbæjar þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um. Hart var barist um boltann og ekkert gefið eftir með tilheyrandi hama- og buslugangi. Nú hefur kuldakastið runnið sitt skeið á enda og við hafa tekið hlýindi. Því er vel við hæfi að stinga sér til sunds, enda er fátt eins bráðhressandi og að hamast í lauginni og slaka síðan á í heitu pottunum. Morgunblaðið/Þorkell Boltafjör í Sundlaug Vesturbæjar „ÉG HEF það bara ágætt og er vel frísk. En ég er samt orðin fremur léleg, máttlítil og hálfslöpp og geng um með göngugrind. En dóttir mín hugsar vel um mig,“ sagði Guðfinna Einarsdóttir í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún fæddist 2. febrúar 1897 og er í dag 108 ára og 46 dögum betur. Er það hæsti aldur sem Íslendingur hefur náð svo vitað sé með vissu. Halldóra heitin Bjarnadóttir, sem fædd var 14. október 1873 og andaðist 28. nóvember 1981, náði því að verða 108 ára og 45 daga gömul. Sam- kvæmt manntalinu 1703 var einn karl þá skráður 110 ára, en víst þykir að aldur hans hafi verið rangt skráður. Guðfinna fæddist í Ásgarði en ólst upp á Leysingja- stöðum í Dalasýslu þar sem hún átti heima framan af æv- inni. Hún var um tíma í vist í Reykjavík og fór tvítug í Kvennaskólann á Blönduósi. Guðfinna var hússtýra á heimili Sigurðar Sigurðssonar í Hvítadal í rúm 20 ár. Guðfinna klæðist á hverjum degi og greiðir sér sjálf á morgnana. Hún segist hvorki eiga skýringu á því hvernig hún hefur náð svo háum aldri, né heilræði til þeirra sem vilja verða gamlir og ekki hefur hún sett sér neinar sér- stakar lífsreglur. „Ég hef borðað allan algengan, góðan mat,“ segir hún aðspurð um mataræði. Um langlífi í ætt- inni segir Guðfinna að móðir hennar, Signý Halldórs- dóttir, hafi orðið nærri níræð og þótti það hár aldur í þá daga. Guðfinna hefur lifað tvenn aldamót og merkilega tíma í Íslandssögunni. Hún man 20. öldina þegar rifjaðir er upp merkir atburðir. Guðfinna var 7 ára þegar Íslend- ingar fengu heimastjórn 1904 og minnist þess að talað var um Hannes Hafstein, fyrsta ráðherrann. „Hann var fallegur maður og það var líka hann Tryggvi Þórhallsson og þau hjón. Ég man eftir þeim.“ Árið 1918 er Guðfinnu minnisstætt. Þá var hún heima á Leysingjastöðum 21 árs og Ísland varð fullvalda ríki, frostaveturinn mikli, spænska veikin og Kötlugos settu svip sinn á árið. Hún var 33 ára þegar Alþingishátíðin var haldin 1930 og 47 ára við stofnun lýðveldisins 1944, en fór á Þingvöll í hvor- ugt skiptið. Undanfarna rúma þrjá áratugi hefur Guðfinna búið á heimili einkadóttur sinnar, Jóhönnu Þorbjarnardóttur, í Reykjavík. Guðfinna Einarsdóttir, 108 ára og 46 daga gömul Elst allra Íslendinga Morgunblaðið/Árni Sæberg TALSVERÐUR erill var hjá lögregl- unni á Ísafirði í tengslum við sam- kvæmi í íbúðarhúsi í gær. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði gistu tveir karlmenn á fertugsaldri fanga- geymslur en sá þriðji þurfti aðhlynn- ingu á sjúkrahúsi. Málsatvik voru þau að um klukk- an fimm í gærmorgun barst tilkynn- ing til lögreglu um slagsmál sem höfðu brotist út milli húsráðanda og annars manns. Lögregla var kölluð til að skakka leikinn og var mað- urinn sem húsráðandi slóst við tek- inn höndum. Skömmu síðar brutust út slagsmál á nýjan leik milli húsráð- andans og annars manns. Voru þau slagsmál komin út á götu þegar lög- reglu bar að garði, en hún þurfti að beita svokölluðum „mace“-úða og kylfum til þess að yfirbuga mennina, en annar aðilinn var með hníf á sér. Hún handtók seinni manninn sem húsráðandi slóst við en húsráðand- inn sjálfur þurfti að leita aðhlynn- ingar á sjúkrahúsi þar sem fylgst er með líðan hans, en hann hlaut höf- uðáverka. Að sögn lögreglu voru tvær aðrar líkamsárásir kærðar í tengslum við samkvæmið. Aðspurð segir lög- reglan engin fíkniefni tengjast mál- inu sem er nú í rannsókn. Slagsmál í íbúð- arhúsi á Ísafirði FRAMHALDSRANNSÓKN sýslu- mannsins á Seyðisfirði á tildrögum banaslyssins sem varð við Kára- hnjúka fyrir ári er lokið, og hafa öll gögn verið send til ríkissaksóknara. Að sögn Helga Jenssonar, fulltrúa sýslumanns á Seyðisfirði, er búið að bæta við þeim gögnum sem ríkis- saksóknari óskaði eftir, en m.a. var óskað eftir nánari skýrslutöku og upplýsingum um samninga varðandi framkvæmdirnar. Aðspurður segir hann ákvarðanir nú vera í höndum ríkissaksóknara sem annaðhvort mun ákæra í málinu eða láta það falla niður. Upphaflega hafi öll gögn verið send ríkissaksóknara í október sl. Um áramót hafi ríkissaksóknari farið fram á nánari gögn, þeirra afl- að og voru þau svo send til embættis- ins í vikunni sem leið. Tildrög banaslyssins voru þau að grjóthrun varð þess valdandi að starfsmaður verktakafyrirtækisins Arnarfells lést. Varð hann undir grjóthnullungi sem féll úr bergvegg og niður í Hafrahvammagljúfrin þegar hann var við annan mann að undirbúa borun í bergið. Var öll vinna á þessum stað í gljúfrunum stöðvuð á meðan rannsókn á til- drögum slyssins fór fram. Framhalds- rannsókn vegna banaslyss lokið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.