Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Á veggspjaldinu á hurðinni hafa verið dregnar upptáknmyndir af alls konar konum. Svipbrigðin,andlitsskrautið og hárgreiðslan eru jafnólík ogkonurnar eru margar. Pia Bäcklund, starfskonaTerrafem, birtist í gættinni, brosir og útskýrir að með myndunum séu samtökin að leggja áherslu á að þangað geti allar konur af erlendum uppruna leitað athvarfs undan kúgun og heimilisofbeldi – óháð aldri, stétt, uppruna o.s.frv. „Nýja veggspjaldið okkar hefur svo sannarlega vakið at- hygli,“ segir Pia stolt í bragði þegar við erum sestar inn í þröngt fundarherbergi á hæðinni. „Afgerandi fjölgun varð á símtölum í neyðarsímanum eftir að við hengdum tugi þeirra upp út um alla borg fyrir tveimur vikum. Annars hefur sím- hringingum í neyðarsímann sífellt farið fjölgandi frá því Terrafem, samtökum sem beita sér gegn kúgun og heimilis- ofbeldi gegn konum af erlendum uppruna, var fyrst komið á fót í Stokkhólmi fyrir 4 árum og bárust um 3.000 símtöl af landinu öllu í fyrra. Hér í Málmey var starfseminni komið á fót fyrir 3 árum.“ Pia minnir á að auk neyðarsímans reki Terrafem kvenna- athvarf fyrir konur af erlendum uppruna í Málmey. „Hingað til hefur íbúðin verið fyrir konur á öllum aldri. Núna stefnum við að því að kaupa aðra íbúð sérstaklega ætlaða konum á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum með augastað á 7 herbergja íbúð í hverfinu. Eldri íbúðin verður áfram fyrir eldri kon- urnar. Vandamál yngri og eldri kvennanna eru oft á tíðum frábrugðin. Yngri konurnar þurfa á meiri aðstoð og aðhlynn- ingu að halda,“ segir hún. „Annað hlutverk Terrafem er að stuðla að umræðu um heimilisofbeldi með því að tala við stjórnmálamenn og halda ráðstefnur, t.d. verður haldin ráð- stefna um sæmdarmorð í Málmey í október nk.“ Mikill áhugi á sjálfboðaliðastarfi Pia segir að þrír starfsmenn séu í fullu starfi hjá Terrafem og þónokkrir sjálfboðaliðar vinni hlutastörf fyrir samtökin. „Við auglýstum eftir fleiri sjálfboðaliðum í síðustu viku. Ég setti tvær auglýsingar í stærsta blaðið í borginni og 60 konur hringdu. Við verðum með námskeið fyrir 35 nýja sjálf- boðaliða um næstu helgi. Sumar kvennanna hafa sjálfar orð- ið fyrir heimilisofbeldi. Aðrar þekkja fórnarlömb eða hafa einfaldlega áhuga á því að hjálpa þessum konum. Nokkrar kvennanna eru starfsmenn félagsþjónustunnar og finnst þær ekki fá nægilegt svigrúm til að hjálpa fórnarlömbum heim- ilisofbeldis innan þess geira,“ segir Pia. Hún er spurð að því hverjir standi straum af kostnaðinum. „Starfsemin er fjármögnuð af borginni. Annars reynum við að halda öllum kostnaði í lágmarki. Við erum með spænsku-, tyrknesk- og arabískumælandi starfsmenn á skrifstofunni allan daginn. Ef konur þurfa á aðstoð á öðrum tungumálum að halda tökum við niður nafn og símanúmer og biðjum ein- hvern af sjálfboðaliðum okkar að tala við konuna á hennar móðurmáli. Við reynum alltaf að komast hjá því að konan borgi sjálf símtöl við okkur hjá Terrafem.“ Ekki algengara en meðal Svía „Nei, ég held ekki,“ svarar Pia því hvort konur af erlend- um uppruna séu í meiri hættu á að verða fyrir heimilis- ofbeldi en aðrar konur í Svíþjóð. „Heimilisofbeldi er álíka al- gengt meðal kvenna af erlendum uppruna og annarra kvenna. Aftur á móti er oft erfiðara fyrir erlendar konur að leita stuðnings í nánasta umhverfi sínu. Þær eru fjarri stór- fjölskyldunni og eiga ekki jafnmarga vini í nýja landinu og innfæddu konurnar. Erlendu konurnar þurfa því frekar en aðrar konur á utanaðkomandi aðstoð að halda. Vandinn er bara sá að þær vita oft ekki hvert þær eiga að snúa sér. Sumir ofbeldismannanna hafa nýtt sér félagslegra einangrun eiginkvenna sinna til þess að telja þeim trú um að ef þær leiti á náðir félagsmálayfirvalda geti þær átt von á refsingu – börnin verði tekin frá þeim og send á fósturheimili, þeim verði sjálfum vísað úr landi o.s.frv. Konurnar veigra sér því oft við því að leita beint eftir stuðningi frá Félagsþjónust- unni. Fyrsta skrefið út úr ömurlegum aðstæðum er oft að hringja hingað til að afla réttra upplýsinga.“ „Konur eru flinkar í því að finna alls konar afsakanir fyrir því að mennirnir þeirra beita þær ofbeldi,“ segir Pia alvarleg á svip og hafnar alfarið þeirri kenningu að útbreitt atvinnu- Terrafem vinnur gegn ofbeldi gegn konum af erlendum uppruna í Svíþjóð Heimilisofbeldi verður aldrei afsakað Baráttan gegn heimilisofbeldi er eitt af stærstu verkefnum samtímans um allan heim. Enda þótt birtingarmyndirnar virðist ólíkar á milli menn- ingarheima liggja ræturnar í því sama eins og Anna G. Ólafsdóttir komst að í samtali við Piu Bäcklund hjá sænsku kvennasamtökunum Terrafem. Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir Pia Bäcklund fór að vinna fyrir Terrafem eftir að hún varð fyrir heimilisofbeldi fyrir nokkrum árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.