Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is NÚ ÞEGAR rétt rúm vika er í opn- un fyrstu veiðisvæðanna, þegar veiðimenn taka að glíma við silung- inn eftir langt vetrarhlé, er við hæfi að skoða nýjungar í fluguhnýting- um og forvitnast um skæð leyni- vopn. Dr. Jónas Jónasson, sem rekur vefverslunina frances.is, hefur síð- ustu árin innleitt ýmsar nýjungar á íslenskan veiðimarkað. Að þessu sinni kynnir hann á vef sínum nýjar útgáfur af kúluhausum, eða kúpum, sem hann kallar „hauskúpur“. Púp- ur með þyngdum kúlum hafa gefið íslenskum veiðimönnum mjög vel síðustu árin en margir kannast við vandamál á borð við þau að geta ekki þyngt púpurnar nógu vel, til að sökkva þeim að fiskum undir hröðu straumvatni, eða tapa mörg- um flugum í botnfestu. Dr. Jónas segir hauskúpurnar geta hjálpað veiðimönnum í báðum tilvikum. Á hauskúpunum er kúlan fest við öng- ulinn með nagla sem beygður er um öngullegginn. Þegar púpan sekkur eða rekur í vatninu, veldur þunginn því að krókurinn snýr upp og minna verður um festur. Þá hefur Jónas fundið mjög eðlisþungar tungsten-kúlur, sem sökkva mjög hratt. Ennfremur kynnir hann kantaðar kúlur, sem kallaðar hafa verið diskókúlur og vísar í glitgjafa dansgólfanna. En hvers vegna hauskúpur? „Þessi hugmynd er komin frá Ara Þórðarsyni, veiðifélaga mínum og vini,“ segir dr. Jónas. „Einu sinni sem oftar þegar við vorum að horfa á fótboltaleik nefndi ég við hann að ég þyrfti að finna nýtt nafn á þessar kúpur. Ég útskýrði fyrir honum naglann og að hún sneri öf- ugt í vatninu. Þá sagði hann svo snilldarlega: Snýr hún á haus í vatninu? Er þá ekki næst að nefna hana hauskúpu.“ Alger snilld. Hauskúpur skulu þær heita.“ Stórfiskatúpa Valgarður Ragnarsson eða Valli í Veiðibúðinni við Lækinn í Hafn- arfirði, heldur mikið upp á þriggja tommu kopartúpuútgáfu af Black Ghost straumflugu þegar hann heldur á sjóbirtingsveiðar. „Þessi túpa, sem er með „zonker“ skinn- væng, hefur verið að gefa okkur fé- lögunum vel í mörg ár. Hún hefur reynst mjög vel í sjóbirting, vor og haust. Mest hefur maður veitt á þetta á dauðarekinu en stundum er gott að strippa túpuna inn, þá er hún eins og spúnn. Svo notum við yfirleitt tvíkrækjur aftan í á vorin, þá er þægilegra að sleppa fiskun- um.“ Valli verður með félögum sínum í opnunarhollinu í Tungufljóti. „Við vorum í öðru hollinu í fyrra, þrír með tvær stangir, og fengum átján birtinga; marga mjög væna. Allir nema einn tóku þessa útgáfu af Black Ghost,“ segir Valli. Leynivopn Gylfa Gylfi Kristjánsson, veiðimaður og fluguhnýtari á Akureyri, hefur á síðustu árum hannað einhverjar fengsælustu silungaflugur sem veiðimenn hafa kastað í straum- og stöðuvötn, Mýsluna og Krókinn. Í fyrrasumar fréttist af nýrri flugu Gylfa, Beykinum, sem reyndist víða vel. Gylfi segist venjulega láta vini og kunningja prófa nýjar flugur fyrir sig eitt sumar og ef þær reynast vel fá þær nafn og koma fyrir sjónir fleiri veiðimanna. Gylfi segir Beyki hafa reynst vel bæði í bleikju og urriða. „Vinur minn Kristján Hjálmars- son, sem oft hefur talað um reynslu sína sem beykir á Húsavík, fór með hana í opnunina á urriðasvæðinu í Laxá sumarið 2003 og veiddi geysi- vel. Þess vegna nefnist flugan Beykir. Og menn hafa verið að taka mjög væna fiska á hana.“ Hér er það sem þarf í Beykinn: Búkurinn er svart vínilribb á grubber öngul númer tíu, með kúlu, og gulum þræði er vafið í skor- urnar. Þá er lakkað vel yfir. Þetta gula verður þá eins og „æðar“ inn- an undir lakkhjúpnum. Loðkraginn við kúluna er brúnn „dubbing brush krystal anthron“ frá Tékklandi og langt skegg, sem nær öngullengd aftur fyrir bug, er svart, gert úr gæsafjöður. SVFR með Stóru-Ármót Tilkynnt var á vef Stangaveiði- félags Reykjavíkur nú fyrir helgina að félagið hefði bætt við sig Stóru- Ármótum í Hvítá. Þetta er fimm km langt veiðisvæði sem nær frá ármótum Sogsins og upp að Lang- holti. Átján merktir og fjölbreyti- legir veiðistaðir eru á svæðinu. Veitt er á þrjár stangir og hefst veiðin fyrsta apríl. Leyft er að veiða á flugu, maðk og spón. Á liðnu ári veiddust 27 laxar og á annað hundr- að silungar á Stóru-Ármótum. Stangveiði Hauskúpur og aðrar flugur veidar@mbl.is Morgunblaðið/Golli Hauskúpur og þungar kúpur dr.Jónasar. Frá vinstri: Píkokk, Kríli, Moli, Brún púpa og Killer. Morgunblaðið/Golli Áhrifaríkt leynivopn í sjóbirting: Black Ghost í formi þriggja tommu kopartúpu. „ÁIN hefur ekki verið seld og hún er ekkert til sölu.“ Einar Sigfússon, sem á hina fengsælu Haffjarðará á Snæfellsnesi sunnanverðu ásamt Óttari Yngvarssyni, undrast ramman orðróm sem hefur verið á kreiki undanfarið, þess eðlis að kunnir fjármálamenn hafi keypt af þeim ána fyrir tæpan milljarð króna. Hann segir fjölda manna hafa haft samband við þá félaga síðustu daga, til að athuga hvort orðrómurinn eigi við rök að styðjast. „Ég hef beðið menn að láta mig vita ef þetta reyndist satt, svo ég gæti sótt dótið mitt í veiðihúsið,“ segir Einar og hlær. „En það hefur alls ekki staðið til að selja. Samstarf okkar Óttars hefur verið mjög gott, alveg síðan ég keypti minn hlut árið 1996. Ég hef vissululega fengið tilboð frá nokkrum aðilum gegnum tíðina – en ekkert frá þeim sem sagan segir að séu búnir að kaupa ána. Ég skil ekki hvernig svona sögur verða til.“ Haffjarðará hefur verið með bestu laxveiðiám landsins um áraraðir. Síðasta sumar veiddust 1133 laxar á 6 stangir og sumarið 2003 rúmlega 1000 laxar. „Veiðin í Haffjarðará er alveg sérstök,“ segir Einar. „Áin er sjálfbær, það eru aldr- ei sett í hana seiði. Á síðasta ári veiddumst um 2,7 fiskar á stöng á dag og veiðin hefur verið mjög jöfn. Veiðimenn taka það iðulega rólega við ána, eru að veiða svona átta tíma á dag.“ Hann segir vongóða veiðimenn á biðlistum eftir að veiða í ánni. „Við erum alltaf búnir að ganga frá sölunni að hausti og það er mjög ánægjulegt.“ Tilboð í Víðidalsá Frá því hefur verið greint að Einar hafi átt hæsta boð í ný- legu útboði í laxa- og silungasvæði Víðdalsár, eða 52 millj- ónir á ári. Á síðustu dögum hefur heyrst að tilboðsaðilum sem áttu lægri boð, sem ekki voru sundurliðuð, hafi verið leyft að breyta sínum tilboðum. Þegar Einar var spurður hvort hann kannaðist við það, varðist hann allra frétta en sagði að stjórn veiðifélagsins myndi líklega kynna sínar hug- myndir fyrir félagsmönnum veiðifélagsins í byrjun apríl. Haffjarðará ekki seld Morgunblaðið/Guðrún Bergmann Einar Sigfússon, annar eigenda Haffjarðarár, segir ána ekki til sölu. Hér eru þeir Guðlaugur heitinn Bergmann með 11 punda lax við veiðistaðinn Gretti. mbl.is smáauglýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.