Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 57 DAGBÓK • Þekkt lítil bílaleiga. • Heildverslun með búnað og vélar til notkunar í iðnaði. Ársvelta 130 m. kr. • Gistihús í Hafnarfirði. 25 herbergi. • Stórt ferðaþjónustufyrirtæki úti á landi. • Iðnfyrirtæki með matvæli. Ársvelta 230 m. kr. • Stórt innflutningsfyrirtæki með tæknivörur. Ársvelta 360 m. kr. • Jarðvinnufyrirtæki á Suðurlandi. • Þekkt sérverslun/heildverslun m. fallegar vörur fyrir heimili og fyrirtæki. Ársvelta 50 m. kr. • Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 80 m. kr. • Dalakjör. Verslun, veitingasala og bensínstöð í Búðardal. Góður rekstur. Ársvelta 170 m. kr. • Stór blómaverslun í góðu hverfi. • Heildverslun/sérverslun með rafmagnsvörur. Ársvelta 200 m. kr. • Lítil heildverslun með tæki fyrir byggingariðnaðinn. Heppilegt fyrir trésmið sem vill breyta til. • Þekkt veitingahús í eigin húsnæði. Velta 10-12 m. kr. á mánuði. • Útgerðarfélag á Reykjavíkursvæðinu. • Þekkt veitingahúsakeðja með austurlenskan mat. • Ferðaskrifstofa með sérhæfðan rekstur. • Gott fyrirtæki í kynningar- og markaðsþjónustu. • Rótgróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 250 m. kr. • Sérvöruverslun með 220 m. kr. ársveltu. EBIDTA 25 m. kr. • Arðbært útgáfu- og prentþjónustufyrirtæki. • Stór fiskvinnsla í eigin húsnæði í nágrenni Reykjavíkur. • Sérverslun með fatnað. • Iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu og öruggan markað. 90 m. kr. ársvelta. • Húsgagnaverslun í góðum rekstri. • Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr. • Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði á góðum stað. • Stór trésmiðja með þekktar vörur. • Heildverslun með þekktan fatnað. • Þekkt þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði. • Rótgróið lítið iðnfyrirtæki í sérhæfðri framleiðslu. • Bakarí í góðu hverfi. • Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyrir „saumakonur” með góðar hugmyndir. • Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári. Fíknin og fjölskyldan Hjónin Jane Nakken Ed.D. og Craig Nakken M.S.W. verða með tveggja daga námskeið á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 1. og 2. apríl nk. kl. 9-16 báða dagana. Craig Nakken er höfundur bókarinnar The Addictive Personality - Understanding the Addictive Process and Compulsive Behavior sem nýlega kom út á íslensku undir nafninu Fíknir. Námskeiðið fjallar um hvernig fíkn hefur áhrif á samband við maka og börn. Farið er yfir þroskaferlið og fíkniferlið. Einnig eru skoðaðar nýjar leiðir til að hjálpa konum og hvernig and- legar langanir kvenna verða helstu þættir í bata þeirra. Námskeiðið kostar 24.000 krónur og bókin Fíknir er innifalin í verðinu. Skráning á námskeiðið og upplýsingar eru í síma 553 8800 og stefanjo@xnet.is. Sérkennileg lífsreynsla í Leifsstöð ÞAÐ er eins og Íslendingar viti ekki að það getur gert vont veður hér á landi. Þegar slæmt veður gerði hér um daginn var ég á leið til Kaup- mannahafnar. Mig langar að gera athugasemdir við ýmislegt sem ég upplifði í Leifsstöð á meðan beðið var eftir að komast í loftið. Í fyrsta lagi skildi starfsfólk far- angur okkar eftir úti í grenjandi stórhríð í drjúga stund þar sem að- eins einn hlaðmaður var að störfum samkvæmt skýringu flugfreyju Ice- land Express. Aðeins einn bíll er á Keflavík- urflugvelli til afísingar samkvæmt skýringum sem við fengum og þegar vélin var afísuð og ekki tókst að komast í loftið í það skiptið þurfti að fara aftur í biðröðina til að afísa aft- ur. Þegar ekki tókst að fara í loftið var rennt upp að flugstöðinni aftur og farþegar fóru inn. Ég ætlaði að fá upplýsingar á upplýsingaborði um seinkun vélar til að framvísa þar sem ég átti lestarmiða frá Kaup- mannahöfn til Álaborgar. Þegar starfsmanni við þjónustuborð var ljóst að ég var farþegi Iceland Ex- press kom allt annað hljóð í strokk- inn og þá var ég orðin þriðja flokks farþegi sem fékk ákaflega lélega þjónustu. Þegar liðið var á daginn fór ég í fríhöfnina til að kaupa smáhlut. Mér varð það á orði við afgreiðslustúlk- una að maður yrði að gera eitthvað til að drepa tímann – og þá kom rús- ínan í pylsuendanum í þessari 11 tíma bið. Við þessi orð mín sagði af- greiðslustúlkan „það er svona að ferðast með Iceland Express sem hefur breska flugmenn, því þeir taka enga áhættu“. Ég þakka mínum sæla fyrir að þessir bresku flug- menn taka enga áhættu gagnstætt þeim íslensku hjá Flugleiðum eins og skilja mátti á þessari afgreiðslu- stúlku. Mér er líka minnisstætt þegar loks var kallað út í vél, að landar mínir létu svívirðingar og skammir dynja á saklausu starfsfólki Iceland Express eins og það ætti sök á óveðrinu sem geisaði þennan dag. Fólk tapar sér gjörsamlega við svona aðstæður og verður sér til al- gjörrar skammar. Að öðru leyti áttum við notalegan dag í Leifsstöð og ég hlakka til að ferðast aftur með Iceland Express sem tekur enga áhættu í svona veðri. Anna Kjartansdóttir, Vesturgötu 41, Akranesi. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Billi Félagsstarf Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld Caprí– tríó leikur fyrir dansi frá kl. 20. Gerðuberg | Mánudag kl.10.30 og miðvikudagur kl. 8.45 sund og leik- fimiæfingar í Breiðholtslaug. Allar uppl. á staðnum s.575 7720 og www.gerduberg.is Hæðargarður 31 | Páskahátíð í dymbilvikunni. Mánudag kl. 10: Szym- on Kuran leikur á fiðlu og myndlist- arfólk málar hughrifin á striga. Þriðjud. kl. 14: Leikarar frá LR: skemmtidagskrá. Miðvikud. kl. 20: Halla Sverrisdóttir spjallar um skáld- ið Auði Jónsdóttur í Bókmennta- klúbbi. Fastir liðir á sínum stað. Fund- ur með „mánudagskonum“ kl. 10 árdegis á morgun mánudag. Upplýs- ingar í s. 568–3132 Vesturgata 7 | Mánudaginn 21. marz kl. 13.30 lesa leikkonurnar Birna Haf- steins, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Marta Nordal og Sigrún Edda Björns- dóttir upp úr bréfum og frásögnum af Vesturferðum og syngja vöggusöng úr Hýbýlum vindanna. Vöfflur m/ rjóma í kaffitímanum. Farið verður að sjá leikritið Hýbýli vindanna föstu- daginn 22. apríl, upplýsingar og skráning í síma 535-2740 Kirkjustarf Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20 Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 09–17 í síma 587–9070. JARÐHITABÓK – eðli og nýting auðlindar er nafn nýrrar bókar eft- ir Guðmund heitinn Pálmason, eðl- isfræðing sem veitti forstöðu jarð- hitadeild Orkustofnunar um árabil. Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina út ásamt Orkustofnun og Íslenskum orkurannsóknum. Við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í vikunni voru ekkju Guðmundar, Ólöfu Jónsdóttur, og Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra af- hent fyrstu eintök bókarinnar. Ólafur G. Flóvenz, forstjóri Ís- lenskra orkurannsókna, flutti ávarp við það tækifæri og rakti til- urð bókarinnar. Guðmundur, sem lést fyrir ári, hafði unnið að bók- inni í um 7 ár og að mestu lokið henni þegar hann féll frá. Svein- björn Björnsson, fyrrverandi deild- arstjóri auðlindadeildar Orkustofn- unar og Ólafur Pálmason, bróðir hans, höfðu forystu um að ganga frá bókinni til prentunar. Jarðhitabók Guðmundar Pálma- sonar er fræðslurit og jafnframt menningarsögulegt rit fyrir al- menna lesendur og er hún ríkulega myndskreytt, nærri 300 bls. að stærð. Fjallað er um brautryðj- endur í rannsóknum á jarðhita á Íslandi, upruna og eðli jarðhita, boranir, vinnslu og margvísleg not af jarðhita í íslensku þjóðfélagi. Fjallað er um áhrif nýtingar, nauð- syn verndunar og birtur er annáll atburða sem tengjast rannsóknum og lagt mat á það hversu varanleg auðlind jarðhitinn sé. Eftir nám í eðlisfræði í Svíþjóð og Bandaríkjunum starfaði Guð- mundur á jarðhitadeild raforku- málastjóra og síðar Orkustofnunar og snerist ævistarf hans um jarð- eðlisfræði og jarðhita. „Guð- mundur var í forystu um jarð- hitarannsóknir á Íslandi á miklu framfaraskeiði, og undir stjórn hans varð jarðhitadeild Orkustofn- unar að einu fremsta þekking- arsetri heims á sviði jarðhitarann- sókna,“ segir Ólafur G. Flóvenz m.a. í formála bókarinnar. „Sjálfur reiknaði Guðmundur út fyrir fáein- um árum að árlegur sparnaður þjóðfélagsins af notkun jarðhita í stað olíu jafngilti öllum bifreiða- innflutningi landsmanna,“ segir einnig í formálanum. Ný bók um eðli jarðhita og nýtingu auðlindar Staðurogstund http://www.mbl.is/sos LISTAKONAN Jónína Guðnadóttir mun í dag kl. 14 veita leiðsögn um sýningu sína „Vötnin kvik,“ sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Á sýningunni, sem er í aðalsal Hafnarborgar, eru lágmyndir og innsetning og eru verkin öll unnin á árunum 2004 til 2005. Jónína er menntuð við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Konst- fack í Stokkhólmi. Hún hefur tekið þátt í samsýningum og haldið margar einkasýningar, m.a. í Nor- ræna húsinu, á Kjarvalsstöðum og í listasafninu á Akureyri. Þetta er fimmta sýning hennar í Hafn- arborg. Vötnin kvik GUÐRÚN Jónsdóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir, eigendur verslunar- innar „Frúin í Hamborg“, opnuðu í gær sýningu á Kaffi Karólínu í Listagilinu á Akureyri. Þetta er önnur sýningin af þremur sem þær standa fyrir. Að þessu sinni eru til sýnis handmálaðar ljósmyndir frá 1930–1960. Þær tengjast flestar Mývatni en þó gefur að líta nokkrar frá Eyjafjarðarsvæðinu. Frúarsýning á Kaffi Karólínu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.