Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 39
UMRÆÐAN
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað
hann syngur þegar kemur að
sölu bújarða
Ef þú ert að leita að bújörð
þá ertu í traustum höndum
með Jón þér við hlið
Til þjónustu reiðubúinn
í síma 896 4761
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan
áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega
og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Lóðir fyrir frístundahús að Húsafelli
Perla milli hrauns og jökla
Bjóðum lóðir í landi Húsafells.
Fallegt landsvæði, skógi vaxið,
stórbrotin náttúra, veðursæld,
heitt vatn, frábær útivistarað-
staða og gönguleiðir.
Að Húsafelli er þjónustumiðstöð
með verslun, sundlaug og heitum
pottum, leiksvæði, golfvöllur og
margt fleira.
Húsafell er heillandi staður fyrir
frístundahús.
DAGGARVELLIR 4A - HF. - TIL AFHENDINGAR STRAX
Nýkomin í einkasölu 106,3 fer-
metra íbúð á fjórðu hæð í lyftu-
húsi með sérinngang ásamt
stæði í bílageymslu, vel staðsett
í Vallahverfi í Hafnarfirði. Eignin
skiptist í: Sérinngang, forstofu
með skáp, hol, eldhús með fal-
legri innréttingu og góðum
borðkrók, tvö góð barnaherbergi
með skápum, hjónaherbergi með skápum, stór og björt stofa með útgangi
út á suðursvalir. Baðherbergi flísalagt með baðkari og fallegri innréttingu.
Góð geymsla. Íbúðin er í dag tilbúin án gólfefna og til afhendingar strax.
Innréttingar eru allar úr eik. Verð 21,5 millj. 512941
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur lagt fram frumvarp til laga
um Ríkisútvarpið. Frumvarpið er
fyrirmyndarfrumvarp
og ráðherra og henn-
ar fólki sem að smíði
þess kom til sóma.
Almannaútvarpi er
sniðinn rammi í lögjöf
Evrópusambandsins,
löggjöf sem einnig
tekur til Evrópska
efnahagssvæðisins.
Við erum bundin með
samþykki okkar af
þeirri löggjöf.
Löggjöfin um al-
mannaútvarp kveður
á um að ríkisstjórnir
aðildarlandanna skil-
greini hvað teljist til almanna-
útvarps og getur sú skilgreining
verið margskonar. Í frumvarpinu
er valin sú skynsamlega leið að af-
sala okkur engum rétti og því skil-
greiningin eins víðtæk og frekast
er leyft. Verður ekki annað séð en
að hér sé hugsað til framtíðar en
einnig hitt að tekið er tillit til
þeirra sem vilja samfélagslegan
rekstur eins mikinn á þessu sviði
og hægt er, vinstri menn svokall-
aðir ættu því að kætast.
Hins vegar er frumvarpið svo
sniðið að þar er gert ráð fyrir að
einnkenni öflugs markaðs-
rekstrarfyrirkomulags fái notið
sín. Hér á ég við að Ríkisútvarp-
inu er ekki skylt að halda úti
nema einni sjónvarpsrás og einni
hljóðvarpsrás.
Þannig er ekki þar með sagt að
Rás 2 verði felld niður, hana má
reka á samkeppnismarkaði ef það
þykir henta. Frumvarpið gerir ráð
fyrir því að nútíma-
rekstrarhættir séu
nýttir, það er að vista
annars staðar þá
þætti sem ekki til-
heyra kjarnastarfsemi
fyrirtækisins, þeir
faldir öðrum aðilum á
markaði sem betur
eru færir að sinna
þeim. Frumvarpið er
því til þess fallið að
örva starfsemi og fjöl-
breytileika á fjöl-
miðlamarkaði ef þeir
sem um véla bera
gæfu til þess að halda
rétt á málum.
Þá er og rétt að benda á að ekk-
ert í evrópskum lögum bannar að
almannamiðill sé í einkaeigu, að-
eins að hann uppfylli kröfur þær
sem ríkisvaldið setur um rekst-
urinn.
Þannig gerir frumvarpið ráð
fyrir að semja megi við aðra miðla
um þá þjónustu eftir því sem
hentugt þykir.
Ísland er ekki í Evrópusam-
bandinu og því ekki þess vegna
aðili að lögunum um almanna-
útvarp en sem aðili að samkeppn-
islögunum og þar með þeim þætti
þeirra sem tekur til ríkisstyrkja
verðum við sjálfkrafa aðilar að
ákvæðunum um almannamiðla.
Ákvæði samkeppnislaga valda því
að gagnsæið verður mikið og á að
tryggja að Ríkisútvarpið skekki
ekki markaðsskilyrði.
Markaðssinnar eiga því að geta
haldið ró sinni.
Vinstri grænir taka mál-
efnalega afstöðu og leggja fram
eigið frumvarp. Hugmynd þeirra
um að tengja afnotagjaldið við
fasteignir er áhugaverð og rétt
hjá þeim að skoða þeirra hug-
myndir samhliða frumvarpi
menntamálaráðherra.
Afstaða Frjálslynda flokksins
er varhugaverð og ástæða þess að
grein þessi er skrifuð og þá af-
stöðu ber að fordæma að nú skuli
málinu frestað, það er ómál-
efnaleg afstaða og forkastanleg í
ljósi þess að hér er um vandað
frumvarp að ræða.
Lagafrumvarpið
um Ríkisútvarpið
Bjarni Pétur Magnússon fjallar
um afnotagjöld og breytingar á
rekstrarfyrirkomulagi RÚV
’Afstaða Frjálslyndaflokksins er var-
hugaverð og ástæða
þess að grein þessi er
skrifuð og þá afstöðu
ber að fordæma að nú
skuli málinu frestað,
það er ómálefnaleg af-
staða og forkastanleg í
ljósi þess að hér er um
vandað frumvarp að
ræða.‘
Bjarni Pétur
Magnússon
Höfundur er deildarstjóri
afnotadeildar Ríkisútvarpsins.