Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ É g skal segja þér, að þegar ég varð stúd- ent frá Menntaskól- anum á Akureyri 1955, tæplega 19 ára, þá ætlaði ég ekki að leggja fyrir mig íslenzk fræði. Á þessum árum var því haldið á lofti, að þeir sem ekki dugðu til neins, urðu annaðhvort kennarar eða blaða- menn; „stakkels mænd“, sem ekki komust neitt áfram í lífinu. Á Akureyri kynntist ég þýzkum tannlækni, Kurt Sommerfeld. Við spjölluðum mikið saman og ég hugs- aði með mér, að tannlækningar væru praktískt og gott starf. Um haustið fór ég utan í fyrsta skipti og til München, þar sem ég innritaðist í tannlæknadeild háskólans. Þangað eltu mig þrír skólafélagar. Þeir urðu allir tannlæknar en ekki ég. Þarna úti í München veiktist ég al- varlega, var fluttur í ofboði á spítala, og man eftir mér þar á börum á löngum, löngum, dimmum gangi, þar sem laut yfir mig öldruð nunna og sagði; armer Mensch, armer Mensch. Ég reyndist vera með blæð- andi magasár, svona ungur maður- inn. Og ég hrökklaðist heim. Ég gerði aðra tilraun, en veiktist aftur og kom heim á útmánuðum ’57. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur, en eftir sumarið varð ég að finna mér vinnu og það varð úr að ég innritaði mig í íslenzku við háskólann meðan ég væri að ná áttum og hóf kennslu við Gagnfræða- skólann við Vonarstræti. Hann var þá einsársskóli, sem bjó menn undir það fræga landspróf. Ég kenndi ís- lenzku. Ég hafði verið slakur námsmaður í menntaskóla, en las mikið. Móðir mín, sem átti þess ekki kost að mennta sig, lagði áherzlu á menntun mína. Hún gerðist áskrifandi að Ís- lendingasagnaútgáfunni handa mér og þegar ég tók stúdentspróf, var ég búinn að lesa hana alla, allar bækur Halldórs Kiljans Laxness og Þór- bergs Þórðarsonar og talsvert mikið af bókum Gunnars Gunnarssonar. 1955 komu út þrjár bækur, sem allar höfðu mikil áhrif á mig; Kvæðabók Hannesar Péturssonar og 79 af stöð- inni eftir Indriða G. Þorsteinsson, tveir Skagfirðingar þar. Þá þriðju fékk ég senda til München, það var Sjödægra Jóhannesar úr Kötlum, sem mamma sendi mér óinnbundna og óuppskorna. Á þessum árum voru mjög ströng gjaldeyrishöft og þegar leið að jólum var orðið lítið um skot- silfur hjá fátækum námsmanni. Ég fór svo að lesa Sjödægru og skar hana upp jafnóðum. Á blaðsíðu 24 fann ég 20 marka seðil og annan á blaðsíðu 40. Þá hætti ég að lesa og skar bókina alla upp í einum rykk. Ég hafði 120 mörk upp úr bókinni og síðan þykir mér vænna um hana en aðrar bækur!“ Kennari og blaðamaður! „Það er dagsatt, að ég innritaði mig í íslenzkuna og fór í kennsluna meðan ég væri að átta mig, en svo festist ég í íslenzkunáminu. Þá var hefðbundið kandídatspróf fólgið í ís- lenzkum fræðum, íslenzkri tungu, bókmenntum og sögu, en ég fór sér- staka leið; íslenzku með aukagrein, þar sem lögð var stund á íslenzk fræði og bókmenntir og svo tók ég sænsku. Halldór Halldórsson pró- fessor sagði að þeir væru of fáir, sem tækju öðruvísi en hrein íslenzk fræði, en honum þætti sniðugt, ef einhver tæki eitthvert erlent mál með. Ég tók sem sé sænskuna og varð síðar lektor í íslenzku við háskólann í Gautaborg. Þannig leiddi eitt af öðru í mínu námi og starfi.“ Frá Gagnfræðaskólanum við Von- arstræti flutti Njörður sig um set í Hagaskólann og til samræmis við ummælin um „stakkels mænd“ gerð- ist hann blaðamaður við Vísi 1962– 63! Þá tók kennslan öll völd aftur og hann kenndi við Kennaraskólann og eftir að hann lauk kandídatsprófi var hann settur kennari við Menntaskól- ann í Reykjavík. Eftir fimm ár í Gautaborg varð hann lektor í íslenzk- um bókmenntum við Háskóla Íslands 1971–77, dósent 1977–93 og prófess- or 1993–2004. Í millitíðinni tók hann doktorspróf í Gautaborg og segir að sér hafi fund- izt í grundvallaratriðum ekki rétt að taka prófið við sama skóla og sömu háskóladeild og hann kenndi við sjálfur. Honum fannst rökrétt að fara til skóla, sem hann þekkti til, og er því formlega doktor í norrænni fíló- lógíu frá háskólanum í Gautaborg. Viðfangsefnið var Sólarljóð; stafrétt útgáfa á 40 handritum og svo skýr- ingar og bókmenntaleg umfjöllun um „þetta merkilega kvæði“. Njörður kaus að láta af störfum við Háskóla Íslands í fyrra eftir 33 ár við skólann. „Ég hefði getað hætt fyrr samkvæmt 95-ára reglunni og líka haldið áfram til sjötugs, en ég er fæddur 1936. Mér fannst þetta vera orðið gott á þessum punkti. Mig langaði til að skrifa meira aftur.“ Bókmenntanámið viðskila við tunguna „Það hafa orðið talsvert miklar breytingar á þessum 33 háskólaárum mínum. Þegar ég byrjaði að kenna var bók- menntafræðin aðallega í almennum inngangi. Ég breytti þessu þannig að námið varð umfangsmeira en áður hafði verið og meðal annars byrjaði ég með dálítið stórt námskeið um að- ferðir í bókmenntafræði. Þegar ég tók kandídatsprófið var enginn mun- ur á milli manna eftir málfræði og bókmenntum. Ég varð bókmennta- fræðingur út á Sólarljóð, en ef ég hefði tekið málfræðilegt efni, hefði ég orðið málfræðingur. Nú er miklu meiri sérhæfing og menn velja fyrr. Ég held eftir á að það sé dálítið misráðið. Mér finnst sannast að segja að bókmenntanámið hafi orðið dálítið viðskila við tunguna. Þegar ég lít til baka hefði ég viljað viðhalda betri tengslum milli tungu og bókmennta.“ Njörður hefur samið tvær bækur um bókmenntafræði; Sögu, leikrit, ljóð, sem kom út 1975, og Eðlisþætti skáldsögunnar, sem kom út 1976. Fyrri bókin er fyrir menntaskólastigið, en sú síðari er um innviði skáldsögunnar frá bók- menntalegu sjónarmiði. „Mér brá svolítið, þegar ég komst að því, að kennarar voru að kenna fræðin eins og stærðfræðiformúlu. Það var nú ekki meiningin með þess- um bókum. Ég ætlaðist til að skoð- aðir væru innviðir bókmenntanna með hliðsjón af bókunum, en ekki að þær væru notaðar sem einhver form- úla. Ég lagði áherzlu á það við mína nemendur að það fyrsta sem þeir lærðu væri að bókmenntir eru ekki skrifaðar fyrir bókmenntafræðinga. Þær eru náttúrlega skrifaðar af innri þörf höfundar til þess að veita les- andanum ákveðna upplifun, gleði og nautn. Mér finnst sömuleiðis að það næsta sem þeir áttu að læra sem bók- menntafræðingar vera að kunna skil á mismunandi rannsóknaraðferðum og moða úr þeim eftir því sem við á. Ef menn tileinka sér bara eina aðferð og lesa bókmenntir út frá aðferð ein- hvers eins manns, þá skoða þeir að- eins einn þátt bókmenntanna en ekki bókmenntirnar í heild. Ég vara við því sem ég kalla vís- indakomplex. Umfjöllun um bók- menntir er ekki vísindi, hún er skyld- ari listfræði, enda erum við að fjalla um listaverk og þá er listin aðalatriði en ekki við sem um verkið fjöllum. Í sumum tilvikum hefur bók- menntafræðin fjarlægzt sjálfar bók- menntirnar. Það eru til bókmennta- fræðingar, sem þurfa engar bókmenntir. Þeir skrifa bara um aðra bókmenntafræðinga. Og svo búa þeir til ný hugtök utan um ekki neitt. Veiztu hvað postmódernismi þýð- ir?“ Ég hrekk við að vera tekinn svona upp í miðju viðtali og það koma vöflur á mig. Nirði líkar það greinilega vel! „Ég held reyndar að enginn viti merkingu orðsins. Mér finnst menn nota þetta hugtak sem afsökun fyrir efnislítilli mælgi.“ Þú þykist geta búið til skáld! „Ég fann líka til þess, þegar ég fór að kenna tungumál og bókmenntir fræðilega, að nemendurnir voru ekki endilega góðir málnotendur, svo ein- kennilega sem það nú kann að hljóma. Málfræðingar eru ekki endi- lega að sama skapi góðir málnotend- ur. Meistaraleg undantekning var Jón Helgason í Kaupmannahöfn, sem mig grunar að hafi verið sá mað- ur sem kunni íslenzku betur en flestir aðrir, ef ekki allir. Hann var meistari bæði hinna fræðilegu hliða og svo var hann meistaralegt skáld. Einhvern veginn finnst mér að þetta eigi að fara saman.“ Þetta varð til þess að haustið 1987 fór Njörður af stað með ritlistarnám- skeið. Hann fór í rannsóknarferðir til Bandaríkjanna, þar sem hann kynnti sér ritlistarkennslu við tvo háskóla, og til Svíþjóðar, þar sem hann kynnti sér slíkt nám við lýðháskóla. Hann fór svo aftur vestur um haf og heim- sótti þá háskóla í Bandaríkjunum og Kanada. „Það var mín niðurstaða að til þess að kenna ritlist þyrftu menn að vera rithöfundar sjálfir, þótt ekki séu allir sammála því. Og ekki voru allir á einu máli um ritlistarnámskeiðin. „Jæja, svo þú þykist geta búið til skáld!“ sögðu einhverjir og glottu með. En það var nú ekki svo. Truman Capote sagði: Ef ritlistin er þér meðfædd, þá ertu lukkunnar pamfíll. Ef ekki, þá verður þú að læra hana og þegar þú ert búinn að læra, getur þú farið að brjóta reglurnar. En þú þarft að læra þær til þess að geta brotið þær.“ Hæfileikana og þörfina gat ég ekki kennt. En síðan kemur kunn- áttan og þar þykist ég geta hjálpað mönnum. Ég lofaði nemendum ekki öðru en því að þeir myndu skrifa betur eftir námskeiðið og að þeir myndu lesa bókmenntir með allt öðrum hætti. Tungumálið er hljóðfæri hugans Morgunblaðið/Ómar Njörður P Njarðvík: Við eigum að bjarga málinu okkar með því að vanda okkur. Hann ætlaði ekki að leggja móðurmálið fyrir sig, held- ur læra „praktískt og gott starf“. En íslenzkan varð of- an á og hún reyndist hon- um bæði praktísk og góð, svo góð að dugði til 47 ára starfsferils. Nú hefur Njörð- ur P. Njarðvík látið af kennslu og í samtali við Freystein Jóhannsson lítur hann um öxl og er ómyrkur í máli um stöðu íslenzk- unnar og bókmenntafræð- anna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.